Morgunblaðið - 28.12.1985, Síða 14

Morgunblaðið - 28.12.1985, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985 BÚR-skatturinn kr. 6oo o-f BÚR Skatturinn 1947—1985 00 05 Ar (Kostnaður á borgarbúa, meðalverúlag ársins 1985) eftir Arna Arnason í síðasta mánuði hætti Reykja- víkurborg rekstri Bæjarútgerðar Reykjavíkur sem kunnugt er. Sú ákvörðun varð tilefni töluverðra umræðha. í einni blaðagreininni, eftir Björgvin Guðmundsson, fyrrv. borgarfulltrúa, mátti m.a. lesa eftirfarandi fullyrðingu: „Ráðamenn Reykjavíkur hafa ekkert leyfi til þess að ráðskast með eignir borgarinnar, () í þessu tilviki Bæjarútgerð Reykjavíkur og afhenda þær hlutafélagi, sem yrði komið úr tengslum við borgina innan skamms." (Eigið fé BÚR náði rétt 2 milljón- um kr. í lok síðasta árs.) Samkvæmt þessum orðum hefur BÚR breyst í nokkurs konar heil- aga kú, sem ekki má snerta. Ekki var það þó ætlun mín að ræða þennan nýja átrúnað, heldur það sem höfundur gefur sér sem sjálf- sagðan hlut, nefnilega að það sé ekkert athugavert, að ráðamenn Reykjavíkur stofni til á hættusams atvinnurekstrar með ótakmark- aðri ábyrgð borgarsjóðs. M.ö.o. ráðamönnum mun vera algjörlega frjálst að gera út á buddu borgar- búa. Gallinn er sá, þegar stjórn- málamenn stofna til atvinnu- rekstrar, að þeir bera ekki sjálfir ábyrgð, ef illa gengur. Þá er tapið sótt í vasa skattgreiðenda. Ef borinn er saman rekstur á BÚR og t.d. ísbirninum hf. í gegnum árin, kemur í ljós, að báðum fyrir- tækjunum bar að greiða opinber gjöld til borgarsjóðs. Munurinn er bara sá, að BÚR hefur allar götur síðan 1947 notið framlaga úr borg- arsjóði. Samtals nema framlögin á meðalverðlagi ársins í ár um 1.211 milljónum króna, sem sam- svarar nær 16.000 krónum á hvern íbúa í bænum. Meðfylgjandi línurit sýnir árleg framlög til BÚR á hvern íbúa í Reykjavík 1947—1985. Að jafnaði nam árlegur skattur rúmum 400 krónum á íbúa og uppsöfnuð er fjárhæðin orðin ámóta og heildarútsvör borgarbúa á heilu ári (tekjuskattar til Reykjavíkur 1984 voru 1.151 millj- ón króna). Af þessu sést, að það getur verið skattgreiðendum í bæjarfélagi dýrkeypt, að ráðamenn stofni fyr- irtæki, sem bæjarfélagið, íbúarnir, bera ótakmarkaða ábyrgð á. Bæj- arfélag gæti t.d. hreinlega orðið gjaldþrota, ef það réðist í nægilega umfangsmikinn atvinnurekstur. Fiskveiðasjóður er nú t.d. að hluta að afskrifa lán, sem hvíla á nokkrum skuttogurum. Þar á Árni Árnason „Af þessu sést, ad það getur verið skattgreið- endum i bæjarfélagi dýr- keypt, að ráðamenn stofni fyrirtæki, sem bæjarfélagið, íbúarnir, bera ótakmarkaða ábyrgð á. Bæjarfélag gæti t.d. hreinlega orðið gjaldþrota, ef það réðist í nægilega umfangsmik- inn atvinnurekstur. “ meðal er sennilegt tap á láni vegna eins einasta togara, Kolbeinsey, að fjárhæð hátt í 200 milljónir króna. Sú upphæð næmi 200.000 krónum á mann, ef henni væri jafnað niður á 1.000 manna byggð- arlag. Þetta sýnir, að það getur verið mjög varasamt að leyfa ráðamönn- um Reykjavíkur og bæjar- og sveitarsjóða yfirleitt, að ráðskast með eignir borgaranna með þess- um hætti. Því væri rétt að tak- marka það með lögum, að bæjarfé- lag geti stofnað til atvinnurekstrar með ótakmarkaðri ábyrgð. Sömu- leiðis væri rétt að takmarka skuldabréfaútboð bæjar- og sveit- arsjóða við þær lántökur, sem íbú- arnir samþykkja í aimennri at- kvæðagreiðslu. Virðist nægja þeir baggar, sem ríkissjóður hefur bundið komandi kynslóðum í inn- lendum og erlendum lánum, þótt bæjar- og sveitarfélög bæti ekki á byrðarnar. Höíundur er framk væmdasíjóri Verzlunarráðs íslands. Bernharð skólameistari afhendir Þorvaldi Jónssyni, fyrsta vetrarstúdent skólans, prófskírteini. Þorvaldur útskrifaðist af viðskiptasviði. 15 útskrifaðir frá Verkmenntaskólanum — þ. á m. fyrsti vetrarstúdentinn Akureyri, 20. desember. Háskólaráð krafið sagna FYRSTI vetrarstúdentinn var út- skrifaður frá Verkmenntaskólanum á Akureyri í dag, og auk hans voru brottskráðir 10 undanþáguvélstjórar, 1 nemi í rafiðn og 3 úr vélstjórnar- námi, 2. stigi. Bernharð Haraldsson, skóla- meistari Verkmenntaskólans, af- henti þeim 15 nemendum sem út- skrifuðust prófskírteini og sagði m.a. við það tækifæri að margir í hópnum væru sjóaðir í þess orðs fyllstu merkingu. „10 þessara sól- stöðusnáða okkar hafa verið hér aðeins eina önn til að fá atvinnu- réttindi sín sem vélstjórar. Aðrir hafa verið hér lengur — þetta er mislitur hópur og aldursmunur mikill. Sá elsti gæti gengið þeim yngstu í föður stað.