Morgunblaðið - 11.01.1986, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1986
13
Frá fundl vísindamannanna Morgunblaðið/Bjarni
Evrópskir genbanka-
menn þingnðu í Reykjavík
NÝLEGA var haldinn í Reykjavík
fundur um samstarf Evrópu-
þjóða á sviði genbanka fyrir
nytjaplöntur. Um 20 vísinda-
menn, bæði vestan járntjalds og
austan, sóttu fundinn. Þorsteinn
Tómasson forsljóri Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins sat
fundinn.
Þorsteinn sagði að upphaf þessa
samstarfs mætti að nokkru rekja
til Helsinkisáttmálans sem undirrit-
aður var fyrir rúmum áratug þar
sem m.a. voru gerðar samþykktir
um aukna samvinnu austurs og
vesturs á ýmsum sviðum menningar
og vísinda. Vísindamennimir hittast
til að samræma starfsemina svo að
jurtakynbótamenn hvar sem er í
Evrópu geti átt sem greiðastan
aðgang að þeim erfðaefnum sem
varðveitt em. Þorsteinn sagði að
Islendingar ættu aðild að norræna
genbankanum. Hann færi með
umboð okkar í þessu Evrópusam-
starfi og tengdumst við þessu
samstarfi á þann hátt.
í genbönkum em varðveitt erfða-
efni sem síðar kunna að koma að
notum við plöntukynbætur. Þor-
steinn sagði að stöðugt væm að
koma fram ný plöntuafbrigði og
stofnar en fyrri tegundur hyrfu.
Markmiðið með genbönkum væri
að varðveita gömlu stofnana til
hugsanlegra síðari nota.
Staðarvalsnef nd
lögð niður
ALBERT Guðmundsson iðnaðar-
ráðherra hefur nú látið leggja
niður staðarvalsnefnd. Þessa
dagana fer fram endurskoðun
allra nefnda ráðuneytisins og
sagði ráðherra að eftir um tvær
vikur kæmi í ljós hvort fleiri
nefndir fylgdu í kjölfarið.
„Staðarvalsnefnd hefur unnið
mjög vel en hún hefur ekkert að
gera lengur þar sem engin stóriðja
er í boði“ sagði Albert Guðmunds-
son, en nefndin er nú að ganga
frá lokaverkefnum sínum. Hann
sagði að á næstu dögum yrði hald-
inn innanhúsfundur í ráðuneytinu
og allar nefndir endurskoðaðar með
tilliti til hvort hægt væri að fækka
þeim enn frekar.
Til hamingju með
góð skáldalaun
Tónlist
JónÁsgeirsson
Alla tíð hefur það verið okkur
íslendingum mikils virði að fá
viðurkenningu erlendis og þótti
fyrmm einna mestur sómi af því
að flytja höfðingjum og mikil-
mennum drápur og þiggja að
launum ýmislegt, er var til vitnis
um að tíðindi hefði þótt og sómi
öllum er viðstaddir vom. Þrátt
fyrir fátækt héldu menn reisn
sinni í stórbrotnum skáldskap en
á síðari ámm hefur mönnum svo
þénast fé, að nú em efni fyrir
margbrotnari listiðju .en aðeins
leik með orð. Nú er það myndlist,
leiklist og tónlist, sem menn hafa
aukið við og enn fara listamenn
utan til að keppa um hylli stór-
þjóðanna og hefur margur lista-
maðurinn fært þar fram list sína
og fengið „þegar hljóð“.
Vesturfóregofver,
enegViðrisber
munstrandar mar
svo er mitt far,
dróegeikáflot
við ísa brot,
hljóðeg eg mærðar hlut
míns knarrar skut.“
Þannig kvað Egill forðum fyrir
Eirík konung og nú berast þær
Hafliði Hallgrímsson
fréttir utan úr löndum, að Hafliði
Hallgrímsson hafi þegið af erlend-
um mönnum skáldalaun fyrir ljóð-
verk sitt „Poerni". í þessu verki
leikur Hafliði með hugmyndir,
sem bæði eiga sér tengsl við
myndlist og ljóðagerð, auk þess
að vera leikræn uppfærsla í lifandi
flutningi. Það hefur verið sagt að
skapandi tónlistarmaður komist
ekki fram úr sjálfum sér og því
verði hann að vera mikilhæfur
flytjandi, þar býr Hafliði stóru búi,
á auk þess til hlýju og listfengi
þess er hefur ræktað tilfinningar
sínar við fótstall listagyðjanna.
