Morgunblaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR16. OKTÓBER1985 15 manns fórust í flóðum á Thailandi Bangkok, Thailandi, 15. okt. AP. FIMMTAN manns létu lífið og þrír slösuðust i skyndilegum flóðum, sem urðu í Mið-Thailandi á sunnudag í kjölfar gífurlegs úrfellis, að því er talsmaður innanríkisráðuneytisins og embettismenn í þessum lands- hluta sögðu í dag. Suan Phung-sýsla í Ratcha- buri-héraði (um 80 km suðvestur af höfuðborf'inni. Bangkok) varð verst úti, en þar fórust 12 manns og 50 íbúðarhús gereyðilögðust, að sögn embættismanna. Vegasam- band rofnaði víða og brýr brustu undan vatnsflaumnum. I Damnoen Saduak-sýslu, næstu sýslu við Suan Phung, fórust þrír og þrír slösuðust. Þar skemmdust 415 hús og þúsundir manna urðu heimilislausar. Ránið á Achille Lauro: Samstarfsmanna sjóræningjanna leitað á Italíu Tórínó, 15. október Frá Brvnju Tómer, fréttaritara Morjfunblaðsin.s. ACHILLE Lauro, ítalska farþega- skipið, sem Palestínuskæruliðar rændu á dögunum, er nú á heimleið og er væntanlegt til Genúa á morgun, miðvikudag. Um borð í skipinu eru 20 farþegar, þar af sjö ítalir, auk áhafnarinnar, en megin- hluti farþeganna fór frá borði við lok sjóránsins. Áhöfn og farþegar verða yfirheyrðir við komuna til Ítalíu til að reyna að fá botn í morðið á Bandaríkjamanninum, sem Palestínumennirnir neita stað- fastlega að hafa drepið. Sjóræningjarnir voru yfir- heyrðir í 10 klukkustundir í gær og hafa föt þeirra verið send á rannsóknarstofu til að kanna hvort í þeim finnast blóðblettir. í sjónvarpsfréttum ítalska ríkis- sjónvarpsins i gærkvöldi var dregið í efa að Palestínumenn- irnir hefðu myrt Leon Kling- hoffer. Skæruliðarnir voru fluttir á nýjan dvalarstað á Sikiley í gærkvöldi, en ekki er vitað hvar þeir eru nú niðurkomnir. Óttast var að ráðist yrði á fangelsið, sem þeir voru í, og reynt að frelsa þá, einkum eftir yfirlýsingar Mohammed Abbas, leiðtoga skæruliðanna, í Júgóslavíu um helgina. Italir leyfðu Abbas að fara frá Ítallu á laugardag þar sem talið var að hann væri ekki viðriðinn ránið sjálft, og hefur sú ákvörðun leitt til mikilla póli- tískra deilna hér. Áherzla er nú lögð á að finna hugsanlega samstarfsmenn sjó- ræningjanna á Ítalíu, einkum í Genúa. Skömmu fyrir sjóránið var Palestínumaður með tvö föls- uð vegabréf í fórum sínum hand- tekinn. Hann bar því við að hann væri að leita sér lækninga og taldi einu leiðina að komast inn í landið með þessum hætti. Ekki var lagður trúnaður á söguna, en samt var honum sleppt. Fór hann síðan í siglinguna með Achille Lauro en fór frá borði þegar skipið kom til Alexandríu í Egyptalandi, en skipinu var rænt skömmu eftir brottförina þaðan. Þá hefur tekizt að hafa hendur í hári grunsamlegs manns, sem pantaði far fyrir Palestínumenn- ina fjóra, sem nú eru í haldi á Sikiley. Ennfremur er í ljós komið að tveir fjórmenninganna dvöldu á hóteli í Genúa stuttu fyrir brottför Achille Lauro í þrjá daga. Yfirgáfu þeir hótelið í fylgd Araba eftir langt símtal til útlanda. Dómarinn, sem yfirheyrði fjórmenningana, segir þá líta á sig sem hermenn og ekkert ann- að. Ágreiningur er sprottin upp um forráð í máli þeirra. Dóms- málayfirvöld í Genúa