Morgunblaðið - 03.09.1982, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1982
2
l'yrlan hífir manninn upp.
MbL/RAX
Björgunar-
sýning á
Tjörninni
Slysavarnafélag íslands og
Landhelgisgæzlan efndu í
gær til björgunarsýningar á
Reykjavíkurtjörn í tilefni
landssöfnunarinnar, sem
Hjálparstofnun kirkjunnar
efnir til í því skyni að að-
stoða hjálpar- og björgun-
arsveitir við kaup á fjar-
skiptabúnaði.
Sýnd voru Ijós- og reyk-
merki, sem notuð eru í neyð-
artilfellum, froskmenn voru
á slöngubátum og þyrlan
TF-RÁN sýndi hvernig
mönnum er bjargað úr sjáv-
arháska. Fjöldi manns fylgd-
ist með sýningunni en félag-
ar úr björgunar- og hjálpar-
sveitum gengu á milli manna
og tóku við framlögum.
Tekið var við franitögum tU söfnunarinnar.
Hér má sjá manninn rétt ókominn um borð í þyrluna. Mbl./Kriniján.
Nýtt blindaðflugs-
kerfi við Akur-
eyrarflugvöil
— styttir flugtíma og auðveldar
lendingar í dimmviðri
NÚ ER unnið að uppsetningu nýs
blindaðnugskerfis við Akureyrar-
flugvöll og er reiknað með þvi að
það verði tekið í notkun um mánaða-
mótin september-október. Helztu
kostir þessa kerfis eru þeir, að það
styttir flugtíma til Akureyrar og auð-
veldar lendingu i dimmviðri.
Að sögn Hauks Haukssonar hjá
Flugmálastjórn samanstendur
þetta kerfi af nokkrum flugleið-
sögutækjum, stefnusendi, fjar-
lægðarmæli og tveimur radíóvit-
um. Aðflugskerfið gerir kleift að-
flug til flugvallarins úr suðri og
styttir því flugtíma um um það bil
5 mínútur. Áður þurfti að fljúga
norður eftir Hörgárdal og síðan
suður eftir firðinum eftir radar-
flugi, er lent var úr suðri. Nú
verða báðar aðflugsleiðirnar not-
aðar. Með þessu nýja kerfi er hægt
að fljúga niður í 730 fet eða 219
metra og hægt að komast nær
flugbrautinni í lágmarkshæð, en
áður var aðeins hægt að fara niður
í um 1.000 fet eða um 300 metra.
Vegna þessa aukast líkur á því, að
hægt sé að lenda í dimmviðri.
Haukur sagði, að unnið hefði
verið að uppsetningu þessa kerfis í
tvö ár og væri reiknað með að
ljúka henni um næstu mánaðamót
og áætlaður kostnaður væri um 3
milljónir króna.
íslenzka óperan:
Litli sótarinn frumsýnd-
ur 1. okt., Töfraflautan 15. okt.
— María Guðrún Sigurðardóttir viðskipta-
fræðingur ráðin rekstrarstjóri
ÆFINGAR eru nú að hefjast á
tveimur verkum í íslenzku óperunni.
1. október nk. verður Litli sótarinn
eftir Britten frumsýndur og 15.
október Töfraflautan. María Guðrún
Sigurðardóttir viðskiptafræðingur er
nýtekin við starfi rekstrarstjóra fs-
lenzku óperunnar.
Að sögn Garðars Cortes er fjár-
hagur óperunnar sæmilegur.
Reksturinn gekk vel síðasta vetur,
en um 25 þúsund gestir komu þá á
sýningar hennar. Garðar sagði að
róðurinn væri þó þungur og fjár-
hagserfiðleikarnir alls ekki að
baki.
María Guðrún Sigurðardóttir,
hinn nýi rekstrarstjóri, er við-
skiptafræðingur að mennt. Hún
útskrifaðist sem stúdent frá
Verzlunarskóla íslands 1977,
viðskiptafræðiprófi lauk hún frá
Háskóla íslands 1981 og starfaði
síðan hjá Fjárlaga- og hagsýslu-
stofnun.
Sem fyrr segir er verið að æfa
barnaóperu eftir Benjamín Britt-
en, sem eru í sex hlutverk fyrir
börn og fimm fyrir fullorðna.
Leikstjóri er Þórhildur Þorleifs-
dóttir, Jón Stefánsson stjórnar
tónlistinni og Jón Þórisson gerir
leikmynd.
Jón Stefánsson sagði í samtali
vð Mbl. í gær, að Britten hefði
samið óperu þessa fyrir tilstilli
brezkra fræðsluyfirvalda til kynn-
ingar á óperu og fjallaði fyrri
hlutinn um samningu óperu, sem
síðan er flutt í seinni hlutanum og
nefnist Litli sótarinn.
Hlýtur að þýða að þeir falli frá
fyrri athugasemdum um hráefnaverð
— segir Ragnar Halldórsson forstjóri ÍSAL í tilefni af skýrslu Coopers & Lybrand
„ í fréttatilkynningu iðnaðar-
ráðuneytisins segir að ('oopers &
Lybrand telji að tekjur ÍSAL 1981
séu vantaldar um 1.546.000 doll-
ara. Þetta er ekki rétt, því að (’oop-
ers & Lybrand komust að þeirri
niðurstöðu, að tekjur séu vantald-
ar um 102.000 dollara. Að auki sé
kostnaður 156.000 dollurum of
hár, og afskriftir 1.288.000 dollur-
um of háar. Samanlagðar athuga-
semdir (’oopers & Lybrand nema
eins og fyrr segir 1.546.000 dollur-
um, en til þess að hafa áhrif á
framleiðslugjald það, sem ÍSAL
greiðir, hefði reikningsútkoman
1981 þurft að breytast um nær
60.000.000 dollara,“ sagði Ragnar
Halldórsson forstjóri ÍSAL, er
Mbl. leitaði álits á framkomnum
yfirlýsingum iðnaðarráðuneytisins
um niðurstöður skýrslu brezka
endurskoðunarfyrirtækisins Coop-
ers & Lybrand vegna endurskoð-
unar ársreikninga ISAL fyrir árið
1981.
