Morgunblaðið - 11.01.1986, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR11. JANÚAR1986
VIÐIR
Nú er hver
að verða síðastur. . .
Eigum ennþá lambakjöt
í Vt skrokkum á
AÐEINS
174
.80
pr.kg.
20%
AFSLATTUR
á öllu lambakjöti
Kynnum
í Mjóddinni:
VÍÐIS ÍS
með niðursoðnum
ávöxtum
Uppskrift fylgir-
Don Pedro kaffi
meö konfekti.
Konfekt 400 g
abeins 199.00
Sykursnauða ALDIN
ávaxtagrauta,
iarðarberja, aprikosu,
sveskju.
VÍÐIS
Lambak]ötsrétt
Uppáhald kokksins.
Uppskrift fylg'r-
Miðursoðnir ávextir:
Blandaðir Jarðarber Ferskjur
ávextir ^TQ .00 HTQ .80 CQ .00
/ Jr Mdós / Jr Vi dós Vidós
Aprikósur Perur Ferskjur Ananas
.00 /JQ.00 .80 |CO.OO
Ví dós xf^rVidós ^rfH^dós \3jrV\ dós
Læri Kryddlegnar
Hryggur lærisssneiöar
Frampartur Kótilettur Stroganoff Hakk
Lærissneiöar Fyllt læri
1 Smásteik Úrbeinaö læri
1 Gúllas Ávaxtafyllt læri
1 Snitsel File
1 Lambageiri Mörbráð
1 Karbónaði Beinlausir fuglar
Buff Mínútusteik
1 Beikon bauti Innra læri
1 Paprikubuff Hamborgarar
CQ .00 fiQ .00 ^KQ
^3-3 V\ dós \3ZrV\ dós ^■^Hr1/2dós
Opið til kl. 16 í Mjóddinni
og Starmýri
en til kl. 12 í Austurstræti
VIÐIR
Stöðutilfærslur
innan Flugleiða
NOKKRAR stöðutilfærslur hafa
verið ákveðnar innan Flugleiða.
Taka þær gildi mánudaginn 13.'
janúar, segir í frétt frá kynning-
ardeild fyrirtækisins.
Erling Aspelund lætur af starfi
sem framkvæmdastjóri flugrekstr-
arsviðs og'verður forstjóri Ferða-
skrifstofunnar Úrvals, en Karl Sig-
urhjartarson verður áfram fram-
kvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar.
Við starfi Erlings tekur Guðmundur
Pálsson sem verið hefur forstöðu-
maður fjárreiðudeildar. Jón Karl
Ólafsson deildarstjóri hagdeildar
tekur við starfi Guðmundar. Steinn
Logi Bjömsson deildarstjóri mark-
aðsrannsókna hefur verið ráðinn
fulltrúi forstjóra og mun meðal
annars sjá um leiguflugsverkefni
félagsins erlendis. Valgerður
Bjamadóttir tekur við forstöðu
markaðsrannsókna Flugleiða.
Sendingar útvarpsins
á ólöglegu tíðnisviði
„Við vorum á ólöglegu tíðni-
sviði,“ sagði Stefán Arndal,
stöðvarstjóri fjarskiptastöðvar-
innar i Gufunesi, er hann var
spurður um breyttar bylgju-
lengdir frá þvi sem áður vax, en
Morgunblaðið hefur fregnað að
illa gangi að heyra stuttbylgju-
sendingar útvarpsins, sérstak-
lega í Englandi.
„Við höfum notað í nokkra mán-
uði það tíðnisvið, sem ætlað er til
fastra skeytasambanda landa á
milli. Við fengum þó ekki kvartanir
um að við trufluðum þær sendingar,
en eflaust hafa ýmsar stöðvar orðið
varar við okkur þama og því hafði
alþjóðafjarskiptasambandið tal af
okkur og bað um að við yrðum
innan þeirra marka sem leyfð eru.
Því breyttist bylgjulengdin í nóv-
ember sl. Síðan höfum við verið að
reyna að finna aðrar tíðnir, bæði
með hjálp alþjóðaljarskiptasam-
bandsins og með eigin athugunum,"
sagði Stefán.
