Morgunblaðið - 27.11.1987, Blaðsíða 4
4 C
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987
FerAabransinn er lokkandi at-
vinnugrein. Hann veitirtœkifæri
til að vinna lifandi starf, sjá heim-
inn og kynnast framandi þjófium.
Hann er í uppbyggingu á íslandi
og góð atvinnutækifæri ættu að
verða í boði fyrir vel menntað
fólk f framtíðinni. Enda leynir
áhugi islendinga sárekki. Um 180
manns sóttu kynningarfund um
hótel- og ferðamálaskólann
Hosta f Leysin með Semonite,
skólastjóra, f Reykjavfk fyrir
nokkrum vikum. Nú þegareru 14
manns f námi f hótelstjórn í Sviss
— 9 f Luzern og S f Leysin. 11
íslendingar leggja stund á ferða-
mál í Leysin.
Sviss hélt upp á 200 ára ferða-
málaafmæli sitt í ár. Það getur því
státað af langri reynslu í ferðaiðn-
aði og er þekkt fyrir góða þjónustu.
Samtök svissneskra hóteleigenda
stofnuðu fyrsta hótelskóla heims,
Ecole Hoteliere, í Lausanne 1893
til að þjálfa fólk í hótel- og veitinga-
hússrekstri. Skólinn er þekktur um
allan heim og próf þaöan þykir
öruggur gæðastimpill. Þar er
kennt á frönsku og meirihluti nem-
enda eru Svisslendingar. Samtök
svissneskra hótel- og veitinga-
hússstarfsmanna stofnuðu þýsku-
mælandi skóla, Schweizerische
Hotelfachschule, í Luzern árið
1909. Námið og kröfurnar þar eru
svipaðar og í Lausanne. Þýsku- og
frönskumælandi nemendum hefur
því gefist kostur á fyrsta flokks
kennslu og þjálfun í hótelrekstri í
Sviss í áratugi. Enda er ekki óal-
gengt að Svisslendingar séu í
toppstöðum á fimm stjörnu hótel-
um út um allan heim.
Tortryggni fyrst í garð
enskumælandi skóla
Hótel- og ferðamálaskólar í
Sviss eru nú orðnir þó nokkuð
margir. Samtök hóteleigenda við-
urkenna 11 til viðbótar við gömlu
skólana tvo. Þar á meðal er Belvo-
irpark, þýskumælandi hótelskóli í
ZÚurich, Vieux Bois, frönskumæl-
andi í Genf, og Les Roches,
enskumælandi í fjallabænum Bluc-
he-Sierre. Skólarnir í Zurich og
Genf reka báðir veitingastaöi sem
eru opnir fyrir almenning þar sem
nemendur fá þjálfun í matargerð
og þjónustu. Samtökin viðurkenna
einnig enskumælandi hótel- og
ferðamálaskóla í Chur og þýsku-
mælandi ferðamálaskóla í Zurich.
Enskumælandi skólar byrjuðu
að skjóta upp kollinum fyrir sex til
sjö árum. Hosta var meðal þeirra
fyrstu. „Það var fyrst sterk and-
staða gegn okkur,“ sagði frú
Semonite, annar eigandi og rekstr-
arstjóri Hosta. „Samtök hóteleig-
enda óttuöust að nýju skólarnir
væru lakari en hinir gömlu og
myndu draga úr virðingunni sem
svissnesk hótelmenntun nýtur.
Nýju skólarnir eru að sjálfsögðu
mismunandi góðir og nokkur leið-
inda atvik hafa átt sér stað í
sambandi við þá.“ Einum skóla var
til dæmis lokað af því að nemend-
um var leyft að vinna án atvinnu-
leyfa og annar varð gjaldþrota. „En
við stefnum að því að halda háum
„standard". Það borgar sig fyrir
skólana og nemendurna. Og sam-
tökum hóteleigenda er ekki lengur
í nöp við okkur. Þeir hafa séð við-
skiptamöguleikana í sambandi við
enskumælandi skóla og reka nú
skólann í Bluche-Sierre."
Enskumælandi hótelskólar í
Sviss hafa gert með sér samtök.
