Morgunblaðið - 16.10.1986, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.10.1986, Blaðsíða 33
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986 Útgefandi Framkvœmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 50 kr. eintakiö. Einkaverzlun og almannahagur að eru fyrst og fremst hagsmunir neytenda sem knúðu á um frjálsa verzlun og verzlunarsamkeppni. Hörð sam- keppni um viðskipti neytenda tryggir bæði meira vöruúrval og hóflegra vöruverð en ella væri. Samkeppni í smásölu- verzlun í Reylgavík og ná- grenni, sem farið hefur harðnandi, hefur fært fólki á höfuðborgarsvæðinu hagstæð- ari viðskipti — meiri kaupmátt — en því fólki í stijálbýli, sem hefur ekki í önnur hús að venda en eina kaupfélagsverzlun. Það er síðan saga út af fyrir sig að rekstrarstaða strjálbýliskaup- félaga, sumra hverra, hefur farið versnandi, á sama tíma og staða SÍS hefur styrkzt. Staða stijálbýliskaupfélaga hefur veikzt. Þau eru máske ekki homrekur hjá Sambandinu og samvinnuhreyfingunni. Það fer hinsvegar ekki fram hjá neinum að samvinnuverzlunin leggur höfuðkapp á að styrkja stöðu sína á höfuðborgarsvæð- inu. Á tiltölulega stuttum tíma hefur samvinnuverzlunin eign- ast tvo stórmarkaði í Reykjavík, Markað við Sund, sem SIS og KRON o.fl. standa að, og Kaup- stað í Mjódd (Víði), er KRON hefur eignast. Þá mun Sláturfé- lag Suðurlands, sem er sam- vinnufélag að forminu til, eiga aðild að rekstri Nýja bæjar, þar sem áður var stórverzlun Vöru- markaðarins við Eiðisgranda. Samvinnuverzlun hefur fært út kvíar á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er þó allt sem sýnist í því efni. í fyrsta lagi hefur verið látið að því liggja að KRON muni selja stórmarkað, sem fyr- irtækið hefur rekið í Kópavogi, á mörkum Breiðholts. í annan stað er talið líklegt að fækkað verði smærri KRON-verzlunum, sem gegnt hafa svipuðu hlut- verki og „kaupmaðurinn á hominu" fyrir næsta nágrenni sitt. KRON dregur því væntan- lega úr þjónustu, að þessu leyti, samtímis því sem það sækir í sig veðrið með nýjum verzlunar- háttum. Einkarekstur hefur um lang- an aldur haft tögl og hagldir í smásöluverzlun á höfuðborgar- svæðinu. Lengi framan af bar kaupmaðurinn á hominu hitann og þungann í verzlunarþjónustu við Reykvíkinga. Hann gegnir enn veigamiklu hlutverki að þessu leyti — og gerir vonandi lengi enn. Síðan komu kjörbúðir og loks stórmarkaðir, sem einkareksturinn átti frumkvæði að, og bmtu ís að nýjum verzl- unarháttum. Verzlunarsam- keppni, sem einkareksturinn var og er burðarásinn í, hefur allar götur fært Reykvíkingum vöru- úrval og verzlunarþjónustu, sem staðið hefur fyrir sínu. Það er hinsvegar full ástæða til að treysta stöðu einkaverzl- unar í höfuðborginni. Einka- verzlunin er eina trygging neytenda fyrir þeirri verzlunar- samkeppni, sem er forsenda hliðstæðs vömframboðs og hlið- stæðrar verðsamkeppni og einkennir verzlunarþjónustu á Vesturlöndum. Þau eigenda- skipti, sem nýlega hafa orðið á stórmörkuðum á höfuðborgar- svæðinu, benda til þess, að skyndilega hafí hallað undan fæti hjá einkaverzluninni. Það er áhyggjuefni. Samkeppni einkaverzlunar og samvinnuverzlunar á jafíi- stöðugmndvelli, skattalega sem á annan hátt, er af hinu góða, en rekstrarleg jafnstaða er for- senda marktækrar samkeppni. Verzlunareinokun, hvort heldur er í höndum kaupfélags eða annars rekstrarforms, leiðir hinsvegar hvorki til betri vöm eða þjónustu né lægra vöm- verðs, svo sem dæmin sanna enn í dag. Það er því almanna- hagur, þegar grannt er gáð, að einkaverzlunin haldi stöðu sinni á höfuðborgarsvæðinu, hér eftir sem hingað til. Verzlunin, sem atvinnugrein, er stór vinnuveitandi. Ársstörf í verzlun em milli 13-15 þúsund í lanainu. