Morgunblaðið - 11.01.1986, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR11. JANÚAR1986
Minninff:
Vilmundur Ingimars
son hafnarvörður
Fæddur 6. nóvember 1925
Dáinn 30. desember 1985
í dag verður vinur minn Vilmund-
ur Ingimarsson jarðsunginn frá
Grindavíkurkirkju.
Foreldrar hans voru Jakobína
Guðmundsdóttir og Ingimar Jóns-
son gullsmiður og húsgagnafram-
leiðandi. Vilmundur fæddist á
Dranganesi en ólst upp á Hólmavík
á heimili móður sinnar og stjúp-
föður Gunnars Guðmundssonar og
þeiira börnum.
Ég kynntist Vilmundi ekki fyrr
en hann var um þrítugt og þekki
þar af leiðandi ekki hans skyld-
menni til að geta nefnt þau en ég
veit að hann átti fjögur börn innan
og utan hjónabands áður en hann
kemur til Grindavíkur en það var
1953. Þá byijaði stjúpi hans að
gera út frá Grindavík en Vilmundur
var vélstjóri á hans skipi. Um það
leyti kynntist Vilmundur eftirlifandi
eiginkonu sinni, Valgerði Sigur-
björgu Þorvaldsdóttur, og áttu þau
30 ára hjúskaparafmæli 6. nóvem-
Jm ber 1985 á 60 ára afmæli Vilmund-
ar. Þau eignuðust eina dóttur,
Dröfn. Valgerður átti eina dóttur
fyrir, Stefaníu Ólafsdóttur. Þær eru
báðar giftar og eru barnabörn Vii-
mundar og Gerðu orðin fimm.
Vilmundur byrjaði kornungur að
stunda sjó og önnur störf sem
honum fylgdu eins og gerist og
gengur hjá þeim sem ólust upp við
sjávarsíðuna. 1945 fór Vilmundur
á vélstjóranámskeið og var vélstjóri
á ýmsum skipum til 50 ára aldurs
jt að undanskildum 4 árum sem hann
var í húsgagnagerð föður síns. Síð-
ustu 10 árin var Vilmundur hafnar-
vörður við Grindavíkurhöfn. Eins
og vanalega hlóðust á hann ýmis
trúnaðarstörf, meðal annars var
hann skoðunarmaður Skipaskoðun-
ar Ríkisins, umboðsmaður Síldarút-
vegsnefndar, var í fegrunamefnd
Grindavíkurbæjar í 12 ár en Vil-
mundur var annálað snyrtimenni.
Eftir að við kynntumst lágu leiðir
okkar ótrúlega mikið saman svo að
okkur þótti stundum nóg um en við
vorum samskipa í mörg ár. —
Vorum stofnmeðlimir Kiwanis-
klúbbsins Boða, starfa hans þar
munu aðrir minnast.
Vorum saman í stjóm Sjómanna-
og vélstjórafélags Grindavíkur í ein
15 ár auk jölda annarra starfa og
ekki má gleyma jölda ferða með
veiðistöng og tilheyrandi farteski
og enduðu sum með vafasömum
árangri en þeim mun meiri höfuð-
þyngslum á eftir. Þó að Vilmundur
væri að sumu leyti dulur var hann
mikill félagsmálamaður. Þar var
hann fremstur meðal jafningja þó
held ég að störf hans fyrir sjó-
mannadeild Verkalýðsfélags
Grindavíkur, síðar Sjómanna- og
vélstjórafélag Grindavíkur, verði
aldrei fullþökkuð. Alla tíð frá stofn-
un félagsins, eða í 29 ár, var hann
í einhveiju lykilembætti fyrir félag-
ið. Til dæmis fyrst sem varaformað-
ur, síðan formaður, aftur varafor-
maður, fjölda ára í sjómannadagsr-
áði og formaður þess, fulltrúi sjó-
mannafélagsins í Öldrunarráði
Grindavíkur, fulltrúi félagsins á sjó-
mannasambandsþingum, í bygging-
amefnd Sjómannastofunnar Vör,
síðustu 10—11 árin gjaldkeri fé-
lagsins, fjölda ára í samninganefnd-
um um kjaramál félagsins og svona
mætti lengi telja. Eitt af því sem
lengi mun í minnum haft um Vil-
mund var afburða reglusemi og
snyrtimennska. í vinahópi var Vil-
mundur hrókur alls fagnaðar og var
virkilega gaman að vera samvistum
við hann og skipti þá engu hvort
tekið var glas eða ekki. Eitt af
því sem ég tók oft eftir í fari Vil-
mundar var hvað ótrúleg barnagæla
hann var enda fremstur í flokki
þegar Kiwanisklúbburinn Boði fór
í sína árlegu vorferð með 12 ára
bekk grunnskólans.
