Morgunblaðið - 03.09.1982, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1982
23
Lárus Jónsson, alþingismaður
Hvernig skýra ráðherrar algjöra
stöðnun þjóðarframleiðslu og rýrn-
andi lífskjör í góðærinu 1980 og ’81?
136
Enn halda forráðamenn
ríkisstjórnarinnar sér við það
heygarðshornið að draga upp
sem dekksta og hrikalegasta
mynd af þeim efnahagsvanda
sem við er að glíma um þess-
ar mundir. Hann er enda tal-
inn stafa af mestu utanað-
komandi áföllum „í áratugi“
sem dunið hafí yfír þjóðina.
Minna má ekki gagn gera.
En spurning mín til ráðherra
og áróðursmeistara ríkis-
stjórnarinnar er þá sú:
Hverju var um að kenna í
góðærunum 1980 og 1981
þegar sjávarvöruframleiðslan
var rúmlega þriðjungi meiri
að verðmæti — metin á fóstu
verðlagi — en hún var 1977
og miklum mun meiri en
1978 og 1979? Á árinu 1981
styrktist einnig sem kunnugt
er dollarinn á alþjóðlegum
peningamarkaði sem var
mikill búhnykkur til viðbótar
og viðskiptakjör bötnuðu.
Hvernig stóð á því að þá
snarminnkaði vöxtur þjóðar-
framleiðslunnar og kaup-
máttur heimilanna „seig“
eins og Guðmundur J. orðaði
það?
Ótrúlegur afrakstur af
útfærslu landhelginnar
Sannleikurinn er sá að undan-
farið höfum við notið í ríkum
mæli afraksturs af úrfærslu land-
helginnar í 200 mílur á sínum
tíma í tíð ríkisstjórnar Geirs Hall-
grímssonar og sjávarútvegsráð-
herratíð Matthíasar Bjarnasonar.
Mestur varð þessi afrakstur á ár-
unum 1980 og 1981, fyrstu valda-
árum núverandi ríkisstjórnar.
Loðnuafurðir skiluðu að vísu
minna verðmæti í þjóðarbúið en
1978 og 1979 en aðrar sjávarafurð-
ir þeim mun meiru. Þjóðhags-
stofnun hefur látið mér í té upp-
lýsingar um verðmæti sjávarvöru-
framleiðslunnar — á fóstu verðlagi
— frá 1977 og sýnir eftirfarandi
tafla glöggt hver þessi afrakstur
var:
Lirus Jónsson
Sé verðmæti sjávarvörufram-
leiðslunnar 1977 sett 100 og dregin
upp mynd af þessari gífurlegu
verðmætaaukningu sem tekin er
upp úr sjóðnum þessi ár kemur
niðurstaðan fram á meðfylgjandi
línuriti til vinstri. Þar sést glöggv
að verðmæti sjávarvörufram-
leiðslunnar var langmest 1980 og
1981 og er áætlað meira í ár þrátt
fyrir mismunandi svartar spár
Þjóðhagsstofnunar en 1977 og
1978.
„Niðurtalning“
þjóðarframleiðslunnar
í þessu mikla góðæri sem vafa-
laust má rekja til úrfærslu land-
helginnar á sínum tíma hófst fyrir
alvöru „niðurtalning" þjóðar-
framleiðslunnar og þar með lífs-
kjara þjóðarinnar í heild. Þessa
hnignun í góðærinu má glöggt sjá
á línuritinu sem áður er vitnað til
og þá til hægri. Það hlýtur að vera
lærdómsríkt að virða þessi tvö
línurit fyrir sér við hlið hvors
annars. Hver er skýringin? Dettur
nokkrum í hug að þar komi við
sögu röng fjárfestingarstefna,
spennitreyja ríkisafskipta af at-
vinnuvegunum, röng gengisskrán-
ing, höft og bönn eða sú kenning
að reka eigi atvinnuvegina á núlli
og helst sem mest undir núllinu?
Kemur nokkrum í hug yfir höfuð
röng efnahags- og atvinnustefna
stjórnvalda? Og hvernig er hægt
að líkja því við mestu áföll þjóðar-
innar í áratugi að hún er talin
hafa úr sama verðmæti sjávar-
vöruframleiðslu úr að moða og
1977 eða 1978?
Verðmæti sjávarvöruframleiðslunnar 1977—1982. Fast verðlag
(m.nýkr.).
1977 1978 1979 1980 19811982
(1)1982
(II)
1. Loðnuafurðir 670 710 790 675 575 200 10
2. Botnfiskafurðir 2.730 2.895 3.140 3.600 3.925 3.720 3.480
3. Aðrar sjávarafurðir 535 640 845 1.020 815 765 765
' 3.935 4.245 4.775 5.295 5.315 4.685 4.255
Aths.: Spár I og II fyrir 1982 eru gerðar af Þjóðhagsstofnun og veldur
sú fyrri 3% samdrætti þjóðartekna en hin síðari 6%.
