Morgunblaðið - 03.09.1982, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1982
31
• Atli Eðvaldsson skoraði mark íslands gejrn Hollandi eftir góðan undir-
búning Arnórs Guðjohnsen. Hér sést Atli i skallaeinvígi við einn hollenska
leikmanninn.
1. deildarliðin
sitja um Örn
Landsliðsmaðurinn sterki hjá
ÍBV, Örn Óskarsson, er nú fluttur
búferlum til Reykjavíkur og mun
hann því ekki leika með ÍBV næsta
keppnistímabil. Hann mun þó leika
tvo síðustu leiki mótsins með ÍBV,
en síðan ekki söguna meir. Vitað er
að mörg lið hafa áhuga á þvi að fá
Örn til liðs við sig, eflaust fleiri held-
ur en heyrst hefur, því fengur er að
jafn sterkum leikmanni og Örn er.
Þau nöfn sem heyrst hafa eru ann-
ars Fram, Þróttur, UBK, Víkingur og
eflaust eru þau fleiri.
• örn ÓskarasM verður eftirsóttur.
• Ásgeir skoraði sín fyrstu mörk fyrir lið Stuttgart í 1. deildarkeppninni og
sýndi stórgóðan leik með liðinu er það sigraði 5—0.
2.864 áhorfendur komu á landsleikinn:
„Setur fjárhag KSÍ
alveg úr skorðum“
segir gjaldkeri sambandsins Friðjón Friðjónsson
ÞAÐ HEFIIR vakið nokkurra at-
hygli að aðeins 2.864 áhorfendur
mættu til þess að sjá landsleik ís-
lands og Hollands í Evrópukeppni
iandsliða i knattspyrnu. Þetta er
minnsta aðsókn að landsleik hér á
landi um langt skeið ef undanskil-
inn er landsleikurinn gegn' Nígeriu
sem fram fór i fárviðri í fyrrasumar.
Gjaldkeri KSÍ Friðjón Frið-
jónsson sagði í viðtali við Mbl. í
gærdag að aðsóknin að landsleikn-
um væri mikið reiðarslag fyrir
stjórn KSÍ og setti fjárhag sam-
bandsins alveg úr skorðum.
— Á fjárhagsáætlun KSÍ fyrir
árið var gert ráð fyrir átta til níu
þúsund áhorfendum á leikinn,
sagði Friðjón. Friðjón vildi alfarið
kenna hinu slæma veðri sem var
rétt fyrir leikinn um stóran þátt
þess að ekki mættu fleiri á völlinn,
og jafnframt væri ekki óhugsandi
að knattspyrnuáhugamenn væru
orðnir fullsaddir af knattspyrnu á
sumrinu þegar tekið væri tillit til
þess hversu mikið var sýnt frá
HM-keppninni á Spáni.
En það var ekki uppgjafartónn í
Friðjóni. Hann sagði að næstkom-
ándi miðvikudag yrði leikið gegn
A-Þjóðverjum á Laugardalsvellin-
um og þá yrði vonandi betri að-
sókn.
Formaður KSÍ Ellert B. Schram
sagðist varla vera búinn að átta
sig ennþá á hinni slæmu aðsókn á
leiknum. Þetta væri afar slæmt
fyrir KSÍ, og fyrirsjáanlegt að
draga yrði saman seglin í erlend-
um samskiptum ef stærsta tekju-
lindin aðgangseyrir af landsleikj-
um minnkaði verulega.
Ellert sagði að það virtist vera
sama hér og annarstaðar að að-
sókn að knattspyrnuleikjum
minnkaði verulega sama ár og
heimsmeistarakeppnin í knatt-
spyrnu færi fram.
Þá væri ekki loku fyrir það skot-
ið að gengdarlaus áróður í blöðum
um að knattspyrnan hér á landi
væri léleg hefði sitt að segja. Ell-
ert sagði að sitt álit væri það að
knattspyrnan hér í sumar væri
síst lakari en áður. Það væri mjög
dýrt að greiða fyrir erlendu liðin
svo og íslensku atvinnumennina
sem væru erlendis og kæmu
hingað til að keppa fyrir íslands
hönd.
— ÞR
• Aðeins 2.864 áhorfendur mættu á landsleikinn gegn Hollendingum. Hvað veldur? Er áhuginn á knattspyrnu að
dvína? Eða setti slæmt veður strik í reikninginn?
Ásgeir skoraði tvö mörk er
Stuttgart sigraði Niirnberg 5—0
Ásgeir Sigurvinsson átti stórleik
með liði sínu Stuttgart í fyrrakvöld
er liðið sigraði Niirnberg 5—0 á úti-
velli. Ásgeir skoraði tvö mörk fyrir
Stuttgart og lagði það þriðja upp er
hann átti mjög góða sendingu á
franska landsliðsmanninn Six. Sýnt
Unglingalandsliðið í golfi hefur
tekið þátt i Evrópukeppni unglinga-
landsliða í Frakklandi síðustu daga,
og síðustu fregnir af liðinu voru á þá
lund, að það tapaði naumlega fyrir
Belgíu 3—4. f sveitakeppni sigruðu
Magnúsarnir keppinauta sína 5—3,
en þeir Gylfi og Páll töpuðu hins
vegar fyrir sínum mótherjum 3—4.
Magnús S. vann sinn mótherja í
einstaklingskeppni 2—1, Gylfi
er á frammistöðu Stuttgart-liðsins í
fyrstu leikjum mótsins að það verður
mjög sterkt á keppnistímabilinu.
Bayern Miinchen sigraði Karls-
ruhe 4—0. Armenia sigraði Frank-
furt 2—1, og er nú í efsta sæti í 1.
deildinni. Leverkusen sigraði Boch-
vann sinn mann 1—0, en þeir
Hilmar, Sigurður og Magnús J.
töpuðu fyrir mótherjum sínum
1-2, 2-4 og 3-4.
Urslit í öðrum leikjum urðu
þau, að Svíþjóð vann Noreg 7—0,
Skotland sigraði Spán 4,5—2,5,
England lagði Sviss að velli
4.5— 2,5, Ítalía vann Frakkland
5.5— 1,5 og Danmörk sigraði Hol-
land 4—3.
um 1—0 og Borussia Dortmund sigr-
aði FC Köln 2—0. Staða efstu liða í
Bundesligunni er þessi:
Bielefeld 3 300 5—1 6
Stuttgart 3 2 1 0 8—2 5
Dortmund 3 2 1 0 6—2 5
Bremen 3 2 1 0 4—1 5
Bayern 3 2 0 1 5—1 4
Karlsruhe 3 2 0 1 2—4 4
Jóná
3:43,7
JÓN Diðriksson, hlaupari úr
UMSB, keppti á þriðjudagskvöldið
í 1.500 metra hlaupi í Luxemborg.
Jón varð fimmti i hlaupinu á
3:43,69 mínútum, en sigurvegari
varð Sidney Maree, sem hljóp á
3:37 mínútum. A.nnar i hlaupinu
varð frinn Ray Flynn og þriðji
Bandaríkjamaðurinn Tom Byers á
3:40 mín. Jón keppir í 800 og 1.500
metra hlaupurn á Evrópumeistara-
mótinu, sem fram fer í Aþenu í
næstu viku.
___________— ágás.
Unglingaliðið í golfi:
Naumt tap
gegn Belgíu