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur er fjölmennasta stéttarfélagið. Þau fjölmörgu starfstækifæri, sem verzlunin gefur, vega þungt á íslenzkum vinnumarkaði. Vandi atvinnugreinarinnar er af hliðstæðum toga og annarra atvinnugreina og tengist efna- hagsþróun heima og heiman. Nefna má Qármagnsvanda, tengdan fjárfestingu og vöm- birgðum. Eiginfjárstaða rekstr- araðila skiptir því miklu máli, ekki sízt í umfangsmeiri verzl- un. Skattaleg mismunun styrkir eiginfjármyndun í samvinnu- rekstri umfram einkarekstur. Jafnræði þarf að tiyggja í þessu efni. Svokölluð samvinnuverzlun sækir nú fast að höfuðvígi einkaverzlunar í landinu, hér í Reykjavík. Þeirri sókn hljóta einkaframtaksmenn að mæta. Almannahagur á samleið með þeim í varðveizlu fíjálsrar verzl- unar og verzlunarsamkeppni. Magnús Torfi Ólafsson, blaðafulltrúi ríkisstj órnarinnar: Á þríðja þúsund manns unnu að öflun og dreifingri frétta „LÍKLEGA hafa blaða- og frétta- menn verið vel á annað þúsund, en alls hafa líklega hátt á þriðja þúsund manns unnið að öflun og dreifingu frétta af leiðtogafund- inum hér, þegar allt er talið. Þjónustan við þetta fólk gekk mjög vel. Erlendu fréttamenn- imir voru dolfallnir yfir hæfni íslendinga hvað varðaði fjar- skipti og skipulagningu. Þeir eru vel dómbærir á þessa hluti og kröfuhart fólk, sem lætur það í Ijósi, ef þvi finnst eitthvað vel gert og það gerði það svo sannar- lega,“ sagði Magnús Torfi Ólafsson, blaðafulltrúi ríkis- stjóraarinnar og formaður fjölmiðlanefndar leiðtogafund- arins. „Við, sem störfuðum að skipu- lagningu þjónustu fyrir fréttamenn, ákváðum strax að fara fram á þrjú hús til afnota. Þetta voru Haga- skóli, íþróttahús Hagaskóla og Melaskóii. í Hagaskóla vorum við með frétta- og upplýsingamiðstöð og þar sá Póstur og sími um síma- þjónustu, telex, telefax, pósthús og fleira, en þar var einnig skyndibita- staður. I skólastofunum fengu ýmsar fréttastofur og slík fyrirtæki inni. í íþróttahúsinu var kynningar- miðstöð, meðal annars fyrir at- vinnuvegina með útflytjendur í fararbroddi. Flugleiðir voru einnig þar með farmiðaafgreiðslu og þar var hluti af tæknisýningu Reykjavíkurborgar. í Melaskóla var töluverður fjöldi minni sjónvarps- stöðva, ^sem ekki leigðu sérstakt húsnæði og voru margar hveijar háðar þjónustu íslenzka sjónvarps- ins hvað varðaði sendingar og tækjakost. Þar má nefiia EBU- stöðvamar og stöðvar frá Japan, Frakklandi, Ítalíu, Ástralíu og fleiri löndum. Þar voru tveir sendar fyrir sjónvarpsefni. Maríanna Friðjóns- dóttir og hennar fólk hafði umsjón með þessari flóknu starfsemi í Melaskóla með slíkri röggsemi að Þorvarður Jónsson, yfirverkfræðingnr Pósts og síma: Starfsfólk Póst off síma stóð sig með mikilli prýði nægilegt nú og því var breytt geisla frá öðrum Intersat-hnetti, sem áður beindist annars vegar að Washing- ton og hins vegar að Lyon í Frakklandi. Frakklandsgeislanum var beint að Reykjavík og með því náðist þjónusta við þær litlu jarð- stöðvar, sem tengdust Bandaríkjun- um. Við vorum með þjónustumiðstöð í