Morgunblaðið - 31.12.1987, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1987
53
Blikur á
lofti ferða-
mála
illi hækkkun allra kostnaðarliða
ferðaþjónustunnar hér innanlands.
Hækkanir á söluverði Islandsferða
á árinu 1988 verða á bilinu 15—25%
og segir það meira en mörg orð um
það hættuástand sem nú hefur
skapast. A sama tíma boða flugfé-
lög og ferðaheildsalar í Banda-
ríkjunum, stærsta markaði okkar
erlendis, að hækkun ferða til Evr-
ópulanda verði ekki meiri en 5%,
þó svo að gjaldmiðil! þeirra hafi
fallið enn meira í verði gagnvart
gjaldmiðlum þjóða á meginlandi
Evrópu en raunin er á íslandi. Svip-
aði sögu er að segja af verðlagningu
utanlandsferða frá helstu viðskipta-
löndum okkar í Evrópu og í sumum
tilfellum er ástandið ennþá alvar-
legra þar sem verð utanlandsferða
hefur lækkað. Þetta eru vissulega
ógnvekjandi tíðindi, sem vonandi
hvetja íslenska ferðaþjónustuaðila
til aukins samstarfs um sameigin-
legar aðgerðir til að veijast áföllum,
enda mikið í húfi fyrir þjóðarbúið
í heild. Nauðsynlegt er að taka verð-
lagsmál og verðgrundvöll ferða-
þjónustunnar til nákvæmrar
athugunar, enda býður mér í grun
að ekki hafi í öllum tilfellum verið
stuðst við staðreyndir í þessu tilliti.
Fleiri vandamál blasa við sem
ganga þarf til atlögu við án tafar.
Samgöngnmál
Á sviði samgangna eru einnig
alvarlegar blikur á lofti. Fréttir
berast af versnandi afkomu Flug-
leiða hf. á sama tíma og erlend
flugfélög færast í aukana á flugleið-
unum til íslands. Slíkt þarf ekki að
koma á óvart þegar haft er í huga
að 540.000 farþegar flugu milli Is-
lands og annarra landa á árinu
1987 og í júlímánuði komu 1,500
farþegar til landsins á hvetjum degi
að jafnaði. Jafnvel risarnir í flug-
heiminum renna hýru auga til
markaðar af þessari stærðargráðu.
Þegar við bætist að flugfloti Flug-
leiða stenst engan veginn lengur
samanburð við það sem best gerist
hjá keppinautum félagsins má öll-
um vera ljóst að í óefni er komið.
I þessu sambandi má geta þess að
Arnarflugsmenn virðast hafa rétt
nokkuð úr kútnum og er það vel,
enda að nýju álitið þjóðhagslega
hagkvæmt að tvö íslensk flugfélög
reki millilandaflug frá Islandi. Það
félag er þó á engan hátt betur sett
hvað flugvélakost áhrærir. Hlutur
flugfélaganna af heildartekjum
ferðaþjónustunnar hefur minnkað
jafnt og þétt á undanförnum árum.
Árið 1979 skiptust tekjurnar jafnt
á milli en á árinu 1986 reyndust
fargjaldatekjurnar hafa lækkað í
40% af heild og eru þó duldar tekj-
ur hinna ýmsu greina ferðaþjón-
ustunnar, annarra en flugsins, ekki
taldar með. Útlit er fyrir að þetta
hlutfall muni enn lækka á árinu
1987. Flugleiðir eru tvímælalaust
sá aðili sem um langt árabil hefur
varið mestum fjármunum til land-
kynningar og sölu ferða til íslands,
án tillits til hvaða reikningsaðferð
menn vilja nota. Samfara aukinni
samkeppni af hálfu erlendra flugfé-
laga á flugleiðunum til íslands má
vænta þess að Flugleiðir neyðist til
að eyða meiri fjármunum í sölu
sæta og þá um leið draga úr fjár-
veitingum til almenns kynningar-
starfs um ísland.
Ef þetta verður ein afleiðing er-
lendrar samkeppni á sviði sam-
gangna er ég hræddur um að þeir
hagsmunaaðilar íslensku ferðaþjón-
ustunnar, sem lítið sem ekkert hafa
lagt af mörkum til þessa á sviði
auglýsinga og kyningarstarfsemi
heldur einungis notið arðsins af
fjárfestingu annarra, eigi eftir að
vakna upp við vondan draum og
horfast í augu við mikið tómarúm.
