Morgunblaðið - 25.04.1982, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 25.04.1982, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1982 41 Á morgun verður lagður til hinstu hvíldar Reynir G. Jónas- son, sem var einn af stofnendum körfuknattleiksdeildar Knatt- spyrnufélagsins Fram. Fyrstu ár- in var Reynir fastur leikmaður með meistaraflokki félagsins, eða þar til hann hélt utan til framhaldsnáms. Að loknu verk- fræðinámi, á síðastliðnu sumri, kom Reynir heim og hóf þá þegar störf í þágu körfuknattleiksdeild- ar Fram. í haust sem leið tók Reynir sæti í stjórn Körfuknatt- leiksráðs Reykjavíkur sem fulltrúi félags síns, og væntum við, samstarfsmenn hans þar, mikils af honum á komandi árum. En örlögin gripu í taumana. Við sjáum á bak góðum samherja og frábærum féiaga. Stjórn Körfu- knattleiksráðs Reykjavíkur vill þakka Reyni samstarfið og sendir t foreldrum hans og öðrum aðstand- endum innilegustu samúðarkveðj- ur. Minning um góðan dreng lifir í hugum okkar. Hvíli hann í friði. Körfuknattleiksráð Reykjavikur, Sig. V. Halldórsson, formaður. Þegar kær og traustur vinur er svo sviplega hrifinn brott eru orð lítils megnug að lýsa sorg og sökn- uði. Reynir var mjög farsæll maður og einstakur atgervismaður til lík- ama og sálar. Það kom fram jafnt í leik, námi og starfi. Hann var ágætur íþróttamaður og frábær námsmaður, en það væri ekki í anda Reynis að hampa afrekum hans, þau vann hann til að efla eigin styrk, ekki til að flagga fyrir öðrum. Efst í huga er þó þakklæti fyrir það lán að eignast svo traustan og kæran vin sem Reyni. Og eftir standa hlýjar minningar um þær ótöldu samverustundir sem við áttum og aldrei verða á brott teknar. Foreldrum, bróður og litlu dótt- ur Reynis vottum við okkar dýpstu samúð. Megi allt gott styrkja þau í þessari miklu sorg. „Frændi, þegar fiðlan þegir, fuglinn krýpur lágt að skjóli, þegar kaldir vetrarvegir villa sýn á borg og hóli, sé ég oft í óskahöllum, ilmanskógum betri landa, Ijúflíng minn sem ofar öllum islendingum kunni að standa, hann sem eitt sinn undi hjá mér einsog tónn á fiðlustreingnum, eilíft honum fylgja frá mér friðarkveðjur brottu geingnum. I>ó að brotni þorn í sylgju, þó að hrökkvi fiðiustreingur, eg hef sæmt hann einni fylgju: óskum mínum hvar hann geingur." (Halldór Laxness) Felix og Héðinn Sunnudagsmorgun 18. apríl bár- ust mér þau sorgartíðindi að góð- ur kunningi og samstarfsmaður, Reynir G. Jónasson, hefði þá um nóttina látist í umferðarslysi. Þetta kom sem reiðarslag, því kvöldið sem þessi hörmulegi at- burður átti sér stað höfðum við Reynir ásamt vinum komið saman og átt góða stund. Hafði Reynir þá sem oftast áður verið hrókur alls fagnaðar og geislað af lífsgleði. Ekki hefði það hvarflað að nokkrum að innan fárra tíma yrði Reynir allur. Oft er skammt á milli gleði og sorgar. Erfitt er á slíkum stundum að skilja tilgang lífsins þegar ungum og efnilegum manni er svipt í burtu í blóma lífs- ins. Við Reynir ólumst upp í Laug- arneshverfinu og lágu leiðir okkar þá saman við leiki og bernskubrek. Á unglingsárum skildu leiðir en kynni endurnýjuðust er við um svipað leyti hófum störf á Al- mennu verkfræðistofunni. Reynir var góður vinur, traustur og fær samstarfsmaður sem gott var að leita til þegar vanda bar að hönd- um. Um mannkosti Reynis er óþarfi að fjölyrða meira því líf hans og störf báru þess glöggt vitni. Á þessari stundu er mér efst í huga þakklæti fyrir þau góðu kynni er ég hafði af Reyni. Eg votta aðstandendum hans samúð mína vegna fráfalls góðs drengs. Tryggvi Jónsson Á morgun verður kvaddur hinstu kveðju Reynir Guðmundur Jónasson, fæddur 23. janúar 1955. Við minnumst Reynis frá upp- hafsdögum körfuknattleiksdeildar FRAM, sem einhvers dyggasta og besta félaga hennar. Hann varð fljótlega einn af burðarásum fé- lagsins jafnt í leik sem félags- starfi. Stuttu eftir að hann gekk í félagið, á fyrsta starfsári þess, þá fimmtán ára, tók hann að sér starf gjaldkera deildarinnar og gengdi því starfi um nokkurra ára skeið. Á námsárum í háskóla hætti Reynir beinum störfum fyrir deildina. Sl. haust