Morgunblaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR16. OKTÖBER1985 21 Kasparov vann snilldarlega Skák Margeir Pétursson GARY KASPAROV tók í gær- kvöldi forystuna í heimsraeistara- einvíginu með því að vinna sext- ándu skák einvígisins á svart Kasparov hefur þar með hlotið átta og hálfan vinning en heimsmeist- arinn, Anatoly Karpov, sjö og hálf- an. Taflmennska Kasparovs í sext- ándu skákinni var sérlega glæsi- leg. Hann fórnaði peði í byrjuninni og hélt síðan frumkvæðinu allt til loka. Karpov gafst upp eftir 40. leik áskorandans. Þá gat hann með engu móti forðað máti í öðr- um leik. Kasparov beitti peðsfórn í Sik- ileyjarvörn, eins og í tólftu ein- vígisskákinni. Þá var búist við því að Karpov hefði öflugt svar á reiðum höndum, þar eð tvær vik- ur eru síðan Kasparov beitti henni fyrst. Svo virtist sem áætlun Karpovs gengi út á það að skila peðinu til baka og ná örlítið betri stöðu án áhættu, en Kasparov lét peðið eiga sig og virtist sá leikmáti koma flatt upp á Karpov. Heimsmeistarinn lék leikjum sem virtust afar eðlilegir en eftir að Kasparov náði að hrekja báða hvítu riddarana á reiti þar sem þeir höfðu engin áhrif á gang mála, var ljóst að Karpov hafði orðið undir í baráttunni um frumkvæðið. Sífellt þrengdi að heimsmeistaranum og þó staðan liti ekki illa út við fyrstu sýn, átti hann enga góða reiti fyrir menn sína og var nánast leiklaus á meðan lið Kasparovs réði lög- um og lofum á miðborðinu. Eftir að hafa náð þessu helj- artaki á heimsmeistaranunum fór Kasparov sér að engu óðslega. Karpov gat hvort eð var ekki bætt stöðu sína. í 30. leik missti heimsmeistarinn síðan þolinmæðina, hann veikti kóngs- stöðu sína til að ná mótspili. Þá var ekki að sökum að spyrja, Kasparov réðst að hvíta kóngn- um með mestöllu liði sínu á með- an riddarapar Karpovs hímdi enn aðgerðarlaust hinu megin á borðinu. í örvæntingu fórnaði Karpov drottningunni fyrir tvo menn til að létta sóknarþung- ann, en það frestaði aðeins óumflýjanlegu máti. Glæsileg skák hjá Kasparov sem minnir á glæsilegustu sigra Aljekíns, heimsmeistara, á þrið- ja og fjórða áratugnum og lang- bezta skák hans í einvíginu til þessa. Karpov virtist hins vegar vera sáttur við jafntefli í byrjun- inni og hann áttaði sig ekki á hættunum sem leyndust í stöð- unni, fyrr en í óefni var komið. Sextánda skákin: Hvítt Anatoly Karpov Svart: Gary Kasparov Sikileyjarvörn 1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rc6, 5. Rb5 Gamalt uppáhaldsvopn Karp- ovs, en eftir þetta einvígi kann það að lækka í áliti. — d6, 6. c4 — Rf6, 7. Rlc3 — a6, 8. Ra.3 — d5T? Þessi peðsfórn var fyrst reynd í tólftu einvígsskákinni. 9. cxd5 — exd5, 10. exd5 — Rb4, 11. Be2 í tólftu skákinni jafnaði Kasp- arov taflið eftir 11. Bc4 — Bg4, 12. Be2 — Bxe2, 13. Dxe2+ — De7. Nú hyggst Karpov gefa peð- ið strax til baka og ná örlítið betri stöðu. — Bc5, 12. 