Morgunblaðið - 03.09.1982, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1982
3
r LjMBn. Aid Sttlruoa
Grunsey:
Vindmyllan hitar upp húsin
IIIN nýja vindmylla í Grímsey
hefur nú verid sett í gang, og hef-
ur hún reynst vel það sem komið
er, að því er Alfreð Jónsson
fréttaritari Morgunblaðsins í
eynni sagði í samtali við blaðið.
Er vindmyllan þegar farin að hita
hús í eynni, og var raunar komin
velgja í vatnið nokkrum klukku-
stundum eftir að hún fór að snú-
ast.
Alfreð sagði að Örn Helgason
og fleiri frá Raunvísindadeild
Háskólans hefðu verið að tengja
vindmylluna og því væri allt til
reiðu. Væri spaðinn um 6Vfe
metri á lengd, líkt og á eins-
hreyfils flugvél og væru því
rúmir 3 metrar inn að öxli.
Mastrið væri búið til úr vinkil-
járnum og gengi öxull niður i
trommu, sem er með vatni í og
núningsmótstaðan hitar það
upp. Síðan fer það inní 14 tonna
geymi og dælist inn í húsin tvö,
sem eiga að fá varma, þegar
hitastig er komið upp í ákveðið
stig. Síðan rynni það aftur út í
geyminn. Væri þetta lokað kerfi
og kældist vatnið því lítið á leið-
inni.
Frystigeymsla
SH í Grimsby:
Tekin í notk-
un um næstu
mánaðamót
Áætlað er að ný frystigeymsla
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í
Grimsby verði tekin í notkun nú um
mánaðamótin september/október,
að því er Óiafur Guðmundsson á
skrifstofu SH í London sagði i sam-
tali við blaðamann Morgunblaðsins
í gær.
Að sögn Ólafs munu frysti-
geymslurnar taka um 3.000 tonn
af freðfiski, og áætlaður kostnað-
ur við bygginguna nemur um 2 til
2,5 milljónum sterlingspunda.
Fiskréttaverksmiðja SH, sem
einnig er að rísa í Grimsby, mun
einnig verða tekin í notkun að
hluta til síðar á þessu ári, að sögn
Ólafs.
Skipstjórinn á Hafnarey:
49 þúsund kr. sekt
VÉLBÁTURINN Hafnarey SF 36
var staðinn að ólöglegum veiðum við
Dyrhólaey á mánudag, en báturinn
mældist tæplega hálfa sjómílu innan
fiskveiðimarkanna þar.
Mál skipstjórans var tekið fyrir
á Höfn í Hornafirði siðdegis á
þriðjudag og var hann dæmdur í
49 þúsund króna sekt til Land-
helgissjóðs og voru afli og veiðar-
færi gerð upptæk. Hafnarey er 81
brúttórúmlest að stærð.
Ríkisstjórnin:
Fjárlagafrum-
varpið afgreitt
til prentunar
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum í gærmorgun að heimila
fjármálaráðherra að ganga frá fjár-
lagafrumvarpi ársins 1983 undir
setningu og prentun.
Að sögn Magnúsar Torfa
Ólafssonar blaðafulltrúa ríkis-
stjórnarinnar er nú búið að ganga
frá öllum meginatriðum frum-
varpsins og er umfjöllun ríkis-
stjórnarinnar á þessu stigi lokið.
Eitt það mikilsverðasta, sem ég hefi nokkurn
tíma gert fyrir húðina var að velja Lux."
m
Luxgerirhúðina
Allt frá því Ali MacGraw hóf leikferil sinn í
kvikmyndum taldist hún til fámenns úrvalsliðs
alþjóðlegra kvikmyndast jarna. Og innan þess hóps
hefur hún jafnan haldið eigin útliti,einstaklings-
bundnum fegurðarstíl.
Útlitið er mjög eðlilegt og Lux á þátt í að skapa það.
Það er vegna þess að hið ágæta löður Lux fer
betur með húð hennár en nokkur önnur sápa, mýkir
hana og sléttir á hinn fegursta hátt.
Umönnun sést á andlitinu. Þess vegna velur Ali
MacGraw Lux.
T T TY CT5 CCPPT TTXT A D C Á DA V\TTV AAVTS.TO A CTT A DM A T-T'CTA/ICTNTC