Hagaskóla, en þar var talsími, ritsími, telex, telefax og pósthús, en auk þess voru settir upp 14 sérs- takir kortasímar þar og 5 I Mela- skóla. í Hagaskóla vorum við með 26 símaklefa, 7 telextæki og 5 hrað- virk telefaxtæki og var þessi búnaður töluvert notaður. Við ákváðum þegar í upphafi að stefna að því að hinn almenni símnotandi þyrfti ekki að bera kostnað af þessu ævintýri og ég trúi ekki öðru en tekjur nægi fyrir gjöldum. Það er þó ljóst að kostnað- ur við fréttamiðstöðina verður meiri en tekjur, en ég reikna með að ríkis- stjómin greiði þann mismun, sem verður á gjöldum og tekjum, enda bað hún um þessa þjónustu," sagði Þorvarður Jónsson. „Starfsmenn Pósts og síma unnu nánast dag og nótt við að afgreiða þær óskir og pantanir á þjónustu, sem óskað var. Það stóð aldrei á þjónustu okkar og þeir, sem hennar nutu voru nyög ánægðir með dugnað starfsfólks okkar, sem hefur staðið sig með mikilli prýði. Erlendu frétta- mennirair eru kröfuharðir og hafa komið viða og þeir sögðust sjaldan eða aldrei fengið jafn snögga úrlausn allra mála,“ sagði Þorvarður Jónsson, yfir- verkfræðingur þj' Pósti og sima, er Morgunblaðið ræddi við hann um þátt Pósts og síma í leið- togafundinum. „Talsímarásum um Skyggni var flölgað úr 220 í um það bil 300, um 60 leigulínur voru tengdar milli íslands og annarra landa. Sjálf- virkum línum til Bandaríkjanna var fíölgað úr 48 í 54 og auk þess var símasamböndum breytt með þeim hætti, að hringja mætti til Banda- ríkjanna um London, og þannig bættust við 32 línur vestur um haf og því voru alls opnar þangað 86 línur. Þessi breyting var f undirbún- ingi fyrir fundinn og svo vildi til að henni var lokið fyrir hann, en breytingin er til frambúðar. í Reylgavík voru pantaðar 800 sjálf- virkar línur og settar upp og auk þess 100 á Keflavíkurflugvelli. Þá var sett upp mikið af beinum sam- böndum milli staða í Reykjavík og milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur, meðal annars 4 víra samband, bæði fyrir útvarp og tal- sendingar með sjónvarpi auk sjónvarpssambands með örbylgju. Þá voru sett upp 17 30 rása stafræn fjölrásatæki til að tengja saman ýmis svæði og lagðir ljósleiðara- strengir til að auka afkastagetu símakerfísins. Um Skyggni er venjulega'aðeins ein sjónvarpsrás til útlanda, en þeim var fíölgað í þijár og fóru sending-- ar um hann meðal annars til Sovétríkjanna. Auk þess heimilaði Póstur og sími uppsetningu 9 lítilla jarðstöðva til sjónvarpssendinga, þar af 5 til Bandaríkjanna og eina til vara og þijár til Evrópu. Auk þess rak fréttastofa Bandaríkjanna útvarps- og sjónvarpsþjónustu fyrir þarlendar stöðvar og hafði eina jarðstöð með 8 dagskrárlínum vest- ur um haf. Nokkrar breytingar á venjulegu gervihnattasambandi voru nauðsynlegar til að gera þetta að veruleika. Venjulega fara send- ingar í gegnum Skyggni um gervi- hnött, sem er með mjög breiðan geisla, sem nær frá Norður- Ameríku yfír Norður-Atlantshaf og til Evrópu. Það var hins vegar ekki undrun sætir. Þó allir hafi gert sitt bezta, hafði Maríanna og hennar fólk erfíðasta hlutverkið af öllum, og skilaði því bezt. Helgi Ágústsson hafði umsjón með starfínu í Haga- skóla, en honum til aðstoðar voru Jón Hákon Magnússon, Sigríður Snævarr og Jóhanna Birgisdóttir. Hinum kröfuhörðu útlendingum fannst mikið til koma hæfni fjölda ungs fólks, sem starfaði þama und- ir stjóm