Morgunblaðið - 03.09.1982, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1982
Athugun á raforkuverði og skattgreiðslum:
Niðurstöður starfshópa
iðnaðarráðuneytisins
í fréUatilkynningu iðnað-
arráðuneytisins eru dregnar
saman helstu niðurstöður
starfshópanna tveggja, þ.e.
þeirra sem um raforkumál og
skattamál fjölluðu. Þær
niðurstööur eru birtar hér
orðréttar.
Athugun á
raforkuverði
II. NIÐURSTÖÐUR
1) Frá því að samningur Alu-
suisse og ríkisstjórnarinnar um
álverksmiðjuna í Straumsvík var
undirritaður 28. mars 1966 og eftir
endurskoðun hans 1975 hafa orðið
veigamiklar breytingar í orku- og
efnahagsmálum á erlendum og
innlendum vettvangi. Þessi þróun
hefur leitt til þess að þaer forsend-
ur sem lagðar voru til grundvallar
álsamningunum eru gjörbreyttar.
2) Raforkusamningurinn við
ÍSAL gildir til 2014. Raforkuverð-
ið er nú 6,45 mill/ kWh eða sem
svarar 2,4 mill/ kWh á verðlagi
1969. Árið 1994 og 2004 á að endur-
skoða raforkuverðið samkvæmt
ákveðnum reglum í samningnum.
Á tímabilinu frá 1982—1994 er
verðið um 40% verðtryggt miðað
við skráð álverð en á tímabilinu
1994 —2004 og á tímabilinu
2004—2014 er engin verðtrygging
á því. Miðað við 8% verðbólgu og
sömu hækkun á álverði mun með-
alorkuverðið á næstu 32 árum
verða um 5 mill/ kWh miðað við
verðlag 1982 að óbreyttum samn-
ingum.
3) Þegar álsamningarnir voru
gerðir var olíuverð mjög lágt og
talið var að almennt orkuverð í
heiminum myndi fara lækkandi á
næstu árum og áratugum, m.a.
vegna tilkomu kjarnorkustöðva.
Verð á hráolíu er nú u.þ.b. þrjátíu
sinnum hærra en 1966 og fram-
leiðslukostnaður raforku frá
kjarnorkuverum hefur reynst
miklu hærri en talið var.
4) Á árunum 1964—1965 var al-
gengt raforkuverð til álvera í
heiminum um og innan við 3
mill/ kWh. Með hliðsjón af því
féllust íslensk stjórnvöld á að
ISAL greiddi að meðaltali rúml-
ega 2,5 mill/ kWh á samningstím-
anum. Á árinu 1981 var meðalraf-
orkuverð til álvera í heiminum
rúmlega 22 mill/ kWh og sam-
kvæmt fyrri forsendum ætti raf-
orkuverðið til ÍSAL því að vera
rúmlega 18 mill/ kWh.
5) í samningaviðræðum og
ákvörðunum um raforkuverð hef-
ur ætíð verið tekið sérstakt mið af
raforkuverði til álvera í Banda-
ríkjunum og Vestur-Evrópu. Frá
því 1974 hefur raforkuverð til ál-
vera í Bandaríkjunum fimmfald-
ast og er nú að meðaltali um 22
SAMKOMULAG náðist í gær um
kjarasamning Fhigleiða hf. og
Flugfreyjufélags íslands.
Samningurinn gildir til 1. sept-
ember 1983 og er í öllum meginat-
riðum eins og rammasamningur ASÍ
og VSÍ með gildistöku 1. júli sl.
Deila um ráðningu í flugfreyju-
störf samkvæmt starfsaldri hefur
verið leyst.
mill/ kWh. Lægsta raforkuverð til
áliðnaðar í Bandaríkjunum hefur
lengst af verið hjá Bonneville
Power Administration (BPA) og
við samningsgerðina 1966 var það
2 mill/ kWh, en hækkaði í 3,2
mill/ kWh árið 1974. Frá 1978 hef-
ur verðið hjá BPA hækkað jafnt
og þétt og var það komið í 17,5
mill/ kWh í árslok 1981 og seinna
á þessu ári er fyrirhugað að verðið
hækki í 21—25 mill/ kWh.
6) Yfir 95% af framleiðslu
ÍSAL er seld til Vestur-Evrópu.
