Morgunblaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR16. OKTÓBER1985 43 11 u 11 i \ I ? J S í! I S R iYiai nTTinr/fiirtr — - VELVAKANDI ; SVARAR í SÍMA ] 10100 KL. 10—11.30 r FRÁ MÁNUDEGI J TIL FÖSTUDAGS luvtttMmíML'M. 9254 gestir komust á 14 fyrstu sýningar Grímudansleiksins. Unnið að tölyuvæðingu miða- sölunnar í Þjóðleikhúsinu Vegna fyrirspurnar Kr.Kr. í blaðinu í dag er mér bæði ljúft og skylt að upplýsa eftirfarandi: 1. Um margra ára skeið hefur forsala á aðgöngumiðum í Þjóð- leikhúsinu verið 5 dagar (var áður 4 dagar), öll aðstaða og mannafli er við þetta miðað. Þessu er að sjálfsögðu hægt að breyta og er nú unnið að því, svo lengja megi forsöluna nokkuð meira. Enn- fremur má geta þess að nú er hafinn undirbúningur að tölvu- væðingu, sem vonandi verður til þess að færa þetta til betri vegar. 2. Að því er varðar forsölu að- göngumiða á „Grímudansleik" sér- staklega, þá vil ég geta þess að verið var að selja aðgangskort allt til 5. október og ekki mögulegt að sinna langri forsölu á sama tíma. Ennfremur vil ég skýra frá því, að fyrirspurnir eru mjög miklar um það, hvenær sala hefjist fyrir viðkomandi sýningardag og er þá að sjálfsögðu upplýst um það, áð- urnefndur 5 daga fyrirvari. Ef sala hæfist áður, eftir að búið er að gefa þessar upplýsingar, mundi að sjálfsögðu skapast réttmæt og mikil óánægja. í sambandi við „Grímudansleik" má geta þess að á þessar 14 sýning- ar komust 9.254 leikhúsgestir, en trúlega hefðu 35—40 þúsund gestir viljað komast að. Þannig hefði ekkert sölufyrirkomulag getað uppfyllt allar þær óskir. Nú þegar sýningar hefjast aftur um miðjan nóvember mun annar háttur verða hafður á, það er fleiri sýningar til sölu í einu og vonandi verða þá allir ánægðir. 3. Nefnt hefur verið við mig að ekki ætti að selja 50—100 miða í einu lagi. Því er til að svara að þeir sem kaupa svona marga miða eru að kaupa fyrir félagasamtök, svo -sem starfsmannafélög, söng- kóra, kvenfélög og margskonar klúbba, sem hafa fyrir venju að fara saman í leikhús. Varla er ætlast til að þeim sé neitað um miða, þegar sýnd eru sérlega vin- sæl verk. Ennfremur heyrist að ekki eigi að svara í síma, meðan biðröð er. Vegna þessa má upplýsa að mikill meirihluti aðgöngumiða er seldur í gegnum síma og ég fæ ekki séð hvernig fólk utan af landi ætti að komast í ieikhúsið með öðrum hætti, en sem betur fer er leikhúsið mikið sótt af fólki frá landsbyggð- inni. f sambandi við sölu símleiðis vil ég geta þess að mjög fljótlega verður hægt að panta og greiða aðgöngumiða með greiðslukortum Visa og Eurocard gegnum síma. Að lokum þetta: Þegar sýning (sýningardagur) er auglýst í fyrsta sinn í útvarpi og eða dagblöðum, þá hefst bæði sala og móttaka á pöntunum. Virðingarfyllst, Halldór Z. Ormsson, miðasölustjóri Þjóðleikhússins. Neytendasamtökin verðlauni þá sem skara fram úr í þjónustu Ágæti Velvakandi. Laugardaginn 5. október síðast- liðinn birti Morgunblaðið ýtarlega verðkönnun á kjötvörum í hinum