Jóhönnu. Fjarskiptin gengn vel Hins vegar hefði allt þetta starf verið unnið fyrir gíg, hefðu starfs- menn Pósts og síma ekki lagt nótt við dag og náð ótrúlegum árangri. Fjarskiptakerfíð stóðst álagið éins og til var ætlazt, enda unnu þessir starfsmenn störf sín rösklega og af nákvæmni og þekkingu. Af þessu öllu verður töluverður kostnaður en Póstur og sími ætti að fá tekjur á móti framlagi sínu, því fyrir þjónustu fyrirtækisins var greitt. Ánnar kostnaður lendir líklega á Bandarílqunum og Sovét- ríkjunum, þar sem þau báðu um þessa aðstöðu hér,“ sagði Magnús Torfí Ólafsson. Auk Magnúsar Torfa sátu eftir- taldir í fíölmiðlanefndinni: Helgi Ágústsson, Bjöm Friðfinnsson, Karl Jóhannsson, Ágúst Geirsson, Maríanna Friðjónsdóttir, Þráinn Þorvaldsson og Jón Hákon Magnús- son. Hef ðbundnar reglur í heiðri hafðar „Fyrirkomulagið, sem notað var til að skipta aðtöðu að fréttaflutn- ingi af leiðtogafundinum á milli fréttastofa var samkvæmt hefð- bundinni fyrirmynd þegar um slíka atburði er að ræða“, sagði Magnús Torfi, en á hans herðum hvíldi skipulagning á skiptingu á aðgangi fréttamanna á upplýsingum af leið- Magnús Torfi Ólafsson, blaða- fulltrúi rfkisstjóraarinnar. togafundinum. „Þegar mikil skari fréttamanna safnast saman til að fylgjast með svona málum em myn- daðir svokallaðir „poolar", sem er ensk sletta dregið af því sem Eng- lendingar kalla „to pool resources", það er að margir aðilar leggja sam- an getu sína á einhveiju sviði. Þetta er sem sagt takmarkaður hópur manna, sem er fulltrúar miklu stærri heildar", sagði Magnús Torfí. „Þrengsti „poolinn" getur verið einn, tveir eða þrír menn, þar sem talið er að ekki komist fleiri að og eins getur hann talið tugi manna. Reglan er sú, að reynt er að koma fyrir fulltrúum allra greina frétta- öflunarstéttanna, það er skirfandi menn, myndatökumenn, sjónvarps- upptökumenn, hljóðmenn og tæknimenn. Þessir em fyrst og fremst valdir úr hópi þeirra, sem mesta hafa útbreiðslu eða ná til sem flestra. Að öðm jöfnu ganga því stóm fféttastofumar fyrir og stór blöð em tekin fram yfir lítil og við tökum stórt sjónvarpskerfí fram jrfir eina sjálfstæða stöð. En þegar stærri hópar komast að er leitast við að fullnægja ekki aðeins þessum kröfum að ná til sem flestra, heldur er einnig komið til móts við hina smærri og valdir þeir sem njóta álits", sagði Magnús Trofi ennfrem- ur. Stórveldin fá tvo þriðju, og aðrir þriðjung Hann sagði að reglan væri sú að þegar um samskipti Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna væri að ræða væri skiptingin sú að Banda- ríkjamenn fengju hlutdeild að einum þriðja, Sovétmenn að einum þriðja og fréttamenn annars staðar úr heiminum að einum þriðja. Magnús Torfí hafði það hlutverk að úthluta alþjóðalega þriðjungn- um. Hann sagði að samskiptin við fréttamenn hefðu yfirleitt verið góð hvað þetta snerti. „Þessar reglur em hvergi til skráðar, en ég þykist þekkja þær nokkuð vel eftir 40 ára afskipti af fjölmiðlamálum", sagði Magnús Torfi. „Og af þessum reglum stafar , sú mismunun, sem til dæmis var gerð á íslenzkum blöðum. Morgun- blaðið fékk því, vegna útbreiðslu sinnar, nokkum forgang. Á sama hátt fengu báðar deildir ríkisút- varpsins, hljóðvarp og sjónvarp, forgang enda höfðu þær ákaflega mikilvægu hlutverki að gegna fyrir erlenda starfsbræður sína.