Þegar allir sáu að hveiju stefndi
sagði ég Vilmundi að ef ég páraði
nokkrar línur að honum látnum
myndi ég ekki gera neinn dýrling
úr honum en einhvern veginn man
maður bara það sem er ánægjulegt
og það rifjast upp ánægjulegar
endurminningar en vissulega áttum
við erfiða daga og sauð þá heldur
betur á báðum en alltaf greri um
heilt. Kannski finnst einhveijum
skrýtið að ég skuli hafa rætt um
það við Vilmund að ég myndi
kannski pára nokkrar línur að
honum látnum en eftir að hann
veiktist fyrir þremur árum sýndi
hann ótrúlegt sálarþrek og dugnað
við að beijast fyrir lífi sínu en gerði
sér samt grein fyrir hvert stefndi
og gat talað um lífið og tilveruna,
haldið sínu góða skapi, tekið þátt
í lífinu af fullum krafti til síðasta
dags enda var hann að leggja af
stað til Keflavíkur til að sinna störf-
um fyrir sjómannafélagið, var samt
með hjartasjúkdóm og krabbamein.
Vissulega er mikill sjónarsviptir
að Vilmundi gengnum og mun ég
og fjölskylda mín sakna hans sáran.
Megi Guð geyma hann Villa minn.
Það gefur auga leið að 30 ára
hjónaband er ekki byggt á sandi
en ég held að síðastliðin 3 ár hafi
verið gífurleg lífsreynsla fyrir þau
hjónin og það verður að segjast að
mér er það til efs að önnur kona
en Valgerður gæti sýnt annan eins
dugnað, ást og umhyggju án þess
að hafa nokkru sinni minnst á sitt
hlutskipti.
Valgerður, Dröfn, Stefanía,
barnabörn, tengdasynir og aðrir
ættingjar, ég og fjölskylda mín
sendum ykkur okkar innilegustu
samúðarkveðjur og vonum að öll él
birti upp um síðir. Guð blessi ykkur
öll.
Kjartan Kristófersson
Kveðja frá Sjómanna- og
vélstjórafélagi Grindavíkur.
í dag er til moldar borinn frá
Grindavíkurkirkju Vilmundur Ingi-
marsson, hafnarvörður. Mig langar
að fara nokkrum orðum um störf
hans í þágu sjómannastéttarinnar.
Þegar sjómannadeild var stofnuð
innan Verkalýðsfélags Grindavíkur
hinn 21. október 1956 var Vilmund-
ur enn af stofnendum hennar, og
hefur síðan verið ein styrkasta stoð
þess félagsskapar, sem síðar var
breytt í sjálfstætt stéttarfélag og
nefnt Sjómanna- og vélstjórafélag
Grindavíkur. Vilmundur var um
tíma formaður og varaformaður
félagsins og nú síðasta áratuginn,
allt til hinstu stundar, gjaldkeri
þess. Hann hefur verið fulltrúi fé-
lagsins á þingum Sjómannasam-
bands Islands, í öldrunarráði
Grindavíkur, í Sjómannadagsráði
og oft formaður þess, í byggingar-
nefnd þegar sjómannastofan Vör
var byggð. Þá lét hann öryggismál
sjómanna sig miklu varða. Því fer
fjarri að þetta sé tæmandi upptaln-
ing á störfum hans í þágu félagsins,
en öll þau störf sem hann tók að
sér, vann hann af slíkri nákvæmni
og trúmennsku að fátítt er. Tvö
síðustu ár hefur samstarf okkar
verið náið og gott, það og störf
hans fyrir Sjómanna- og vélstjóra-
félag Grindavíkur, vil ég nú, þegar
leiðir skilur um sinn, af heilhug
þakka.
Eiginkonu Vilmundar, Valgerði
Þorvaldsdóttur, börnum, tengda-
börnum og öðrum vandamönnum
sendi ég innilegar samúðarkveðjur.
Sævar Gunnarsson
Nú leggégaugunaftur,
6, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ,virztmigaðþértaka
méryfirláttuvaka
þinn engil svo ég sofi rótt.
(Foersom - S. Egilsson)
í dag kveðjum við Vilmund, einn
af okkar kærustu félögum í Kiwan-
isklúbbnum Boða. Vilmundur var í
hopi aðalhvatamanna að stofnun
klúbbsins á haustdögum 1976.
