Morgunblaðið - 25.04.1981, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 25.04.1981, Blaðsíða 48
Síminn á afgreiöslunni er 83033 JH*r0unbl<tbit> Síminn á afgreióslunni er 83033 JHvrgunbtabib LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1981 Rannsaka stórfellt ávisanamisferli: Þrír piltar í gæzluvarðhald? ItannMiknarloKrcKla rikisins krafðist í Kærkvoldi Ka.“zluvarft- halds yfir þrcmur piltum á aldrin- um 16—17 ára, scm Krunaðir cru um stórfollt ávísanamisfcrli. Rannsókn málsins er á frumstÍKÍ ok varðist Þórir Oddsson, vararann- sóknarlöKreKlustjóri, allra frétta þe^ar Mhl. hafði samband við hann í Kærkvöidi. íslenzkur sjó- maður í Murmansk: Fékk ekki leyfi til að lesa is- lenzk blöð ISLENZKUR sjómaður hcfur lcKÍð í sjúkrahúsi I sovézku hafnarborK- inni Murmansk, skipverji á Háa- fossi. Samkvæmt upplýsinKum Ólafs Björnssonar, loftskeyta- manns. formanns FclaKs islcnzkra loftskcytamanna. voru nokkur is- lcnzk skip stödd þar fyrir skömmu ok ætluðu að færa hinum sjúka íslcnzk hlöð. Það var þá hannað af yfirvöldum ok fcnKU sjómcnnirnir ckki að færa fclaKa slnum blöðin. Sjómennirnir, sem voru í Murm- ansk, ætluðu að færa sjómanninum íslenzk blöð, þar sem hann hafði ekkert nýlegt lesefni haft. „Þeir neituðu sjómönnunum um að færa honum blöðin ok fékk hann ekki einu sinni Þjóðviljann, hvað þá önnur blöð,“ saKði Ólafur í samtali við MorKunblaðið. TVEIR HARÐIR ÁREKSTRAR URÐU AÐFARANÓTT SUMARDAGSINS FYRSTA. í íyrri árekstrinum, sem varð á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar slösuðust 9 menn og var myndin hér að ofan tekin i þann mund, sem lögreglan kom á staðinn. 7 manns slösuðust svo er ekið var aftan á ljóslausa og kyrrstæða bifreið á Vesturlandsvegi. 1 gær slasaðist einn maður i árekstri á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar. Ókumaður annarrar bifreiðarinnar ók þá í veg fyrir hinn á röngu ljósi. Sjá blx. 2fi. Ljósmynd Júlíus. Aðalfundur Flugleiða: Útlit er fyrir jákvæða af- komu A tlan tshaf sf 1 ugsins Þrír nýir menn í 9 manna stjórn Flugleiða „VARÐANDI reksturinn á þessu ári er frá því að segja að sú rckstraráætlun, sem gerð hefur verið nær aðeins til septemberloka Heklan seld til Ekvador fyrir um 6,6 milljónir kr. Samningaviðra’ður um sölu á strandferðaskipinu Heklu eru nú á lokastigi og er líklegt að fyrirtæki i Ekvador kaupi skipið á um eina milljón dollara eða 6.650 þúsund krónur. Ef samn- ingar takast verður Heklan af- hent í evrópskri höfn um mán- aðamótin maí-júní. en væntan- legir kaupendur í Ekvador hyggjast nota skipið til flutn- inga á milli Ekvador opg Galap- agoseyja. Guðmundur Einarsson, for- stjóri Skipaútgerðar ríkisins, sagði í samtali við Mbl., að ekki hefði verið fyrirhugað að selja Heklu svo snemma, en er hag- stætt tilboð barst þótti ekki ástæða til að bíða lengur. Hekla er smíðuð hjá Slippstöðinni á Akureyri árið 1970. Skipið er því að verða 12 ára gamalt og sagði Guðmundur að það hefði m.a. ýtt undir við sölu á skipinu að í mörgum löndum eru reglur um að ekki megi flytja inn skip eldri en 12 ára. Utboð stendur nú yfir á smíði skips fyrir Ríkisskip og verða tilboð opnuð 4. júní. Guð- mundur sagði, að ætlunin væri að brúa bilið þar til nýja skipið kemur, með leiguskipum. Vöruflutningar Ríkisskips voru meiri fyrsta fjórðung þessa árs en nokkurn tíma áður og t.d. rúmlega 24% meiri en fyrsta ársfjórðung í fyrra. Ríkisskip flutti rúmlega 26 þúsund tonn fyrstu þrjá mánuði ársins og er aukningin á mörgum sviðum, en þó aðallega vegna þess að veruleg aukning hefur orðið á flutningum fyrir hin skipafélögin við að safna saman og dreifa milli- landafragt. þar sem óvissa ríkir um framhald i rekstri á Norður-Atlantshafsflug- inu eftir þann tima þar