þegar að ljóst var að körfudeildin átti við erfiðleika að stríða og gera þurfti átak til að efla starfssemi hennar var ákveð- ið að leita til eldri félaga til hjálp- ar. Það var engin tilviljun að leit- að var til Reynis, sem þá var ný- kominn frá námi ytra og hann beðinn um að taka að sér starf gjaldkera, sem hann og gerði. Það starf rækti hann af stakri prýði, eins og allt annað sem hann tók að sér að gera fyrir deildina. Úrvalsdeildarlið FRAM í körfu- knattleik náði besta árangri ís- lenskra félagsliða síðastliðið keppnistímabil. Við vitum að þátt- ur Reynis skipti afar miklu í vel- gengni félagsins í ár. Körfuknattleiksdeild FRAM sér nú á bak einum sinna bestu félaga og við minnumst með þakklæti ótal ánægjustunda er við áttum með Reyni. Minningin um góðan dreng lifir með deildinni. Að- standendum hans vottum við okkar innilegustu samúð. Félagar í körfudeild FRAM. Lokað frá hádegi mánudaginn 26. apríl vegna útfarar, REYNIS G. JÓNASSONAR verkfræöings. Almenna Verkfræðistofan hf., Fellsmúla 26. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sími 81960 Það er vorið ’75, seint í maí. Ut úr Háskólabíói gengur ungt fólk, flestir með hvíta kolla. Allir eru áhyggjulausir, fullir bjartsýni. Einn í hópnum er Reynir, svarthærður, dökkur yfirlitum, glæsilegur maður með frábært stúdentspróf upp á vasann. Fjór- um árum í MR er lokið. Framtíðin er björt. Reyni kynntist ég fyrst vel, þeg- ar við byrjuðum í MR. Við vorum einir sex strákar úr Laugalækj- arskóla, sem allir lentum í sama bekk, þannig myndaðist góður kjarni sem hélt vel saman öll menntaskólaárin. Einn úr vestur- bænum bættist við. Undirritaður bjó einn í stórri íbúð og það var því tilvalið að hitt- ast þar eftir skóla og um helgar. Enginn forystusauður var í hópn- um, en hver um sig hafði sína sér- stöðu, vináttuböndin urðu órjúf- anleg. Reynir var glaðlyndur og skap- mikill en kunni vel að hemja skap sitt. Hann var hlédrægur, en í góðra vina hópi gat hann verið stríðinn. Hann bar ekki tilfinn- ingar sínar á torg, en var tilfinn- ingaríkur. Rökfesta og hógværð voru hans aðalsmerki. Eftir stúdentspróf varð að hugsa fyrir framtíðarstarfi. Reyn- ir hafði einstaka hæfileika á sviði stærðfræðinnar enda valdi hann verkfræði sem sitt framtíðarfag. Hann lauk prófi frá Háskóla ís- lands og hélt strax til Bandaríkj- anna, þar sem hann lauk fram- haldsnámi fyrir um það bil ári. Starfsævin varð því stutt. Vinahópurinn hélt áfram að hittast þó við værum í mismun- andi námi, alltaf var jafn glatt á hjalla. Fyrir skömmu þegar ég hitti Reyni, skammaði hann mig fyrir að hafa ekki boðið hópnum heim í vetur. Ég bar því við að það væri svo mikið að gera í mínu námi, en við skildum hittast allir í vor. Til þess hlakkaði ég mikið. Það bar einnig á góma, hversu viðhorf okkar til lífsins og tilverunnar hefðu breyst þessi ár öll. Samt fá engin ný viðhorf breytt vináttu sem myndast á jafn viðkvæmum árum og menntaskólaárunum. Nú er að koma vor, en vorið sem átti að verða svo bjart hefur breytt um svip. Við vinir Reynis erum harmi slegnir en geymum minningu um góðan dreng. Lítil stúlka hefur misst föður sinn en hún var honum og fjöl- skyldu hans mjög kær. Ég votta Jónasi, Hrefnu, Valdimar og öðr- um ástvinum Reynis samúð mína. Veri hann sæll, ég hlakka til að hitta hann hinum megin. Sigurður Kristjánsson Bókin með nýju húsunum frá Húseiningum erkomin! Rúmlega 80 litprentaöar blaðsíður með margvfslegum upplýsingum og teikningum eftir Bjarna Marteinsson, Helga Hafliðason og Viðar A. Olsen. Teikningarnar I bókinni gefa hugmyndir um byggingu einlyftra og tví- lyftra einbýlishúsa fyrir viðráðanlegt verð, - sambærilegt við góða tbúð í fjöl - býlishúsi í Reykjavfk. Bókin er ókeypis. Hafið samband við Húseiningar h/f á Siglufirði, sfmi 96-71340 eða söluskrifstofuna í Reykjavík, Laugavegi 18, sími 91-15945 og bókin fer í póst til ykkar samdægurs. HÚSEININGAR HF SVARSEÐILL Vinsamlega sendið mér eintak af bókinni, mér að kostnaöarlausu! Nafn Heimilisfang: Póstnr.: Sími:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.