Þau eru enn svo ung og laus í reip-
unum að ekki tókst að hafa upp á
neinum í forsvari fyrir þau. En það
eru þegar fimm enskumælandi
skólar, þar á meðal Hosta, skóli í
Le Bouveret, Chur og Neuchatel,
aðilar að þeim og nokkrir til við-
bótar munu væntanlega ganga í
þau þegar þeir hafa verið reknir í
tvö ár. Marco Monteforte, skóla-
stjóri IHTTI (International Hotel
and Tourism Training Institutes
Ltd.) í Luzern, þar sem 9 íslending-
ar eru viö nám, sagði að skólinn
ætlaði ekki að ganga í samtökin.
Hann er ekki sáttur við reglur sam-
takanna. IHTTI er dótturfyrirtæki
Tourisconsult, það er ráðgjafarfyr-
irtæki í ferðamálum í Basel með
starfsreynslu út um allan heim.
Skóli IHTTI hóf starfsemi í fyrra-
haust. Hann hefur því enn litla
reynslu en nemendur sem ég tal-
aði við eru ánægðir. Þeir geta valið
um tvær brautir, mat og drykk,
sem felur í sér matseld og þjón-
ustu, eöa herbergjasviö, sem nær
til gestamóttöku. Þeir fá innsýn í
báðar brautirnar þótt þeir sér-
mennti sig í annarri. Grunnnámið
í hótelrekstri tekur tvö ár með
starfsþjálfun í 16 vikur í tvö sumur
og hægt er að bæta við sig þriðja
árinu til að fá prófskírteini upp á
hótelstjórn.
Gallabuxur og striga-
skór á bannlista
Bóklegu fögin — ferðamál,
tölvufræði, bókfærsla, tungumál,
sálfræði o.s.frv. — eru kennd í
björtu húsnæði skammt frá lestar-
stöðinni í Luzern. Verklega
kennslan fer fram í Hotel Royal.
Það er nokkurn spöl frá skólanum,
en Luzern er um 160.000 manna
borg. Hótelið stendur á hæð og
hefur stórkostlegt útsýni yfir Vier-
waldstattersee. Nemendurnir
borða og búa í hótelinu.
íslensku krökkunum kom saman
um að skólinn væri strangur, mun
strangari en þau áttu von á. Þau
eru ræst um hálf sjö og eru önnum
kafin fram að kvöldmat og jafnvel
lengur eftir því hvaða skyldum þau
eiga að gegna. Og þá eiga þau
eftir að læra. Skyndipróf eru al-
geng og ætlast til góðrar frammi-
stöðu á þeim. Framkoma,
umgengnisvenjur og snyrti-
mennska eru tekin til greina við
einkunnagjöf. Það má hvorki vera
í gallabuxum né strigaskóm í skól-
anum né matsalnum. Flestir
nemendur þurfa því að byrja á því
að fata sig upp þegar þeir koma
til Luzern. „Hér er stefnt að því
að gera okkur að efnum í góða
hótelstjóra," sagði Árni Sigur-
bergsson, sem byrjaði í skólanum
í febrúar '87. Svissneskir hótel-
skólar eiga það sameiginlegt að
byrja kennsluna frá grunni. Nem-
endur þurfa að sanna reiknings-
kunnáttu með blýanti og blaði áður
en þeir komast í tölvur. Áhersla
er lögð á að þeir þekki öll tæki,
aðferöir og hugtök í hótelrekstri
af eigin reynslu svo þeir skilji
vandamál starfsmanna sinna síðar
meir þegar þeir verða komnir í
stjórnunarstöður. Þeir eru því látn-
ir elda, bera til borðs, búa um rúm,
ryksuga og bóna í verklegu kennsl-
unni. Sigurður Garðarsson, sem
er lærður kokkur og er á fyrsta ári
í Hosta, fann að því að nemendur
þar fá ekki að spreyta sig sem
skyldi í eldhúsinu en hann hældi
kennslunni í framreiðslu í hástert.
Erfitt en gott nám
Hosta var þýskumælandi hótel-
skóli áður enBemonite-hjónin tóku
við honum. Hún var námsstjóri
skólans en hann var áður skóla-
stjóri Leysin American School,
sem er menntaskóli í litla fjalla-
bænum. Það búa um 1.600 manns
að staðaldri í Leysin en um 700
nemendur sækja þar nám í einka-
skólum. Námið í Hosta eru tvö ár.
