Morgunblaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR16. OKTÓBER1985 5 Opinberri heimsókn Matthíasar A. Mathiesen til Japan lýkur f dag: „Skapar betri skilyrði til að auka útflutning til Japan“ MATTHÍAS Á. Mathiesen viðskiptarádherra, gerir sér góðar vonir um að aukin viðskipti íslendinga við Japani komi í kjölfar opinberrar heimsóknar hans til Japan, en þeirri heimsókn lýkur í dag. „Við áttum á mánudag viðræður við verzlunarráð Japans og í dag áttum við viðræður við viðskipta- ráðherra Japans, Murata, og síðar í dag við utanríkisráðherra Jap- ans, Shingoro Abe,“ sagði Matth- ías í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagðist í dag mundu ræða við samtök stórfyrirtækja í Japan. Viðskiptaráðherra sagði að markmið þessara viðræðna væri að skapa möguleika á auknum viðskiptum milli Islands og Jap- Skólamir í Reykjavík: Skólastjórar og fræðsluráð hafna fyrirhuguðum kynn- ingardegi KÍ FRÆÐSLURÁÐ Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu skólastjóra í Reykjavík að falla frá fyrirhuguðum kynningardegi í skólum borgarinnar laugardaginn 2. nóvember næstkomandi. Þess í stað verði skólar opnir fyrir foreldra og forráðamenn nemenda vikuna 4.—8. nóvember á venjulegum starfstíma hvers skóla. Upphafleg hugmynd um kynningardag laugardaginn 2. nóvem- ber og leyfi mánudaginn 4. nóvember kom frá kynningarnefnd Kennarasam- bands íslands og var kynnt í bréfi til skólastjóra dagsettu 20. ágúst síðast- liðinn. Að sögn Ragnars Júlíussonar, skólastjóra Álftamýrarskólans og formanns Fræðsluráðs Reykjavíkur samþykktu skóia- stjórar á fundi, sem haldinn var dagana 25. til 27. september, með 17 atkvæðum gegn 2 eftirfarandi tillögu: „Fundur skólastjóra í Reykjavík haldinn 27.9. 1985 sam- þykkir að beina til Fræðsluráðs Reykjavíkur að hugmynd Kenn- arasambands íslands um kennslu laugardaginn 2. nóvember og leyfi mánudaginn 4. nóvember til kynn- ingar á starfi í skólum borgarinnar verði breytt þannig: Starfsemi skólanna raskist eigi heldur verði þeir opnir foreldrum og forráða- mönnum nemenda vikuna 4.-8. nóvember á venjulegum starfst- íma hvers skóla." Tilmæli skóla- Tveir þingmenn BJ segja sig úr landsnefndinni: Kristófer Már og Valgerður ætla að hætta formennsku „VIÐ Valgeröur munum ekki bjóða okkur fram til formennsku að nýju á fundi landsnefndar næstkomandi laugardag. Við nennum ekki að vera í pólitísku samfélagi með kerlingum eins og Kristínu S. Kvaran og Kolbrúnu Jónsdóttur, sem vilja gera Bandalag jafnaðarmanna að mjög hallærislegum anga úr Alþýðuflokknum," sagði Kristófer Már Kristins- son, formaður landsnefndar BJ, en í fundarboði fyrir lokaðan fund landsnefndarmanna sem fram á að fara nk. laugardag er tekið fram að kosið skuli til formanns og varaformanns. Varaformaður er Valgeröur Bjarnadóttir. Tveir þingmenn BJ, þær Kristín S. Kvaran og Kolbrún Jónsdóttir, hafa sagt sig úr landsnefndinni vegna óánægju með störf for- mannsins: „Okkur hefur ofboðið sú þróun sem átt hefur sér stað að undanförnu og endurspeglast í margítrekuðum yfirlýsingum for- manns landsnefndar í fjölmiðl- um,“ sagði Kristín. „Þessar yfir- lýsingar hafa beinst að því fólki sem unnið hefur hvað mest með BJ frá fyrstu byrjun. Þegar heyr- ist hósti eða stuna er fyrsta hugs- unin hvort eigi að reka þennan eða hinn. Það er auðvitað ekki hægt að starfa í pólitík með fólki sem hefur tilhneigingar á borð við þessa.“ En hvaða afleiðingar hefur þessi deila fyrir BJ? Kristófer Már: „Dauða, geri ég ráð fyrir. Þetta fólk hefur stefnt að því frá í vor að drepa BJ og nú hefur því tekist það. Og ég óska því bara til hamingju með það.“ Kristín S. Kvaran: „Lands- nefndin var orðin hálf lömuð og óstarfhæf vegna flokkseigendatil- burða fárra einstaklinga, og þess vegna breytir það litlu sem engu um starfsemi BJ þótt við hættum að taka þátt í störfum landsnefnd- ar.