Morgunblaðið - 11.01.1986, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1986
11
Afmæliskveðja:
Lilja Bjarna-
dóttir, Selfossi
í dag, laugardaginn 11. janúar,
nær frú Lilja Bjamadóttir frá Lang-
holti níræðisaldri.
Er maður hefur átt þess kost að
ganga með öndvegisfólki á vegferð
lífsins og hafa af því kynni sem
lengi býr að, þá er ljúft að gefa sér
stund að ávarpa viðkomandi, sé
þess kostur.
Ég átti því láni að fagna að
dvelja fjögur sumur á unglingsárum
í sveit hjá Lilju og Eiríki Þorgilssyni
manni hennar að Langholti í Flóa.
Þar var gott að skila af sér dags-
verki og þiggja að launum heilræði,
gamanyrði og hrós þeirra hjóna og
alls heimilisfólks. Þó nokkuð sé um
liðið verður sá tími ofarlega í huga
og endurminningin ljúf.
Lilja er fædd að Útverkum á
Skeiðum 11. janúar 1896. Hennar
foreldar voru Bjami Jónsson bóndi
þar og Sigríður Jónsdóttir frá Alfs-
stöðum á Skeiðum. Lilja ólst upp
hjá föður sínum og konu hans,
Guðrúnu Þórðardóttur, sem var
henni gott haldreipi í uppvexti. Lilja
giftist manni sínum, Eiríki Þorgils-
syni, vorið 1906 og það ár hófu þau
búskap að Haugakoti í Sandvíkur-
hreppi þar sem nú heita Ljónsstaðir.
1930 fluttu þau að Útverkum en
1931 hófu þau búskap að Langholti
í Hraungerðishreppi.
Eiríkur lést 1967 en Lilja bjó
áfram að Langholti með syni sínum
Þorgilsi til ársins 1974 er þau fluttu
að Eyravegi 16 á Selfossi þar sem
þau búa enn.
Lilja og Eiríkur eignuðust 7 böm.
Eitt þeirra lést í bernsku, en sex
em á lífi. Tryggvi býr í Reykjavík,
Þorgils á Selfossi, Sigríður að Ás-
garði í Grímsnesi, Bjarnþór í Þor-
lákshöfn, Sighvatur á Selfossi og
Eydís Lilja að Kolsholti í Villinga-
holtshreppi.
Lilja hefur alltaf verið góð heimil-
iskona og hana hefur verið ljúft
heim að sækja og eiga samvinnu
og samskipti við. Hún hefur skilað
sínu starfi innan veggja heimilisins,
haldið hús og unnið lífínu gagn með
framlagi sínu. Þess hafa börnin
notið, bæði hennar eigin og ann-
arra. Það er svo að börn og ungling-
ar laðast að fólki með gott hjartalag
sem getur hlegið með þeim og tekið
þátt í lífi þeirra og starfi. Þannig
er Lilja í mínum huga og sjálfsagt
annarra líka. Það er þakkarvert að
mega eiga slíkan sjóð í hugskoti
sínu og það að hafa átt þess kost
að kynnast lífsreyndu fólki sem
hefur séð breytingar áranna.
En hratt flýgur stund og þegar
liðin ár eru að baki virðast þau
hafa liðið á örskotsstund, eftir situr
maðurinn, ríkari af innri auð sem
ekkert fær eytt.
Hjá sumu fólki er gott að dvelja
og þannig vom samverustundimar
í austurbænum í Langholti, hvort
sem var á sumri eða vetri. Að skýra
ástæður þess er um megn. Þar var
að finna lífsfyllingu í einlægu starfi
með góðu fólki sem ekki var hægt
annað en sækjast eftir.
Það er ósk mín að Lilja og allt
hennar fólk megi njóta gleði ókom-
inna ára. Lifðu heil.
Sigurður Jónsson
Það var árið 1949 að fjölskylda
í Reykjavík fór í ferðalag austur
„fyrir fja.ll.