Þessir aðilar eru alltof margir og
tími til kominn að þeir axli sínar
byrðar og reiði fram fjármuni, sem
nýta má sameiginlega í þágu at-
vinnugreinarinnar. Slíkt sameigin-
legt átak verður að vera eitt af
forgangsverkefnunum á árinu
1988.
Þegar rætt er um samgöngumál
er mér einnig bæði ljúft og skylt
að geta um opnum flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar, sem reynst hefur mikil
lyftistöng fyrir íslensk ferðamál.
Hún er glæsilegt anddyri okkar við
komu og brottför frá íslandi. Þeir
menn, sem stóðu að byggingu þess
mannvirkis, eiga heiður og þökk
skilið, enda kunna aðilar íslenskrar
ferðaútgerðar vel að meta það
framtak.
í vegamalum miðar stöðugt í
rétta átt. Ég er ekki viss um að
við sem daglega störfum að ferða-
málum gerum okkur alltaf nægjan-
lega vel ljóst hve mikil áhrif bætt
ástand vega hefur haft á framþróun
ferðamálanna. Á þessum vettvangi
hafa verið stigin mörg og stór skref
á fáum árum, sem sparað hafa
ferðaútgerðinni ómældar ijárhæðir.
Við megum gjarnan minnast þess
þegar kvartað er undan illri með-
ferð af hálfu fjárveitingavaldsins,
að fjárfesting í vegagerð, flugvöll-
um og flugstöðvum kemur ekki
síður ferðamálunum til góða en fjár-
veitingar til landkynningarmála.
Á sl. sumri átti ég þess kost að
vera viðstaddur komu og brottför
færeysku bílafeijunnar Norröna á
Seyðisfirði og skoða skipið. Ég gekk
frá borði bæði með aðdáun og öf-
und í huga. Aðdáun á dugnaði
frænda okkar í Færeyjum, sem eiga
og gera út þetta glæsilega skip, svo
og heimamönnum á Seyðisfirði, sem
gert hafa draum að veruleika, en
smávegis öfund yfir því að við ís-
lendingar skulum ekki sjálfir standa
fýrir útgerð farþegaskips. Bílfeijan
Norröna á dijúgan þátt í að auka
hróður Islands sem ferðamanna-
lands.
Hótelmál
Mikil og hröð uppbygging hefur
átt sér stað í þessari grein ferðamál-
anna, sérstaklega í Reykjavík. Því
miður óttast ég að gætt hafi meira
kapps en forsjár á þessum vett-
vangi, sem minnir óþægilega mikið
á ofurkappið við að koma upp fisk-
eldisstöðvum og loðdýraræktarbú-
um um allt land. Ég er ekki
nægjanlega kunnugur rekstrar-
grundvelli tveggja síðartöldu at-
vinnugreinanna til að geta fjallað
um arðsemi þeirra. Á hinn bóginn
veit ég nógu mikið um ferðamál til
að geta fullyrt að ferðamenn munu
ekki standa í biðröðum erlendis til
þess eins að búa hér á nýjum hótel-
um, þó glæsileg séu og vel búin í
alla staði. Góð hótel þykja eðlilegur
og sjálfsagður hlutur í öllum ferða-
mannalöndum ög eru í sjálfu sér
ekki mikið aðdráttarafl ein og sér.
Annað og meira þarf að koma til
ef skapa á þeim rekstrargrundvöll,
þó svo nýting sé góð í 90 daga á
ári. Hótelmenn þurfa að stokka upp
sín spil og veija stórauknum íjár-
munum til sölu- og auglýsinga-
starfa, eins og ég nefndi hér að
framan, ekki síst í þeim tilgangi
að laða hingað erlenda ferðamenn
utan háannatímans.
Verðlækkanir eiga jafn mikinn
rétt á sér á þessu tímabili ársins
og þær eru réttlausar yfir sumar-
mánuðina. Það er einlæg von mín
að hóteleigendur komist klakklaust
í gegnum það erfiðleikatímabil, sem
ég því miður er hræddur um að
þeir þurfi að horfast í augu við inn-
an tíðar.