Fljótlega urðu menn varir við
hinn mikla áhuga Vilmundar á
Kiwanisklúbbnum og mun hann
hafa átt sæti í fyrstu stjórn klúbbs-
ins og æ síðan starfað af miklum
áhuga. Hann hefur gegnt flestum
trúnaðarstörfum innan klúbbsins,
þar á meðal var Vilmundur forseti
starf-sárið 1980—1981.
Það var sama hvenær var kallað
til vinnu að styrktarverkefnum,
alltaf var hann þar fyrstur manna.
Það kemur glöggt í ljós hugur
hans til hjálpar öðrum og sínum
félögum að hann stofnaði sjóð innan
klúbbsins og gaf stofnfé. Tilgangur
sjóðsins er að hjálpa þeim félögum
sem stæði illa á hjá, veikindi eða
annað. Hefur sjóðurinn oft sannað
ágæti sitt. Var það ákveðið að sjóð-
urinn gæti ekki borið annað nafn
en Vilmundarsjóður.
Mæting Vilmundar á klúbbfundi
var einstök í gegn um tíðina, þrátt
fyrir að Vilmundur hafi átt við
alvarlegan sjúkdóm að stríða síð-
ustu þrjú árin.
Áhugi hans var það mikill að það
kom ekki fram í mætingu eða starfi
hans í klúbbnum. Það er ávallt
þannig í klúbbstarfi að sumir félag-
ar skara fram úr öðrum. Það kom
því engum á óvart þegar tillaga kom
upp um að gera Vilmund að heiðurs-
félaga, og var hann fyrsti og eini
heiðursfélagi klúbbsins.
Við Kiwanisfélagar munum ætíð
minnast Vilmundar fyrir glaðværð
hans, atorku og skemmtileg tilsvör.
Guð blessi Valgerði konu hans,
börn og ættingja alla.
Guð blessi minningu Vilmundar
Ingimarssonar.
Félagar í Kiwanisklúbbnum
Boða.
Peningamarkaðurinn
GENGIS-
SKRÁNING
Nr. 6 - 10. janúar 1986
Kr. Kr. Toll-
Ein.KI. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 42,000 42,120 42,120
St.pund 61,488 61,664 60,800
Kan.dollari 30,145 30,231 30,129
Dönsk kr. 4,7204 4,7339 4,6983
Norsk kr. 5,5914 5,6074 5,5549
Sænsk kr. 5,5581 5,5740 5,5458
Fi. mark 7,8067 7,8290 7,7662
Fr. franki 5,6135 5,6295 5,5816
Belg. franki 0,8429 0,8453 0,8383
Sv.franki 20,3046 20,3626 20,2939
Holl.gyllini 15,3047 15,3485 15,1893
V-þ. mark 17,2308 17,2800 17,1150
ít. lira 0,02526 0,02533 0,02507
Austurr. sch. 2,4515 2,4585 2,4347
Fort. escudo 0,2684 0,2691 0,2674
Sp. peseti 0,2763 0,2771 0,2734
Jap.yen 0,20812 0,20872 0,20948
Irskt pund 52,580 52,730 52,366
SDR (Sérst. 46,1761 46,3073 46,2694
INNLÁNSVEXTIR:
Sparlsjóðsbækur................... 22,00%
Sparisjóðsreikningar
með 3ja mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................ 25,00%
Búnaðarbankinn............... 25,00%
Iðnaðarbankinn............... 23,00%
Landsbankinn................. 23,00%
Samvinnubankinn.............. 25,00%
Sparisjóðir.................. 25,00%
Útvegsbankinn................ 23,00%
Verzlunarbankinn............. 25,00%
með 6 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................ 30,00%
Búnaðarbankinn............... 28,00%
Iðnaðarbankinn............... 26,50%
Samvinnubankinn.............. 30,00%
Sparisjóðir.................. 28,00%
Útvegsbankinn................ 29,00%
Verzlunarbankinn............. 31,00%
með 12 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................ 32,00%
Landsbankinn................. 31,00%
Útvegsbankinn................ 33,00%
Innlánsskírteini
Alþýðubankínn................ 28,00%
Sparisjóðir.................. 28,00%
Verðtryggðir reikningar
miðað við iánskjaravísitölu
með 3ja mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................. 1,50%
Búnaðarbankinn................ 1,00%
Iðnaðarbankinn................ 1,00%
Landsbankinn........ ......... 1,00%
Samvinnubankinn............... 1,00%
Sparisjóðir................... 1,00%
Útvegsbankinn................. 1,00%
Verzlunarbankinn.............. 2,00%
með 6 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................. 3,50%
Búnaðarbankinn................ 3,50%
Iðnaðarbankinn................ 3,50%
Landsbankinn.................. 3,50%
Samvinnubankinn............... 3,00%
Sþarisjóðir................... 3,00%
Útvegsbankinn................. 3,00%
Verzlunarbankinn...... ....... 3,50%
með 18 mánaða uppsögn:
Útvegsbankinn................. 7,00%
Ávísana- og hlaupareikningar:
Alþýðubankinn
- ávísanareikningar......... 17,00%
- hiaupareikningar......... 10,00%
Búnaðarbankinn................ 8,00%
