Morgunblaðið - 11.01.1986, Side 40
EUROCARE3
ETTT KORT ALLS SIAÐAR
Wterkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
LAUGARDAGUR11. JANÚAR1986
VERÐ LAUSASOLU 40 KR.
Fiskeldi á Reykjanesi:
Rís 4000 tonna
-stöð við Kistu?
BÚAST má við að ákvörðun verði
tekin á næstunni um hvort reist
verður fiskeldisstöð við Kistu á
Reykjanesi i kjölfar ítarlegrar
skýrslu, sem samstarf saðilum um
þessar framkvæmdir hefur bor-
ist. Þessir samstarfsaðilar eru
Sölumiðstöð hraðf rystihúsanna
hf., ísno hf., Fiskirækt hf. og
iðnaðarráðuneytið vegna Sjó-
ef navinnslunnar.
Að sögn Eyjólfs Konráðs Jóns-
sonar, stjómarformanns í ísnó og
Fiskirækt, gæti stöðin orðið allt að
*Sami maður
að verki?
LÖGREGLU hefur ekki tekist að
hafa hendur í hári mannsins, sem
sást hlaupa á brott frá Odd-
fellow-húsinu eftir að þremur
sivalningum með úrverki, þannig
að líktist sprengju, var komið
fyrir fyrir utan húsið. Rannsókn-
arlögregla ríkisins vinnur að
'•y* rannsókn málsins. Grunsemdir
hafa vaknað um að sami maður
hafi tilkynnt um sprengju að
Tjarnargötu 14 og kom sívaln-
ingnum fyrir við Oddfellow-
húsið. „Það er möguleiki á að
sami maður hafi verið að verki,“
sagði Helgi Daníelsson, yfirlög-
regluþjónn hjá RLR, í samtali við
Morgunbiaðið.
Sprengjuhótunin í Tjamargötu
barst um kl. hálftíu á föstudags-
kvöldið og var símtalið rakið til
símaklefa Pósts og síma við Austur-
völl. Þremur stundarQórðunum síð-
ar komu piltamir tveir, Guðlaugur
Guðmundsson og Ragnar Þórisson,
á miðbæjarstöð lögreglunnar og
-^.tilkynntu um sívalningana og úr-
verkið við Oddfellow-húsið. Ragnar
kvaðst hafa séð til hettuklædds
manns hlaupa út í Kirkjustræti.
Ekki hefur tekist að hafa upp á
þeim manni.
4.000 tonn að stærð og myndi hún
nota þá afgangsorku sem er á
landsvæði Sjóefnavinnslunnar. Eyj-
ólfur Konráð sagði að fyrir um það
bil einu ári hefðu samstarfsaðilar
ákveðið að láta gera rannsókn á
hagkvæmni stórrar laxeldisstöðvar
við Kistu á Reykjanesi, þar sem
samvinna gæti orðið með Sjóefna-
vinnslunni um hagnýtingu jarðhita
til fiskiræktar. Þessi skýrsla er
unnin af A/S Mowi í Bergen, sem
er samstarfsaðili íslendinga í ísno
hf. og Norsk Hydro, sem á fyrirtæk-
ið Mowi.
Upphaflega var gerð skýrsla um
hagkvæmni slíkrar stöðvar árið
1979 og 1980 af A/S Mowi og
Hydro en um það leyti sem hún var
fullgerð höfðu norsku samstarfsað-
ilamir kynnt sér aðstæður í lónun-
um í Kelduhverfi og niðurstaðan
varð sú að æskilegra væri að hefja
tilraunastarfsemi þar en leggja
Kistuskýrsluna á hilluna í bili. Hún
var síðan endurskoðuð aftur 1983
og nú var ráðist í að gera skýrslu
sem er nægilega mikið unnin til að
hægt sé að taka ákvörðun um að
ráðast í framkvæmdir eða þá að
falla frá frekari áformum um lax-
eldisstöð við Kistu.