0-0 Það kom Karpov greinilega á óvart að Kasparov skyldi ekki þiggja peðið því hann notaði 35 mínútur á þennan og næsta leik sinn. — 0-0, 13. Bf3 — Bf5, 14. Bg5 — He8, 15. Dd2 — b5, 16. Hadl — Rd3! Karpov hefur leikið eðlilegum liðsskipunarleikjum og hefur greinilega ekki gert sér grein fyrir þeim miklu óþægindum sem þessi vel staðsetti riddari á eftir að valda honum. t fram- haldinu kemur hann t.d. aldrei hrók á c- og e-línurnar, sem eru þær einu opnu. 17. Rabl Nú verða riddarar hvíts herfi- lega illa staðsettir og það er upp- hafið að endinum. Reynandi var 17. Rc2!? og reyna að koma ridd- aranum i gagnið á e3. — H6, 18. BH4 — b4, 19. Ra4 — Bd6, 20. Bg3 — Hc8 Þó ótrúlegt megi virðast er hvítur nánast í leikþröng í stöð- unni. Hann getur engum manni leikið án þess að verða fyrir miklu liðstapi, nema kóngnum, auk þess sem hann getur skipt upp á biskupnum. 21. b3 — g5! Hótar 22. — g4, 23. Be2 — Re4 og vinnur. 22. Bxd6 — Dxd6, 23. g3 — Rd7, 24. Bg2?! í beinu framhaldi af 21. leik sinum hefði Karpov hér átt að reyna 24. Rb2, því hann lifir af bæði 24. - Re5, 25. Bg2 - Hc2, 26. Dd4 og 24. - Rxb2, 25. Dxb2 — Hc2, 26. Dd4 - Hxa2. Nú hindrar Kasparov þennan mögu- leika: — Df6!, 25. a3 — a5, 26. axb4 — axb4, 27. Da2 Urræðaleysi hvíts er algjört. Hér var e.t.v. skárra að leika 27. d6 strax. — Bg6!, 28. d6 — g4 Eftir 28. — Rel!? má hvítur ekki leika 29. Hdxel — Hxel, 30. Hxel vegna 30. — Hc2, en 29. Db2! bjargar einhverju. 29. Dd2 - Kg7! Á meðan hvítur getur engu leikið liggur ekkert á. Karpov er nú orðinn leiður á tilgangslaus- um leikjum og reynir að opna taflið á kostnað kóngsstöðunnar. 30.13?! — Dxd6 Loksins tekur Kasparov peðið til baka eftir 22 leiki. 31. fxg4 — Dd4+, 32. Khl — Rf6, 33. Hf4 Vegna afkáralegrar stöðu hvítu riddaranna fær Karpov enga björg sér veitt. — Re4!, 34. Dxd3 — Rf2+, 35. Hxf2 — Bxd3. 36. Hfd2 — De3, 37. Hxd3 — Hcl! Síðasti hnykkurinn. 38. Rb2 — Df2, 39. Rd2 — Hxdl+, 40. Rxdl — Hel+ Karpov gafst upp því mátið blas- ir við. Það voru mikil fagnaðarlæti í skákhöllinni í Moskvu eftir að Karpov hafði gefist upp. Nú er það heimsmeistarinn sem á á brattann að sækja. Hann þarf að vinna a.m.k. eina skák af þeim átta sem eftir eru og tapa engri sjálfur, til þess að halda titlinum. Sérfræðingar í Moskvu voru af- ar hrifnir af taflmennsku Kasp- arovs, jafnvel sumir aðstoðar- manna hans viðurkenndu að áskorandinn hefði teflt snilldarl- ega. Enski stórmeistarinn Raym- ond Keene, sem (itað hefur bækur um þrjú síðustu einvígi, tók djúpt í árinni: „Þetta er bezta skák sem þeir hafa teflt. Menn Karpovs voru jafn gjörsamlega lamaðir og hann og eftir byrjunina var hann eins og kalkún sem festur hefur verið upp og bíður eftir slátraranum. Kasp- arov tefldi af hreinni snilld,“ sagði Keene í samtali við AP-fréttastof- una. George Bush varaforseti í Kína: Ekki í valdi Bandaríkja- manna að leysa Taiwan-málið Peking, 15. október. AP. ÞAÐ stendur