Iðnaðarbankinn.............'. 8,00%
Landsbankinn................. 10,00%
Samvinnubankinn............... 8,00%
Sparisjóðir.................. 10,00%
Útvegsbankinn................. 8,00%
Verzlunarbankinn............. 10,00%
Stjörnureikningar: I, II, III
Alþýðubankinn................. 9,00%
Safnlán - heimilislán - IB-lán - plúslán
með 3ja til 5 mánaða bindingu
Iðnaðarbankinn............... 23,00%
Landsbankinn................. 23,00%
Sparisjóðir.................. 25,00%
Samvinnubankinn.............. 23,00%
Útvegsbankinn................ 23,00%
Verzlunarbankinn............. 25,00%
6 mánaða bindingu eða lengur
Iðnaðarbankinn............... 26,00%
Landsbankinn................. 23,00%
Sparisjóðir.................. 28,00%
Útvegsbankinn................ 29,00%
Innlendir gjaldeyrisreikningar:
Bandaríkjadollar
Alþýðubankinn................. 8,00%
Búnaðarbankinn................ 7,50%
Iðnaðarbankinn................ 7,00%
Landsbankinn.................. 7,50%
Samvinnubankinn............... 7,50%
Sparisjóöir................... 8,00%
Útvegsbankinn................. 7,60%
Verzlunarbankinn.............. 7,50%
Sterlingspund
Alþýðubankinn................ 11,50%
Búnaðarbankinn.............. 11,00%
Iðnaðarbankinn.............. 11,00%
Landsbankinn................ 11,50%
Samvinnubankinn.........,.... 11,50%
Sparisjóðir.................. 11,50%
Útvegsbankinn................ 11,00%
Verzlunarbankinn............. 11,50%
Vestur-þýsk mörk
Alþýðubankinn................. 4,50%
Búnaðarbankinn............... 4,25%
Iðnaðarbankinn............... 4,00%
Landsbankinn................. 4,50%
Samvinnubankinn.............. 4,50%
Sparisjóðir................... 4,50%
Útvegsbankinn................. 4,50%
Verzlunarbankinn...... ....... 5,00%
Danskar krónur
Alþýðubankinn................. 9,50%
Búnaðarbankinn....... ....... 8,00%
Iðnaðarbankinn...... ......... 8,00%
Landsbankinn................. 9,00%
Samvinnubankinn............... 9,00%
Sparisjóðir................... 9,00%
Útvegsbankinn................ 9,00%
Verzlunarbankinn............. 10,00%
ÚTLÁN S VEXTIR:
Almennir víxlar, forvextir:
Landsbankinn................. 30,00%
Útvegsbankinn................ 30,00%
Búnaðarbankinn.............. 30,00%
Iðnaðarbankinn............... 30,00%
Verzlunarbankinn............. 30,00%
Samvinnubankinn.............. 30,00%
Alþýðubankinn................ 29,00%
Sparisjóðir.................. 30,00%
Viðskiptavíxlar
Alþýðubankinn................ 32,50%
Landsbankinn................ 32,50%
Búnaðarbankinn.............. 34,00%
Sparisjóðir.................. 32,50%
Yfirdráttarlán af hlaupareikningum:
Landsbankinn................ 31,50%
Útvegsbankinn............... 31,50%
Búnaðarbankinn.............. 31,50%
Iðnaðarbankinn............... 31,50%
Verzlunarbankinn............. 31,50%
Samvinnubankinn.............. 31,50%
Alþýðubankinn................ 31,50%
Sparisjóðir.................. 31,50%
Endurseljanleg lán
fyrir innlendan markað............ 28,50%
ián í SDR vegna útfl.framl......... 9,50%
Bandarikjadollar.............. 9,50%
Sterlingspund.............. 12,75 %
Vestur-þýsk mörk.............. 6,25%
Skuldabréf, almenn:
Landsbankinn................ 32,00%
Útvegsbankinn............... 32,00%
Búnaðarbankinn.............. 32,00%
Iðnaðarbankinn.............. 32,00%
Verzlunarbankinn............. 32,0%
Samvinnubankinn............. 32,00%
Alþýðubankinn............... 32,00%
Sparisjóðir................. 32,00%
Viðskiptaskuldabréf:
Landsbankinn................ 33,00%
Búnaðarbankinn.............. 35,00%
Sparisjóðirnir.....,....... 35,00%
Verðtryggð lán miðað við
lánskjaravísitölu
í allt að 2 ár......................... 4%
Ienguren2ár............................ 5%
Vanskilavextir........................ 45%
Óverðtryggð skuldabréf
útgefin fyrir 11.08. '84 .......... 32,00%
Líf eyrissjóðslán:
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis-
ins:
Lánsupphæð er nú 400 þúsund krón-
ur og er lánið vísitölubundið með
lánskjaravísitölu, en ársvextir eru
5%. Lánstími er allt að 25 ár, en
getur verið skemmri, óski lántakandi
þess, og eins ef eign sú, sem veð
er í er lítilfjörleg, þá getur sjóöurinn
stytt lánstimann.