Þegar álsamningarnir voru gerðir
á sínum tíma var fallist á það
sjónarmið Alusuisse, að raforku-
verðið til ÍSAL þyrfti að vera
lægra hér á landi vegna þess að
greiða þyrfti toll af áli sem selt
yrði til helstu álmarkaða í Vest-
ur-Evrópu. Þessir tollar hafa nú
verið felldir niður. Eina óhagræð-
ið af staðsetningu álvers hér á
landi felst því í lítið eitt hærri
flutningskostnaði en hjá álverum í
V-Evrópu. Meta má þetta óhag-
ræði á um 2 mill/ kWh en til sam-
anburðar má nefna að meðalorku-
verð til álvera í Evrópu er um 21
mill/ kWh, ef ÍSAL er undanskil-
ið.
7) Alusuisse á eignaraðild að 13
álverksmiðjum í 8 löndum. Meðal-
orkuverð til þessara álverksmiðja
* «
s !
er 20 mill/ kWh. Lægsta orkuverð-
ið er hjá ÍSAL, 6,5 mill/ kWh, en
hæst er verðið í Þýskalandi og
Bandaríkjunum, þ.e. um og yfir 30
mill/ kWh.
8) Samkvæmt spá Commodities
Research Unit mun orkuverð til
álvera annars staðar í heiminum
hækka enn frekar á næstu árum
og verða komið í um 24 mill/ kWh
að meðaltali árið 1990 miðað við
verðlag 1981.
ÍSAL hækki í 15-20 mill/kWh
miðað við verðlag 1982.
Engin ný ákvæði í því efni voru
sett í kjarasamning.
Aðilar náðu samkomulagi um
hvernig haga skuli ráðningu
lausráðinna starfandi flugfreyja á
samningstímanum.
Áður boðaðri vinnustöðvun
Flugfreyjufélags íslands hefur því
verið aflýst.
9) Hægt er að líta svo á að ein
af meginforsendum raforkusamn-
ingsins við ISAL hafi verið sú að
orkuverðið væri í samræmi við
framleiðslukostnað á raforku í
landinu, en hann hefur sexfaldast
að nafnverði í bandaríkjadölum
frá því að samningurinn var gerð-
ur. Miðað við þær forsendur ætti
raforkuverðið til ISAL því að vera
sex sinnum hærra en um var sam-
ið 1966 eða 15—18 mill/ kWh.
10) Að mati starfshópsins er
munur á raforkuverði til almenn-
ingsveitna og stóriðju orðinn
óeðlilega mikill. Miðað við eðlilega
kostnaðarskiptingu virðist raun-
hæft að reikna með því að stóriðja
greiði orkuverð sem nemur a.m.k.
65% af verði til almenningsveitna.
Samkvæmt því ætti ÍSAL að
greiða nú um 20 mill/ kWh.
11) Samkeppnisstaða íslands í
álframleiðslu er góð með hliðsjón
af legu landsins og mörkuðum
austan hafs og vestan. Telja má að
samkeppnisfært raforkuverð til
áiiðnaðar hér á landi sé um 20
mili/ kWh.
12) Að öllu samanlögðu telur
starfshópurinn að gjörbreyttar
forsendur frá því að raforkusamn-
ingurinn var gerður 1966 og eftir
endurskoðun hans 1975 réttlæti
kröfur um að raforkuverðið til
Frá blaðamannafundinum í gcr.
13) Starfshópurinn telur jafn-
framt að orkuverðið þurfi að vera
að fullu verðtryggt á samnings-
tímanum og kæmi til greina að
miða verðtrygginguna að hálfu við
verðþróun á áli og að hálfu við
gjaldskrá Landsvirkjunar.
Athugun á
skattgreiðslum
1. HELSTU NIÐURSTÖÐUR
YFIRLIT
1) í kjölfar hinna miklu hækk-
ana álverðs á heimsmörkuðum
eftir 1973 varð ljóst, að verðtrygg-
ingarákvæði skattkerfisins 66/69
yrðu íslandi mjög hagstæð, en
Alusuisse að sama skapi óhag-
stæð.
Er ísland óskaði eftir endur-
skoðun á ákvæðum orkusölusamn-
ingsins, árið 1974, setti Alusuisse
það skilyrði fyrir breytingum á
honum, að gerðar yrðu viðunandi
breytingar á skattkerfinu 66/69.
2) Með undirritun 2. viðauka
við aðalsamning árið 1975, var
skattkerfinu 66/69 breytt í megin-
atriðum.
Sterkar líkur benda til þess, að
þessar breytingar reynist íslandi
óhagstæðar, ekki síst þegar líða
tekur á samningstímabilið.
3) Helstu gallar núverandi
skattkerfis frá sjónarmiði íslands
eru:
I. Skert verðtrygging fram-
leiðslugjaldsins.