“ — eftir Karl Arnason // Háskólarektor Sigmundur Guð- bjarnason játar með grafarþögn sinni við svari mínu til hans þann 11. desember síðastliðinn að hann og Háskólaráð hafi markað hinni „sannleiksleitandi vísindastofnun" Háskóla íslands m.a. eftirfarandi stefnu gagnvart álitsgerðum dóm- nefnda sem Háskólinn skipar: 1) Háskólinn greiði að fullu fyrir meiðyrði í dómnefndarálitum. 2) Niðurstöður dómnefnda Há- skólans sem m.a. byggja á meiðyrðum hafa vísindalegt gildi. 3) Dómnefndir Háskólans mega ærumeiða þá höfunda sem leggja rit sín fram til dóms við Háskólann án þess að Háskól- inn aðhafist nokkuð. 4) Dómnefndir Háskólans teljast hlutlausar gagnvart riti höf- undar og höfundinum sjálfum þótt þær ærumeiði hann fyrir sumt sem í riti hans stendur. 5) Prófessorar Háskólans sem dæmdir hafa verið fyrir meið- yrði eru kjörgengir í rektors- embætti. Dauðaþögn háskólarektors þýð- ir að siðferðisafbrot dómnefnda Háskólans skipta hann engu máli. Þau eru Háskólanum algerlega óviðkomandi að öðru leyti en því að Háskólanum ber einnig að „Dauðaþögn háskóla- rektors þýðir að siðferð- isafbrot dómnefnda Há- skólans skipta hann engu máli. Þau eru Há- skólanum algerlega óviðkomandi að öðru leyti en því að Háskól- anurn ber einnig að borga fyrir þá vinnu sem í þau eru lögð.“ borga fyrir þá vinnu sem í þau eru lögð. Slíkar siðareglur setur æðsta menntastofnun íslensku þjóðar- innar sér eða a.m.k. forystumenn hennar. Hvers virði er stofnun sú forysta sem lætur sig siðferði hennar engu skipta? Hvers virði eru nemendum próf frá slíkri stofnun? Rektor segir í sínu fátæk- lega undanbragðasvari að ekki sé unnt að ómerkja dóm dómnefndar þótt hann meðal annars byggist á meiðyrðum. Hér þarf rektor ekki annað að gera en að vísa málinu til dómstóla og láta þá skera úr um réttmæti dómsins. Þetta vita allir, líka þeir sem unna meiðyrð- um dómnefndarinnar. Vegna þessa er það krafa mín sem skattþegns að allir Háskólaráðsmenn svari því strax og undanbragðalaust hvort þeir eru samþykkir rektor í fyrrgreindum atriðum eða ekki. Einn af frambjóðendunum til rektorsstarfs síðast, Páll Skúia- son, sagði í tilefni af framboði sínu: „Háskólinn er hugsjón mín.“ Finnst mönnum ekki að hugsjóna- eldurinn logi glatt? Varla telja Háskólaráðsmenn að siðferðilegt þrotabú sé hugsjón? Telur kannski lagaprófessorinn Gaukur Jörunds- son að æra manna sé ómerkari öðrum eigum og að þeir sem reyna að ræna henni af mönnum séu ofar standi annarra „aflamanna"? Við athugun mína kom í ljós að Einar Sigurbjörnsson prófessor á sæti í Háskólaráði fyrir hönd guðfræði- deildar. Ég vil taka það fram strax að ég vil ekki óneyddur trúa því að hann uni framgöngu rektors í þessu máli. Siðferðisþrek hans og hans fólks er að mínu mati af allt öðrum toga, en það verður að sjálf- sögðu hann sem sker úr um rétt- mæti þeirrar skoðunar minnar. Háskólaráðsmenn, ég krefst sem skattþegn svara við þessum atrið- um. Taki ráðið upp hátt háskóla- rektors, dauðaþögnina, þá verður að telja að ráðið hafi sjálft sett sig siðferðilega bak við lás og slá — gefið siðferðilega upp andann. Höfundur er glerslípunarmeistari. Mor^unblaðiA/Skapti Hópurinn sem útskrifaðist frá Verkmenntaskólanum ásamt Bernharó Haraldssyni, skólameistara, lengst til vinstri. Samband íslenskra loódýraræktenda: Uppboð á refaskinn- um í Finnlandi FYILSTA skinnauppboðið á þessari vertíð var haldið í uppboði Finnska loðdýrasambandsins í Helsingfors í Finnlandi 5. og 6. des. Aðeins voru seld refaskinn á þessu uppboði með eftirfarandi árangri; Blárefur seldist á svipuðu verði í dollurum og á desember upp- boðinu í fyrra. Shadow hækkaði hins vegar um 10% í dollurum. FrétUtilkynning Fim ísl.kr. Sölu% Fjöldi Blárefaskinn 276 2.100 83 220.000 Shadow refir 333 2.530 93 70.000 Blue Silver 486 3.690 97 14.000

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.