Stuttbylgjusendingar útvarpsins
em nú á bylgjulengdum 9675 KHz
og 5060 KHz, en þær vom á 13797
KHz á daginn og 9957 KHz á
kvöldin. Stefán sagði að þessar tíðn-
ir virtust vera sæmilega góðar, en
þó væri æskilegt að bæta skilyrðin
meira. Hlustunarskilyrðin væm
bæði háð birtu og árstíma og væri
algengt að stövar breyttu bylgju-
lengdum sínum eftir því.
Stofnlánadeild landbúnaðarins:
60% árgjaldanna
er í vanskilum
UM áramótin voru 206 milljónir
kr. í vanskilum hjá Stofnlána-
deild landbúnaðarins. Eru það
rúm 60% af árgjöldum (afborg-
unum og vöxtum) deildarinnar á
árinu, en gjalddagi þeirra er 15.
nóvember og eindagi 31. desem-
ber.
Að sögn Leifs Jóhannessonar
framkvæmdastjóra Stofnlánadeild-
arinnar em vanskilin hlutfallslega
svipuð og fyrir ári. Sagði hann að
meginþorri bænda væri í skilum við
deildina, en margir þeirra sem í
vanskilum væm skulduðu mikið og
einnig væri mikið af lánum til
vinnslustöðvanna í vanskilum.
Vonaðist hann til að greiðslumar
skiluðu sér sem mest inn í janúar
og febrúar, undanfarin ár hefði
mörgum tekist að greiða af lánun-
um á þeim tíma. Leifur sagði að
þessi vanskil væm afleit fyrir
Stofnlánadeildina og skertust lána-
Bændur hefja
skógrækt í
Laugardal
SAMÞYKKT hefur verið á Al-
þingi að veita eina milljón króna
af fjárlögum þessa árs til skóg-
ræktar á 3 þúsund hektörum í
Laugardal við Laugarvatn og
munu um tíu bændabýli i dalnum
væntanlega geta hafið skógrækt
þar í vor.
AÐ sögn Jóns Helgasonar land-
búnaðarráðherra hefur verið unnið
að undirbúningi skógræktar bænda
í Laugardal sl. 2 ár og nú liggur
fyrir áætlun um framkvæmdir.
Akveðið hefur verið að Framleiðni-
sjóður landbúnaðarins, sem hefur
það markmið að auka ijölbreytni í
landbúnaði og styðja við nýjar bú-
greinar, leggi einnig fram fé til skóg-
ræktarinnar. Verið er að undirbúa
samninga við bændur, sem munu
sjálfír sjá um að planta og hirða
skóginn.
möguleikar deildarinnar sem þeim
næmi.
Vörn okkar
gegn fækkun
í áhöfnum
— segir Sigurður Sig-
urðsson um verkfalls-
boðun matsveina á
stórum togurum
„ÞETTA eru fyrst og fremst
vamaraðgerðir af hálfu okkar.
Það er verið að tala um fækkim
í áhöfnum stóru togaranna og að
einn matsveinn í stað tveggja áður
verði um borð. Þegar það gerist
viljum við tryggja okkur að við
verðum ekki hlunnfarnir," sagði
Sigurður Sigurðsson, talsmaður
matsveina, í samtali við Morgun-
blaðið.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu boðuðu matsveinar til
verkfalls frá og með miðnætti 10.
þessa mánaðar, en verkfallið frestast
um viku vegna formgalla í boðun
þess.
Sigurður sagði, að kröfur þeirra
væru aðeins í tveimur liðum. Yrði
um fækkun að ræða og einn mat-
sveinn í stað tveggja væri farið fram
á sömu laun fyrir hann og væru á
lítlu togurunum. Það væri að hann
hefði sömu laun og fyrsti vélstjóri.
í öðru lagi færu þeir fram á að
vinnuskylda eins matsveins um borð
í stóru togurunum yrði takmörkuð
við 12 stundir á sólarhring. Þar sem
tveir matsveinar væru um borð væri
vinnutíma þeirra skipt, en samtals
væri vinnutími þeirra frá klukkan 5
á morgnana til kiukkan 11 á kvöidin.
Sigurður gat þess einnig að að-
gerðir þessar beindust aðeins gegn
hinum stóru togurum, þar sem einn
matsveinn væri um borð, sjálfkrafa
undanþága væri fyrir skip með tvo
um borð.