Listfengi Hafliða fær því stoð í
góðri kunnáttu og með þeirri
viðurkenningu, sem hann nú hefur
hlotið, hefur hann „þegar fengið
hljóð“. Vel má óska listamanni til
hamingju með góð skáldalaun en
mestu varðar, að nú hefst í raun
starfssaga listamanns, sem á sér
enn ókveðnar margar drápur og
miklar. Vel máttu vita, Hafliði,
að ég mun kasta til þín smávölu,
brimslípaðri og senda þér kveðju
yfir hafið í gárunum og þó ekki
verði kallað hátt, er þær skola
kveðju minni á Skotlands strend-
ur, fylgir þeim sú hlýja sem hefur
haldið í okkur Islendingum tór-
unni.
DÓMKIRKJAN: Laugardag 11.
jan.: Barnasamkoma kl. 10.30.
Sr. Agnes M. Sigurðardóttir.
Sunnudag 12. jan. kl. 11.00.
Prestvígsla. Biskup íslands hr.
Pétur Sigurgeirsson vígir
kandidat í guðfræði Harald
Magnús Kristjánsson til að-
stoðarprests í Garða- og Víði-
staðasóknum í Kjalarnespróf-
astsdæmi. Vígslu lýsir sr. Bragi
Friðriksson prófastur. Vígslu-
vottar auk hans eru: sr. Sigurð-
ur Helgi Guðmundsson, sr.
Gunnþór Ingason, sr, Sigurður
Sigurðarson og sr. Lárus Þ.
Guðmundsson prófastur. Alt-
arisþjónustu annast sr. Agnes
M. Sigurðardóttir og hinn ný-
vígði prestur. Kl. 14.00:
Messa. Sr. Hjalti Guðmunds-
son. Dómkórinn syngur við
báðar athafnirnar. Orgelleikari
Marteinn H. Friðriksson.
ÁRBÆJARPRESTAKALL:
Barnasamkoma í Foldaskóla í
Grafarvogshverfi laugardag
11. jan. kl. 11 árdegis. Barna-
samkoma í safnaðarheimili
Árbæjarsóknar sunnudag kl.
10.30 árdegis. Guðsþjónusta í
safnaðarheimilinu kl. 14.00.
Organleikari Jón Mýrdal.
Væntanleg fermingarbörn og
foreldrar þeirra sérstaklega
boðin velkomin til guðsþjón-
ustunnar. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.00. Guðsþjónusta
kl. 14.00. Kaffisala safnaðar
félags Ásprestakalls eftir
messu. Mánudag 13. jan.:
Safnaðarfélagsfundur í safn-
aðarheimili Áskirkju kl. 20.30.
Guðrún Ásmundsdóttir leik-
kona segir frá Leikhúsi kirkj-
unnar. Kaffiveitingar. Sr. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
Barnasamkoma laugardag 11.
jan. kl. 11.00. Messa sunnu-
dag kl. 14.00 í Breiðholtsskóla.
Sr. Lárus Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Sr. Sólveig Lára
Guðmundsdóttir. Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Lesari Hafdís
Guðmundsdóttir. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson. Sr.
Ólafur Skúlason. Kvenfélags-
fundur mánudagskvöld m.a.
tískusýning o.fl. Æskulýðsfé-
lagsfundur þriðjudagskvöld.
Félagsstarf aldraðra miðviku-
dagseftirmiðdaga.
DIGRANESPRESTAKALL:
Barnasamkoma í safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastíg kl.
11. Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 14.00. Foreldra ferm-
ingarbarnanna sérstaklega
vænst. Sr. Þorbergur Kristj-
ánsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10.00. Sr. Lárus
Halldórsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Laugardag 11. jan.: Kirkjuskóli
Guðspjall dagsins:
Þegar Jesús var 12 ára.
Lúk. 2.:
verður í kirkjunni við Hólaberg
88 kl. 10.30. Barnasamkoma í
Hólabrekkuskóla kl. 14.00.
Sunnudag 12. jan.: Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Organisti Guðný
Margrét Magnúsdóttir. Fund-
ur í æskulýðsfélaginu mánu-
dag 13. jan. kl. 20.30. Sr.
Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Messa kl. 14.00.
Fyrirbænir eftir messu. Organ-
isti Árni Arinbjarnarson. Fund-
ur Kvenfélags Grensáskirkju
mánudag 13. jan. kl. 20.30.
Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa
kl. 11.00. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson. Barnasamkoma á
sama tíma í safnaðarheimilinu.
Kvöldmessa með altarisgöngu
kl. 17.00. Sr. Karl Sigurbjörns-
son. Þriðjudag 14. janúar —
Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
10.30. Fimmtudag 16. jan. —
Opið hús fyrir aldraða kl.
14.30.
LANDSPÍTALINN: Guðsþjón-
usta \r\. 10.00. Sr. Karl Sigur-
björnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl.