“ Magnús Torfi sagði, að þeir sem valdir væm í þessa hópa hefðu skyldum að gegna gagnvart þeim sem utan við stæðu varðandi upp- lýsingar. „Ég held að þetta hafi gengið allt saman eins og til var ætlast", sagði hann. „Auðvitað get- ur komið einhver ágreiningur um þessa skiptingu og þetta vill oft verða sviptingasamt þar sem marg- ir em að vekja athygli á sér. En þegar upp var staðið held að allir hafi verið bærilega ánægðir", sagði Magnús Torfi Ólafsson. 33 Hrossin rekin um borð í „írsku rósina“ sem eins og sjá má er skráð í Panama. Morgunblaöið/Valdimar Kristinsson Halldór Gunnarsson ráðgast hér við einn skipverjann um það hvera- ig skuli raða hrossunum í skipið. Tæplega 400 hross utan með gripaflutningaskipi: Vonbrigði með dræmar imdirtektir bænda - segir Halldór Gunnarsson Á LAUGARDAGINN sigldi frá Þorlákshöfn belgiskt gripaflutn- ingaskip með 388 hross innan- borðs sem eiga að fara til ýmissa staða í Evrópu. Hrossunum verð- ur skipað út í þremur höfnum í Fredriksstad í Noregi, Esbjerg í Danmörku og Gent í Belgíu. Það er Félag hrossabænda sem stend- ur fyrir þessum flutningum i samvinnu við Búvörudeild Sam- bandsins en þetta er þriðja skipið •sem þessir aðilar fá hingað til lands til hrossaflutninga. Ekki tókst að fylla skipið sem getur tekið rúmlega 500 hross og sagði Halldór Gunnarsson hjá Félagi hrossabænda að það hefði valdið þeim vonbrigðum sem að þessu standa hversu dræm viðbrögð hrossabænda voru með að láta hross af hendi i þennan flutning. Af þessum 388 hrossum sem fóru nú út voru 173 reiðhross sem er- lendir ferðamenn hefðu keypt i sumar en afgangurinn, 215 hross, munu fara til Belgíu þar sem þeim verður lógað. Tilganginn með þessum flutning- um sagði Halldór vera þríþættan, í fyrsta lagi væri mönnum gert kleift að halda flutningskostnaði niðri og benti hann á í því samband að það kostaði 15.000 krónur fyrir hvert hross sem fór með þessu skipi og væri þá allt innifalið. í öðru lagi væri reynt að skapa hrossabændum betri kjör fyrir sláturhross en inn- lendir sláturleyfishafar bjóða upp á. Sagði hann að fullt verð fengist greitt innan tveggja mánaða fyrir þau hross sem færu með skipinu í stað þess að fá helminginn greiddan í desember, fjórða hluta í mars eða apríl og afganginn í árslok. í þriðja lagi væri þetta tilraun til að koma * í veg fyrir að birgðir af hrossakjöti söfnuðust upp sem erfiðlega gengi að selja. Benti Halldór á að árlega væri slátrað um 1.000 fullorðnum hrossum en ljóst sé að ekki er mark- aður innanlands fyrir nema helming þess. Aðspurður um ástæður þess að ekki tókst að fylla skipið sagði Halld- ór ástæðumar sjálfsagt margar og taldi hann að ein ástæðan væri gaml- ir fordómar frá þeim tíma þegar hross voru flutt út í lestum skipa áleiðis í kolanámur í Bretlandi. Þessi skip sem fengin hafa verið hingað væru sérstaklega útbúin til gripa- flutninga og hefðu skipstjórar fyrir- mæli um að velja hraða með tiiliti til þess hvað hentaði hrossunum best hveiju sinni. Þá nefndi hann að íslenskur dýralæknir færi alltaf með hrossunum út þannig að tryggt er að vel fari um hrossin á leiðinni. Félagsmálaráðuneytið: Málsmeðferð forseta bæjar- stjómar Seltjamamess óeðlfleg „Ráðherra óhæfur til að fjalla um málið“, segir f orseti bæjarstjórnar „RÁÐUNEYTIÐ telur meðferð þessa máls frá hendi forseta bæjar- stjóraar gagnvart blindum manni, sem er kjörinn til að gegna trúnaðarstörfum fyrir bæjarfélagið í alla staði