Morgunblaðið - 03.09.1982, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1982
25
„Þetta gekk ekki
vel en skamm-
laust vona ég“
— sagði Jóhann Hjartarson, en hann
lenti í 8.—11. sæti á heimsmeistaramóti
unglinga í skák
JÓHANN Hjartarson hafn-
aði í 8.—11. sæti á heims-
meistaramóti unglinga í
skák sem lauk í Kaupman-
nahöfn á föstudagskvöld.
Jóhann hlaut 8 vinninga úr
13 umferðum, en 52 skákm-
enn tefldu á mótinu eftir
Monrad-kerfí. Sov-
étmaðurinn Sokolov vann
sannfærandi sigur með 10
vinninga, annar varð Tékk-
inn Stohl með 9 vinninga og
í 3.—7. sæti urðu þeir Benj-
amin, Bandaríkjunum, Ha-
nsen, Danmörku, Short,
Bretlandi, Morovich, Chile,
og Milos frá Brasilíu með
m vinning.
„Þetta gekk ekki vel en
skammlaust vona ég. Ég byrjaði
illa á mótinu og tapaði óvænt
fyrir Lloyd frá Nýja-Sjálandi í
fyrstu umferðinni, rétti síðan
aðeins úr kútnum, en tapaði
fyrir Barbulesko frá Rúmeníu
um miðbik mótsins. Síðasta tap-
skák mín var gegn Stohl í 11.
umferðinni, en hann lenti í öðru
sæti á mótinu. Ég vann þó sex
skákir og gerði fjögur jafntefli,
vann oft tvær og tvær í röð
þannig að þetta gekk nokkuð
jafnt,“ sagði Jóhann Hjartarson
í viðtali við Morgunblaðið.
Nú mættu flestir keppendur
til leiks með aðstoðarmann sér
við hlið. Háði það þér eitthvað,
að þú hafðir engan slíkan?
„Auðvitað háði það mér nokk-
uð. A móti sem þessu er nauð-
synlegt að hafa aðstoðarmann,
bæði til þess að styrkja móralinn
og til þess að aðstoða við tækni-
legu hliðina, fara yfir biðskákir
og slíkt. Þeir keppendur, sem
komu frá helstu skákþjóðum
heimsins, höfðu allir aðstoðar-
menn. Hins vegar er á það að
líta að Skáksamband íslands er
það illa statt fjárhagslega, að
það hafði einfaldlega ekki bol-
magn til þess að standa undir
kostnaði samfara aðstoðar-
manni."
Hvernig var aðstaðan á mót-
inu?
„Aðstæðurnar á mótinu voru
nú ekkert sérstakar enda á mað-
ur ekki von á neinu sérstöku þeg-
ar um unglingamót er að ræða.
Mér fannst keppnissalurinn
slæmur. Maður gerir þó kannske
ekki raunhæfan samanburð því
að á íslenskum skákmótum eru
yfirleitt mjög góðar aðstæður
miðað við það sem gerist erlend-
is.“
Bretar hafa eflaust búist við
Jóhann Hjartarson
miklu af Short á þessu móti og
hafa þeir m.a. kallað hann
undrabarn í skáklistinni. Hvern-
ig var frammistaða hans á mót-
inu?
„Rétt fyrir miðbik mótsins fór
Short að tapa trekk í trekk og
varð snemma ljóst, að hann yrði
ekki í baráttunni um efstu sætin.
Hann tók sig þó á í lokin, fékk
svokallaðan Monrad-meðvind, og
lenti í 3.-7. sæti í lokin. Að
mínu áliti hefur Short ekki næg-
an skapstyrk, að minnsta kosti
ekki enn sem komið er, til þess
að geta komist í röð bestu
manna, enda sýndi það sig á
mótinu, að hann lætur mótlætið
setja sig út af laginu og tekur
áföllum illa.“
Nú ert þú búinn að ná fyrri
áfanga að alþjóðlegum meistara-
titli. Stefnir þú ekki að því að ná
seinni áfanganum sem fyrst?
„Ég náði fyrri áfanganum í
Lone Pine í Kaliforníu, en þar
hafa verið haldin reglulega al-
þjóðleg mót á undanförnum ár-
um, sem hafa verið happadrjúg-
ur vettvangur fyrir islenska
skákmenn. Þetta mót var þó ekki
haldið á síðastliðnu ári. Vanda-
málið er, að það er mjög erfitt að
komast á hentug mót. Á þessu
heimsmeistaramóti unglinga,
sem haldið er fyrir skákmenn 20
ára og yngri, gaf efsta sætið al-
þjóðameistaratitil en önnur sæti
ekkert, og því að miklu að keppa.
Þetta tókst ekki í þessari til-
raun, en fleiri tilraunir verða
gerðar seinna," sagði Jóhann, en
hann hefur í fleiri horn að líta
þar sem hann stundar nám í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
og stefnir að því að leggja fyrir
sig háskólanám. Jóhann hefur
verið valinn í skáksveit íslend-
inga sem teflir á Ólympíuskák-
mótinu í Sviss.
V iðskiptav iðræður
við Tékka og Pólverja
VIÐSKIPTAVIÐRÆÐUR milli fæ
lands og Tékkóslóvakíu og íslands
og Póllands fara fram í Prag 2.-3.
september og í Varsjá 6.-7. sept-
ember, samkvæmt upplýsingum,
sem koma fram í fréttabréfi Verzl-
unarráðs fslands.
Að ósk viðskiptaráðuneytisins
hefur Verzlunarráðið skipað full-
trúa sína í íslenzku viðræðunefnd-
ina. Þeir eru Ragnar Ragnarsson í
viðræðunefndina við Tékka og
Sigurður Njálsson í nefndina, sem
fer til Póllands.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Háþrýstislöngur
og tengi.
Atlas hf
Armúla 7. - Sími 2(>755.
IVisthólf 493 - Revkjavík.
Æ
Blaöburdarfólk óskast!
Austurbær Vesturbær Ármúli Tjarnargata 3— Laugavegur neöri Melhagi Mávahlíö Tjarnarstigur Fellsmúli 2-26 Garöastræt. jöfn tala Nylendugata Fellsmúli 5—19 Uthverfi oddatala Lindarsel Stigahlíö 26—97 Hólmgaröur Lindargata FOSSVOgur Eskihlíö 14—35 Gautland Hverfisgata 63—120 Geitland Kópavogur 40 Hlíöarvegur 138—149 35408 IKömtttt wmb Upplýsingar í síma
Eftirsóttu
superia
reíðhjólin
á 20Z ahlættí
HJOL & VAGNAR
Háteigsvegi 3 -105 Reykjavík ® 21511
U U DAK AHYHGi')
\ sruu
VERÐ