Morgunblaðið - 11.01.1986, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR11. JANÚAR1986
ÚTVARP
LAUGARDAGUR
11. janúar
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Tónleikar, þulur velur og
kynnir.
7.20 Morguntrimm.
7.30 íslenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
8.00 Fréttir. Dagskrá.
8.15 Veöurfregnir. Tónleikar.
8.30 Lesið úr forystugreinum
dagblaöanna. Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
9.30 Öskalög sjúklinga. Helga
Þ. Stephensen kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur frá kvöldinu áöur
sem Margrét Jónsdóttir flyt-
ur.
10.10 Veðurfregnir.
Óskalög sjúklinga. framhald.
11.00 Ný viðhorf I fjölmiölun.
Einar Kristjánsson stjórnar
umræöuþætti.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.50 Hér og nú. Fréttaþáttur I
vikulokin.
15.00 Robert Stolz. Umsjón:
Guömundur Jónsson.
15.40 Fjölmiölun vikunnar. Est-
er Guðmundsdóttir talar.
15.50 (slenskt mál. Guðrún
Kvaran flytur þáttinn.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Listagrip. Þáttur um listir
og menningarmál. Umsjón.
Sigrún Björnsdóttir.
17.00 „Maöurinn sem áfrýjaði
til keisarans." Saga frá Jerú-
salem I endursögn Alans
Boucher. Helgi Hálfdanar-
son þýddi. Baldvin Halldórs-
son les.
17.30 Orgeltónleikar I Frlkirkj-
unni I Reykjavlk. Marek
Kudlicki leikur.
a. Sálmforleikur „Fyrir Ad-
ams fall“ eftir Wilhelm Fried-
mann Bach.
b. Fúga i F-dúr eftir Wilhelm
Friedmann Bach.
14.45 Leicester — West Ham
Bein útsending frá ensku
knattspyrnunni.
17.00 íþróttir
Umsjónarmaður: Bjarni Fel-
ixson
Hló
19.20 Búrabyggð (Fraggle
Rock)
Annar þáttur. Brúðumynda-
flokkur eftir Jim Henson.
Hola I vegg hjá gömlum
uppfinningamanni er inn-
gangur (furðuveröld þar sem
þrenns konar hulduverur
eiga heima, Búrar, dverga-
þjóðin Byggjar og tröllafjöl-
skyldan Dofrar. Þýðandi:
Guðni Kolbeinsson.
c. Elegla op. 30 eftir Miec-
zyslaw Surzynski.
d. Prelúdia og fúga eftir
Ferruccio Busoni.
Tónleikar og tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Þetta er þátturinn. Um-
sión: Karl Ágúst Úlfsson,
Siguröui Sigurjónsson og
Örn Arnason.
20.00 Harmonlkuþáttur. Um-
sjón: Einar Guðmundsson og
Jóhann Sigurðsson. (Frá
Akureyri.)
H.janúar
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Staupasteinn (Cheers)
Þrettándi þáttur. Bandarisk-
ur gamanmyndaflokkur.
Þýðandi Guöni Kolbeinsson.
21.00 CleoogJohn
Breskur tónlistarþáttur með
hinum góökunnu skemmti-
kröftum Cleo Laine og John
Dankworth. Meðal gesta
þeirra eru gamanleikarinn
Rowan Atkinson, Julian Llo-
yd-Webber sellóleikari,
Linda Gibb listdansari og
karlakórinn „Meistarasöngv-
ararnir".
20.30 Sögustaöir á Noröur-
landi. Umsjón: Hrafnhildur
Jónsdóttir. (Frá Akureyri.)
21.20 Vísnakvöld. Glsli Helga-
son sér um þáttinn.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Bréf úr hnattferð. 2. þátt-
ur. Dóra Stefánsdóttir segir
frá.
23.00 Danslög.
24.00 Fréttir.
00.05 Miönæturtónleikar. Um-
sjón: Jón Örn Marinósson.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til kl.
03.00.
