Morgunblaðið - 11.01.1986, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1986
39
MorgunblaðiA/Júliuð
• íþróttamennirnir sem urAu í tfu efstu sætunum f kjörinu um íþróttamann ársins 1985. Frá vinstri: Torfi Ólafsson, Margrét Einarsdóttir, móðir Einars Þorvarðarsonar sem
tók við verðlaunum hans, Þorbjörn Guðmundsson, faðir Guðmundar Þorbjörnssonar en hann tók við verðlaunum hans, Þorgerður Gunnarsdóttir, unnusta Kristjáns Arasonar
tók við verðlaunum hans, Sigurður Pétursson, Hákon Örn Halldórsson formaður júdósambandsins, sem tók við verðlaunum Bjarna Friðrikssonar, Einar Vilhjálmsson, fþróttamað-
ur ársins 1985, Halldór B. Jónsson formaður knattspyrnudeildar Fram, hann tók við verðlaunum Ómars Torfasonar, Eðvarð Þór Eðvarðsson, Eiríkur Eiríksson sem tók við
verðlaunum Kára Elíssonar og Þorgils Óttar Mathiesen.
Einar Vilhjálmsson bestur
EINAR VILHJÁLMSSON spjótkastari var í gær útnefndur íþróttamaður
ársins 1985 af samtökum íþróttafréttamanna. Þetta er í annað sinn
sem Einari hlotnast þessi heiður, hann var einnig kjörinn árið 1983.
Það var faðir Einars, Vilhjálmur Einarsson, sem afhenti hinn glæsilega
bikar að þessu sinni en venjulega afhendir formaður samtaka íþrótta-
fréttaritara bikarinn. Vilhjálmur var hér í Reykjavík í boði samtakanna
og Flugleiða, en hann er sá íþróttamaður sem oftast hefur hlotið þetta
sæmdarheiti, alls fimm sinnum, og að auki var hann sá fyrsti sem
kjörinn var íþróttamaður ársins. Vilhjálmur var kjörinn íþróttamaður
ársins 1957 og er þetta því í þrítugasta sinn sem kjörið fer fram.
Kjörið fer þannig fram að allir
fjölmiðlar landsins, sjö að tölu,
skila inn einum seðli með nöfnum
tíu bestu íþróttamanna landsins
að þeirra mati. Sá er settur er í
fyrsta sæti fær tíu stig, sá sem í
öðru sætinu er fær 9 stig og svo
koll af kolli. Að þessu sinni var í
fyrsta sinn mögulegt að fá 70 stig
í kjörinu og Einar Vilhjálmsson fékk
alls 70 atkvæði. Einar er vel að
þessum titli kominn en nánar verð-
ur rætt um afrek hans á síðasta
ári hér á eftir.
Annar í kjöri þessu var sund-
maðurinn Eðvarð Þór Eðvarðsson
úr Njarðvík. Sigurður Pétursson,
besti golfmaður árisns, varö í
þriðja sæti, en alls hlutu 22 íþrótta-
menn atkvæði að þessu sinni. Hér
á eftir verður getið árangurs þeirra
sem urðu í þremur efstu sætunum
í stuttu máli.
Einar Vilhjálmsson
Einar keppti á 22 alþjóðlegum
mótum á síðasta ári, komst á
verðlaunapall í 20 þeirra og sigraði
í tólf mótum. Af þessum 12 mótum
voru fjögur stigamót Alþjóðafrjáls-
íþróttasambandsins og Einar var
á verölaunapalli á fjórum öðrum
stigamótum. Einar hafði forystu í
stigakeppni Alþjóðafrjálsíþrótta-
sambandsins nær allt síðasta
sumar, bæði í spjótkasti og yfir
allar greinar. Slæm meiðsli sem
hann varð fyrir á miðju síðasta
sumri komu þó í veg fyrir að hann
næði sigri í stigakeppninni. Loka-
mótið í Róm í september vó tvöfalt
á við þau fimm bestu sem töldu
hjá hverjum og einum.
Eins og alþjóð veit varð Einar
að sætta sig við áttunda sætið í
lokakeppninni í Róm vegna
meiðsla og varð þaö til þess að
hann endaði í fjórða sæti í stiga-
keppni spjótkastsins. Besti árang-
ur Einars á síðasta ári var 91,84
metrar og er það áttundi besti
árangur í heiminum á árinu.
