Morgunblaðið - 11.01.1986, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JANÚAR1986
5
Frá samlestri á Svartfugli hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Á myndinni
má sjá Briéti Héðinsdóttur leikstjóra og nokkra af þeim leikurum
sem leika stór hlutverk í verkinu.
Leikfélag Reykjavíkur:
Æfir nú „Svartfugl“
Nú eru nýhafnar hjá Leik-
félagi Reykjavíkur æfingar á
fjórða verkefni vetrarins en það
verður ný leikgerð eftir Bríet
Héðinsdóttur á Svartfugli Gunn-
ars Gunnarssonar. Svartfugl
fjallar sem kunnugt er um morð-
in á Sjöundá árið 1802 og er
frumsýning fyrirhuguð í byijun
mars.
Sjöundá er innsti bær á Rauða-
sandi og þar var tvíbýli um aldamót-
in 1800. Arferði var um þessar
mundir mjög hart; hafís, kuldi og
hungursneyð; féfellir var tíður og
jafnvel mannfellir. Á Sjöundá gerð-
ust um veturinn og vorið 1802 þeir
atburðir sem nefndir hafa verið eitt
frægasta sakamál Islandssögunnar,
en þá var Bjami Bjamason sakaður
um að hafa myrt sambýling sinn,
Ritsljóri Mann-
lífs hættir
HERDÍS Þorgeirsdóttir, rit-
stjóri tímaritsins Mannlífs,
sagði í gær starfi sínu lausu.
Hún mun láta af störfum við
blaðið þegar urn það hefur
tekist samkomulag við út-
gáfufélagið Fjölni hf. Sam-
kvæmt könnunum upplags-
eftirlits Verslunarráðs ls-
lands hefur Mannlíf verið
mest selda tímarit landsins
undanfarin misscri.
Herdís hefur ákveðið að
stofna eigið tímarit af svipuðum
toga og Mannlíf, sem hún hefur
ritstýrt frá upphafi á miðju ári
1984. í bígerð er að stofna nýtt
hlutafélag um útgáfu þess blaðs.
Auk Herdísar sagði Auður
Styrkársdóttir, fulltrúi ritstjóra
Mannlífs, starfí sínu lausu í
gær. Auður mun starfa við nýja
tímaritið ásamt Herdísi og Lilju
Hrönn Hauksdóttur auglýsinga-
stjóra Mannlífs, sem einnig
lætur nú af störfum.
Jón Þorgrímsson bónda, og síðar
einnig konu sína, Guðrúnu Egils-
dóttur. Bæði þessi morð átti hann
að hafa framið með aðstoð konu
Jóns, Steinunnar Sveinsdóttur.
Sögumaður er séra Eyjólfur
Kolbeinsson kapellán að Saurbæ og
gerist leikurinn í hugarheimi hans
er hann rifjar upp fyrrgreinda at-
burði fimmtán árum seinna. Séra
Eyjólfur hafði bein afskipti af mál-
inu og má með réttu segja að örlög
hans hafi verið samtvinnuð hinum
ömurlegu örlögum sem þau Bjami
og Steinunn hlutu.
Gunnar Gunnarsson skrifaði
skáldsöguna Svartfugl í Danmörku
og kom hún út þar árið 1929, þá
hafði hann rækilega kannað öll
dómsskjöl varðandi málið og kynnt
sér aðstæður og atburðarás. Svart-
fugl kom út í íslenskri þýðingu
Magnúsar Ásgeirssonar árið 1938
og aftur lítið eitt breytt í þýðingu
höfundar 1971.
Með stærstu hlutverk í sýningu
Leikfélagsins á verkinu fara Þor-
steinn Gunnarsson, sem leikur séra
Eyjólf, Jakob Þór Einarsson leikur
Eyjólf ungan, Bjama leikur Sigurð-
ur Karlsson, Steinunni leikur
Margrét Helga Jóhannsdóttir og
Guðmund Scheving settan sýslu-
mann og rannsóknardómara leikur
Gísli Rúnar Jónsson. Með önnur
stór hlutverk fara Jón Sigurbjöms-
son, Gísli Halldórsson og Valgerður
Dan ásamt Kjartani Ragnarssyni,
Karli Guðmundssyni, Soffíu
Jakobsdóttur, Sigrúnu Eddu
Bjömsdóttur, Þresti Leó Gunnars-
syni, Steindóri Hjörleifssyni og
Guðmundi Pálssyni.
Leikstjóri er Bríet Héðinsdóttir.
Tónlist við leikritið semur Jón Þór-
arinsson, Steinþór Sigurðsson gerir
leikmynd og búninga og David
Walters annast lýsingu.
FRUMSÝNIR
gamanmyndina
LÖGREGLUSKÓLIIMN 2
Fyrsta
Gódan daginn!
Bifreið stolið
AÐFARANÓTT föstudagsins var
silfurgrárri Mazda 323 bifreið stolið
úr bflskýli við Krummahóla 8 í
Reykjavík. Bifreiðin ber einkennis-
stafina R-55103. Þeir sem búa yfir
upplýsingum um hvarf bifreiðarinn-
ar eru vinsamlega beðnir að hafa
samband í síma 76955.
Sparisjóður vélstjóra
í FRÉTT Morgunblaðsins í gær,
fostudag, um Trompreikninga
sparisjóðanna, misritaðist nafn
sparisjóðsstjóra Sparisjóðs vél-
stjóra. Hann heitir Hallgrímur Jóns-
son. Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
Eftir stórkostlega
VÍNARTÖNLEIKA
S infóníuhlj óms veitarinnar
er tilvalið að bregða sér
í ATTHAGASALINN
á Hótel Sögu þar verður leikin létt
Vínartónlist á meðan gestir kitla
bragðlaukana. Ljúfri kvöldstund lýkur
svo með því að hin frábæra söngkona
Katja Grewenge syngur nokkur lög við
undirleik Gerhard Deckert.
Heiðursgestur kvöldsins er fegursta kona
heims Hólmfríður Karlsdóttir.
GILDIHF