10.00. Barnaguðsþjónusta kl.
11.00. Sr. Arngrímur Jónsson.
Messa kl. 14.00. Sr. Tómas
Sveinsson.
KÁRSNESPRESTAKALL:
Messa í Kópavogskirkju kl.
11.00. Organisti Kjartan Sigur-
jónsson. Sr. Guðmundur Órn
Ragnarsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Óska-
stund barnanna kl. 11.00.
Söngur — sögur — myndir.
Þórhallur Jón Haukur. Guðs-
þjónusta kl. 14.00. Ræðumað-
ur Baldur Sveinsson kennari.
Organisti Jón Stefánsson.
Prestur, Sigurður Haukur
Guðjónsson. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11.00. Messa
kl. 14.00. Altlarisganga. Mánu-
dag 13. jan.: Fundur Kven-
félags Laugarnessóknar kl.
20.00. Þriðjudag 14. jan.:
Bænaguðsþjónusta kl. 18.00.
Föstudag 17. jan.: Síðdegis-
kaffi í Safnaðarheimilinu kl.
14.30. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Laugardag 11.
jan.: Samverustund aldraðra
kl. 15.00. Svavar Guðmunds-
son kennari og steinasafnari
og félagar úr Þjóðdansafélag-
inu koma í heimsókn. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Sunnudag 12. jan.: Barnasam-
koma kl. 11.00. Sr. Frank M.
Halldórsson. Guðsþjónusta kl.
14.00. Orgel- og kórstjórn
Reynir Jónasson. Sr. Guð-
mundur Óskar Ólafsson.
Mánudag 13. jan.: Æskulýðs-
starfið kl. 20.00. Miðvikudag
15. jan.: — Fyrirbænamessa
kl. 18.20. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson. Fimmtudag
kl. 20.00 — Biblíulestur. Sr.
Frank M. Halldórsson.
SEUASÓKN: Barnaguðsþjón-
usta í Seljaskóla kl. 10.30.
Barnaguðsþjónusta í Öldu-
selsskóla kl. 10.30. Guðsþjón-
usta í Ölduselsskólanum kl.
14.00. Þriðjudag 14. jan. —
Fyrirbænasamvera í Tindaseli
3, kl. 18.30. Sóknarprestur.
SELTJARNARNESSÓKN:
Barnaguðsþjónusta kl. 11 í
kirkjunni. Sóknarnefndin.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík:
Barnaguðsþjónusta kl. 11.00.
(Verðlaunaafhending.) Guð-
spjallið i myndum. Barnasálm-
ar og smábarnasöngvar. Af-
mælisbörn boðin sérstaklega
velkomin. Framhaldssaga. Við
píanóið Pavel Smid. Sr. Gunn-
ar Björnsson.
DÓMKIRKJA Krists Konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Hámessa kl. 10.30. Lágmessa
kl. 14. Rúmhelga daga er lág-
messa kl. 18 nema á laugar-
dögum, þá kl. 14.
MARÍUKIRKJA Breiðholti: Há-
messa kl. 11. Lágmessa
mánudag—föstudags kl. 18.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíla-
delfía: Sunnudagaskóli kl.
10.30. Safnaðarguðsþjonusta
kl. 14. Ræðumaður Daniel
Glad. Almenn guðsþjónusta kl.
20. Ræðumaður Einar J. Gísla-
son.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Sunnudagaskóli kl. 14. Hjálp-
ræðissamkoma kl. 20.30.
Majorarnir Ragnhild og Kol-
björn Engöy frá Noregi syngja
og predika. Major Ernst Olson
og frú stjórna.
LÁGAFELLSKIRKJA: Messa
kl. 14. Sóknarprestur.
KAPELLA St. Jósefssystra
Garðabæ: Hámessa kl. 14.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Hámessa kl. 10. Rúmh. daga
lágmessa.
KARMELKLAUSTUR: Há-
messa kl. 8.30. Rúmhelga
daga messa kl. 8.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Barnastarf kl. 11. Sóknarprest-
ur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Barnastarf kl. 11. Sóknarprest-
ur.
HVERAGERÐISKIRKJA:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr.
Tómas Guðmundsson.
ÞORLÁKSKIRKJA: Messa kl.
14. Sr. TómasGuðmundsson.
AKRANESKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 10.30. Messa kl. 14.
í tilefni bindindisdagsins flytur
dóms- og kirkjumálaráðherra
Jón Helgason stólræðu. Sr.
Björn Jónsson.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði:
Barnasamkoma kl. 10.30.
Guðsþjónusta kl. 14.00. Fund-
ur með fermingarbörnum og
foreldrum þeirra að lokinni
guðsþjónustu. Sr. Einar Eyj-
ólfsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 10.30.
Guðsþjónusta klukkan 14. Sr.
Gunnþór Ingason.