Morgunblaðið/Júlfus
Einar Vilhjálmsson íþróttamaður ársins
Einar Vilhjálmsson spjótkastari var í gær útnefndur íþróttamaður ársins 1985 af samtökum
íþróttafréttamanna. Þetta er í annað sinn sem Einari hlotnast þessi heiður en hann var einnig
kjörinn árið 1983. Faðir Einars, Vilhjálmur Einarsson, afhenti syni sínum bikarinn, en Vilhjálmur
var fyrsti íþróttamaðurinn sem kjörinn var Iþróttamaður ársins og var það árið 1957. Þetta er i
þrítugasta sinn sem kjör þetta fer fram og hefur Vilhjálmur fimm sinnum orðið hlutskarpastur,
oftast allra. Sjá nánar um kjörið á blaðsiðum 38 og 39.
Ungnr ísfirðingnr dæmd-
ur saklaus í Hæstarétti?
Kveðst hafa tekið á si g sök annars. Ríkissaksóknari vill endurupptöku
Ríkissaksóknari hefur mælst
til þess við Hæstarétt, að mál
ungs ísfirðings verði tekið upp
að nýju fyrir réttinum, þar sem
pilturinn kveðst hafa verið
dæmdur saklaus í Hæstarétti.
Hann var dæmdur i þriggja mán-
aða fangelsi fyrir þjófnað, stuld
á bifreið og ölvun við akstur.
Óskað er endurupptöku á tveim-
ur siðari brotunum, stuldi á bif-
reið og ölvunarakstri. Pilturinn
játaði á sinum tima að hafa stolið
bifreiðinni og ekið ölvaður, en
breytti framburði sínum þegar
honum var birtur dómur Hæsta-
réttar. Vitni, sem ekki voru yfir-
heyrð við rannsókn málsins á sín-
um tíma, staðfesta að pilturinn
hafi ekki ekið bifreiðinni, heldur
félagi hans. Hæstiréttur hefur
ekki tekið afstöðu til endurupp-
töku málsins, sem á sér ekki
fordæmi í íslenskri réttarsögu.
Lúxemborgarmaðurinn í Reykjavík:
Talinn hafa hlaupið frá
500 milljón kr. skuldum
Zurich, 10. janúar. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
LÚXEMBORGARMAÐURINN, sem var handtekinn í Reykavík á
fimmtudag, er grunaður um meiriháttar fjármálamisferli og
okurlánastarfsemi í Lúxemborg. Hann er sagður hafa fjárfest
fé fyrir fólk, jafnvel I sumarhúsum á íslandi, og rekið lánastarf-
semi fyrir allt að 108% vexti á ári. Talið er að hann hafi skuldað
viðskiptavinum sínum 10 milljónir dollara, eða rúmar 420 milljón-
ir ísl. kr. og Lúxemborgskum bönkum 2 milljónir dollara, um 84
milljónir ísl. kr., þegar hann fór úr landi í desember.
Fyrirtækjum hans, skartgripa- Gjaldþrotamálið vakti nokkra
versluninni JPF Diamonds og athygli í Lúxemborg. Hann var
skartgripaframleiðslufyrirtækinu
Lúxemborg Jewelrz Manufactur-
ing, þar sem sextán manns voru
í vinnu, var lýst gjaldþrota 11.
og 16. desember sl. Alþjóðlegt
handtökuvottorð var gefið út á
manninn þegar hann fór úr landi
án þess að skilja eftir heimilisfang
hjá yfirvöldum í Lúxemborg.
Sögusagnir voru í gangi í Lúxem-
borg nú í vikunni að hann hefði
jafnvel flúið til Brasilíu.
framkvæmdastjóri fjárfestinga-
fyrirtækisins Intemational Far
East Corporation, sem fyrirtækið
Hong Kong Foo Hang Ltd. í Hong
Kong á. Það átti hlut í skart-
gripaframleiðslufyrirtækinu og á
hlut í matsölustaðnum Seandia í
gamla bænum í Lúxemborg,
Queen’s Travel ferðaskrifstofunni
og rekur litla verslun í Intercont-
inental hótelinu. Fjárfestingafyr-
irtæki geta ekki og hafa aldrei
orðið gjaldþrota í Lúxemborg og
því er gjaldþrotamál þetta í nafni
mannsins.