gera tilkall til ræningjanna og segja eðlileg- ast að sækja þá til saka í heima- höfn Achille Lauro. Angóla: Tólf Sovétmenn felldir Lissabon, 14. október AP. SKÆRULIÐAR UNITA-hreyringar- innar í Angóla héldu því fram í dag, að þeir hefðu fellt 12 sovéska hernað- arráðgjafa, skotið niður eina þyrlu stjórnarhersins og laskað aðrar fjór- ar. Kom þetta í dag fram hjá tals- manni hreyfingarinnar í Lissabon í Portúgal. Að sögn talsmanns UNITA lét- ust 12 sovéskir hernaðarráðgjafar þegar sprengja, sem skæruliðar höfðu komið fyrir, sprakk í her- mannaskálum í borginni Huambo 10. október sl. en sama dag réðust skæruliðar á varðstöð stjórnar- hersins í bænum Que í Huila- héraði og felldu 17 hermenn að eigin sögn. Auk þess segjast þeir hafa skotið niður eina herþyrlu og skemmtfjórar. UNITA-hreyfingin hefur í ára- tug barist gegn Angólastjórn, sem styðst við Sovétmenn og Kúbu- menn, en UNITA hefur hins vegar notið aðstoðar Suður-Afríku- manna. Davíð gegn Golíat AP slmamynd Franska freigátan Balny, sem staðsett er við Mururoa-eyju í Suður- Kyrrahafi, þar sem kjarnorkutilraunir Frakka fara fram, hefur hér nánar gætur á fleka Greenpeacemanna, sem mótmæla kjarnorkutilraunum Frakka á þessu svæði. Peres sæk- ir þing jafn- aðarmanna Vín, 15. október. AP. ALÞJÓÐASAMTÖK félags- hyggjumanna hófu tveggja daga þing sitt hér í dag, en það sækja félagar frá um 50 félagshyggju- flokkum víðsvegar að úr veröld- inni. í forsæti þingsins er Willy Brandt, formaður jafnaðarmanna- fiokks Vestur-Þýskalands, en auk hans má nefna að forsætisráð- herra ísrael, Shimon Peres, situr einnig þingiö, auk annarra leið- toga félagshyggjuflokka. Peres heldur fund með frétta- mönnum í kvöld, en á morgun heldur hann til Bandaríkjanna í vikulanga heimsókn. Bruno Kreisky, fyrrum kanslari Aust- urríkis, hefur gert það að tillögu sinni að Verkamannaflokkurinn í ísrael verði rekinn úr Alþjóða- samtökunum vegna loftárásar ísraelsmanna á höfuðstöðvar PLO í Túnis. Peres sagðist ekki taka þessa tillögu alvarlega, hann efaðist um að aðrir jafnað- armannaflokkar hefðu unnið betur fyrir jöfnuði, lýðræði og friði. Gert er ráð fyrir að þróun mála í Austurlöndum nær verði til umræðu á þinginu og að Peres geri grein fyrir afstöðu Israelsmanna til skæruliða- hreyfingar Palestínuaraba, sem þeir segja að stundi hryðjuverk á alþjóðavettvangi. Önnur atriði sem rædd verða á þinginu eru umhverfisvernd, 40 ára stofnaf- mæli Sameinuðu þjóðana, efna- hagsmál og staða mála i Suður- Afríku. Aflýstu PLO-fundi vegna þrýstings frá Bandaríkjunum London, 15. október AP. ÞRYSTINGUR frá Bandaríkjunum olli þeirri kúvendingu bresku stjórn- arinnar að hætta á síðustu stundu við fund með tveiraur fulltrúum PLO, Frclsissamtaka Palestínuaraba. Sendiráð Breta í Miðausturlönd- um bjuggu sig í dag undir hefndar- aðgerðir vegna afboðunarinnar. Margaret Thatcher forsætisráð- herra kvað ástæðu afboðunarinnar þá, að mennirnir hefðu ekki viljað staðfesta fyrri yfirlýsingar PLO um að samtökin höfnuðu beitingu ofbeldis og viðurkenndu ísraels- riki. En í Lundúnablaðinu Daily Tele- graph segir í dag, að það hafi fyrst og fremst verið fyrir þrýsting frá Ronald Reagan