óeðlilega, þar með talin brottvisun af fundi, og væntir þess að bæjarstjóra Seltjarnar- ness tryggi að slík málsmeðferð komi ekki fyrir oftar“, segir í bréfi, sem Félagsmálaráðuneytið hefur sent Bæjarstjóra Seltjarnar- ness vegna máls er upp kom þegar Araþóri Helgasyni var vísað af fundi bæjarstjómar Seltjarnaraess í september síðastliðnum. Araþór hafði áður ritað ráðuneytinu bréf þar sem hann fór fram á afskipti þess vegna þessa máls. í bréfi Félagsmálaráðuneytisins til bæjarstjómar Seltjamamess kemur meðal annars fram að ráðu- neytið líti svo á, að kjami þessa máls varði þau grundvallaratriði, sem tryggð skulu fötluðum með lögum, það er að fötluðum skulu tryggð sömu réttindi og öðmm þjóð- félagsþegnum og þeim sköpuð skilyrði til að lifa eðlilegu lífí og hasla sér völl í samfélaginu þar sem þeim vegnar best. Ráðuneytið legg- Ur ríka áherslu á að í máli því, sem hér er um að ræða, var hinn fatlaði maður kosinn til að gegna trúnaðar- störfum fyrir sveitarfélagið. í bréfí Félagsmálaráðuneytisins kemur fram, að Amþór Helgason telur sig hafa komið beiðni um hljóðritun á framfæri við yfirstjóm bæjarfélagsins. Hvað varðar með- feið málsins á fundi bæjarstjómar, bendir ráðuneytið á að ekki var leit- að atkvæða fundarmanna um það hvort hljóðritunin skyldi samþykkt eða ekki. Einnig bendir ráðuneytið á að ekki liggja fyrir aðrar upplýs- ingar um það að fundurinn hafí verið truflaður vegna hljóðritunar- innar en mat forseta bæjarstjómar eins. Ráðuneytið leggur þunga áherslu á að fatlaðir fái möguleika til þess að taka þátt í því starfí sem þeim er falið. Þegar blindur maður fæst við sveitarstjómarstörf, komi tvær leiðir greina eigi honum að vera fært að fylgjast með fundarstörf- um, þ.e. blindraletur eða hljóðritun, að því er segir í bréfi ráðuneytis- ins. Ráðuneytið beinir því til bæjarstjómar Seltjamamess að veita almennt þá aðstoð og aðstöðu að fatlaðir geti tekið þátt í stjóm bæjarmálefna til jafns við ófatlaða. í þessu tilfelli eigi þetta sérstakleg við Amþór Helgason, segir í bréfi ráðuneytisins. „Ég tel að Alexander Stefánsson, félagsmálaráðherra, hafí verið óhæfur til að úrskurða í þessu rnáli", sagði Guðmar Magnússon, forseti bæjarstjómar Selijamar- ness, í samtali við Morgunblaðið. „í viðtali í Morgunblaðinu, sem birt er 28. september, er haft eftir ráð- herranum að honum finnist málið „ákaflega óeðlilegt“. Amþór hafí vegna blindu sinnar sérstöðu og því hefði átt að meðhöndla málið með öðrum hætti. Síðan segir hann orð- rétt: „Ef ég hefði verið forseti bæjarstjómar hefði svona mál aldr- ei komið upp“. Þetta segir ráðherra í blaðaviðtali áður en hann hefur fengið orð frá mér um málið. Ég tel því að ráðherrann sé þama bú- inn að gefa yfírlýsingar sem bindi hendur hans fyrirfram. Ég sendi ráðherranum síðan greinargerð um málið, en augljóst er að hún hefur ekki verið tekin til greina. Reyndar hefur það komið fram á bæjar- stjómarfundi, að Guðmundur Einarsson, bæjarfulltrúi Framsókn- arflokksins, og samflokksmaður þeirra Alexanders og Amþórs, sat niður í ráðuneyti og gagnrýndi þessa greinargerð án þess að ég fengi nokkra möguleika til and- svara. Mér sýnist því ljóst að ráðherrann er alls ekki hæfur til að úrskurða f þessu máli. Þá finnst mér aðdróttanir ráð- herra ósæmilegar, um að ekki liggi fyrir aðrar upplýsingar um tmflun á fundinum en mat mitt. Ef mér hefði