Morgunblaðið - 03.09.1982, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1982
29
„011i“, það var mælt af einlægri
vináttu.
Aðalstarf Olivers var vélsetning
í prentiðnaði. Hann var öruggur
og vandvirkur í starfi og var sér-
staklega leitað til hans við setn-
ingu vandasamra skýrslu- og
töflugerða.
Oliver hafði góð áhrif á alla er
honum kynntust. Hann var glað-
sinna, hans broshýru augu og
ljúfa viðmót iljuðu og örfuðu
daprar og hrjáðar sálir. Tónlistin
var hans yndi og samdi hann mörg
fögur lög, sem hrifu aldna sem
unga.
Eftirlifandi kona Olivers, Lára
Einarsdóttir, reyndist honum
frábærlega vel í hans ströngu
veikindum.
Kæra Lára, við Nanna sendum
þér og fjölskyldunni innilegar
samúðark veðj ur.
Blessuð sé minning Olivers Guð-
mundssonar.
Hafsteinn 1‘orsteinsson
Við eigum margar góðar minn-
ingar um afa okkar. Alltaf þegar
við komum í heimsókn var tekið
vel á móti okkur. Og alltaf fengum
við fallegar afmælis- og jólagjafir
frá honum og ömmu. Við komum
til með að sakna þess mest að
hann spilar ekki lengur á orgelið
fyrir okkur, þegar við komum í
heimsókn.
Lára Rakel, Oliver,
Sirrý og Sigrún Björk.
Bryndís Annas-
dóttir — Minning
Fædd 19. september 1928
Dáin 17. júlí 1982
Mig langar að skrifa fáein
kveðjuorð um tengdamóður mína,
Bryndísi Annasdóttur.
Foreldrar hennar voru þau
Annas Sveinsson frá Kirkjubóli í
Staðardal á Ströndum og Helga
Jakobsdóttir af breiðfirskum ætt-
um.
Binna fæddist að Engjabrekku á
Vatnsnesi, en þegar hún var 6 ára
lést faðir hennar og fluttist hún
þá með móður sinni að Hindisvík
og ólst þar upp. Strandafjöllin
blasa við sýn af Vatnsnesinu og
eflaust hefur Binnu oft verið
hugsað til ættingjanna sem
bjuggu undir sæbröttu fjöllunum
við vesturströnd Húnaflóa.
Ung að árum fluttist Binna til
Reykjavíkur og kynntist þar eftir-
lifandi eiginmanni sínum, Hans
Nielsen. Þau eignuðust 3 börn,
Eggert Waage, Helga Annas og
Ragnheiði Karen.
Lengst af bjuggu þau Binna og
Hans að Gnoðarvogi 24 í Reykja-
vík.
Binna vann síðustu æviárin á
Hrafnistu og stundaði störf sín af
mikilli natni og kostgæfni.
Þegar við Helgi létum skíra
eldri son okkar, Ingimar, í
Strandasýslu, þá kom Binna í
fyrsta skipti á slóðir forfeðranna í
föðurætt og ferðaðist nokkuð um
SVAR
MITT
eftir Billy (iraham
Hefndir
Við erum unglingar og þurfum á aðstoð að halda. Pabbi
okkar hefur sett þær reglur, sem við eigum að fara eftir á
heimili okkar. Hann hefur kennt okkur að jafna sakirnar,
þegar einhver gerir á hlut okkar, og síðan eigum við að fyrir-
gefa. Þetta er andstætt því, sem við höfum lært í kirkjunni.
Hefur pabbi rétt fyrir sér?
Pabba ykkar gengur sjálfsagt gott eitt til, en
þarna blandar hann saman á einkennilegan hátt
heiðnum hugsunarhætti og kristilegum. Það er heið-
ið að „jafna sakir", en það er kristilegt að fyrirgefa.
Jesús kenndi, að við kristnir menn ættum ekki að
setja okkur í Guðs stað og refsa öðrum. Biblían
segir: „Mín er hefndin, ég mun endurgjalda, segir
Drottinn."
I Fjallræðunni eru leiðbeiningar fyrir börn Guðs
um rétta breytni. Þar erum við hvergi, í þeirri miklu
ræðu, hvött til þess að Jafna sakirnar".
Jesús nam boðorðin tíu ekki úr gildi, heldur lét
þau ná yfir breiðara svið en áður, svo að mér er
erfiðara að halda þau. Það er í raun og veru óhugs-
andi að Iifa í samræmi við Fjallræðuna, nema Jesús
lifi í hjörtum okkar. Við verðum að þekkja Krist,
áður en unnt er að gera þessar hugsjónir að veru-
leika.
„Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn,“ sagði í lög-
máli Móse. En Jesús sagði: „Þér skuluð ekki rísa
gegn meingjörðamanninum, en slái einhver þig á
hægri kinn þína, þá snú þú einnig hinni að honum."
Kannski segið þið, að þetta sé ekki eðlilegt, og ég
er á sama máli. En búi Kristur í hjörtum okkar,
getum við sagt eins og Kristur á krossinum: „Faðir,
fyrirgef þeim, því að þeir vita ekki hvað þeir gjöra."
