Morgunblaðið - 25.04.1982, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 25.04.1982, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1982 t Faöir okkar, JÓN E. JÓNASSON frá Mel, andaöist í Borgarspítalanum í Reykjavík á sumardaginn fyrsta. Baldur Jónsson, Halldór Þ. Jónsson, Magnús Jónsson. Reynir Guðmundur Jónasson — Minning t Móöir okkar, ÞORBJÖRG GUDMUNDSDÓTTIR, fyrrverandi Ijósmóöir I Ólafsvík, til heimilis aö Háageröi 67, lést í Landspitalanum aöfararnótt 23. aprfl. Fyrir hönd ættingja, Guömundur Ársælsson, Ingibjörg Steinþórsdóttir, Bergþór Steinþórsson, Oddgeir Steinþórsson. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, JÓN ÞÓRDARSON, prentari, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 26. apríl kl. 3 e.h. Blóm vinsamlega afþökkuö, en þeir sem vildu minnast hans, láti Rauöa kross Islands njóta þess. Jóhanna Lúövíksdóttír, Hrefna Jónsdóttir, Hulda Jónsdóttir, Björn L. Jónsson, Steinunn Jónasdóttir, Gréta Jónsdóttir, Þóröur Garöarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Kæddur 23. janúar 1955 Dáinn 18. apríl 1982 Reynir Guðmundur var sonur Jónasar pípulagningameistara Valdimarssonar, bónda á Göngu- skörðum í Svarfaðardal, Júlíus- sonar og konu hans, Hrefnu Magnúsdóttur trésmiðs Þor- steinssonar. Foreldrar Reynis bjuggu í Reykjavík og var hann í foreldra- húsum, þar til hann for til náms erlendis. Reynir stundaði nám í Mennta- skólanum í Reykjavík og lauk það- an stúdentsprófi 1975, innritaðist sama ár í Verkfræðideild Háskóla íslands og lauk þaðan prófi í bygg- ingarverkfræði 1979. Sumarið 1979 starfaði hann á Verkfræði- stofunni Hönnun hf. í Reykjavík, en hóf nám við The Ohio State University í Columbus í USA þá um haustið og lauk þaðan MS- prófi í byggingarverkfræði, með vatnafræði sem sérgrein, síðla sumars 1980. Reynir hóf síðan störf hjá Almennu verkfræði- stofunni hf. um miðjan okt. 1980 og vann þar að ýmsum verkefnum, aðallega að áætlanagerð virkjana. Þó kynni okkar af Reyni yrðu mikið skemmri en við hefðum kos- ið, var okkur samt ljóst, að hann hafði með menntun sinni og störf- um í námsfríum aflað sér þekk- ingar, sem samhliða meðfæddri náttúrugreind og eljusemi, gerði hann að eftirsóttum starfsmanni. Hjá honum fór saman skjótleiki Verð kr. 10.800.00. Beint flug til ZUrich 2ja vikna feróir: 30. maí — 13. júní og 13.—27. júní. Gisting 1 nótt í Zúrich. 6 daga hringferö: Zurich — Lichtenstein — Lugano — Lausanne — Bern — Luzern og vikudvöl í Interlaken í Berner Oberland. Vikuferöir: 30. maí — 6. júní og 13.—20. júní. Gisting 1 nótt í Zúrich og 6 daga hringferö, sama tilhögun og lýst hér aö ofan og gisting 1 nótt í Interlaken. 20.—27. júní: Verð kr. 7.600.00. Dvaliö í Interlaken í Berner Oberland. Skoöunarferöir um nágrenniö og siglingar á Thun- og Brienzvatni. Verö kr. 6.800.00. Innifaliö í veröi í öllum ofangreindum feröum: Flug til og frá ZUrich, gisting í 2ja manna herbergjum meö baöi, morgun- og kvöldveröur. Einnig bjóöum viö flug og bílaleigubíla. 30. maí, ein vika, flug og bíll. 4 ( bll 3 1 bíl 4.600.- pr. mann 4.800,- pr. mann Fíat 127 Ford Escort VW-Golf 30, maí, Ivær vikur, flug og bíll Fíat 127 Ford Escort VW-Golf Opel Kadett 2 í bíl 5.200,- pr. mann 4.800.- pr. mann 5.100,- pr. mann 5.500,- pr. mann 4 í bíl 7.000,- pr. mann 3 í bíl 2 i bíl 7.200.- pr. mann 7.600. pr. mann 8.200,- pr. mann 8.500.- pr. mann 8.900.