Morgunblaðið - 03.09.1982, Side 1
56 SÍÐUR
193. tbl. 69. árg.
FOSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Anker Jörgensen segir af sér:
Engin samstaða um efiia-
hagsúrræði stjórnarinnar
Kaupmannahöfn, 2. september.
Frá Ib Björnbak, frétUritarm Mbl. og AP.
ANKER Jörgensen, forsætis-
ráðherra Dana, baðst í dag
lausnar fyrir sig og ráðuneyti
sitt, en án jjess að boða til nýrra
kosninga. Ástæðan fyrir því að
stjórnin fer frá er sú, að ekki
hefur náðst samstaða um efna-
hagsmálatillögur hennar, en all-
ir þingflokkar aðrir en flokkur
jafnaðarmanna hafa lagzt gegn
þeim.
Einnig hefur verið mikill
ágreiningur um tillögur Jörgens-
ens innan danska jafnaðar-
mannaflokksins og verkalýðs-
hreyfingarinnar. Hafa verka-
lýðsleiðtogar beinlínis lagt það
til við Jörgensen að hann segði
af sér. Um næstu helgi verður
landsþing jafnaðarmannaflokks-
ins haldið og má búast við að þar
verði harðar deilur um störf og
stefnu Jörgensens.
Líklegt er talið, að annað
hvort formanni danska íhalds-
flokksins, Poul Schluter, eða
formanni frjálslynda flokksins,
Henning Christophersen, verði
falin stjórnarmyndun. Munu
þeir væntanlega reyna myndun
minnihlutastjórnar borgara-
flokkanna, e.t.v. með stuðningi
hluta Framfaraflokks Mogens
Glistrup.
Almennt er búizt við því, að
viku til tíu daga þurfi til að
mynda nýja stjórn í Danmörku
og ætti hin nýja stjórn að geta
lagt fram efnahagstillögur sínar
þegar þingið kemur saman í
byrjun október.
Það hefur vakið athygli að
Jörgensen skyldi ekki rjúfa þing-
ið og boða til kosninga eins og
venja hefur verið, þegar ríkis-
stjórnir í Danmörku hafa sagt af
sér. Hefur þetta aðeins gerzt
einu sinni áður frá því dönsku
Harðnandi
deilur Dana
og Þjóðverja
Bonn, 2. september. AP.
HELMUT Schmidt kanzlari
V-Þýzkalands sendi i dag einn
helzta aöstoðarmann sinn,
Hans-Jiirgen Wischnewski, til
Kaupmannahafnar til viðræðna
við dönsku stjórnina um deilu
landanna vegna þorskveiða
V-Þjóðverja við Vestur-Græn-
land. V-þýzka stjórnin hefur einn
ig beðið framkvæmdastjórn Efna-
hagsbandalags Evrópu að
gripa til refsiaðgerða gegn Dön-
um vegna máls þessa. f yfirlýs-
ingu v-þýzku stjórnarinnar í dag
segir að ráðamenn í Bonn hafi
vaxandi áhyggjur af sambandi
Danmerkur og V-Þýzkalands
vegna viðbragða Dana i þessu
máli. Efnahagsbandalag Evrópu
heimilaði V-Þjóðverjum aö veiða
2 þúsund tonn af þorski við
V-Grænland, en Danir, sem nú
cru í forsæti í bandalaginu, hafa
ekki viljað una þessari ákvörðun.
stjórnarskránni var breytt 1951
og þingið sameinað í eina mál-
stofu. Síðustu þingkosningarnar
í Danmörku voru í desember á
síðasta ári og þykir flestum að
fullskammt sé frá þeim liðið til
þess að boðað verði til nýrra
kosninga. Einnig er talið að
niðurstöður nýlegra skoðana-
kannana, sem sýna, að flokkar
vinstra megin við jafnaðar-
mannaflokkinn hafa unnið fylgi
á hans kostnað, hafi ráðið
nokkru um ákvörðun Jörgensens
í þessu efni.
Stjórn sú, sem nú fer frá, er
fimmta minnihlutastjórnin sem
Anker Jörgensen veitir forsæti
frá því hann tók við forystu í
danska jafnaðarmannaflokknum
af Jens Otto Kragh árið 1972.
Anker Jörgensen tilkynnir fréttamönnum í Kristjánsborgarhöll í gær að hann hafi beðist lausnar fyrir sig og stjórn
sína. [Símam.nd Nordfoto.)
Hörð átök lögreglu
og unglinga í Lubin
Varsjá, 2. september. AP.
PÓLSK ungmenni tókust á við sérþjálfað lögreglulið í borginni Lubin í
suðvesturhluta landsins í dag til að mótmæla því að lögreglan skaut tvo
verkamenn til bana í mótmælaaðgerðum í fyrradag. Beitt var táragasi gegn
unglingunum í dag, en þeir hugðust gera atlögu að aðalstöðvum kommúnista-
flokksins í borginni. Lögreglan hefur komið fyrir tálmunum á vegum til
Lubin.
Óstaðfestar fregnir herma að
alls hafi fimm látið lífið í átökum
við lögreglu í Lubin í fyrradag, en
embættismenn hafa borið þær
fréttir til baka. Útgöngubann er í
Lubin frá átta á kvöldin til fimm á
morgnana og lögreglan hefur
bannað sölu á benzíni og notkun
einkabíla í borginni. Engum
skotvopnum var beitt í borginni í
dag eða gær, eftir því sem bezt er
vitað.