“ í landsnefnd BJ eru 30 ein- staklingar auk fjögurra þing- manna, en áður hafði einn maður sagt sig úr nefndinni. ans, en Japansstjórn hefði nú tekið ákvarðanir um breytingar á ýmsu því sem torveldað hefði innflutn- ing til Japans, svo sem verndar- tolla ýmis konar, kvóta og fleira. „Við vorum í gær viðstaddir þingsetningu hér í Tókýó, og hlýddum á forsætisráðherra Jap- ans, Nagasone, flytja stefnuræðu sína, þar sem hann undirstrikaði þessi áform Japansstjórnar," sagði Matthías, „og lýsti yfir áhuga stjórnvalda á því að koma í veg fyrir að verndartollastefna næði aftur undirtökum í alþjóðavið- skiptum." Viðskiptaráð.herra sagði að það væri íslendingum að sjálfsögðu mikið áhugamál að Japanir slök- uðu á þeim reglum sem giltu um innflutning til Japan. Jafnframt því sem það væri okkur kappsmál að slíkar reglur næðu ekki einungis til iðnaðarvara, heldur og til sjáv- arafurða, til þess að við gætum átt greiðari aðgang að japönskum Matthías Á. Mathiesen mörkuðum. „Við höfum rætt við Japanina um samstarf á sviði orku- og iðnaðarmála, í ljósi þess að japanska fyrirtækið Sumi Tomo gerðist á sl. ári eignaraðili að Járn- blendifélaginu á Grundartanga. Við undirstrikuðum að í framhaldi af því gæti verið um að ræða samstarf og viðskipti og þar með aukin viðskipti af okkar hálfu við þá,“ sagði viðskiptaráðherra. Viðskiptaráðherra sagði að full- trúar þeir frá útflytjendum, sem með í förinni væru, hefðu átt við- ræður við þá aðila sem þeir hefðu skipt við, þannig að bæði hefði verið rætt við ráðherra í ríkis- stjórn Japan og forystumenn í innflutningsfyrirtækjum. Jafn- framt sagði Matthías að á jap- anska þinginu hefði verið stofnuð sérstök þingmannanefnd sem fjalla myndi um málefni íslands, og sagði hann að starf þessarar nefndar gæti orðið mjög þýðing- armikið fyrir útflutning frá ís- landi til Japan, því þar gæti verið skapaður grundvöllur til þess að byggjaá. Matthías var spurður hvort hann gerði sér vonir um að út- flutningur íslendinga til Japan myndi aukast í lýölfar heimsóknar hans þangað: „Eg hef þá skoðun að í kjölfar þessarar heimsóknar, sem er sú fyrsta sinnar tegundar, þar sem fulltrúar útflytjenda eru með ráðherra í opinberri heimsókn hans, þá eigi það eftir að hafa sín áhrif, og skapa okkur betri skilyrði til þess að auka útflutning til Japans,“ sagði Matthías Á. Math- iesen viðskiptaráðherra. stjóranna voru lögð fram í fræðs- luráði, sem samþykkti þau með fimm samhljóða atkvæðum. Ragnar Júlíusson sagði enn- fremur að sent hefði verið út bréf til foreidra nemenda Álftamýrar- skólans þar sem meðal annars segir að samkvæmt samhljóða samþykkt kennarafundar í Álfta- mýrarskóla verði skólinn ekki opinn laugardaginn 2. nóvember næstkomandi, svo sem Kl hefði auglýst sem kynningardag, en hins vegar veri skólinn opinn alla starfsdaga svo sem verið hefði undanfarin 20 ár. Ragnar kvaðst ' ekki eiga von á öðru en að aðrir skólar borgarinnar féllu frá fyrir- huguðum kynningardegi sam- kvæmt samþykkt skólastjóra og fræðsluráðs. MKIAWLE 111 11 Matseðill helgarinnar Rjómasúpa prinsesse (fuglakjötsúpa) Broadwaysteik (lamba- piparsteik) Franskur súkkulaðibúð- ingur með rjóma Hinn landskunni píanósnill- ingur Ingimar Eydal spilar fyrir matargesti. hin eina og sanna, meö alla helstu skemmtikrafta landins í fararbroddi er svo sannarlega búin aö setja svip sinn á helstu skemmtistaði landsins sl. 15 ár meö söng, dansi, gríni og gleöi. Enn gera þeir þaö gott, strákarnir í Sumargleð- inni, og nú í Broadway, glæsilegasta veitingahúsi landsins. Troðfullt hús var í Broadway sl. tvær helgar. Nú er um aö gera aö vera snöggur aö panta sér miöa og borö í síma 77500 — því næsta skemmtun þeirra Sumargleðimanna veröur í Broadway nk. föstudags- og laugardagskvöld. Góöa skemmtun í gleöinnar-kvöldi meö þeim gleö- innar-mönnum í Broadway. ókrýndurKo^^^’j'apánskl daB9urt6nl>«»rsl6ni,.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.