Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 14
62 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1982 1. maí ávarp Fulltrúaráðs verkalýðsfél. í Reykjavík, BSRB og Iðnnemasambands Islands: Gerum þá kröfu til ríkisvaldsins að það grípi ekki inn í samninga Morgunblaðinu hefur borizt 1. maí ávarp Fulltrúaráðs verkalýðs- félaganna í Reykjavík, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og Iðnnemasambands Islands, árið 1982. Ávarpið er svohljóðandi: 1. maí leggur launafólk áherslu á stefnumið verkalýðshreyfingar- innar; breyta auðlegðar- og valda- hlutföllum í þjóðfélaginu alþýð- unni í hag og færa ákvörðunar- valdið frá hinum fáu til hinna mörgu. Að koma á jöfnuði í skipt- ingu eigna og tekna. Útrýma fá- tækt, koma á félagslegu jafnrétti, tryggja fulla atvinnu og bæta starfsumhverfi. Vinna að betra og réttlátara þjóðfélagi, friði og ör- yggi- Stefnumiðum verkalýðshreyf- ingarinnar hefur ekki og verður ekki hrundið í framkvæmd nema til komi samstaða verkafólks. Samstaða og samvinna er styrkur alþýðuhreyfingar. Aðför að þeirri samvinnu verður mætt með fullri hörku. 1. maí, á alþjóðlegum baráttu- degi verkafólks, sýnum við sam- stöðu með félögum okkar um allan heim, með það í huga, að enn býr meirihluti mannkyns við ófrelsi, ófrið, hungur og fáfræði. Verum þess minnug, að enn hefur aukist bilið milli ríkra þjóða og snauðra. Grundvallarmannréttindi eru lít- ilsvirt og heilum þjóðum haldið í helgreipum hervalds. Vopnabúrin stækka, helsprengjum fjölgar, hverskonar stríðsrekstur og hern- aðarbrölt er stóraukið. Islensk alþýða er andvíg hvers- konar hernaðarbrölti og fram- leiðslu gereyðingarvopna. Við lýs- um samstöðu með þeim öflum, sem berjast fyrir friði og afvopn- un. Við mótmælum öllum áform- um um aukin hernaðarumsvif á landi okkar og í hafinu umhverfis það. Fyrir herstöðvarlausu landi, utan allra hernaðarbandalaga. íslenskt verkafólk styður frið- sama baráttu fyrir réttlátari skiptingu auðs milli ríkra þjóða og fátækra. Við lýsum yfir stuðningi okkar við þá sem neyddir eru til þess að berjast gegn kúgun og frelsisskerðingu sinni. Við minn- um á, að mannréttindi eru ekki aðeins lítilsvirt í Póllandi og Tyrklandi, heldur einnig víða í Asíu, Afríku og Ameríku. Hinn 1. maí' 1982 stendur ís- lensk launþegahreyfing enn frammi fyrir nýjum átökum um launakjör sín. Harðvítug kjara- barátta kann að vera framundan vegna óbiigirni atvinnurekenda og ríkisvalds gagnvart réttlátum kröfum verkafólks. Þó því sé hald- ið fram 1 síbylju, að laun séu orsök verðbólgu, er flestum orðið það ljóst, að meginorsökin felst í óarðbærri framleiðslu og röngum fjárfestingum. Við gerum þá kröfu til ríkisvaldsins að það grípi ekki inn í gerða kjarasamninga svo að tryggt verði að þeir séu haldnir. Leiðrétta þarf launataxta til jafn- réttis og réttlátara launakerfis. Islenskt verkafólk þarf að búa við lengsta vinnudag sem þekkist á norðurhveli jarðar. Hver sá sem vinnur fullan vinnudag, dvelur að minnsta kosti helming vökutíma síns á vinnustað. Vinnustaðurinn skiptir því verulegu máli fyrir andlega og líkamlega líðan verka- fólks. Öryggi, hollusta og aðbún- aður á íslenskum vinnustöðum er veikasti hlekkurinn í heilsugæslu landsmanna. I fyrirbyggjandi heilsugæslu er hollusta og öryggi starfsumhverfis mikilvægasti þátturinn. Nú á Vinnuverndarári ASÍ skammtar fjárveitingavaldið, með stuðningi atvinnurekenda, Vinnueftirliti ríkisins svo naumt, að vinnuverndarstarfi og eftirliti verður vart við komið og því síður áframhaldandi uppbyggingu þess. 1. maí 1982 leggur reykvísk al- þýða áherslu á eftirfarandi kröf- ur: Fulla atvinnu fyrir allar vinnufærar hendur. Mannsæmandi laun fyrir 8 stunda vinnudag. Óskerta framfærsluvísitölu á öll laun. Betri aðbúnað á vinnustöðum. Meiri áherslu á hollustuhætti vinnustaða. Að tekið verði fullt tillit til vinnuverndarsjónarmiða, þeg- ar tekin er upp ný tækni, verk- skipulag og launakerfi. Fulla framkvæmd vinnuvernd- arlaganna. Aukið fé til vinnuverndar- rannsókna. öryggi gegn vinnuslysum og at- vinnusjúkdómum. Skattleysi lægstu launa. Verðtryggðan lífeyrissjóð allra landsmanna. Launagreiðslur í veikindum barna og maka. Atvinnulýðræði, með ákvörð- unarrétt í nýrri tækni. Stórátak í málefnum fatlaðra. Óskertan samnings- og verk- fallsrétt alls launafólks. Fram til sóknar og sigurs. Verum öll virk í starfinu að: frelsi, jafnrétti og bræðralagi. F.h. Fulltrúaráðs verkalýðs- félaganna í Reykjavík Kári Kristjánsson Stella Stefánsdóttir Einar Sigurösson llallgrímur G. Magnússon Garðar Steingrímsson Sigurður Pálsson Sigfinnur Sigurðsson F.h. Bandalags starfsmanna ríkis og bæja Sigurveig Sigurðardóttir Örlygur Geirsson F.h. Iðnnemasambands íslands Pálmar Halldórsson Þetta er / ■ n r er aaö KVnn® »eíö im hl? ”;Iuv>í'un'oVcK 0 —v oamatsu 97'Í7°'n- taoK'V Oa’^aVsU Ta« iePP'nn lráK..«»5; (meö ty*'' atgteias"J ^onxiotettWV 7 , Wuta H!§j •Wfltsu carittanl 126.029-- wnoflWH-"' VlöurK?"nd QS©01 a ouftve't °9 VaUö er a°°ve 5ru9ðl DAIHATSUUMBOÐIÐ ÁRMÚLA 23 sími 85870 - 39179

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.