Lubin er miðstöð kolafram-
leiðslunnar í Póllandi og þar búa
um 67 þúsund manns.
Pólskir fjölmiðlar hafa farið
mjög hörðum orðum um tilraunir
alþýðu manna til að halda upp á
tveggja ára afmæli Samstöðu,
samtaka frjálsu verkalýðsfélag-
anna í landinu. Hafa þeir kennt
forystumönnum samtakanna, sem
nú fara huldu höfði, sem og vest-
rænum áróðursmönnum um átök-
in sem urðu í fyrradag.
Glemp erkibiskup, leiðtogi kaþ-
ólsku kirkjunnar í Póllandi, sem
nú er staddur í Vestur-Þýzkalandi
sagði í dag í hópi Pólverja í Dúss-
eldorf, að það „kæmi engum að
gagni að henda steinum". Glemp
endurtók kröfu sína um að friður
ríki á götum Póllands en hvatti
jafnframt til þess að „sannleikur-
inn og réttlætið" nái yfirhöndinni
í landinu.
Carlos
komst frá
Líbanon
Beirúl, 2. seplember. AP.
Hryðjuverkamaðurinn al-
ræmdi, ('arlos, laumaðist frá Beir-
út dulbúinn sem einn af skærulið-
um PLO og með honum 12
hryðjuverkamenn úr hinum svo-
kallaða Rauða her í Japan, að því
er fréttastofan Rödd Líbanons
skýrði frá í dag.
Að sögn fréttastofunnar, sem
er í eigu kristinna hægri manna
í Líbanon, fóru hryðjuverka-
mennirnir sjóleiðis frá Beirút í
hópi þeirra skæruliða sem
fyrstir fóru frá borginni. Ekki
greindi fréttastofan frá því,
hvert för Carlosar væri heitið,
en margt þykir benda til þess,
að hann muni leita ásjár hjá
marxistastjórninni í Suður-
Yemen.
I Beirút er lífið að öðru leyti
að færast í eðlilegt horf.
Franskir hermenn aðstoðuðu
líbanska kollega sína í dag við
að opna fyrir umferð milli borg-
arhluta kristinna manna og
múhameðstrúarmanna, en
vopnaðir varðliðar þessara að-
ila hafa dregið sig í hlé.
Viðstaddir opnunina voru
Wazzan, forsætisráðherra Líb-
anons, og franski sendiherrann,
en athöfnin er fyrsti áfangi í
áætlun, sem miðar að því, að
gera Beirút að vopnlausri borg
innan þriggja vikna. Skothvellir
heyrðust við athöfnina og þurfti
að loka fyrir umferð í u.þ.b.
klukkustund í dag, en að því
búnu var allt með kyrrum kjör-
um í borginni.
Stjórnin í ísrael vísar til-
lögum Reagans alveg á bug
Jerúsalem, Washington, Amman,
2. september. AP.
ÍSRAELSKA stjórnin vísaði í dag al-
farið á bug hinum nýju tillögum
Reagans Bandaríkjaforseta um var-
anlsgan frið í Miðausturlöndum.
Sagði í yfirlýsingu stjórnarinnar að
tiilögurnar brytu í meginatriðum i bága
við ákvæði Camp David-samkomu-
lagsins og lýsir stjórnin yfir „undrun
og beiskju" vegna tillagnanna, sem
Reagan kynnti í sjónvarpi í gær-
kvöldi.
Ríkisstjórnir Arabalandanna og
leiðtogar frelsissamtaka Palestínu,
PLO, tóku sér frest til að kynna sér
tillögurnar til hlítar. Talið er að
Hussein, konungur Jórdaníu, sé
þeim frekar hliðhollur og svo kunni
einnig að vera um aðra arabíska
leiðtoga. Fréttir frá Aþenu, þar
sem Yasser Arafat, leiðtogi PLO,
er nú niðurkominn, herma að kall-
aður verði saman sérstakur fundur
yfirmanna PLO innan tveggja daga
til að ræða tillögurnar.
Talsmaður Bandaríkjastjórnar
sagðist í kvöld ekki vera undrandi á
því, á hvern veg ísraelsstjórn hefði
tekið tillögunum, en sagði jafn-
framt, að stjórn sín mundi leita
allra diplómatískra leiða til að ná
samkomulagi um þessar hugmynd-
ir.
í Bretlandi og Frakklandi hafa
ráðamenn fagnað tillögum Reag-
ans og Mitterand Frakklandsfor-
seti, sem nú er í heimsókn í Grikk-
landi, fór um þær lofsamlegum
orðum við fréttamenn í dag. Mál-
gögn Sovétstjórnarinnar hafa hins
vegar sakað Reagan um að vera að
reyna að treysta stöðu Bandaríkj-
anna í Miðausturlöndum með til-
lögum þessum.
Carter, fyrrum Bandaríkjafor-
seti, sem átti mestan þátt í því að
Camp David-samkomulagið komst
á á sínum tíma, sagði í dag, að Beg-
in forsætisráðherra ísraels túlkaði
samkomulagið ekki rétt. Sagði
Carter að tillögur Reagans væru í
samræmi við ákvæði samkomu-
lagsins.
Sjá: „Friðartillögur
Reagans" bls. 14.