Morgunblaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR16. OKTÓBER1985 23 Nóbelsverðlaunin í hagfræði 1985: Kenningar um sparnað og fjármál fyrirtækja Franco Modigliani er 13. Bandaríkjamað- urinn á 17 árum, sem fær verðlaunin Stokkhólmi, 15. október. AP. FRANCO Modigliani, banda- rískur hagfræðingur, fæddur á Ítalíu, hlaut Nóbelsverðlaunin í hagfræði fyrir árið 1985.Voru honum veitt þau fyrir athuganir og kenningar um það hvernig fólk sparar til elliáranna og um það hvernig meta skuli markaðs- verð fyrirtækja. Framlag Modiglianis „skýr- ir fyrir okkur það, sem við sjáum, og auðveldar okkur skilning á umhverfinu", sagði Assar Lindbeck, prófessor, sem sæti á í Nóbelsnefndinni, eftir að greint hafði verið frá verðlaunaveitingunni. í rök- stuðningi sænsku vísindaaka- demíunnar sagði, að Modigl- iani hefði komið fram með kenningar um sparnað venju- legrar fjölskyldu á ýmsum tíma í lífi hennar og sett fram kenningar um hvernig meta skuli markaðverð fyrirtæja og fj ár magnskostnað. Athuganir Modiglianis á sparnaðinum, sem hann vann að á sjötta áratugnum ásamt nemanda sínum, Richard Brumberg, sem nú er látinn, sýndu, að fólk leggur þeim mun minna fyrir til elliár- anna, sem það getur betur AP símamy nd Eftir að tilkynnt hafði verið, að bandaríski hagfræðingurinn Franco Modigliani hefði fengið Nóbelsverðlaunin í hagfræði, urðu margir til að óska honum til hamingju. Hér er Modigliani að taka á móti hamingjuóskum eins vina sinna, sem hringdi í hann, og það fer víst ekki á milli mála, að það liggur vel á honum. treyst á örugg eftirlaun. Lind- beck, prófessor, sagði, að Sví- þjóð væri ágætt dæmi um þetta. Fyrir aldarfjórðungi lagði fólk fyrir 6—7% af tekj- um sínum en nú, með auknum eftirlaunum, væri sparnaður- inn nánast enginn. Aðrar athuganir, sem Mod- igliani vann einnig að á sjötta áratugnum í samvinnu við starfsbróður sinn, Merton Miller, snerust aðallega um fjármál fyrirtækja. Sagði Lindbeck, að niðurstaða þeirra hefði verið sú, að forráðamenn fyrirtækja ættu ekki að leggja megináherslu á hámarks- hagnað á ári hverju, heldur á að markaðsverð hlutabréf- anna verði sem mest hverju sinni. Þeir Modigliani og Mill- er kenndu það einnig, að „fyr- irtæki, sem skuldar mikið, er jafn mikils virði og fyrirtæki, sem skuldar lítið, ef hagnaður þeirra í framtíðinni er jafn mikiir. Modigliani, sem starfar við Tækniháskólann í Massachus- etts, fæddist í Róm á Ítalíu árið 1918, og varð doktor í lögvísindum við Rómarhá- skóla árið 1939, skömmu áður en hann flýði til Bandaríkj- anna undan fasisma Mussolin- is. í Bandaríkjunum hélt hann áfram námi og lauk þar ann- arri doktorsgráðu, að því sinni í félagsvísindum. Modigliani er 13. Bandaríkjamaðurinn á 17 árum, sem fær Nóbelsverð- launin í hagfræði. getrauna- VINNINGAR! 8. leikvika — leikir 12. október 1985 Vinningsröð:2 1 X —X 1 X —X 1 1 — 1 2 X 1.vinningur12réttir xr.768.570,- 104826(6/11K 2. vinningur: 11 réttir 994 U 56584 104320+ 105190 38664-f 85856 104823+ 105655 42486 87353 104824+ 86272* 4294 1+ 89389 104829+ 88839*+ 43950f 91172 104831+ 101156* 50400 94393 104833+ 104777*+ 55278 100999 104836 íslenskar Getraunir, íþróttamidstödinni v/Sigtún, Reykjavík Kærufrestur er til 4. nóvember 1985 kl. 12.00 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar Kærueyöoblöð lást h|á umboðsmönnum og á sknfstotunm i Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað. ef kærur verða teknar til grema Handhafar natnlausra seðla ( + ) verða að framvisa stotni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Islenskra Getrauna fyrir lok kærufrests Áskriftarsímirm er 83033 NYRIADA STATION VÉL: 1300 CM3 72 HÖ. 4 GIRA 233.000 VÉL: 1500 CM3 77 HÖ. 4 GÍRA 247.000 VEL: 1500 CM3 77 HÖ. 5 GÍRA 266.000 Söludeild opin í dag kl. 1-4 ATH. Tökum vel með farna Lada bíla uppí. <1 BIFREIÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF. I' OjCtfl í* -N nvnrvt mv m nwm m. vvm « a rt m —. «« ^ SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEELD: 31236

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.