Morgunblaðið - 28.12.1985, Page 22

Morgunblaðið - 28.12.1985, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985 Vestur-Þýskaland: Tuttugu Pólverj- ar báðust hælis á aðfangadag Hamborg, Vestur l*ý.sk*landi, 27. desember. AP. TUTTUGU Pólverjar, sem voru á orlofsferd í Vestur-Þýskalandi, báóust hælis þar á aðfangadag sem pólitískir í gær, fimmtudag. Talsmaður lögreglunnar, Ger- hard Ratge, sagði, að Pólverjarnir hefðu komið með ferju til Trave- munde í síðustu viku, frá Svíþjóð og Póllandi, og haldið til Ham- borgar. „Við erum ekki alveg vissir um, hversu margir ætla að verða eftir," sagði Ratge, „en það eru í kringum 20 manns. flóttamenn, að því er lögreglan sagði Ratge sagði, að á undanförnum mánuðum hefðu „tveir til þrír“ Pólverjar sóttu um hæli í Ham- borg í viku hverri. „Það er engin nýlunda hérna hjá okkur." Mikið er um það, að Pólverjar ferðist með ferjum frá hafnar- borgum í Norður-Póllandi til Travemiinde í Vestur-Þýskalandi. Einvígi Timmans og Yusupovs 15. janúar Suður-afrískir hermenn leita að jarðsprengjum í Transwaal-héraði eftir að sex manns létust í sprengingum þar. Luzern, 28. desember. AP. ALÞJÓÐA skáksambandið (FIDE) hefur tilkynnt, hvar og hvenær Renault: Bifreiðir athugaðar París, 27. desember. AP. RENAULT- bifreiðaverksmiðjurnar hafa tilkynnt að þær muni innkalla allar bifreiðir af gerðunum Renault 9 og 11, sem framleiddar voru fyrir 1. júlí í ár, til þess að sérstök athugun geti farið fram á stýrisbúnaði þeirra. Segja verksmiðjurnar að sumar hinna 850 þúsund bifreiða af þess- um gerðum í Frakklandi kunni að sýna merki um óeðlilega mikla tæringu í stýrisbúnaði, einkum á svæðum þar sem mikið er um salt- burð. Renault- bifreiðir í Norður- Ameríku hafa þegar verið athugað- ar. Sett verður plasthúð utan um þann hluta stýrisbúnaðarins, sem nauðsynlegt er að verja, en þar sem tæringin er of langt á veg komin, verður skipt um hann. undaneinvígin um heimsmeistaratit- ilinn í skák eiga að fara fram. Hol- lenzki skákraeistarinn Jan Timman teflir við Rússann Artur Yusupov í Tilburg í Hollandi og á einvígi þeirra að hefjast 15. janúar nk. Verðlaunaféð þar verður 80.000 svissneskir frankar (um 1,6 millj. ísl. kr.) Sovézku stórmeistararnir Rafa- el Vaganian og Andrei Sokolov leiða saman hesta sína í Minsk í Sovétríkjunum og á einvígi þeirra að hefjast 8. janúar nk. Verðlauna- féð þar verður 25.000 svissneskir frankar (um 500.000 ísl. kr.). Sigurvegararnir í þessum ein- vígjum tefla síðan sín í milli í einvígi, sem haldið verður í marz eða apríl, en staðurinn fyrir það hefur ekki verið ákveðinn enn. Sá sem þar sigrar, teflir síðan við þann, sem tapar í fyrirhuguðu einvígi þeirra Garri Kasparovs heimsmeistara og Anatoly Karpovs fyrrum heimsmeistara, um réttinn til að tefla við heims- meistarann og á það einvígi að fara fram síðari hluta árs 1986. Suður-Afríka: Hermenn sakaðir um innrás í Swaziland Jóhannesarborg, 27. desember. AP. LÖGREGELAN í Swazilandi hefur haldið því fram að suður-afrískir her- menn ráðist inn í suðvesturhluta landsins á aðfangadag og varað íbúa við að skjóta skjólshúsi yfir skæruliða, sem berjast gegn aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afrfku. Talsmaður suður-afríska hersins kvaðst í dag ekki geta staðfest frásagnir lögreglunnar í Swazilandi. Að sögn lögreglunnar í Swazi- landi vöruðu hermennirnir þorps- búa við að hýsa skæruliða og hót- uðu þeim með árásum ef grunur léki á að skæruliðar reyndu að laumast inn í Suður-Afríku frá Swazilandi. Suður-Afríska varnarmálaráðu- neytið hefur ekki neitað þessum ásökunum. í tilkynningu þess sagði: „Allar hugsanlegar fyrir- spurnir hafa verið gerðar án þess að staðfesting hafi fengist á þess- um ásökunum. Ef ný sannindi líta dagsins ljós er varnarmálaráðu- neytið reiðubúið til að rannsaka málið frekar.“ Lögregla í Suður-Afríku reynir nú að koma á friðarviðræðum milli leiðtoga ættbálka á svæðunum við hafnarborgina Amanzimtoti, sunnan af Durban, eftir að 58 svertingjar voru drepnir í átökum 24. og 25. desember. Búist er við að lík fleiri finnist þegar lögreglan hefur leit í þykk- um runnagróðrinum á svæðinu. Leiðtogar Zulu og Pondo ættbálk- anna neituðu í gær að hittast undir verndarvæng lögreglunnar, en hún hefur ekki gefist upp á að miðla málum. Til átaka kom á baðströnd við Durban þegar svertingjar réðust inn á baðsvæði asíumanna vopnað- ir járnstöngum og kylfum til að lumbra á strandgestum og meidd- ust tveir. „Þeir báru margs konar vopn og slógu hvern þann, sem var í vegi fyrir þeim. Meira að segja börn urðu undir,“ sagði Krish Naidoo, sem stödd var á strandsvæði asíu- manna. Skjóttu þínum manni Jón Baldvin Hannibalsson á stjörnuhimininn 12 geröir af flugeldum semtileinkaöireru stórsprengjum stjórnmálanna. Skjóttu þínum uppáhalds stjórnmálamanni upp á stjörnuhimininn. 1TLT FLUGELDAMARKAÐIR HJÁLPARSVEITA SKÁIA Matthías Á. Mathiesen Steingrímur Hermannsson Albert Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.