21.55 Louspæjó
(The Cheap Detective)
Bandarlsk sakamálamynd I
léttum dúr frá 1978. Leik-
stjóri: Ray Stark. Aðalhlut-
verk: Peter Falk, Marsha
Mason, Dom De Luise og
Louise Fletcher. Myndin
gerist I San Francisco árið
1940. Félagi seinheppins
spæjara finnst myrtur. Af
vissum ástæöum fellur grun-
ur á söguhetjuna. Eina úr-
ræði hans er að finna morð-
ingjann sjálfur en það reynist
hægara sagt en gert. Þýð-
andi Reynir Haröarson.
23.35 Dagskrárlok
A?
LAUGARDAGUR
11. janúar
10.00—12.00 Morgunþáttur.
Stjórnandi: Siguröur Blöndal.
Hlé.
14.00—16.00 Laugardagur til
lukku.
Stjórnandi: Svavar Gests.
16.00—17.00 Listapopp.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
17.00—18.00 Hringboröið.
Stjórnandi: Erna Arnardóttir.
Hlé.
20.00—21.00 Llnur.
Þessi þáttur hefur nú göngu
slna að nýju eftir nokkurt
hlé og verður fyrst um sinn
á dagskrá annan hvern laug-
ardag á þessum tima. Stjórn-
andi: Heiðbjört Jóhanns-
dóttir.
21.00—22.00 Millistiða.
Stjórnandi: Jón Gröndal.
22.00—23.00 Bárujárn.
Stjórnandi: Siguröur Sverris-
son.
23.00—24.00 Svifflugur.
Stjórnandi: Hákon Sigurjóns-
son.
24.00—03.00 Næturvaktin.
Stjórnandi: Einar Gunnar
Einarsson.
SJÓNVARP
LAUGARDAGUR
Fjölda-
einræði?
Gegnum lífið á sjötíuogátta-
snúningahraða nefndist þátt-
ur í umsjón Símonar Jóns Jóhanns-
sonar er sá stað í fimmtudags-
dagskrá rásar 1 milli kl. 21.20 og
21.45. í þætti þessum fjallaði Símon
lítillega um skáldskap Einars Más
Guðmundssonar og tók skáldið tali.
Eins og vera ber voru lög leikin í
þættinum væntanlega til að seiða
fram það andrúmsloft er Einar Már
telur fylgifísk ljóða sinna. Eg sé
ekki ástæðu til að rekja hér frekar
rabb þáttarstjórans við skáldið
Einar Má en í því spjalli þótti mér
einna athyglisverðust sú yfírlýsing
skáldsins að það hefði sett sér það
markmið við upphaf skáldferils að
yrkja ekki færri en 500 ljóð áður
en kastað yrði línu á prent... þau
urðu 430.
Ástæða þess að ég vek hér sér-
staka athygli á þessum litla út-
varpsþætti er annars þríþætt:
ífyrsta lagi
í fyrsta lagi tel ég ástæðu til að
gefa gaum að þeim stuðningi er
Ríkisútvarpið veitir skáldum eink-
um á rás 1 en á þeirri rás er að
fínna ýmsa þætti er taka á skáld-
skap svo sem bókaþátt Njarðar P.
Njarðvík. Þá gefst skáldum gjaman
færi á að vagga ljóðum sínum á
öldum ljósvakans. Hér er um þarft
framtak að ræða.
íöörn lagi
Ég veit ekki hvort telja má Einar
Má til svokallaðra ungskálda en hér
á ég einkum við ung skáld er hafa
ekki enn ratað inn í myrkvið út-
gáfukerfisins ef svo má að orði
komast. Ég er þeirrar skoðunar að
ríkisfjölmiðlamir geri allt of lítið
af því að kynna lítt þekkt ungskáld.
Sjónvarpið hefir nánast úthýst
skáldum enda virðist manni nú
stundum að fótboltar og handboltar
séu stjómendum á þeim bæ hug-
leiknari en andans verk. (Væri ekki
heillaráð að afhenda bara Bjama
sjónvarpið og byggja síðan dag-
skrána á endursýndu efni og bein-
um útsendingum frá hand- og fót-
boltaleikjum?)
íþriÖja lagi
Höfum við efni á að sniðganga
þannig ungskáldin í ríkisfjölmiðlun-
um? Gæti verið að hér reyndust
óþekktir snillingar er eiga þess ekki
kost að miðla öðmm af gnægtar-
bmnni sínum nema í formi fjölrit-
aðra ritlinga er fást keyptir á torg-
um? Er hugsanlegt að ungskáldin
sjái fremur veilumar í hátimbraðri
þjóðfélagsyfírbyggingu hinna eldri?