Farartækið var bifreið sem setu-
liðið hafði skilið eftir að aflokinni
heimsstytjöld, bifreiðin var komin
í það ástand að vel fór um 7—8
manns, var það fyrir verklagni
góðra nágranna að svo vel tókst til.
Rykið við Kolviðarhól var kæf-
andi í sumarhitanum og yngstu
farþegarnir urðu bílveikir. Áfanga-
stað var náð á áætluðum tíma,
Langholti í Hraungerðishreppi.
Tilefni ferðarinnar var. að koma
þeim sem þessar línur skrifar í
kynni við sveitalíf.
Við vomm stödd í frændagarði
og fögnuðurinn mikill þegar fólkið
tíndist út úr bifreiðinni. Ég sá strax
að fólkið var alúðlegt og heilsaði
fólkinu með sannri gleði.
Skyldleiki við hjónin bæði tryggði
öryggi snáðans, sem kom til að
vera.
Bóndinn, húsmóðirin og allt fólk-
ið á bænum bar með sér þá hlýju
og innileika að ekkert var að óttast.
Blandað var geði við heimilisfólkið
og þegnar veitingar sem húsmóðirin
stóð fyrir hljóð og hlý í fasi.
Farið var í könnunarferð um
bæinn og næsta nágrenni, gengið
að mönnum sem vom að setja
saman rakstrarvél, sem táknaði
það, að vélvæðingin var í uppsigl-
ingu.
Það var allt sem mælti með því
að snáða nýkomnum af mölinni
yrði fullkomlega óhætt á þessum
stað.
Lilja, sem í dag fyllir níutíu ára
tilvem, var þungamiðjan í þessum
hópi, húsmóðirin á bænum sem
vakandi og sofandi bar velferð allra
fyrir bijósti. Öllum leið vel og mikið
var hlegið og sungið. Sannkölluð
menning var ríkjandi.
Lilja sá um að mat skorti ekki
og hafði hann svo góðan að foreldr-
ar mínir fengu til baka fleiri kíló
en þeir sendu í sveitina. Aldrei var
maður var við að orði yrði hallað á
náungann og þvi síður að nokkur
styggðaryrði hryti af hennar vömm,
jafnvel þótt maður ætti slíkt skilið.
Tíminn var fljótur að líða og
dvölinni lauk áður en tími vannst
til að hugleiða það hvort maður
ætti að gera eitthvað í því að láta
sér leiðast.
Það var samkvæmt ósk þess sem
skrifar að vist var fengin ári seinna
á sama stað.
Það var löng leið sem var gengin
eftir afleggjaranum að Langholti
vorið 1949 með tösku og poka.
Þreytan var mikil þegar bænum var
náð.
Umbunin sem strákurinn fékk
varð þess valdandi að þreytan
gleymdist og Lilja vissi nákvæm-
lega hvers ferðalangurinn þarfnað-
ist helst.
Þannig gekk lífið fyrir sig á
Langholti. Lilja vissi hvað gera
þurfti til að skapa ungviðinu á
heimilinu fullkomin lífsskilyrði
Langholt varð í vitundinni að
öðm heimili og snáðinn fann sig
fullkomlega eins og hann væri
'heima.
Eignaðist hlutdeild í ömmunni
sem var á staðnum, Sigríði Jóns-
dóttur móður Lilju. Sigríður stráði
léttleika sínum og góðu skapi
umhverfis sig og uppfyllti vissa
vöntun sem var á því sviði hjá
snáða, þar sem báðar hans eigin-
legu ömmur höfðu gengið veginn á
enda áður en hann varð til.
Kynni tókust við fólkið á næstu
bæjum, sem reyndist prýðilegt í
alla staði, það var eins og að for-
sjónin hefði valið hópinn saman.
