Morgunblaðið - 28.12.1985, Side 27

Morgunblaðið - 28.12.1985, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985 27 í ári tilefni af æskunnar eftir VUborgu G. Guðnadóttur Nú er árið sem tileinkað hefur verið æskunni að enda. Ekki getur farið hjá því að upp vakni ýmsar spurningar varðandi æskufólk og stöðu þess í þjóðfélaginu í dag. í tilefni af þessu fyrrgreinda ári var fyrir stuttu umræðuþáttur í sjónvarpinu, þar sem Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra sátu fyrir svörum. Spyrjendur var hópur æskufólks víðsvegar að af landinu. Að mínum dómi var þessi þáttur nokkuð góð- ur í heild. Unga fólkið kom fram með margar áhugaverðar spurn- ingar, en fékk oft á tíðum ekki tækifæri til að fylgja þeim eftir, þó að svörin fullnægðu þeim ekki. Það er e.t.v. ekki við neinn að sakast, en ég hefði kosið að stjórn- andi þáttarins aðstoðaði þau betur. Mjög áhugaverð mál bar þarna á góma og langar mig aðeins að velta vöngum yfir nokkrum atriðum. Sum komu fram í fyrrnefndum þætti en önnur ekki. Mjög oft í ræðu, riti og manna á meðal er verið að velta fyrir sér hinu svokallaða „unglingavanda- máli“. Aldrei hef ég fengið neina fullgilda skýringu á því hvaða sér- stakt vandamál er á ferðinni. Ég hef þó komist næst því að þetta séu einhvers konar hegðunarörð- ugleikar sem einkenni marga unglinga og samræmist ekki þeim kröfum sem fullorðna fólkið gerir til þessa aldurshóps. Aldrei svo ég viti er minnst á „fyrirbærið full- orðinsvandamál" og sjaldan er minnst á hegðun þeirra á sama hátt og unglinganna. Þó læðist að mér sá grunur að vandamál okkar sem eldri erum séu mun viðameiri og erfiðari. Eins er hegðun okkar oft á tíðum ekki til fyrirmyndar né eftirbreytni. Gæti ekki líka verið að orsakirnar fyrir miklum hluta þeirra vandamála er koma upp hjá unglingum í dag megi rekja til okkar hinna eldri. Helst er að heyra að fólk á aldr- inum 13—20 ára, þ.e. unglingar, séu eitthvað afmarkað fyrirbrigði í þjóðfélaginu, en ekki eðlilegur hluti af því. Þessi hópur hefur lítið að gera, er hreinlega settur til hliðar. Fær ekki að bera ábyrgð og skyldur með fullorðna fólkinu, en hefur heldur ekki ábyrgðarleysi barnsins. Hér virðist vera um eitt- hvert millibil í ábyrgð að ræða, sem algerlega er komið undir duttlungum þeirra sem eldri eru. Sverrir Hermannsson minntist *• | á það í fyrrnefndum þætti, hversu gott það væri fyrir unglinga að hafa næga vinnu og þar er ég honum alveg sammála. Hvernig líta þá atvinnumálin út í dag. Hversu auðvelt er fyrir unglinga að fá sumarvinnu? Hér á suðvest- urhorni landsins er það alla vega mjög erfitt, nema gegnum klíku- skap. Nær ógerningur er þó að fá vinnu fyrir unglinga undir 16 ára aldri. Hér í Reykjavík er að vísu starfræktur vinnuskóli, eða „ungl- ingavinnan" eins og þessi skólavist er almennt kölluð. Eins og málum er háttað í dag finnst mér þetta lélegur skóli og algert neyðarúr- ræði fyrir foreldra og unglinga að þurfa að leita þangað. Fyrir þess- um fullyrðingum vil ég nefna 3 ástæður: 1. Verkstjórn er í molum, sem e.t.v. er ekki nema von, því hana annast oft ungmenni sem eru lítið eldri en þau sem stjórna á. Geta þau þess vegna ekki leiðbeint sem skyldi, né veitt það aðhald við vinnuna sem nauðsynlegt er. Þannig er því árangurinn oft sára- lítill og mikill hluti dagsins fer í hangs. 2. Oft sjá unglingarnir lítinn til- gang í þessari vinnu. Þetta er eins konar atvinnubótavinna í þeirra augum og skiptir engu máli hvern- ig hún er unnin, því enginn tekur „Megum við vera ad því að sinna börnunum okkar í dag? Býður þetta þjóðfélag upp á mikið fjölskyldulíf eins og málurn er nú háttað? Hvaða kröfur gerum við til hinna svokölluðu lífs- gæða. Heimilin eru orð- in eins og biðstöð, þar sem fólk hittist rétt augnablik en þekkist raunar ekkert og á lítið orðið sameiginlegt.