Segir ekki ungskáldið Þorri Jó-
hannsson í ljóðinu Skömmtuð
stund? Mér er réttur tími:/sofa á
þessum/drekka á hinum/vaka á
öðmm/versla og borða á vissum./
Við smölum sjálfum okkur saman/
til þessara verka./Sameinuð brengl-
uð athygli/ú'öldaeinræðis./Allt önn-
ur tunga en mín/í þessari takmörk-
uðu/hurðalausu skipulögðu/hring-
iðuveröld./Sláum fram fjarstýrðum
/orðum./í þessari ákveðnu ímynd-
uðu/veröld. Og margir vilja verða
eitthvað/sem ungir ungar:/boð-
skapur boðskapur boðskapur/og
síðan fals fas fals./Mest munu þeir
falsa sjálfa sig/ í þessari fyrirfram
stýrðu/veröld.
Er ungskáldið að lýsa hér fasísku
samfélagi? Hver veit en eitt er víst
að fót- og handboltahetjur munu
aldrei vara við fasisma. Síkar hetjur
eiga hins vegar auðvelt með að lúta
heraga.
Ólafur M.
Jóhannesson
Búrabyggð
— brúðumyndaflokkur
er inngangur í furðuveröld
þar sem þrenns konar
hulduvemr eiga heima:
Búrar, dvergþjóðin Byggj-
ar og tröllafjölskyldan
Dofrar. Þýðandi er Guðni
Kolbeinsson.
IBaHBHE Annar þattur
1 Q20 brúðumynda-
A «/ — flokksins „Búra-
byggð“ eftir Jim Henson
er í sjónvarpi í kvöld kl.
19.20.
Hola ein í vegg hjá
gömlum uppfínningamanni
Lou spæjó
— bandarísk sakamálamynd
■■■■ „Lou spæjó“
01 55 (The CheaP
Cá X ~~ Detective)
bandarísk sakamálamynd í
léttum dúr - er á dagskrá
sjónvarps kl. 21.55 í kvöld.
Myndin er frá árinu 1978
og leikstjóri hennar er Ray
Stark. Með aðalhlutverk
fara Peter Falk, Marsha
Mason, Dom De Luise og
Louise Fletcher.
Myndin gerist í San
Francisco árið 1940. Félagi
seinheppins spæjara fínnst
myrtur. Söguhetjan og
ekkja hins myrta hafa átt
saman nokkuð sérstætt
samband og af þeim ástæð-
um fellur gmnur á sögu-
hetjuna. Eina úrræði hans
er að fínna morðingjann
sjálfur en það reynist
hægara sagt en gert.
Hann kemst þó að því
að morðið var framið út
af týndum demöntum. Áð-
ur en yfír lýkur verða ýmis
ævintýri á veginum. M.a.
hittir hann æskuvinkonu
sína, söngkona ein fellur
allt í einu fyrir Lou og
dularfullur kvenmaður
kemur honum í samband
við alþjóðlegan smyglara.
Listaverkasafnari einn og
eiginkona hans láta honum
í té ýmsar upplýsingar, sem
koma Lou að góðu gagni.
Kvikmyndahandbókin
gefur mynd þessari þijár
stjömur af fjórum mögu-
legum. Þýðandi er Reynir
Harðarson.
ÚTVARP / SJÓNVARP
Cleo og John með Rowan Atkinson.
Cleo o g John
— breskur tónlistarþáttur
21
■I Breskur tónlist-
00 arþáttur með
— þeim hjónum
Cleo Laine og John Dank-
worth, sem m.a. hafa hald-
ið tónleika hér á landi,
verður á dagskrá sjónvarps
kl. 21.00 íkvöld.
Meðal gesta þeirra em
gamanleikarinn Rowan
Atkinson, Julian Lloyd-
Webber sellóleikari, Linda
Gibb listdansari og karla-
kórinn „Meistarasöngvar-
Peter Falk í hlutverki sínu sem Lou spæjó.