dottið í hug að þetta mikil- væga atriði yrði dregið í efa, hefði ég lagt fram skriflegar yfirlýsingar um að þetta mat mitt er rétt. Varðandi það álit ráðuneytisins að túlkun mín á stjómmálaafskipt- um Amþórs sé óeðlileg, þá er hér um hreinan útúrsnúning að ræða. Hér er auðvitað átt við að Amþór fann strax fjölmiðlaþefínn af málinu og sá í hendi sér að með því að hleypa því upp, gæti hann með aðstoð Qölmiðla komið höggi á pólitískan andstæðing, jafnvel þótt hann þyrfti að notfæra sé samúð almeiínings með fötluðum, til að ná þessu pólitfska markmiði sínu, og ráðherra gekk í gildru Amþórs. Ég vil að lokum bæta því við, að Bæjarstjóm Seltjamamess, og ég þar með talinn, hefur sýnt mál- efnum fatlaðra sérstakan skilning á umliðnum árum og nægir að nefna að Ferilnefnd hefur starfað á Seltjamamesi undir foiystu Am- þórs. Mun það vera eina sveitarfé- lagið í landinu sem hefur stutt svo vel við ferilnefnd að hún hefur ve- rið þess megnug að láta eitthvað raunhæft koma út úr starfí sfnu“ sagði Guðmar Magnússop, forseti bæjarstjómar. „Um leið og ég fagna úrskurði ráðuneytisins og þeim áformum að tryggja réttindi og starfsaðstöðu fatlaðra til starfa að málenfum sveitarstjóma hlýt ég að harma að mál mitt skuli eingöngu hafa verið tekið fyrir af þeim sjónarhóli að blindur maður kæri það misrétti sem hann er beittur", segir Amþór Helgason m.a. í bréfí sem hann hefur ritað Félagsmálaráðuneytinu. „Þrátt fyrir að ég telji að mér hafi freklega verið mismunað af þeim sökum þykir mér hitt ekki síður mikilvægsira að mér var vísað af fundi bæjarstjómarinnar sem var öllum opinn og bæjarstjórinn, Sig- urgeir Sigurðsson, fór með stað- lausa stafi, þegar hann hélt því fram að í bæjarsamþykkt Seltjamamess væru hljóðritanir bannaðar. Þannig beitti hann ósannindum til þess að réttlæta kröfu sína um að mér yrði vikið af fundi. Þá ítreka ég það sem ég segi í bréfí mínu til félagsmála- ráðherra að ég telji þessa aðgerð bæjarstjóra og forseta bæjarstjóm- ar Seltjamamess tilræði við lýðræð- ið í landinu". Amþór rökstyður síðan, þessa skoðun sína og segir m.a.: „Um leið og réttindi og aðstaða fatlaðra til starfa í þjóðfélaginu em tryggð er engin ástæða til þess að búa til sérréttindi þeim til handa. Þannig er með öllu óeðlilegt að sjáandi ein- staklingi, sem mætir á opinn fund bæjarstjómar á íslandi með segul- bandstæki sé vísað af fundinum, en blindur áheyrandi fái að sitja eftir með sitt tæki vegna þess að hann er blindur. Afstaða eins og sú, sem ráðuneytið og flestir flöl-. miðlar hafa tekið í máli mínu getur*~ leitt til þess að menn hætti að líta á samhengið í baráttu og störfum fatlaðs einstaklings, heldur taki fyrst og fremst mið af fötlun hans. Þannig er álit hinna fötluðu rýrt og þeim gert erfiðara um vik, þar sem almenningsálitið segi að af- staða þeirra mótist af fötlun sinni en ekki málefnum." í lok bréfs síns segir Amþón „Ég hef hins vegar margsinnis lagt áhersiu á í ræðu og riti að menn eigi að fá að starfa ekki vegna þess að þeir séu fatlaðir heldur þrátti fyrir fötlun sína. En afstaða ráðu- neytisins er skiljanleg, því að enginn fatlaður einstaklingur vinnur að málefnum fatlaðra á vegum þess og er það alvarlegt íhugunarefni að ráðherra skuli ekki hafa sér til ráðuneytis einhveija úr röðum fatl- aðra til þess að fjalla um þessi mál.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.