“ eftir því hvort sem er. 3. Launin eru skammarlega lág. Hef ég aldrei getað skilið út frá hvaða forsendum þau eru reiknuð. Ég veit að atvinnumál unglinga eru í mun betra horfi víða annars staðar á landinu og er það vel. í dag virðast unglingsárin vera orðin að einhvers konar biðtíma eftir að komast í heim hinna full- orðnu. Hvernig lítur svo sá heimur út? Er eftir einhverju að sækjast fyrir unga fólkið? Hvað einkennir hann að of miklu leyti? Mikil vinna — eigingirni — skortur á náunga- kærleika — svik — drykkjuskapur og svo mætti lengur telja. Megum við vera að því að sinna börnunum okkar í dag? Býður þetta þjóðfélag upp á mikið fjöl- skyldulíf eins og málum er nú hátt- að? Hvaða kröfiir gerum við til hinna svokölluðu lífsgæða. Heimil- in eru orðin eins og biðstöð, þar sem fólk hittist rétt augnablik en þekkist raunar ekkert og á lítið orðið sameiginlegt. Fjölskyldu- tengslin eru að rofna eða eru mjög ópersónuleg. Foreldrarnir þurfa yfirleitt báðir að vinna utan heim- ilisins til að fjárhagsdæmið gangi upp, ef það þá gengur upp. Aðeins örfá heimili geta veitt sér þann munað að húsmóðirin sé heima- vinnandi. Það eru mikil forréttindi sem sú kona hefur að þurfa ekki að vinna utan heimilis meðan börnin eru lítil. í dag komast flest heimili ekki af nema með vinnu tveggja. Það er algerlega ofvaxið mínum skilningi hvernig fjöldi einstæðra foreldra fer að því að lifa. Kjarnafjölskyldan er að leysast upp. Nær helmingur hjónabanda endar með skilnaði. Það er mikið starf sem felst bak við góða fjöl- skyldu. Það er mikið starf að kynnast annarri persónu, skilja þarfir hennar, óskir og langanir. Geta gefið af sjálfum sér án þess að vera sífellt að hugsa um endur- gjald. Vera tilbúinn að uppörva, hrósa, hugga og veita hvert öðru styrk og stuðning. Það er e.t.v. ekki hægt að ætlast til þess að við getum sinnt þessu sem skyldi ofan á allt brauðstritið og hlaupin eftir lífsgæðum og hamingju. Eitt verð- um við þá að hafa í huga, við getum ekki allt í einu gripið í börnin okkar á unglingsárunum, hvorki með boð og bönn, né til þess að vera félagar og trúnaðarvinir. Þá er það yfirleitt orðið of seint, því grunnurinn að öllu þessu er lagður í æsku. Unglingur sem ekki fær full- nægt þörfinni fyrir ást, tengsl, og trúnað á heimilinu, leitar til félag- anna eftir þessum hlutum. Því miður hittir hann þá oft fyrir unglinga sem eins er ástatt fyrir, þannig að allir eru að leita en enginn er fær um að gefa neitt. Þá vilja spretta upp alls konar vanamál og sálarflækjur. í dag er það sennilega vímuefnavandamál- ið sem rís hæst. Alveg er ég sam- mála því sem komið hefur fram undanfarið, að allt þarf að gera sem hægt er í þeirri baráttu. Stór- efla þarf fíkniefnalögregluna, taka harðara á fíkniefnasmygli o.fl. Einnig er mjög lofsvert framlag Rauða krossins, þar sem neyðarat- hvarf unglinga er. Það er grátlegt en satt að þörfin fyrir svona at- hvarf er sennileg mikil. I allri þessari umræðu um vímu- efni, notkun þeirra og afleiðingar finnst mér ein mikilvæg staðreynd hafa gleymst. Ef við líkjum þessu við sjúkdóm, sem það vissulega er í vissum skilningi, þá er vímuefna- neyslan sem slík ekki sjúkdómur- inn, heldur eingöngu einkenni og afleiðingar hans. Þetta eru oft hættuleg einkenni og skelfilegar afleiðingar, vegna þess hve sjúk- dómurinn sjálfur er slæmur. Til þess að hægt sé að ráðast að rótum sjúkdómsins verðum við að þekkja hann. Hver er hann og hver eru einkennin? Mín skoðun er sú að meinið liggi í okkur sjálfum, hug- arfari okkar og lífsmati. Meðan það er svona neikvætt og sýkt er lítil von um lækningu. Við verðum að öðlast jákvæðara lífsviðhorf og gera lífið eftirsóknarverðara án aðstoðar vímuefna. Ég hef enga snjalla