Strandirnar sér til mikillar
ánægju.
Ég vil að lokum þakka Binnu
tengdamömmu samveruna og alla
þá alúð og vinsemd, sem hún sýndi
mér og drengjunum mínum, en
þeir sakna Binnu ömmu mikið.
Ég bið guð að blessa minningu
Bryndísar. „Þar sem góðir menn
fara, eru guðsvegir".
Eyrún Ingimarsdóttir
Matsveinar
á farskip-
um sömdu
SAMKOMULAG tókst i kjaradeilu
matsveina á farskipum og útgerð-
armanna á fundi hjá sáttasemjara á
mánudag og var samningurinn
undirritaður með venjulegum fyrir-
vara um samþykki félagsmanna.
Samningurinn er í meginatriðum
í anda heildarkjarasamnings Al-
þýðusambands Islands og Vinnu-
veitendasambands íslands frá í
sumar, sem gerir ráð fyrir 9-10%
launahækkun á samningstímanum,
sem er til 1. september á næsta ári.
Auk þess náðist samkomulag um
ýmis smærri sérhagsmunamál
matsveina.
+
Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
JÓHANN EIRIKSSON.
Hofsóai,
'veröur jarösettur frá Hofsóskirkju laugardaginn 4. sept. kl. 14.
Alda Jóhannsdóttir, Jóhann Jóhannsson,
Einar Jóhannsson, Erna Geirmundsdóttir,
Haraldur Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Móöir okkar,
MARGRÉT JÓNSDÓTTIR BURT,
Hátúni 4,
veröur jarösunginn laugardaginn 4. sept. kl. 2 frá Innri-Njarðvík-
urkirkju.
Michael Burt,
Karen Barglay,
James Burt.
+ Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
móður okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu.
HILDAR Þ. KOLBEINS,
Meöalholtí 19.
Sérstakar þakkir sendum við til lækna, hjúkrunarliös og starfsfólks
á Landakotsspítala.
Jóhanna Kolbeins, Árni Þór Jónsson,
Hannes B. Kolbeins, Guörún B. Kolbeíns,
Þorsteinn Kolbeins, Rósa Þorláksdóttir,
Júlíus Kolbeins,
Páll H. Kolbeins, Helga Classen,
Þóra Katrín Kolbeins, Magnús G. Erlendsson,
Þórey Kolbeins, Jón Kr. Þorsteinsson,
Sigriöur Kolbeins, Gunnar Ágústsson,
Eyjólfur Kolbeins, Guörún J. Kolbeins,
Þuríöur Kolbeins, Helgi Gíslason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
GUÐMUNDAR MARÍASAR GUÐMUNDSSONAR,
Miótúni 70.
Arndís Theodórs,
Borgar Skarphéóinsson, Sesselja Svavarsdóttir,
Guömar Guömundsson, Karítas Siguröardóttir,
Hólmfríður Guömundsdóttir, Siguröur Svavarsson,
og barnabörn.
+
Innilegar pakkir sendum viö öllum sem sýndu okkur samúö og
vinarhug viö andlát og jaröarför fööur okkar, stjúpfööur, tengda-
fööur, afa og langafa,
GUÐMUNDAR HANNESSONAR
frá Egilsstaöakoti,
Villingaholtshreppi.
Sérstakar þakkir færum viö læknum og hjúkrunarliöi Sjúkrahúss
Suöurlands fyrir frábæra umönnun.
Sesselja Guömundsdóttir, Sighvatur Pétursson,
Þorsteinn Guómundsson, Unnur Jónasdóttir,
Hermundur Þorsteinsson, Laufey Guömundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum öllum auösýnda samúö viö andlát og útför fööur okkar,
tengdafööur og afa,
GUDMUNDAR VIGFÚSAR ÞORGILSSONAR,
Hafnarfirói.
Höröur Vigfússon,
Óskar Vígfússon,
Þorbjörg Vigfúsd. Day,
Kristín Vigfúsdóttir,
Ólafur Vigfússon,
Lýöur Vigfússon,
Ómar Haffjöró,
barnabörn og
Sigmundlna Pétursdóttir,
Elín Kristjánsdóttir,
Robert A. Day,
Grétar Finnbogason,
Auölín Hannesdóttir,
Helga Lúövíksdóttir,
Ásdis Vignisdóttir,
barnabarnabörn.
I®|
Litmyndir samdægurs
Komdu meö filmuna fyrir kl. 11 aö morgni og
þú færö myndirnar tilbúnar kl. 5 síödegis.
Skýrar og fallegar myndir, þriðjungi stærri
en gengur og gerist.
Afgreiöslustaöir okkar eru:
Glögg mynd, Suðurlandsbraut 20, sími 82733,
Glögg mynd, Hafnarstræti 17, sími 22580 og
Magasín, Auöbrekku 44—46, Kópavogi, sími 45300.
í LEIÐINNI BJÓÐUM VIÐ ÞÉR SAKURA-
FILMUR MEÐ 50% AFSTÆTTI.
VÖRULISTAVERSLUN,
Auöbrekku 44—46, Kópavogi.