II. Tengsl hámarksframleiðslu-
gjalds við hagnað ÍSAL.
III. Endurgreiðsla skattinneignar
og vextir af henni.
IV. Heimild til frádráttar vara-
sjóðstillags frá hagnaði.
V. Takmarkanir á raunhæfu
skatteftirliti.
VI. Ófullnægjandi möguleikar til
endurskoðunar skattreglna.
4. Hagkvæmasta skattkerfið
frá sjónarmiði Islands virðist vera
fast árlegt verðtryggt gjald.
Mikilvægasta forsenda þessarar
niðurstöðu er sú, að vongildi heild-
artekna af slíkum skatti sé ekki
lægra en annarra skattkerfa, sem
til greina koma.
5. Tvö önnur skattkerfi eru
einnig mjög álitleg. Þau eru:
I. Fast árlegt verðtryggt gjald +
veltugjald.
II. Fast árlegt verðtryggt gjald +
framleiðslugjald.
6. íslenska skattkerfið virðist
ekki vera eins fýsilegt og ofan-
greind þrjú skattkerfi. Þessi
niðurstaða kynni þó að breytast,
ef skattalögsagan færðist einnig í
íslenskar hendur.
7. Eftirtaldar breytingar á nú-
gildandi skattkerfi myndu vera
umtalsverð hagsbót frá sjónar-
miði íslands:
I. Framleiðslugjald, verðtryggt
að fullu.
II. Hámarksákvæði framleiðslu-
gjalds afnumið.
III. Skattinneign felld niður.
ARSFUNDUR Norræna rithöfunda-
ráösin.s verður haldinn í Norræna
húsinu dagana 3. og 4. september og
sitja hann 24 forystumenn rithöf-
unda á Noröurlöndum. Veröa þar til
umræðu ýmis hagsmunamál rithöf-
unda, sem sameiginleg eru.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá Rithöfundasambandi íslands,
verða til umræðu á fundinum
gagnkvæm umboð til að semja
fyrir höfunda um afnot bók-
menntaverka í fjölmiðlum hvers
konar og skólum og svokölluð
aukanot. Þá verður einnig rætt um
greiðslur til höfunda fyrir upptök-
ur á snældur og almennt viðhorf
til aukanota á bókmenntaefni í
Edda Sverrisdóttir
Gjörning-
ur í Nýlista-
safninu
í KVÖLD fremur Edda Sverrisdóttir
gjörning — „Live Video-perform-
ance“ — í Nýlistasafninu að
Vatnsstíg 3 í Reykjavík.
Edda Sverrisdóttir er við nám í
kvikmyndalist og „video-perform-
ance“ (gjörningur með video-
tækni) við San Francisco Art
Institute í Bandaríkjunum. Gjörn-
inginn sem hún ætlar að fremja í
Nýlistasafninu í kvöld kallar Edda
Kol og krít.
Síga niður
Útvegs-
bankahúsið
HJÁLPARSVEIT skáta mun í dag í
sambandi við fjársöfnun Hjálapar-
stofnunar kirkjunnar, síga niður Út-
vegsbankahúsið og hefst þessi sig-
sýning klukkan 16. Sýning þessi er
kynning á hluta af björgunarbúnaði
hjálparsveitarinnar og er framhald
kynningar, sem í gær fór fram á
Tjörninni í Reykjavik, er SVFÍ og
Landhelgisgæzlan sýndu þar björg-
un.
Á morgun, laugardag, mun svo
flugbjörgunarsveitin sýna fallhlíf-
arstökk. Áætlað er að stökkva yfir
Laugardalnum og hefst sýningin
klukkan 15.
Rétt er að benda á, að ofan-
greindar sýningar eru háðar því
að veður verði sæmilegt.
hinum nýju fjölmiðlum — eins og
það er orðað í fréttatilkynningu
frá Rithöfundasambandinu.
Þá er gert ráð fyrir umræðum
um Nordvision-samninginn og um
grundvöll útreiknings á greiðslum
til höfunda, rætt verður um hljóð,
bækur, útgáfusamninga, um
endurskoðun höfundarlaganna,
málefni samískra höfunda og
framtíð bókarinnar. Fundurinn er
haldinn í boði Rithöfundasam-
bands íslands. Það skal tekið
fram, að í fréttatilkynningunni er
orðið aukanot skýrt með sænsku
orðunum „Sekundárt utnyttj-
ande“.
Samkomulag náðist
í deilu flugfreyja
Norræna rithöfundaráö-
ið þingar í Reykjavík