Morgunblaðið - 11.01.1986, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1986
31
Nicolai
Gedda
Loa Falkman, Siv Wennbergf og Nicolai Gedda í Grímudansleikn-
um.
í hlutverki Gustavs III.
Nýlega söng Nicolai Gedda
í Svíaríki hlutverk Gust-
avs III í Grímudansleiknum
eftir Verdi. Nicolai er orðinn
sextugur en syngur ennþá full-
um hálsi, þó svo að hann sé
farinn að velja hlutverkin eftir
aldrinum eins og hann sjálfur
orðar það.
Þegar hlé gefst frá vinnu
eyðir Gedda tíma sínum með
syni sínum Dimitri, sem nú er
níu ára gamall og er í skóla í
New York. Hann á einnig eina
dóttur, Tanio, sem er að nálgast
þrítugsaldurinn og er talin
ágætis sópransöngkona.
Móðir Dimitri og kona Gedda
býr ásamt syninum í New York.
Sýning Akurnesinganna
vakti athygli erlendis
Aári æskunnar sem er nýliðið
var tíðum talað um það sem
miður þykir fara hjá ungu fólki en
stundum gleymist að mikill meiri-
hluti þess eru duglegir, atorkumiklir
og skapandi einstaklingar. Dæmi
um þetta eru félagar í Listaklúbbi
Pjölbrautaskólans á Akranesi, sem
sl. vetur sýndu Grænjaxla eftir
Pétur Gunnarsson, undir leikstjórn
Sigríðar Hagalín og við góðar
undirtektir. í kjölfar þess þáði hóp-
urinn boð um að sækja í sumar
Norræna leiklistarhátíð æskunnar
í Finnlandi en hún nefndist Ung í
Norden.
Einnig þar vakti þessi sýning
Akurnesinganna athygli. Nýlega
hefur borist umsögn um þessa leik-
listarhátíð í sænska fagritinu Teat-
Anderiman
ekki
Andenman
Fyrir nokkrum dögum var birt lit-
mynd hér á síðunni eftir Disu
Anderiman og skólafélaga hennar
í Danmörku. Þá misritaðist hins
vegar nafn stúlkunnar sem Anden-
man. Beðist er velvirðingar á því.
er Forum og þar segir Nilla
Ekström að sýningarnar átta sem
hafi á þessar hátíð verið fylglt eftir
með umræðum milli kennara, leik-
enda og áhugamanna, hafi verið
hver með sínu laginu. íslendingarn-
ir hafa boðið upp á hörkugóða sýn-
ingu á verkinu Grænjöxlum.
„Kymni, óvæntar uppákomur, hug-
myndaríkar sviðs- og leikstjórnar-
lausnir ásamt nákvæmni og innlifun
í leik vakti hrifningu," segir þar
um þessa sýningu þessara ungu
Akurnesinga, sem hér sjást ásamt
leikstjóra sínum, Sigríði Hagalín.
COSPER
CÖSPER.
— Komdu strax heim — og ekkert múður.
Bjallan
hringir
vlð höldum,
heim úr
skólanum
glöð,
prúð
og frjálsleg
í fasi,
öll í
SIGTÚN
í röð.
Laugardag
Nýtt á Naustinu
Bræðurnir Helgi og Hermann
Ingi Hermannssynir, flytja
nokkur af þekktustu lögum
Simon og Garfunkel t.d. The
Sound of Silence, The Boxer,
Bridge Over Troubled Water og
fleiri.
Duó Naustsins leikur
Dansað fram eftir nóttu.
Hljómsveit Jónasar
Þóris leikur fyrir dansi.