Morgunblaðið - 16.10.1986, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 16.10.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986 45 Ásmundur Ásgeirs- son skákmeistari Fæddur 14. mars 1906 Dáinn 2. október 1986 Einn af framvörðum skáklistar- innar á íslandi, Ásmundur Ás- geirsson, lést fímmtudaginn 2. október, áttræður að aldri. Með honum er genginn einn helsti fulltrúi þeirrar skákkynslóð- ar, sem setti svip á íslenskt skáklíf á öndverðri þessari öld og fram yfír hana miðja. Of langt yrði að rekja hér feril Ásmundar sem skákmeistara. Það ætti að nægja að geta þess að íjórum sinnum varð hann Skákmeistari íslands, fyrst 1931, og Skákmeistari Reykajvíkur varð hann jafnoft, í fyrsta sinn 1930 er Skákþing Reykjavíkur var haldið í fyrsta sinn. Ásmundur tefldi oft fyrir ís- lands hönd á erlendum vettvangi, m.a. var hann í hinni frægu för til Buenos Aires 1939 þar sem íslenska Ólympíuliðið í skák vann einn sinn glæstasta sigur. Áður hafði hann teflt fyrir íslands hönd í þeim fjórum Ólympíumótum, sem íslendingar höfðu verið þátttak- endur í, fyrst í Hamborg 1930. Til þess var tekið, að heimsmeist- arinn dr. Euwe minntist Ásmundar sérstaklega í ræðu að loknu Ólympíumótinu í Stokkhólmi og dáðist að árangri hans, verka- mannsins íslenska sem stundaði erfíðisvinnu langan vinnudag sér til lífsviðurværis. Árið 1937 varÁsmundurgerður að heiðursfélaga Taflfélags Reykjavíkur og heiðursfélagi Skáksambands Islands varð hann 1981. Af framansögðu má sjá að Ás- mundur hefír verið afreksmaður á skáksviðinu á sinni tíð og hefír þó aðeins verið getið hér helstu kennileita á langri leið hans um skáklendumar. Hinu má svo ekki gleyma að skákina varð Ásmundur að stunda i stopulum frístundum frá brauð- striti og amstri kreppuáranna, en á langri ævi stundaði hann hin margvíslegustu störf, vann verka- mannavinnu, stundaði sjóinn og bjó um hríð austur í Mjóafírði og tefldi þá mikið við heimamenn þar eystra. Sú spuming er nú áleitin hvert hefði orðið hlutskipti Ásmundar hefði hann fæðst svo sem hálfri öld síðar, eða upp úr miðri 20. öldinni. Við þeirri spumingu fæst að vísu aldrei svar, en ekki er ólík- legt að með þeim tækifæmm og þeirri aðstöðu, sem okkar ungu og glæsilegu skákmeistarar hafa nú, hefði Ásmundur skipað sér sess meðal hinna fremstu, slíkir voru hæfíleikar hans og snilli bæði í sókn og vöm taflsins. Þótt Ásmundur hafí dregið sig í hlé frá taflmennsku seinustu ára- tugina var áhuginn á skák alltaf samur, hann var tíður gestur á skákmótum og fylgdist grannt með því sem var að gerast í íslensku skáklífí og gladdis yfír þeirri grósku sem þar ríkir nú. Sá sem þetta ritar kynntist Ásmundi ekki fyrr en á seinustu æviámm hans er við hittumst á hraðfleygum stundum á skákmót- um, í móttökum eða á skrifstofu SÍ, en þangað kom hann stundum til að rabba um liðna tið eða skoða nýjustu skákir meistaranna. Áberandi fannst mér í fari hans hógværð hins lífsreynda manns, góðlátleg glettni og sátt við tilver- una, þótt vafalaust hafí vindar blásið um lífsfley hans ekki síður en annarra. Að leiðarlokum færi ég Ás- mundi þakkir íslenskrar skák- hreyfíngar fyrir langa samfylgd og ómetanlegt framlag hans til eflingar skáklífí hér á landi. Eftirlifandi ættingjum færi ég dýpstu samúðarkveðjur. ^ Blessuð sé minning Ásmundar Ásgeirssonar. ÞG t Innijegustu þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR ÞÓRARINSSON AR. Lydia Guðmundsdóttir, Jensína Guðmundsdóttir, Magnús Andrésson, Hrefna Guðmundsdóttir, Ólafur Einarsson, Kristjón Guðmundsson, Guðrún Bjarnardóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns mins og föður okkar, GUÐMUNDAR ILLUGASONAR, Bollagörðum 7, Seltjarnarnesi. Halla Markúsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Kjartan Markússon, Laufey Guðmundsdóttir, Ólafur H. Þorbjörnsson, Lilja Guðmundsdóttlr, Sigurbjörn Haraldsson, Sveinbjörg Guðmundsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Eysteinn J. Jósefsson, Albert Sævar Guðmundsson, Margrét Ragnarsdóttir. 1 t Innilegustu þakkir til allra þeirra sem hafa auösýnt okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, fósturfööur og sonar, HALLDÓRS S. SVEINSSONAR, Skógargerði 9, Reykjavfk. Kristveig Baldursdóttlr, Arnþór Halldórsson, Kristfn Jónsdóttir, Sigurður Halldórsson, Baldur Öxdal Halldórsson, Kristveig Halldórsdóttir, Sigrfður Árnadóttir, Sveinn Ólafur Jónsson, Eyjólfa Guðmundsdóttir. Þegar efnt er til veisln bjóðást ótal möguleikar. Átthagasalurinn hentar við öil hugsanleg tilefni. Sölustjóri veitingadeildar í síma 29900 veitir upplýsingar, tekur pantanir og létlir af þér öllum éihyggjum, hvort scm þœr varða þjónustttna, matseðilitm, skemmtikrafta eða annan un/lirhihiino ___ _____ vert sem tilefnið er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.