Hann er um þrítugt og ku hafa
opnað skartgripaverslun sína við
eina af aðalgötunum í Lúxemborg
fyrir §órum til fimm árum. „Upp
úr því virtust allar flóðgáttir
opnast fyrir honum," sagði einn
heimildarmaður Morgunblaðsins í
Lúxemborg. Hann og íslensk konu
hans bárust mikið á. Þau keyrðu
um á Jagúar, Mercedes Benz og
um tima á gömlum Rolls Royce
og bjuggu ansi vel.
Hann hefur búið með annarri
íslenskri stúlku undanfama mán-
uði. íslenska nýlendan í Lúxem-
borg segist ekki þurfa að horfa á
Dallas og Dynasti, hún hafi sitt
eigið „gúllas" að fylgjast með.
Yfirvöld í Lúxemborg vildu
ekkert tjá sig um mál þetta í dag.
Einn viðmælandi Morgunblaðsins
sagði þó að það yrði að sjálfsögðu
beðið um framsal til Lúxemborgar
og þar yrði hann sóttur til saka.
Að kröfu Lögreglunnar í
Reykjavík var Lúxemborgarmað-
urinn sem handtekinn var á föstu-
daginn í Reykjavík, úrskurðaður
í þriggja vikna gæsluvarðhald í
Sakadómi Reykjavíkur í gær.
Dómsmálaráðuneytið fór fram á
það við lögregluna að maðurinn
yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald,
eftir að beiðni barst frá Alþjóða-
lögreglunni, Interpol, um að al-
þjóðleg handtökuskipun hefði
verið gefið út á hendur manninum
og ósk um að hann yrði hand-
tekinn ef til hans næðist hér á
landi.
Stjómvöld í Lúxemborg hafa
ekki sett fram kröfu um framsal.
Tildrög þessa óvenjulega máls
eru þau, að í mars 1982 mættu ís-
firskir lögreglumenn bifreið á Skut-
ulsfjarðarbraut. Þeir snem við og
stöðvuðu hana við Brúamesti.
Þegar þeir komu að bifreiðinni sat
pilturinn, sem sakfelldur var fyrir
Hæstarétti, undir stýri og gekkst
við brotinu. Með honum voru fimm
ungir menn og nú ber pilturinn að
einn þeirra hafi ekið. Þeir hafi skipt
um sæti áður en lögregla kom að.
Þrír piltanna hafa verið yfirheyrðir
í kjölfar breytts framburðar hins
dæmda - þeirra á meðal sá, sem
nú er staðhæft að hafi ekið bifreið-
inni og liggur játning hans fyrir -
og ber þeim saman um, að hinn
dæmdi hafí ekki ekið.
Við lögreglurannsókn málsins á
sínum tíma vom fímmmenningamir
ekki yfírheyrðir, aðeins hinn dæmdi.
Ákæra á hendur piltinum var gefin
út af embætti ríkissaksóknara í
október 1982, enda þótti ekki
ástæða til frekari rannsóknar þar
sem skýlaus játning lá fyrir og
málið þótti upplýst. Pilturinn var
sakfelldur í Sakadómi Ísaijarðar.
Hann áfrýjaði til Hæstaréttar og
var dæmdur í þriggja mánaða fang-
elsi. Dómur undirréttar var þyngd-
ur, því þjófnaðarbrot hafði bæst
við.
Þegar piltinum var síðan birtur
dómur Hæstaréttar þann 15. janúar
1985 breytti hann framburði sínum
og kvaðst hafa verið dæmdur sak-
laus - hann hefði tekið á sig sök
annars manns. í kjölfarið fór fram
Iögreglurannsókn og síðar dóms-
rannsókn og vom þrír piltanna yfír-
heyrðir og staðfestu þeir framburð
hins dæmda. Hins vegar á eftir að
yfirheyra tvo piltanna.