ýmsu stórmörkuðum og minni versl- unum um land allt. Þar kennir ýmissa grasa að vanda og stórfurðu- legur verðmismunur á kjötvörum þar, skiptir hundruðum króna. Á höfuðborgarsvæðinu er verð- mismunur á kjötvörum í þeirri verslun sem kemur best út úr könn- uninni og er ódýrust (Kjötmiðstöðin við Laugalæk) og þeirri dýrustu sem er verslunin Þingholt við Grundar- stíg 753 krónur eða 18,4%. Það munar um minna varðandi afkomu fjölskyldunnar. Húsmæður ættu að athuga vel og vandlega áður en þær fara út að versla, hvar kjörin eru hagkvæmust. Kjötmiðstöðin er tvímælalaust ein vandaðasta og besta kjötversl- unin á höfuðborgarsvæðinu og þótt víðar væri leitað. Það tíðkast víða erlendis að neytendasamtök veiti þeim framleiðendum og seljendum vöru, sem skara fram úr hvað varðar verð, vörugæði og góða þjónustu, sérstaka viðurkenningu. Neytenda- samtökin hér á landi ættu að hafa sama háttinn á. Verðlagsstofnun ber að þakka framtak varðandi verðkannanir sem hafa vakið þjóðarathygli enda er fólk nú almennt farið að notfæra sér þær. Einnig hafa dagblöðin í æ ríkari mæli komið til móts við neytendur varðandi upplýsingar um málefni þeirra. í því sambandi hef Sigrún Jónsdóttir skrifar f.h. Kvennalistans: Til Ingibjargar Halldórsdóttur og ef til vill fleira fólks. Vinningaskrá í vorhappdrætti Kvennalistans birtist í Morgun- blaðinu þann 29. júní og í öðrum dagblöðum á svipuðum tíma. Þau leiðu mistök urðu að símsvari sem leigja átti hjá Pósti og síma til þess að lesa upp vinningsnúmer á morgnana reyndist ekki til. Skrifstofa Kvennalistans á Hót- el Vík er opin frá kl. 14—18 alla virka daga og þá eru að sjálfsögðu veittar upplýsingar um vinninga í síma 13725. ég sérstaklega í huga DV. Önnur dagblöð mættu taka DV sér til fyrir- myndar í þeim efnum. Útvarp og sjónvarp hafa því miður ekki sinnt neytendamálum sem neinu nemur. Þar mætti verða bót á. Parísarferðarinnar hefur enn ekki verið vitjað og gaman væri að Ingibjörg lumaði nú á rétta miðanum, eftir alla fyrirhöfnina. Til öryggis látum við vinninga- skrána fljóta hér með og okkur þykir leitt þetta með símann. Nr. 1 2056. Nr. 2 1742. Nr. 3 9791. Nr. 4 5899. Nr. 5 9343. Nr. 6 8342. Nr. 7 8437. Nr. 8 7843. Nr. 9 6638. Nr. 10 7048. Nr. 11 6739. Nr. 12 7042. Nr. 13 6273. Nr. 14 2739. Nr. 15 6676. Nr. 16 3177. Nr. 17 6013. Nr. 18 2551. Nr. 19 1668. Nr. 20 5490. Nr. 21 8523. Nr. 22 5876. Nr. 23 3366. Nr. 24 5536. Nr. 25 2415. Nr. 26 5708. Nr. 27 5634. Nr. 28 1795. Parísarferðin er enn ósótt í happdrætti Kvennalistans Bauhaus borðstofustólar á aðeins kr1.260staðgrew. Sem sagt... ... á óumflýjanlega hag- stæðu verði. HIH nwi Bláskógar Ármúla 8. S: 686080 — 686244. SRINUIHHM ^SÖLUBOÐ □ Gróft matarsalt 2 kg f Piparkökur 250 gr Skorpur 225 gr qö'€ Ananasmauk y ||agj|567 gr Ananassneiðar 567 gr siom Tómatsósa ^ _. 525 gr Sinnep 490 gr •S TekexpPpoo gr Kruður 110 gr ...vöruveró í lágmarki SAMViNNUSOtUROONH <6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.