Einar var valinn ásamt þremur
öðrum Islendingum í úrvalslið
Norðurlanda í frjálsum íþróttum
og einnig var hann valinn í úrvalslið
Evrópu, einn íslendinga.
Eðvarð Þór
Eðvarðsson
Eðvarð á átta gild Islandsmet
frá síðasta ári og mörg þeirra eru
marg bætt hjá honum. Hann náði
á árinu bestum árangri íslensks
sundmanns frá upphafi er hann
varð í 5. sæti í 100 og 200 metra
baksundi í Evrópubikarkeppninni í
Hollandi í desember og í 6. sæti
í 100 metra baksundi á Evrópu-
meistaramótinu í Sofiu í Búlgaríu
í sumar.
Eðvarð sigraði í fjórum greinum
á innanhússmeistaramótinu,
þremur i Kalottkeppninni hér í
Reykjavík, hlaut fern gullverðlaun
á olympíuleikum smáþjóða í San
Marínó og tvenn á Ulsterleikunum.
Ekki er allt enn talið því Eðvarð
hlaut fjöldann allan af silfurverð-
launum á áðurnefndum mótum og
á Golden Cup-mótinu í ársbyrjun
náði hann í silfurverðlaun.
Besti árangur Eðvarðs á árinu í
100 metra baksundi er sá 23. besti
í heiminum á síðasta ári. Eövarð
er ein bjartasta von íslenskra
íþróttamanna um þessar mundir.
Hann er ungur og á alla framtíðina
fyrir sér í íþrótt sinni og sem mark
um frábæran árangur hans má
nefna að enginn Noröurlandabúi á
betri tíma en hann í 100 metra
baksundinu. Hann er besti bak-
sundsmaður Norðurlanda.
Sigurður Pétursson
Sigurð þarf ekki að kynna fyrir
þeim sem áhuga hafa á golfi og
fylgjast með þeirri íþrótt. Sigurður
er tvímælalaust besti kylfingur síð-
asta árs. Hann vann glæsilegan
sigur á síöasta íslandsmóti, örugg-
ari sigur en lengi hefur þekkst, og
einnig vann stigameistaramótið.
Hann átti sæti í sveit Reykjavík-
ur sem varð í 4. sæti í sveitakeppni
Evrópu. Þar varð hann í þriðja
sæti í keppni einstaklinga. Sigurð-
ur komst á árinu næst allra íslend-
inga því að verða atvinnumaður í
golfi. Hann féll út á næstsíðasta
þrepi áhugamanna um atvinnu-
mannaskírteini á Spáni í desem-
bermánuði.
[ fjórða sæti varð Guðmundur
Þorbjörnsson, knattspyrnumaður
ársins úr Val. Kraftlyftingamaður-
inn Kári Elísson varð í fimmta
sæti og fast á hæla honum kom
handknattleikmaðurinn Kristján
Arason. Bjarni Friðriksson júdó- |
kappi varð í sjöunda sæti og í átt-
unda sæti varð Þorgils Óttar
Mathiesen handknattleiksmaður
úr FH og Einar Þorvarðarsor
handknattleiksmaður varð í níunde
sæti. Tveir íþróttamenn urðu jafnir
í 10. sæti. Ómar Torfason knatt-
spyrnumaður úr Fram og Torfi Ól-
afsson kraftlyftingamaður.
Aðrir sem hlutu atkvæði í kjöri
íþróttamanns ársins 1985 voru:
Guðrún H. Kristjánsdóttir, skíða-
kona, Pálmar Sigurðsson, körfu-
knattleiksmaður, Svanhildur Krist-
jónsdóttir, frjálsíþróttakona, Helgs
Halldórsdóttir, frjalsíþróttakona,
Jónas Óskarsson, íþróttum fatl-
aðra, Bryndís Ólafsdóttir, sund-
kona, Sigurður Sveinsson, hand-
knattleiksmaður, Kristján Sig-
mundsson, handknattleiksmaður,
Oddur Sigurðsson, frjálsíþrótta-
maður, og Ævar Þorsteinsson,
| karatemaður.
Knattspyrnumenn óskast til Noregs Hafiö samband viö Hótel Sögu og biöjið um herbergi 530
Aðalfundur knattspyrnudeildar V J ' Aðalfundur knattspyrnudeildar Fram veröur haldinn í Fram-heimilinu, sunnu- daginn 19. janúar kl. 20.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveitingar. Knattspyrnudeild Fram.