allsherjar- lausn fyrir framan mig, en væri það ekki verðugt og brýnt verkefni fyrir þjóðina alla, að setjast niður og virkilega reyna sameiginlega að finna einhverja færa leið út úr þeim ógöngum sjálfselsku og eigin- hagsmunasemi sem við virðumst vera föst í. Fyrr en þetta tekst getum við ekki boðið börnum okkar eftirsóknarverða framtíð. Ég get ekki skilið svo við þessar hugleiðingar mínar, að ég minnist ekki aðeins á kynfræðslumálin. Eftir því sem ég kemst næst eru þau víðast hvar í miklum molum. Æskilegast væri að grunnurinn að þessari fræðslu væri í höndum foreldra. Síðan tæki skólinn við og búið væri þannig um hnútana að þessi fræðsla yrði eðlileg og sjálfsögð, svo sem annað nám i skólanum. Það er e.t.v. óraunhæft að ætlast til þess að megnið af foreldrum geti annast þessa fræðslu nema að litlu leyti, þar sem þeir hafa oft á tíðum fengið litla sem enga fræðslu sjálfir. Einnig eru þessi mál oft mjög viðkvæm, þannig að foreldrar treysta sér hreinlega ekki til að ræða þau við börn sín. Hvers vegna standa flestir skól- ar sig ekki betur í kynfræðslu en raun ber vitni? Að minum dómi eru kennslugögnin ekki nógu góð. Að vísu er til nægjanlegt úrval af aðgengilegu efni um uppbyggingu kynfæranna og starfsemi þeirra. Þeirri fræðslu er líka vfðast komið vel til skila, en er þetta nægjan- legt? Hvað með tilfinningalegu, siðferðilegu og félagslegu hliðina á kynlífinu? Það er hún sem er vanrækt. Þar vantar sárlega einhvern stuðning fyrir kennarana. Hvernig eru þeir í stakk búnir til að svara hinum margvislegu spurningum sem vakna hjá nemendum? Vegna alls þessa bind ég miklar vonir við bókina Þú og ég, sem kom út fyrir skömmu, eins og varla hefur farið fram hjá mörgum. Það er skiljanlegt að bók sem fjallar um svo viðamikið og viðkvæmt mál sem kynlíf er i víðtækustu merkingu, veki upp deilur og umræður. í þessari bók sé ég þann grun sem' vantar fyrir kennara til að byggja sína fræðslu á. Þannig að hún höfði til nemenda og komi þeim að gagni. Ég vona sannarlega að kennarar og skólahjúkrunar- fræðingar taki nú höndum saman og vinni í sameiningu að upp- byggingu þessarar fræðslu, með það að leiðarljósi, að heilbrigt kynlíf sé helgidómur og beri að fjalla um það fordómalaust og af nærfærni og skilningi. Höíundur er skólahjúkrunaríræö- ingur / Keykjarík. Haskóli íslands: ÚthlutaÖ úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar LAUGARDAGINN 21. desember fór fram úthlutun námsstyrks úr Minningarsjóói Þorvalds Finnboga- sonar stúdents. Sjóðurinn var stofn- aður af foreldrum Þorvalds Finn- bogasonar, Sigrfði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, pró- fessor við verkfræðideild, á 21 árs afmæli Þorvalds sonar þeirra, 21. desember 1952. Er tilgangur sjóðs- ins að styrkja stúdenta til náms við verkfræðideild Háskóla Íslands eða til framhaldsnáms f verkfræði við annan háskóla að loknu prófi hér heima. Að þessu sinni hlaut styrkinn Jóhanna V. Gisladóttir, Búlandi, 24, Reyjavík, nemandi á 4. ári í rafmagnsfræði við verkfræðideild Háskóla íslands. Mælti verkfræði- deild með þvi við sjóðsstjórnina, að Jóhönnu yrði veittur styrkurinn vegna frábærs árangurs f námi en hún mun ljúka verkfræðiprófi i vor. Stjórn minningarsjóðsins skipa nú Sigmundur Guðbjarnason, rektor Hl, Valdimar K. Jónsson, forseti verkfræðideildar, og forseti ísiands, Vigdís Finnbogadóttur, sem er systir Þorvalds Finnboga- sonar. (Fréttatilkynning) Frá vinstrí, foreldrar styrkþegans, Gísli Guðmundsson og Guðríður Erlendsdóttir, forseti íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, styrkþeginn, Jóhanna Vigdís Gisladóttir, síðan kemur háskólarektor, dr. Sigmundur Guðbjarnason, og forseti verkfræðideildar, Valdimar K. Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.