Morgunblaðið - 09.07.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1987
25
Morgunblaðið/Landmælingar fslands
Grafarvogur. Fyrir tniðju er Foldahverfi en hægra megin við það
sjást framkvæmdir við Hamrahverfi, sem eru komnar töluvert lengra
á veg en þegar þessi mynd var tekin á síðasta sumri. Brekkuhverfi
verður loks hægra megin við Foldahverfi.
Söluskatturinn hækk-
ar matvæli um 6%
Þýðir launahækkanir í október, segir
Ásmundur Stefánsson forseti ASI
ÁÆTLUN hinnar nýju ríkis-
sljórnar um söluskatt á matvæli,
mun, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, leiða til um 6%
hækkunar matvælaverðs. As-
mundur Stefánsson forseti
Alþýðusambands Islands kvaðst
í samtali við Morgunblaðið
harma þessar ráðstafanir, en
hins vegar hlytu þær að leiða til
launahækkana i október.
Ásmundur sagði Alþýðusam-
bandið hafa mótmælt þessari
skattlagningu, enda bitnaði hún
harðast á þeim sem við kröppust
kjörin byggju. Væri það þvert á þá
viðleitni verkalýðshreyfingarinnar
að styrkja stöðu þeirra, sem tekju-
lægstir væru.
Asmundur kvað söluskattinn
hafa afskaplega truflandi áhrif,
bæði á samskiptin við ríkið og
samningsforsendur. „Það var fyrir-
séð að verðlag færi fram yfir rauða
strikið svokallaða, þannig að þessi
hækkun kemur öll til viðbótar.
Framfærsluvísitalan hækkar strax
í júlí, en launin ekki fyrr en í októ-
ber. Fram að því verða launþegar
að þola þetta bótalaust," sagði Ás-
Bifreiðaskatturinn sem ríkis-
stjórnin ætlar að leggja á mun
varlega áætlað hafa í för með
sér að meðaltali um 4000 króna
útgjaldaaukningu árlega fyrir
bileigendur, að sögn Jónasar
Bjarnasonar, formanns Félags
íslenskra bifreiðaeigenda. Hálft
gjald verður innheimt á þessu
ári.
Ríkisstjómin áformar á þessu ári
að ná inn 235 milljónum króna með
bifreiðaskattinum en 610 milljónum
mundur.
Ásmundur taldi mun eðlilegra og
rökréttara að sækja þá fjármuni
sem til þyrfti í vasa þeirra sem
meira ættu og að ljóst væri að í
skattakerfínu gengju fyrirtækin of
létt frá borði.
króna á næsta ári. Gjaldið verður
4 krónur á hvert kíló bifreiðar en
10.000 krónur fyrir allar bifreiðir
þyngri en 2500 kíló.
FÍB mótmælti þessari tegund
skattheimtu þegar fréttist af hug-
myndum um hana í stjómarmynd-
unarviðræðunum og telur hana vera
nokkurs konar fasteignaskatt á bif-
reiðir og hafa í för með sér aukna
verðbólgu. „Okkur líst mjög illa á
þetta", sagði Jónas Bjamason.
Bifreiðaskattur:
Að meðaltali 4000
krónur á bifreið
FRA SJ0NVARPSST0D
SEM VIU 0G
FRAMKVÆMIR!
RUMID BRENNUR
Burning bed.
Bandarísk spennumynd. Farrah
Fawcett hlaut Emmy -verðlaunin fyrir
frábæran leik í þessari mynd.
MICKEY AND MAUDE
Skemmtileg og vel leikin
gamanmynd Blake Edwards með
Dudley Moore, Amy Irving og Ann
Reinking í aðalhlutverkum.
HEFNDIN
Act of vengeance.
Hörkuspennandi mynd með Charles
Bronson og Ellen Burstyn. Fjallar
um leit foreldra að morðingja
dóttur þeirra.
STOÐ-2
-núertœkifœrið.
Heimilistæki hf
Sætúni8 Sími 621215
Við erum sveigjanlegir í samningum.
KÖNNUÐURNIR
Explorers
Ævintýramynd um unglinga
semnátökumátækninni
ogferðast umgeiminn.
MEDSTÍL
Rómantísk gamanmynd með George
Segal og Glendu Jackson.
Sýnd 9. júlí.
STJÖRN usntío
StarWars.
Stórmyndinvíðfræga.
Sýnd 10. júlí.
ADAYIN THE DEATH
0FJ0EEGG
Bresk mynd með Alan Bates og Janet
Suzmann. Sýnd 16. júlí.
LADYHAWK
Bandarísk mynd sem gerist á miðöld-
um.
Sýnd 23. júlí.
BETWEEN THE LAUGHTER
Bandarísk mynd sem fjallar um líf grín-
istans Ernie Kowacs.
Sýnd 25. júlí.
AVIAT0R
Bandarísk mynd frá 1985 með Christ-
opher Reeve og Rosanna Arquette.
Sýnd 30. júlí.
BEACH B0YS25ÁRA
Hljómleikar á Hawaii í tilefni afmælis
hljómsveitarinnar. Með Beach Boys,
Ray Charles, Glenn Campell o.fl.
FJÖLBREYTTIR
0GFRJEÐSLU-
ÞJETTIR:
LUCYBALL
Heimsfrægirvinsælirskemmtiþættir.
Sýndir á laugardagskvöldum.
G0LFÞÆTTIR
á laugardögum.
VINSÆLDALISTINN
Öll vinsælustu myndböndin sýnd á
sunnudögum kl. 12.
ÞÚSUNDV0LT
Þungarokk eftir hádegi á sunnudögum.
Sl-MÓTIÐ 1987
Islenska knattspyrnan þriðjudaga og
föstudaga.