Morgunblaðið - 25.04.1981, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 25.04.1981, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1981 41 félk í fréttum Apríl í París + Á morgun, sunnudag, ganga Frakkar að kjörborðinu og kjósa þjóðhöfðingja franska lýðveldisins. — Þessi mynd er tekin við fraegustu breiðgötu heims, Champs Elysees, í París, fyrir nokkrum dögum. Unga stúlkan, sem er á leið til vinnu sinnar virðir fyrir sér kosningaspjöld við breiðgötuna miklu, til stuðnings við núverandi forseta Frakklands, Giscard d’Estaing, sem nú ætlar að reyna að ná endurkjöri. — Það er fyrri umferð forsetakosninganna, sem fram fer á morgun, en síðari umferðin fer fram 10. maí næstkomandi. + Það mun æði sjaldgæft að konur sjáist við hin grænu borð á knattborðsstofum. Elstu menn eru t.d. sagðir ekki minn- ast þess að hafa séð mynd af drottningu leikandi billjard! — En hér er það engin önnur en Elizabeth drottningarmóðir af Bretlandi, sem er við knattborð með kjuðann og býr sig undir að skjóta. Myndin er tekin af henni í félagsheimili breskra blaðamanna. Hún var gestur þeirra fyrir nokkru í tilefni af áttræðisafmæli sínu. Erfitt um að segja í þvílíku veðri. Ég held ’ann hafi snúið til baka! Mega „afhjúpa “ sig + Andleg yfirvöld í íslamska rík- inu Saudi-Arabíu hafa komist að þeirri niðurstöðu að, giftingar- venjur þar í landi séu í andstöðu við trúarrit þeirra, Kóraninn. Eins og menn vafalaust vita er það hefð að andlit brúðarinnar sé sveipað slöri þannig að brúðguminn fær ekki að sjá framan í verðandi konu sína fyrr en að athöfninni lokinni. Hópur lærðra kennimanna hefur nú látið þau boð út ganga, að verðandi brúður megi bókstaflega „afhjúpa" sig strax að lokinni trúlofun. Gamla hefðin hefur skapað nokkur vandamál. Algengt hefur verið að brúðguminn sendi móður sína eða systur til þess að líta á brúðina og þannig aflað sér upplýsinga. í slíkum heimsóknum var það hefð að móðir brúðgumans tæki með sér hnetur og krefðist þess að verðandi brúður bryti þær með tönnunum til þess að komast að styrkleika tannanna og eins hvort þær séu örugglega ekki gervitennur! Aumingja brúðurin mátti einnig eiga von á svipaðri tilraun með hár sitt. Gjarnan reif þá verðandi tengdamóðir hennar í það til að reyna styrkleika þess og uppruna! Breytingar þessar hafa hlotið mismunandi viðtökur. Ungt fólk er þeim mjög hlynnt en hinir eldri óttast að aldagömul hefð, og þar með hluti af menningunni, leggist af og glatist. Lofttjakkur Notar útblástur vélarinnar til aö lyfta bifreiðinni við flest skilyrði t.d. í snjó, leðju eða sandi. Hentar vel ef þarf að færa bifreiðina til ef hún hefur lent utan vega. Lyftikraftur 2 tonn. Lyftihraði ca. 30—50 sek. í hægagangi. Verð kr. 948,00. Sehdum í póstkröfu um land allt, upplýsingar í símum 92-1190 og 1520. Heilsugæslustöð á Fáskrúðsfirði Heildartilboð óskast í innanhússfrágang á Heilsu- gæslustöö á Fáskrúösfiröi. Innifalið í verkinu er t.d. múrhúöun, pípulagnir, raflagnir, dúkalögn, málun, innréttingasmíöi, auk lóöarlögunar. Verkinu skal aö fullu lokiö 1. júlí 1982. Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Borgar- túni 7, Reykjavík gegn 1.000.- kr. skilatryggingu. Tilboö verða opnuö á sama staö þriðjudaginn 12. maí 1981 kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 MORGUNBLAÐIÐMORG MORGUNBLAÐIÐMOR MORGUfý^LAÐIÐMQ5’ MORGU7 MORGl/ýí //" Blað- buróar- fólk óskast Austurbær Freyjugata frá 28—49 ÐtÐMORGUNBLAÐiU ^QMORGUNBLAÐIÐ 9GUNBLAÐIÐ LNBLAÐIO 5LAÐIÐ IBLAÐIÐ 'ALAÐIO ^AÐIÐ \AO\D 3\ÐIÐ 3ÐIÐ SBLAÐIÐ ^Í-AOIÐ IkDID MORGUNBLAOío MORGUNBLAÐIOMb Hringið í síma 35408 * ÍNBLAÐIÐMC oumOIO tBLAÐID ^LAÐIO ftBLAÐIÐ /ONBLAÐIÐ /iUNBLAÐIÐ feUNBLAOIÐ IGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.