Morgunblaðið - 11.01.1986, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR11. JANÚAR1986
Danmörk:
Verður kosið um
afstöðuna til EB?
Jaf naðarmenn eiga tvo kosti og hvorugan góðan
Kaupmannahöfn, 10. janúar. Frá Ib Björnbak, fréttaritara Morg^inblaðsins.
DANSKA ríkisstjórnin og Jafnaðarmannaflokkurinn, helsti stjórnar-
andstöðuflokkurinn, þurfa að taka mjög erfiðar ákvarðanir á næst-
unni um stöðu Dana innan Evrópubandalagsins. 21. janúar nk. verður
þingið að gera það upp við sig hvort Danir ætla að styðja fyrir-
hugaðar breytingar innan bandalagsins, breytingar, sem eiga að
treysta samstarfið milli aðildarríkjanna.
Ríkisstjómin hefur lítinn áhuga
Það eru fyrst og fremst jafnaðar-
menn, sem eiga erfítt þessa dagana.
Anker Jörgensen, formaður flokks-
ins, verður að horfast í augu við,
að innan flokksins er allmikil and-
staða breytingar á stöðu einstakra
landa innan Evrópubandalagsins og
varðar hún einkum þijú atriði.
1. Margir óttast, að nánara
samstarf EB-þjóðanna í utanríkis-
málum geti valdið því, að leiðir
skiljist með Dönum og öðrum Norð-
urlandaþjóðum, t.d Norðmöiinum.
2. Stefnuna í umhverfis- og at-
vinnumálum.
3. Að ábyrgst verði, að sjálfstæði
þjóðarinnar verði ekki afhent Evr-
ópuþinginu.
Staðan innan þingflokks jafnað-
armanna er nú sú, að svo margir
eru fylgjandi breytingunum innan
EB, að ríkisstjómin gæti þess vegna
sagt já strax en atkvæðagreiðslan
verður hins vegar ekki fyrr en 21.
þ.m. Radikale Venstre, sem er ekki
ríkisstjómarflokkur, en hefur stutt
stjómina í efnahagsmálum, er aftur
á móti algerlega andvígur breyting-
unum.
í gær, fimmtudag, sagði nefnd á
vegum SID, Samtaka starfsfólks í
ýmsum sérgreinum, þvert nei við
breytingunum en daginn áður hafði
Anker Jörgensen árangurslaust
reynt að fá þingflokkinn til að
samræma stefnu sína. Danska
Alþýðusambandið, LO, hefur enn
ekki tekið ákvörðun í þessu máli
en hún getur haft mikil áhrif á
afstöðu manna innan jafnaðar-
mannflokksins og þingflokksins.
á að efna til kosninga um þetta
mál, enda kemur það nú fram í
öllum skoðanakönnunum, að meiri-
hluti Dana er andvígur aðildinni að
EB. Kosningar yrðu líka jafnaðar-
mönnum mjög þungar í skauti.
Flokkurinn er klofinn í málinu og
á undir högg að sækja fyrir Sós-
íalska þjóðarflokknum, sem er allur
mjög andvígur EB.
Ekki er við því að búast, að Danir
geti breytt neinu varðandi tillögurn-
ar um nýja skipan innan EB. Nú
þegar hefur ýmsu verið breytt og
eiga Danir nú aðeins tvo kosti, að
segja já eða nei
Næstu daga verður mikið um að
vera í dönskum stjómmálum og
ekki síst í Jafnaðarmannaflokknum
þar sem allt logaði í illdeilum árið
1972, þegar Danir gengu í EB.
Hrýs flestum flokksmönnum hugur
við að endurtaka þá uppákomu nú.
Ekki er þó hægt að gera of lítið
úr vandanum, sem blasir við jafnað-
armönnum. Ef þeir samþykkja
breytingamar á EB verður það vatn
á myllu andstæðinga þeirra til
vinstri, ef þeir samþykkja þær ekki,
hljótast af kosningar og til þess
mega þeir ekki hugsa.
Dieter Roth
Dieter Roth hneykslar
sj ónvarpsáhorfendur
Zurich, 9. janúar. Frá Önnu Bjarnadóttur,
fréttaritara Morgunbladsins.
SVISSNESKI listamaðurinn Di-
eter Roth, sem dvelst oft á Ís-
landi, hneykslaði marga sviss-
lendinga heldur betur með fram-
komu sinni í sjónvarpssal á
þriðjudagskvöldið. Honum var
Abu Nidal:
Munum hefna saklauss
blóðs píslarvottsins
Suleiman Khater
Beirút, Líbanon, og Kaíró, Egyptalandi, 10. janúar. AP.
HRYÐJUVERKASAMTOK Palestínumannsins Abu Nidals hétu því i
dag að hefna dauða egypska lögreglumannsins Suleiman Khater,
sem stjómvöld í Egyptalandi segja, að hafi hengt sig i fangelsinu,
þar sem hann afplánaði dóm fyrir að skjóta til bana sjö ísraelska
ferðamenn í októbermánuði síðastliðnum.