sem könnun er i gangi varðandi þann rekstur, rekstraráætlun gerir ráð fyrir jákvæðri afkomu þessa 9 mánuði að upphæð 2800 millj. gkr.,“ sagði Sigurður Helgason, forstjóri Fluglciða i ræðu sinni á aðalfundi Flugleiða í gær. Hann kvað reskturinn það sem af er árinu standast áætlun að mestu leyti og væri útlit fyrir að svo yrði á tímabilinu eins og staðan væri. Inn í þessa 9 mán. áætlun var tekinn stuðningur ríkisstjórna Islands og Luxemborgar upp á 3 þús. millj. g.kr. Búist hafði verið við talsverðum sviptingum á aðalfundinum, en hann fór mjög friðsamlega fram og lauk á óvenju stuttum tíma. Að loknum skýrslum Sigurðar Helga- sonar forstjóra og Arnar Ó. Johnson stjórnarformanns, urðu nokkrar umræður og tillögur komu fram, en síðan fór fram stjórnarkosning. Þrír menn gengu úr stjórn, þeir Bergur Gíslason, Alfreð Elíasson og Sigur- geir Jónsson. Bergur G. Gíslason, sem átti sæti í stjórn félagsins til aðalfundar 1982, sagði starfi sínu lausu. Alfreð Elíasson baðst undan endurkjöri. Við stjórnarkosningu komu fram uppástungur um fjóra menn í aðal- stjórn. Það voru: Óttarr Möller, Sigurður Helgason, Örn Ó. Johnson og Kristjana Milla Thorsteinsson. Þar sem fleiri uppástungur komu ekki fram, urðu þau sjálfkjörin. Til varastjórnar komu fram uppástung- ur um þrjá, þá Dagfinn Stefánsson, Einar Arnason og Óiaf Ó. Johnson. Þá tilnefndi fjármálaráðherra, f.h. ríkissjóðs, tvo menn í stjórn Flug- leiða, þá Rúnar B. Jóhannsson, endurskoðanda, til tveggja ára og Kára Einarsson, verkfræðing, til eins árs. Tillaga hafði komið fram á fund- inum um það að ríkissjóður fengi að tilnefna tvo fulltrúa í níu manna stjórn Flugleiða og var sú tillaga samþykkt með 99,18% atkvæða. í stjórn Flugleiða næsta ár eiga sæti: Kristinn Olsen, Grétar Br. Kristjánsson, Halldór H. Jónsson, Óttarr Möller, Sigurður Helgason, Örn Ó. Johnson, Kristjana Milla Thorsteinsson, Rúnar B. Jóhanns- son og Kári Einarsson. I varastjórn: Ólafur Ó. Johnson, Einar Árnason og Dagfinnur Stef- ánsson. Sjá tniÖHlðu. Steypa þarf að hækka um 25% „ÞAÐ ER ekki endalaust hæKt að reka steypusölu með tapi“, sagði VíKlundur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri BM Vallá hf., i samtali við MorKunblaðið i gær. Steypustöðvarnar fóru fram á 19% hækkun á þeirra hluta steypuverðsins í lok síðasta árs og fengu 9% hækkun í desember með loforði um leiðréttingu í janúar að sögn Víglunds. Sú leiðrétting hefur enn ekki fengist og sagði Víglundur að nú væri 25% hækkun á þeirra hluta steypuverðsins orðin nauðsynleg. Komi til hækkunar á sementi kemur hún sjálfkrafa inn í steypuverðið. Nýtt frumvarp Hjörleifs: Ekki lengur röð- un á virkjunum í DRÖGUM að frumvarpi, sem Hjörlcifur Guttormsson, iðnaðar- ráðherra, hefur laKt fyrir ríkis- stjúrnina, er gert ráð fyrir heimild til ríkisstjórnarinnar um Blöndu- virkjun, Fljótsdalsvirkjun og Sult- artangavirkjun. Virkjunarkustun- um cr ckki raðað cftir forgangsröð i þcssum frumvarpsdrögum, held- ur er um að ranla heimildarákvteði til ríkisstjórnarinnar um þessar þrjár virkjanir. Ríkisstjórnin hef- ur ckki tekið cfnislega afstöðu til þessara frumvarpsdraga, cn stuðn- ingsmcnn rikisstjórnarinnar ræddu drögin í gær. Fyrir um þremur vikum kynnti Hjörleifur Guttormsson drög að frumvarpi, sem hann hafði unnið um virkjunarkosti. Þar var Fljóts- dalsvirkjun sett efst á blað. Að virkjun í Fljótsdal lokinni var gert ráð fyrir Blönduvirkjun og loks Sultartangavirkjun. Þessi frum- varpsdrög mættu mikilli andstöðu, m.a. innan Alþýðubandalagsins, og hefur Hjörleifur nú endurskoðað og samið nýtt frumvarp um virkjun- arkosti og framkvæmdir án þess að setja virkjanaframkvæmdirnar sjálfar í ákveðna röð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.