Bandaríkjaforseta, sem breska stjórnin skipti svo snarlega um skoðun. „Heimildarmenn á bandaríska þinginu sögðu, að Reagan forseti hefði haft samband við Thatcher forsætisráðherra og kynnt henni sjónarmið sín „umbúðalaust", einkum með tilliti til ránsins á skemmtiferðaskipinu Achille Lauro," sagði í blaðinu, en Daily Telegraphstyöur íhaldsstjórnina í Bretlandi. Denis Healey, talsmaður Verka- mannaflokksins í utanríkismálum, sagði í sjónvarpsviðtali á mánu- dagskvöld, að aflýsing viðræðn- anna væri „hörmulegur stjórn- málaósigur". Breskir stjórnmálaskýrendur sögðu í gær, að aflýsing bresku stjórnarinnar gæti bundið enda á friðarumleitanirnar í Miðaustur- löndum. „Það gæti reynst náðar- höggið á frumkvæði Husseins Jórdaníukonungs til að koma á friðarviðræðum," sagði í The Times. „Þetta stjórnmálalega áfall kann að útiloka allar frekari frið- arumleitanir," sagði í The Finan- cial Times. Arabísk dagblöð sökuðu Breta í dag um að veita Bandaríkjamönn- um og Israelum liðsinni sitt við að niðurlægja Araba með því að aflýsa fundinum með fulltrúum PLO. I gær felldi Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna tillögu um að bjóða Yassir Arafat, leiðtoga PLO, að vera við hátíðahöld vegna 40 ára afmælis samtakanna, og gerðist það fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum ogfleiri ríkjum. Þá sögðu heimildamenn innan ríkisstjórnarinnar í Lúxemborg, að sameiginlegum fundi fulltrúa PLO og fulltrúa Efnahagsbanda- lagsins, sem halda átti á morgun, miðvikudag, hefði verið aflýst að beiðni Palestínumanna. KYNNAST SHARP r ÖRBnqUOfNUNUMt Þér er boöiö á SHA RP örbylgjuofnanámskeið n.k. fimmtudagskvöld kl. 20.00 íHljómbæ, Hverfisgötu 103. Leiðbeinandi er Jenný Sigurðardóttir. Tilkynnið þátttöku f síma 25999. Yilja kennslu árið um kring San Diego, 15. október. Frá Jónui Egilssyni frétUriUra Morgunbladsins. Lögð hefur verið fram tillaga hjá yfirstjórn barna- og unglingaskóla í Los Angeles-borg þess efnis að kennsla verði tekin upp árið um kring. Tillaga þessi er lögð fram í því skyni að auð- velda skólayfirvöldum að mæta mikilli fjölgun nemenda, en þeim fjölgar um 14.000 árlega. Þessi mikla aukning á nemendum er aðallega tilkomin vegna mikils fjölda innflytjenda frá Mexikó, en einnig vegna fjölgunar barnsfæð- inga i borginni, að sögn Harry Handlers, sem lagði fram umrædda tillögu. Handler, sem er formaður skóla- nefndar Los Angeles-borgar, sagði að hinir 19 skólar sem áætlað væri að reisa næstu fimm árin, fyrir 365 milljónir dollara, myndu hvergi duga til að mæta þessari gifurlega fjölgun nemenda. Handler sagði ennfremur að nú þegar störfuðu 94 af 618 skólum borgarinnar allt árið og þrátt fyrir talsverða andstöðu, bæði meðal kennara og foreldra nemenda í upphafi, telur Handler afstöðu þeirra breytta nú. Samkvæmt tillögu Handlers, yrði skólaárinu skipt i ársfjórðunga og væri alltaf einn fjórði nemenda í fríi í einu. Handler segir að með þessu móti nýtist skólarnir betur og hægt verður að sinna fleiri nemend- um með minni tilkostnaði en ella. Að auki gætu kennarar tekið fri sin þegar þeim hentaði frekar en ekki eingöngu á sumrin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.