- pr. mann Verö eru miöuö viö gengisskráningu 20. apríl 1982. Leitiö nánari upplýsinga. Feröaskrifstofa Guömundar Jórtassonar hf., Borgartúni 34, 105 Reykjavík, sími 83222. við að gera sér grein fyrir eðli viðfangsefnanna og hagsýni og vandvirkni við úrlausn þeirra. Reynir hafði notað sína stuttu ævi til að undirbúa sig vel undir lífsstarf sitt sem hann hafði rétt hafið, þegar hann var í skyndi burt kallaður. Svo skyndilega, að við sem með honum unnum, ger- um okkur varla grein fyrir því, að við eigum ekki oftar eftir að njóta stunda með honum að starfi og leik. Þegar ungir hæfileikamenn eins og hann eru brott numdir strax að loknum sínum undirbúningi að lífsstarfi, vakna spurningar um tilgang lífs okkar mannanna hér á jörðinni, spurningar, sem við finn- um ekki svör við. Reynir leit til framtíðarinnar með eftirvæntingu eftir að takast á við þau verkefni, sem voru í augsýn og eins þau, sem framtíðin myndi bera í skauti sínu. Með brottkvaðningu hans er skilið eftir skarð, sem verður vandfyllt. Þó samveru okkar og Reynis heitins sé nú lokið og við fáum ekki að njóta lengur návist- ar hans, geymum við minningu um góðan félaga og góðan dreng, hvort heldur var við leik eða al- vöru starfsins. Við sendum foreldrum hans og ástvinum öllum hugheilar samúð- arkveðjur um leið og við þökkum fyrir þær stundir sem við áttum með Reyni. Starfsfólk Almennu verk- frsðistofunnar hf. „Ein hreyfing, eitt orð, og á ör- skots stund örlaga grunn við leggjum." Mikil sannindi felast í þessum Ijóðlínum Einars Bene- diktssonar, sem nú eru undirstrik- uð á svo sorglegan hátt: Skólafé- lagi og vinur er numinn burt í blóma lífsins. Vorið, sem færisl nú yfir, víkur skyndilega úr huganum fyrir harmi og eftirsjá. Það er erf- itt að skilja hver tilgangur mátt- arvaldanna er með því að grípa svo fyrirvaralaust og að manni finnst á óréttlátan hátt inn í líf okkar, og nema á brott þann, sem var okkar fremstur. Reynir var ekki í þeim hópi manna er alls staðar hefur sig í frammi, þvert á móti var hann hæglátur og lítt fyrir að berast á. Þrátt fyrir það urðum við hin hinsvegar fljótt vör við hvern mann hann hafði að geyma. Það var alveg ljóst, að þar fór hæfi- leikamaður. Verk hans á háskóla- árunum voru örugg vísbending um það. Þau voru leyst af manni, sem fljótur var að tileinka sér nýja hluti og skilja aukaatriði frá aðal- atriðum. Reynir var samvisku- samur og góður námsmaður, en hann var einnig reiðubúinn að slá á léttari strengi og krydda annars tilbreytingarlausa námsáraævina ánægjulegum augnablikum. Minningin um Reyni vekur ætíð bjartar og hlýjar hugsanir um traustan og góðan félaga, en það er sá eini minnisvarði, sem skipt getur máli. Okkur er þetta styrkur á erfiðum tímamótum, sem mildar tregann á komandi tímum. Um leið og við sendum foreldrum og öðrum ættingjum Reynis samúð- arkveðjur, þökkum við fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynn- ast honum og eiga hann fyrir vin. Byggingarverkfræðingar frá HÍ 1979 t REYNIR GUDMUNDUR JÓNASSON, verkfrsaöingur, sem lést af slysförum þann 18. apríl síöastliölnn, veröur jarösung- inn frá Fossvogskapellu, mánudaginn 26. apríl, kl. 13.30. Guörún Teitsdóttir, Arndís Reynisdóttir, Hrefna Magnúsdóttir, Jónas Valdimarsson, Unnur Kristinsdóttir, Valdimar Jónasson. t Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og jaröarför, INGÓLFS NÍELSSONAR. Haflína Björnsdóttir, Regína Ingólfsdóttir, Egill Jónsson, Níels Ingólfsson, Svanhvít Hafsteinsdóttir, Björn Ingólfsson, Rósa Jónasdóttir, Ásgrímur Ingólfsson, Unnur Sigtryggsdóttir. t Alúöarþakklr til ykkar, sem heiöruöu minnlngu og vottuöu samúö viö andlát og jaröarför móöur okkar. tengdamóöur, systur, ömmu og langömmu, RAGNHEIDAR JÓNÍNU ÁRNADÓTTUR frá Tröllatungu. Sérstakar þakkir færum viö starfsfólkl Hrafnistu, dvalarheimilis aldraöra sjómanna í Reykjavík. Kristrún Daníelsdóttir, Árni Daníelsson, Þórir Daníelsson, Stefán Daníelsson, Sigurbjörn Ólafsson, Ingibjörg Árnadóttir, og barnabörn og barnabarnabörn. Ingimundur Guömundsson, Helga Rósmundsdóttir, Svanhildur Kjartans, María Jóhannesdóttir, Fjóla Guömundsdóttir,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.