Greiðandi sjóðsfélagar geta sótt
um lán úr lífeyrissjóðnum ef þeir
hafa greitt iðgjöld til sjóðsins í tvö
ár, miðað við fullt starf. Biðtími eftir
láni er sex mánuðir frá því umsókn
berst sjóðnum.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæð er nú, eftir 3ja ára aðild
að lífeyrissjóðnum, 216.000 krónur,
en fyrir hvern ársfjórðung umfram 3
ár bætast við lánið 18.000 krónur,
unz sjóðsfélagi hefur náð 5 ára aðild
að sjóðnum. A tímabilinu frá 5 til 10
ára sjóösaðild bætast viö höfuðstól
leyfilegar lánsupphæðar 9.000 krón-
ur á hverjum ársfjórðungi, en eftir
10 ára sjóðsaðild er lánsupphæðin
orðin 540.000 krónur. Eftir 10 ára
aðild bætast við 4.500 krónur fyrir
hvern ársfjórðung sem líður. Þvi er
í raun ekkert hámarkslán í sjóðnum.
Höfuðstóll lánsins er tryggður
með lánskjaravísitölu, en lánsupp-
hæðin ber nú 5% ársvexti. Láns-
tíminn er 10 til 32 ár að vali lántak-
anda.
Þá lánar sjóðurinn með skilyrðum
sérstök lán til þeirra, sem eru eignast
sína fyrstu fasteign og hafa greitt til
sjóösins samfellt í 5 ár, kr. 590.000
til 37 ára.
Lánskjaravísitala fyrir janúar
1986 er 1364 stig en var fyrir desem-
ber 1985 1337 stig. Hækkun milli
mánaðanna er 2,01%. Miðað er við
vísitöluna 100 í júní 1979.
Byggingavísitala fyrir janúar til
mars 1986 er 250 stig og er þá miöað
við 100 íjanúar 1983.
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
viðskiptum. Algengustu ársvextir eru
nú 18-20%.
Sérboð
Nafnvextir m.v.
Óbundiðfé
Landsbanki, Kjörbók: 1) .................... ?-36,0
Útvegsbanki, Abót: ........................ 22-36,1
Búnaðarb., Sparib: 1) ...................... ?-36,0
Verzlunarb., Kaskóreikn: ................ 22-31,0
Samvinnub., Hávaxtareikn: ................. 22-37,0
Alþýðub., Sérvaxtabók: .................. 27-33,0
Sparisjóðir, Trompreikn: .............
Iðnaðarbankinn: 2) ...................
Bundiðfé:
Búnaðarb., 18 mán. reikn: ...........
1) Vaxtaleiörétting (úttektargjald) er 1,7% hjá Landsbanka og Búnaðarbanka.
2) Tvær úttektir heimilaðar á hverju sex mánaða tímabili án, þes að vextir lækki.
Höfuðstóls-
óverðtr. verðtr. Verðtrygg. færslur vaxta
kjör kjör tímabil vaxta á ári
?-36,0 1.0 3mán. 1
22-36,1 1,0 1 mán. 1
?-36,0 1,0 3mán. 1
22-31,0 3,5 3mán. 4
22-37,0 1-3,0 3mán. 2
27-33,0 4
32,0 3,0 1 mán. 2
28,0 3,5 1 mán. 2
39,0 3,5 6mán. 2