Állir virtust sáttir við lífið og tilver-
una, brosað, hlegið, sungið þegar
tími vannst til að líta upp frá verk-
um. Ég á þessu fólki það að þakka
að virðing mín fyrir sveitinni og
fólkinu sem henni tilheyrir hefur
verið óskert síðan. Lilja átti stóran
þátt í því að skapa þetta viðhorf
hjá mér, ásamt manni sínum sem
með fasi sínu mótaði ákveðna skoð-
un hjá mér, hvernig bóndi átti að
vera, til að vera fullkominn.
Lilja fæddist á Útverkum á
Skeiðum 11. janúar 1896, hún var
dóttir Bjarna Jónssonar og Sigríðar
Jónsdóttur sem fyrr var getið. Lilja
gekk í hjónaband 1926 og giftist
Eiríki Þorgilssyni bónda, fæddum
19. ágúst 1894, hófu þau búskap á
Útverkum sama ár. Að Langholti
fluttu þau 1931 og bjó Lilja þar til
ársins 1974. Bjó hún síðustu árin
með syni sínum. Eiríkur dó árið
1967.
Síðastliðin ár hefur Lilja búið á
Selfossi og haldið heimili með Þor-
gilsi syni sínum.
Lilju og Eiríki varð sex barna
auðið og eru þau öll á lífi en þau
eru Tryggvi, Þorgils, Sigríður,
Bjarnþór, Sighvatur og Eydís Lilja
sem öll fagna áfanga þeim sem
móðir þeirra hefur náð í dag.
Það verður að játast hér með að
sambandið við Lilju hefur ekki verið
eins og æskilegt hefði verið en
hugurinn hefur oft hvarflað til þess
tíma er ég dvaldi á hennar heimili
og í hvert sinn sem ekið er um
Hraungerðishreppinn er mér alltaf
litið til Langholts, til að mikla mig
í augum smáfólks sem ef til vill er
með í ferðinni segi ég því að ég
hafi gengið alla leið að bænum með
tösku og poka.
Ég hef frétt að Lilja hafi ekki
heldur gleymt mér og hafi hún þökk
fyrir. Einnig þakka ég henni fyrir
allt sem hún gerði til að mannbæta
strákinn sem var hjá henni í sveit
einu sinni.
Lilja mín, hjartanlega til ham-
ingju með stóra daginn og blessunar
óskir til þín og fjölskyldu þinni til
handa.
Sveinbjörn Matthíasson
Afmæliskveðja:
GísliF. Johnsen
Vestmannaeyjum
Áttatíu ára er í dag Gísli Friðrik
Johnsen. Þennan dag, 11. janúar
1906, leit hann dagsins ljós í Godt-
háb í Eyjum. Foreldrar hans voru
hjónin Ásdís Johnsen Gísladóttir
Stefánssonar kaupmanns frá Hlíð-
arhúsum í Eyjum og Gísli J. Johnsen
kaupmaður og konsúll frá Fryden-
dal í Eyjum. Að Gísla Friðriki
standa því sterkir stofnar og af-
burða fólk.
Ásdís móðir hans var systir séra
Jes A. Gíslasonar og þeirra systk-
ina. Meðal þeirra voru bræðumir
Ágúst og Stefán Gíslasynir, er
fyrstir manna klifu Eldey með
Hjalta Jónssyni og er það ógleym-
anlegt afrek. Faðir Gísla Friðriks
varð ungur munaðarlaus. Fyrir
eigin dugnað og áræðni komst hann
svo í álnir og framkvæmdir, að
naumast verður lengra náð. Gísli
varð einn sonur þeirra og yngstur.
Eldri voru systurnar Sigríður sem
giftist Ástþóri Matthíassyni lög-
fræðingi og verksmiðjueiganda og
Soffía sem giftist ísleifi Árnasyni
lögfræðingi ættuðum frá Geita-
skarði í Langadal, Húnaþingi.
Gísli Friðrik var bráðger og vel
af Guði gerður. Átti hann allra
kosta völ, eins og hugurinn girntist.