Leiksýning nemenda Eiðaskólæ
„Enginn veit sína ævinaa
eftir Guðmund
Steingrímsson
Nú um helgina eiga íbúar Sel-
tjarnarness og nágrannar þeirra
von á góðum gestum, þar sem er
leikhópur Alþýðuskólans á Eiðum
en hann frumsýndi síðastliðið vor
nýtt leikrit, „Enginn veit sína
ævina", undir stjórn Sólveigar
Traustadóttur. Nemendur Alþýðu-
skólans hafa á hverju vori sett
upp leikrit í fullri lengd, en hér er
á ferðinni mun meira og merki-
legra verkefni en nokkru sinni
fyrr, því leikritið er samið af leik-
stjóra og leikhóp í samvinnu. Að
vísu hef ég grun um að Sólveig eigi
þar stærstan hlut, þvi persónur og
verkið allt er það heilsteypt og
trúverðugt að hæpið er að samið
hafi verið á 2 mánuðum eða svo.
Sólveig er reyndar leiklistarunn-
endum á Héraði vel kunn, því hún
hefur leikið mikið með Leikfélagi
Fljótsdalshéraðs undanfarin ár og
leikstýrði að auki Leynimel 13
með þeim í vetur. Einnig hefur
hún leikstýrt áður við Eiðaskóla.
Ekki hefur hún þó, svo mér sé
kunnugt, farið út í að semja heilt
leikrit fyrr.
„Enginn veit sína ævina" fjallar
um fjölskyldu þar sem sonurinn er
að brjótast til frægðar og frama,
studdur af föðurnum, sem sér
æskudrauma sína rætast í synin-
um. ’Dóttir þeirra hjóna fellur
nokkuð í skugga bróður síns, og
reynir því að ná athygli foreldr-
anna með óstýrilæti og þver-
móðsku. En þegar fjölskyldan
verður fyrir miklu áfalli stendur
hún sig þó mjög vel, en amma
Sólveig Traustadóttir leikstjóri og
aðalhöfundur.
gamla þó best, enda hefur hún
ýmsu kynnst í lífinu. Ekki er vert
að segja of mikið frá efni leiksins
— sjón er sögu ríkari. Þó mun
óhætt að segja að viðfangsefni
leikritsins sé í raun 2 afskiptir
minnihlutahópar þjóðfélagsins,
þ.e. gamalt fólk og fatlað. Ekki
verður sagt að hér sé nýtt efni á
ferðinni, því málefni þessara hópa
hafa mikið verið í brennidepli að
undanförnu. Lítið hefur þó miðað í
réttlætisátt og veitir ekki af frek-
ari umræðu. Sérstaklega athygl-
isvert er að sjá unglinga á skóla-
aldri fást við slíkt verkefni, því
greinilegt er að þeir hafa lagt sig
mjög fram við að skilja persónur
verksins og setja sig í þeirra spor.
Það er áreiðanlega enginn hægð-
arleikur fyrir unglinga að ímynda
sér, hvernig það er að horfast í
augu við ævilanga fötlun eða þá
ellina. Ekki verður þó annað sagt
en að þeim hafi tekist það með
ágætum, þó ekki ætli ég að halda
því fram að leikur eða leikritið yf-
irleitt hafi gengið hnökralaust.
Atvinnuleikhúsin sýna ekki held-
ur hnökralausar sýningar nema
síður sé. Og sé tekið tillit til ungs
aldurs leikaranna og reynsluleys-
is, þá gera þeir stórkostlega hluti í
þessari sýningu. Jafnvel án nokk-
urrar tillitssemi standa þeir sig
mjög vel. Uppsetning í heild sinni
er mjög trúverðug, leiksvið og sal-
ur nýtt á skemmtilegan og ný-
stárlegan hátt. Talsvert mikil tón-
list er flutt í tengslum við verkið
og gefur skemmtilegan svip. Lögin
eru eftir Stefán Jóhannsson og
Örvar Einarsson. Textar eru eftir
Vilborgu Traustadóttur og Vigfús
Má Vigfússon. Tónlistarflutningur
er í höndum kvartetts, sem tekur
þátt í sýningunni sem fullgildur
aðili. Samanstendur hann af
tveimur gíturum, blokkflautu og
söngkonu. Tónlistin fellur einkar
vel að sýningunni og þjónar stóru
hlutverki.
Það er ekki oft sem íbúum höf-
uðborgarsvæðisins gefst tækifæri
til að sjá sýnishorn af menning-
arsköpun þeirri, sem fram fer úti
á landsbyggðinni og er eingöngu
unnin af áhuga og leikgleði. Hér
gefst þó slíkt tækifæri og vil ég
benda íbúum höfuðborgarsvæðis-
ins á að láta það sér ekki úr greip-
um ganga. Sýningin verður í fé-
lagsheimilinu á Seltjarnarnesi,
laugardaginn 4. sept kl. 21 og
sunnudaginn 5. sept kl. 21. „Eng-
inn veit sína ævina" er vel þess
virði að verja smástund til að
, horfa á það, en of gott til að láta
það fram hjá sér fara.