ekki í valdi Bandaríkj- anna að leysa Taiwan-málið, sagði George Bush varaforseti í dag, þegar Deng Xiaoping, leiðtogi Kínverja, tjáði honum, að stuðningur Banda- ríkjamanna við þjóðernissinnastjórn- ina á Taiwan væri meginhindrunin fyrir bættum samskiptum þjóöanna. Bush sagði á fréttamannafundi að loknum tveeeria darr>) v;ðr*nðnm við kínverska leiðtoga, að hann hefði m.a. rætt mannréttindamál, skýrt geimvarnaáætlun Banda- ríkjastjórnar og svarað spurning- um um verndarstefnu vegna inn- flutnings til Bandaríkjanna. „Mér líkar það sem fyrir augu ber hér í Kína,“ sagði Bush. „Enn er grundvallarágreiningur milli Rnndaríkianna nrr Kínn f vmwm málum og það er grundvallarmun- ur á þjóðfélagsgerð ríkjanna, en við erum alltaf að koma auga á fleiri og fleiri atriði, sem tengja okkur saman." I gær kynnti Bush Kínverjum bandaríska skýrslu um geim- vopnarannsóknir Sovétmanna, en Kínverjar hafa fordæmt hvers kvns vicrbúnað í himinf'e’n,n>”>’ GENGI GJALDMIÐLA Orrustuþota framtíðarinnar? Bandaríski flugherinn hefur beðið flugvélaframleiðendur að gera tilli ur um hvernig orrustuþota aldamótanna skuli líta ÚL Meðfylgjandi mynd er af hugmynd Lockheed-sainsteypunnar. Flugherinn hugar nú að nýrri flugvél, sem ætlað að er komi i notkun eftir áratug og leysi þá af hólmi F-15 og F-16- þoturnar. London. 15. október. AP. AUKIN eftirspurn eftir Bandaríkja- dollar varð til þess, að gengi hans hækkaði í dag þrátt fyrir ráðstafanir seðlabankans í Vestur-Þýzkalandi til þess að halda gengi hans niðri. Seldi bankinn um 35 millj. dollara og varð það til þess að koma í veg fyrir enn meiri hækkun dollarans. Dollarinn hækkaði lítillega gagnvart sterlingspundinu, sem kostaði síðdegis í dag 1,4135 doll- ara (1,4137). Gengi dollarans varð að öðru leyti þannig, að fyrir vest- ur-þýzk mörk (2,6580), 2,1820 svissneskir frankar (2,1788), 8,1125 franskir frankar (8,1000), 3,0005 hollenzk gyllini (2,9965), 1.796,50 ítalskar lírur (1.793,50), 1,3705 kanadískir dollarar (1,3680) og 215,70 jen (215,05). Gullverð hækkaði og var verð á því 327, 25 dollarar hver únsa (326,50). •f-I.-i-M-l-j GETUR UNGT FÓLK EIGNAST ÍBÚÐ ÍDAG? Ertu ungur/ung og nýfarinCn) að búa? Þú færð svör við spurningum þínum á fundi, sem Kaupþing h.f. heldurað Hótel Loftleiðum, Kristalsal, fimmtudaginn 17. október kl. 20.30. Frummælendur verða: Martha Eiríksdóttir: “Hvernig keypti eg íbúðina mina?" Ungur ibúðarkaupandi segir frá reynslu sinni. Baldvin Hafsteinsson, iögfr.: “Ererfiðarafyrirungt __fólk að eignast íbúð en foreldraþess. Samanburður á lána- möguleikum og kjörum á fasteignamarkaði fyrr og nú. Sérstakir gestir fundarins verða: Björn Björnsson, hagfræðingur ASÍ GunnarS. Björnsson, Húsnæðismálastofnun og munu þeir taka þátt í umræðum og svara fyrirspurnum fundargesta. Dr. Pétur H. Blöndal KAUPÞING HF Husi Verzlunarmnar, simi 68 69 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.