Hann lauk stúdentsprófi í Dan-
mörku og allar leiðir stóðu honum
opnar til frama og mennta. í eðli
sínu var Gísli náttúmbarn og gekk
fremur á vit náttúrunnar en innilok-
un yfir skruddum og þurrum lær-
dómi.
Hann var mikill íþróttamaður og
sparkaði bolta af list. Kleif hamra
og björg sem frændur hans. Iðkaði
veiðiskap með góðum árangri. Gísli
leit fegurð Vestmannaeyja með list-
rænum auguin sínum. Festi hann
þessa feguri) á filmur og var einn
kunnasti ljósmyndari þessa lands.
Um árabil átti Gísli vb. „Þrist“ VE
6 er Gísli faðir hans lét byggja á
sinni tíð í Danmörku. Gísli Friðrik
horfði ekki á annarra hendur draga
fisk úr djúpinu, heldur stundaði sjó-
inn sjálfur vertíð eftir vertíð og
hafði lifibrauð af..
Þetta var Gísli Friðrik. Hann var
léttur og glaður, góður félagi og
naut í fijálsræði lífsins, öðruvísi en
margur hugsar sér og stefnir að.
Eitt mesta lán Gísla Friðriks varð,
þegar hann giftist Friðbjörgxi
Tryggvadóttur lærðri hjúkrunar-
konu. Er hún frá Jórunnarstöðum
í Eyjafirði, en þar bjuggu foreldrar
hennar, Lilja Frímannsdóttir og
Tryggvi Sigurðsson bóndi. Hjóna-
band þeirra Gísla Friðriks og Frið-
bjargar blessaðist með þrem börn-
um. Hrafn tannlæknir í Reykjavík,
Ásdís húsmóðir er býr í Njarðvíkum
og Orn Tryggvi, sem hrifinn var
brott af vettvangi lífsins aðeins 16
ára, öllum mikill harmdauði.
Nú við þessi tímamót í lífi Gísla
Friðriks, þá lítur hann yfir farinn
veg. Lífið hefir borið honum margar
dásemdir og unað, sem hann hefir
notið, eins og hann kaus sér. Mér
hefír fundist líf hans einkennast af
góðvild. Horfa á björtu hliðarnar.
Áhyggjur og kvíði víðs fjarri. Ég
þakka 9 ára nágrenni og vinskap
um tugi ára. Blessa ég þau Gísla
Friðrik, Friðbjörgu, Krumma og
Ásdísi fyrir skuggalaus kynni í
vinsemd. Njóttu vel þess sem eftir
er Gísli Friðrik og blessun Drottins
veri með þér alla tið.
Einar J. Gíslason
Afmælisbarnið tekur á móti vin-
um sínum á heimili sonar síns og
tengdadóttur, Sævangi 25, Hafnar-
firði, frákl. 15—18.
1. Bíllinn er olíuþveginn til aö hreinsa af tjöru.
2. Forþvottur. Þykku sápulööri sprautaö yfir bílinn.
3. Vatnsþvottur meö burstum. Shampoo í vatninu.
4. Bíllinn fær yfirferö af svokölluöu skyllevoks sem gefur gljáa og verndar bílinn.
5. Jafnframt þessu öllu er undirvagn hreinsaöur.
Veröin eru frá 580 fyrir minni sendiferöabíla og upp í 1280 fyrir stærstu flutn-
ingabíla með aftanívagni. (Ath.: Olía og skumm reiknað sér).
Til aö byrja meö veröur stöðin opin sem hér segir:
Virka daga frá 9—19 eöa eftir. þörfum.
Laugardaga frá 9—17 eða eftir þörfum.
Sunnudaga frá 14—22 eöa eftir þörfum.
Hins vegar erum viö reiðubúnir aö breyta þessu eftir óskum viöskiptavina og
viljum gjarnan heyra tillögur þeirra.
Stórbílaþvottastödin
Höfðabakka 1. Sími 688060.
Stórbílaþ vottastöð