Nemendur búa í hótelskólanum
fyrsta árið og læra þá undirstööu-
atriði í hótelrekstri. Seinna árið
flytja þeir sig í aðra byggingu og
sækja tíma í bóklegum fögum i
sambandi við hótelstjórn. Sex
Ódýrasti en
fínasti
hótelskóli Sviss
JACQUES Tschumi, hótelstjóri
Beau-Rivage í Lausanne,
stofnaði Ecole Hoteliere,
fyrsta hótelskóla heims, í
gömlu hóteli við Genfarvatnið
fyrir 94 árum. Hann taldi nauð-
synlegt að kenna fólki hótel-
stjórn svo svissnesk hótel
gætu boðið upp á almennilega
þjónustu og ferðaiðnaðurinn í
landinu gæti dafnað. Skólinn
varð strax þekktur og þykir
enn hinn fínasti f heimi. Færri
en vilja hafa löngum komist
að. Um tíma vartfu ára bið-
listi i skólann en nú eru tekin
inntökupróf í hann og 90 bestu
komast að.
Skólinn flutti fyrir nokkrum
árum í nýtt húsnæði fyrir ofan
Lausanne. Þar eru velbúnar
skólastofur á tveimur hæðum,
matsalir, bókasafn, bar og setu-
stofur á einni hæð og kennslu-
eldhús í kjallara. Tæplega 500
nemendur frá 33 löndum eru í
skólanum og pláss fyrir 200 í
heimavist við hlið hans.
„Við stefnum að því að halda
skólagjöldum eins lágum og við
getum til að gefa sem flestum
tækifæri til að stunda þetta
nám,“ sagði Peter Barakat, að-
stoðarskólastjóri. „Ætli við séum
ekki ódýrasti einkaskólinn í
Sviss." Hvert námskeið í skólan-
um, sem stendur í fimm mánuði,
kostar um 10.000 sv. franka
(26.000 ísl. kr.). Heimavist í þann
tíma kostar 2.250 sv. franka
(58.500 ísl. kr.).
Nemendur í hótelstjórn þurfa
aö taka námskeið í mat og drykk,
þjónustu, hótelrekstri og hótel-
stjórn. Krafist er fimm mánaða
starfsreynslu í þremur fyrr
nefndu fögunum eftir hvert nám-
skeið. Námið tekur því um þrjú
og hálft ár. Skólinn býður einnig
upp á styttra nám í hótelrekstri
Elsti hótelskóli heims flutti fyrir nokkrum árum f þessi húsakynni.
á mismunandi sviöum. Kennslan
fer fram á frönsku.
Megnið af nemendum Ecole
Hoteliereru Evrópubúar. „Ég hef
starfað hér í 29 ár og man eftir
10 íslenskum nemendum á þeim
tíma," sagði Barakat. „Námið
miðast við að þjálfa stjórnendur
sem þekkja starf undirmanna
sinna. Við útskrifum ekki fullfæra
kokka. En við ætlumst til að
nemandi frá okkur kunni til dæm-
is að búa til bearnaise-sósu svo
að hann viti þegar hann er orð-
inn eldhússtjóri að það er hægt
að elda sósuna með 100 grömm-
um af smjöri þótt matreiöslu-
maðurinn Jians noti alltaf 200
grömm. Hann á að geta sagt
honum að draga úr kostnaði
með því að minnka smjörið og
ef kokkurinn er með múður þá á
hann að reka hann."
Barakat er sjálfur fæddur og
uppalinn á hóteli. Hann útskrif-
aðist frá skólanum í Lausanne
árið 1955 og byrjaði að kenna
þar þremur árum síðar. Hann
sagði að um 16% nemenda skól-
ans kæmu frá hótelfjölskyldum.
„Gæði nemendanna hafa aukist
síðan við fórum að gefa inntöku-
próf," sagði hann. „Þau prófa
getu nemenda í frönsku, reikn-
ingi og bókfærslu, almenna
þekkingu þeirra og framkomu.
Tölva raðar þeim niður eftir
frammistöðu og við tökum 90
efstu inn og næstu 90 geta reynt
aftur. Það er mikill munur að
hafa þetta fyrirkomulag, ég átti
orðið erfitt með að segja foreldr-
um að börnin þeirra þyrftu að
bíða í 10 ár eftir að komast inn
í skólann."