Samtökin saka egypsk stjómvöld
um að bera ábyrgð á „aftöku“
lögreglumannsins á þriðjudag.
Þrátt fyrir mótmæli egypsku
stjómarinnar, halda margir vinstri-
sinnaðir hópar meðal araba fram,
að Khater hafí verið myrtur, og lýsa
yfír, að hann sé „píslarvottur".
Khater drap ijögur ísraelsk böm,
tvær konur og einn karlmann á
landamærastöð í Sinai-eyðimörk-
inni, þar sem hann gegndi lög-
gæslustarfi.
„Samtök okkar hafa ákveðið að
hafa hendur í hári þeirra, sem
ábyrgð bera á þessum ljóta glæp,
og heftia saklauss blóðs hetjunnar
og píslarvottsins," sagði í tilkynn-
ingu Abu Nidals og manna hans.
Egypska stjómin hefur áfíýjað
úrskurði, sem réttur í Kairó kvað
upp í gær, en þar var mælt fyrir
um, að lík Khamers skyldi grafíð
upp og líkskoðun endurtekin, svo
að ganga mætti úr skugga um,
hvort lögreglumaðurinn hefði fram-
ið sjálfsmorð. Frá þessu sagði í dag
í stjómarmálgagninu Al-Ahram í
Kaíró.
boðið til þátttöku í rabbþætti um
megrunarmál eftir hátíðirnar
ásamt nokkrum öðrum góð-
borgurum en var ekki í skapi til
að ræða málin í alvöru. Honum
fannst lítið til yfirlýsinga hinna
gestanna koma, hreytti í þá ónot-
um og sagði þá vera með kjaft-
æði, saup af hvítvínsflösku og
stóð upp í miðjum þætti og fór
fram á salernið.
Fjöldi áhorfenda hringdi í sjón-
varpið á miðvikudagsmorgun og
hundskammaðist yfír framkomu
mannsins. Hann fær mikinn upp-
slátt í blöðum í dag og þar kemur
fram að hann hafí verið ódrukkinn
með öllu. Stjómandi umræðnanna
segir að Roth hafí verið með hress-
ari og skemmtilegri gestum í sjón-
varpssal og hinir gestimir í þættin-
um bera honum yfírleitt góða sög-
una. Ein kona segist þó hafa verið
hálfhrædd við hann en önnur segist
hafa velt því fyrir sér á meðan á
þættinum stóð hvort þau hefðu öll
verið með kjaftæði af því að Dieter
Roth tmflaði þau eða hvort Dieter
Roth hafí truflað þau af því að þau
vom með kjaftæði.
Stjómandi þáttarins segist hafa
látið sér detta í hug að læsa Roth
inni á saleminu þegar hann brá sér
þangað. Roth sjálfur hefur ekki
viljað tjá sig um uppákomuna og
svarar ekki símanum heima hjá sér.
SPOT — gervihnötturinn sem Svíar og Frakkar hafa smíðað saman.
Fyrstu sænsku
gervihnettirnir
TÓLFTI janúar verður merkis-
dagur í sögu Svía en aðfaranótt
hans verður fyrstu sænsku gervi-
hnöttunum skotið á loft með
Ariane-eldflaug frá Kourou í
Frönsku Guyana. Eru gervi-
hnettimir tveir og aðeins annar
alsænskur, Víkingur, lítill hnött-
ur, sem á að stunda rannsóknir
á norðurijósunum, en hinn,
SPOT, er frönsk-sænsk smíði.
í Kirana í Norður-Svíþjóð hafa
Svíar reist mikla geimrannsókna-
stöð, sem er í miklum metum á
alþjóðavettvangi, og verður þar efnt
til mikils fagnaðar aðfaranótt þess
12. og fylgst með því á stómm sjón-
varpsskjám þegar risavaxinni Ar-
iane-eldflauginni verður skotið á
loft með hnettina. 200 manns hefur
verið boðið til Kiruna af þessu til-
efni og meðal gesta verða líklega
einn eða fleiri ráðherrar frá öllum
Norðurlöbndunum.
SPOT-gervihnötturinn er mjög
merkilegur og með honum hefst nýr
kafli í kortagerð og athugunum á
skóglendi, jarðrækt, í jarðfræði og
umhverfís- og náttúmvemd. Ur
honum má taka myndir af hlutum
á jörðu niðri, sem em ekki nema
10x10 m á hvom veg, og úr honum
má einnig mæla mengun í sjó, ám
og vötnum. Er kostnaðurinn við
hnöttinn og geimskotið nærri 15
milljarðar ísl. kr.
25 % AFSLÁTTU R25% AFSLÁTTU R25 % AFSLÁTTU R 25 % AFSLÁTTU R25
<