Ragnar sagði einnig: „Höfuð-
ágreininginn gera Coopers &
Lybrand út af afskriftum af
hreinsitækjum og gengistapi
ársins. Þeir vilja lækka afskrift-
ir 1981 um 1.288.000 dollara, en
1980 var tillaga þeirra um þetta
efni 3.166.000 dollarar. Ráðu-
neytið gerir þessa tillögu Coop-
ers & Lybrand ekki að umræðu-
efni í tilkynningu sinni, en í
raun er þetta sú af athugasemd-
um Coopers & Lybrand vegna
beggja áranna, sem Alusuisse
hefur tekið vel í að ræða nánar,
með það fyrir augum að ná
samkomulagi."
Ragnar var spurður álits á
þeim þætti tilkynningar ráðu-
neytisins þar sem segir að Alu-
suisse hafi neitað brezku endur-
skoðendunum um aðgang að
bókhaldi sínu og dótturfélaga til
öflunar gagna. Hann svaraði:
„Það er að vísu rétt, að Coopers
& Lybrand hafa ekki fengið að-
gang að bókhaldi Alusuisse eða
dótturfyrirtækja þess, enda
leggur álsamningurinn Alu-
suisse aðeins skyldur á herðar
um að veita endurskoðendum til-
nefndum af ríkisstjórninni að-
gang að bókhaldi ISAL. Samt
sem áður hefur Alusuisse veitt
Coopers & Lybrand ýmsar upp-
lýsingar sem trúnaðarmál, sem
því miður hafa síðar borist fjöl-
miðlum.
Því er svo alveg sleppt í frétta-
tilkynningu ráðuneytisins að í
skýrslu Coopers & Lybrand kem-
ur fram, að þeim hefur verið
boðið, að annað óháð endurskoð-
unarfyrirtæki gæti kannað þau
atriði sem þeir vilja fá nánari
vitneskju um, þar á meðal kostn-
aðarverð á anóðum. Með fyrir-
vara um staðfestingu óháðs
endurskoðanda falla þeir frá at-
hugasemdum við anóðuverðið,
en það var eitt af því sem vó
þyngst á metunum í athuga-
semdum þeirra vegna ársins
1980, eða hvorki meira né minna
en 3.210.000 dollara. Þá er einnig
rétt að bæta því við, að nú gera
Coopers & Lybrand enga athuga-
semd við súrálsverðið, en vegna
1980 vildu þeir lækka það um
2.160.000 dollara. Þessi mikil-
vægu hráefni, súrálið og anóð-
urnar, hafa bæði árin verið
keypt af Alusuisse samkvæmt
óbreyttum langtímasamningum.
Skýrsla Coopers & Lybrand nú
hlýtur því að þýða, að þeir falli
algjörlega frá fyrri athugasemd-
um um hráefnaverð.
Þá er í fréttatilkynningu ráðu-
neytisins ekki minnst á það einu
orði, að Coopers & Lybrand við-
urkenna í skýrslu sinni, að af
hálfu Alusuisse sé fyllilega stað-
Ragnar Halldórsson
ið við ákvæði í álsamningnum
þar sem kveðið er á um að hluta-
fé skuli vera Vsaf kostnaðarverði
eigna. Þá er og ýmislegt fleira í
skýrslu Coopers & Lybrand, sem
ekki er nefnt. Þar er til dæmis
sleppt fyrirvörum. Einnig er
þess látið ógetið, að í skýrslu
sinni upplýsa Coopers & Ly-
brand, að Álusuisse hafi á árinu
1981 veitt ÍSAL vaxtalaust lán,
sem hafi sparað fyrirtækinu
1.570.000 dollara í vaxtagjöld,
eða álíka upphæð og þeir leggja
til að hafi áhrif á reikningsnið-
urstöðu ársins til lækkunar á
bókfærðu tapi.
Ragnar sagði í lokin: „í lok
fréttatilkynningarinnar gumar
ráðuneytið af því, að það hafi
með því að láta Coopers & Ly-
brand endurskoða árlega hjá
ÍSAL veitt fyrirtækinu og Alu-
suisse verulegt aðhald og nefnir
í því sambandi súrál og anóður.
Verðlækkun á anóðum í dollur-
um á árinu 1981, sem ráðuneytið
nefnir, stafar eingöngu af styrk-
ingu dollara gagnvart samnings-
verðinu, sem er í hollenskum
flórínum. Viðskipti á hráefnun-
um fara fram samkvæmt
óbreyttum samningum bæði árin
1980 og 1981 og geta menn af því
ráðið, hversu mikið aðhald ráðu-
neytið og Coopers & Lybrand
hafa veitt á þessu sviði. Coopers
& Lybrand hafa í raun og veru
dregið í land hvað þessi atriði
snertir, en ráðuneytið hefur
hingað til látið það ógert."