Lokaorð
Þrátt fyrir þær blikur, sem ég
sé nú á lofti á vettvangi íslenskra
ferðamála og aðvörunarorð mín hér
að framan, fer því víðs fjarri að ég
álíti framfaraskeið íslenskrar ferða-
þjónustu á enda runnið, þó svo að
á móti kunni að blása um sinn.
Raunar á ég alls ekki von á að er-
lendum ferðamönnum muni fækka
á íslandi á árinu 1988. Hinsvegar
er það mín skoðun að þeim muni
fjölga minna en raun hefur orðið á
undanfarin þijú ár. Hið sama hygg
ég að verði upp á teningnum hvað
viðkemur utanferðum Islendinga.
Ferðaþjónustan er orðin einn af
þýðingarmestu atvinnuvegum þjóð-
arinnar og hefur í þjónustu sinni
hæfileikamikið og dugandi starfs-
fólk. Af þessum sökum tekur mig
sárt þegar alþingismenn þjóðarinn-
ar á stundum meðhöndla málefni
atvinnugreinarinnar af meiri léttúð
og skilningsleysi á grundvallarskil-
yrðum fyrir velgengni hennar
heldur en þegar þeir fjalla um mál-
efni annarra atvinnugreina. Þings-
ályktunartillögur eru fluttar á
hæstvirtu Alþingi og lagt til að
mótuð verði ferðamálastefna og
ráðist í framkvæmdir á ýmsum svið-
um. Lög um ferðamál eru samþykkt
og ákveðið hvaða verkefnum Ferða-
málaráð skuli vinna að. Síðan ráðast >*U
sömu aðilar til atlögu við gildandi
lög um fjárframlög til ráðsins og
koma með þeirri aðför í veg fyrir
að mögulegt sé að framfylgja sömu
lögum, hvað þá þingsályktunartil-
lögum velviljaðra alþingismanna,
Ég hefi ástæðu til að ætla að á
næstunni verði lög um ferðamál
tekin til gaumgæfilegrar skoðunar
og alvarleg tilraun gerð til að móta
heildarstefnu um framtíðarupp-
byggingii ferðaþjónustunnar á
Islandi. Það er vel.
Litla skrefið sem ég minntist á
í upphafi þessa pistils hefur reynst
íslensku þjóðinni mikið happaspor
og afdrifaríkara en nokkurn frum- ,
heijanna hefði grunað. Islensk
ferðaþjónusta hefur í þjónustu sinni
um það bil 6.000 einstaklinga við
heilsársstörf og grípur á einn eða
annan hátt ínn í dagleg störf allra
landsmanna. Þeim öllum vil ég
þakka mikið og heilladijúgt framlag
til þjóðarbúsins og ánægjulega sam-
fylgd á árinu sem nú er að kveðja.
Gott og gleðilegt ferðaár 1988.
Stéttasamband
bænda:
Grein upp
úr ára-
mótum
Forystumenn atvinnugreina
og hagsmunahópa hafa jafnan
horft um öxl og fram á veg í
áramótahugleiðingum hér í
Morgunblaðinu. Svo er. enn.
Því miður vantar sjónarmið
bændastéttarinnar í þennan
greinaflokk nú. Vonir standa
hinsvegar til þess að áramóta- ^
hugleiðing frá Stéttarsambandi
bænda berist blaðinu strax upp
úr áramótum.
INDLAND-lPNEPAL
Nú gefst þér kostur á að upplifa Indland. Þú gætir orðið yfir
þig hrifin(n) — eða borin(n) ofurliði af yfirþyrmandi
fjölbreytileika landsins. Hvað sem verður, átt þú aldrei eftir
að gleyma Indlandi. Því að Indland getur heillað þig með
fegurð, töfrað þig með gestrisni, eða ruglað þig með
andstæðum. En framar öllu — Indland umvefur þig dulúð
sinni!
Nepal er sjálfstætt konungsríki undir stjórn Prithvi
Narayan shah hins mikla og er í hjarta Asíu. Staðsett í
hlíðum Himalayafjalla, býður það upp á fjöldan allan af
fallegum vötnum, fjöllum, fossum, hofum, grænum dölum
og fornri menningu.
ð Q f K ð * O
z
p
cc
<
2
Fararstjórn er í höndum
Sigurðar A. Magnússonar
rithöfundar sem
skrifaði m.a. bókina,
Við elda Indlands.
3 vikna ferð og brottför
6. febrúar.
A Ferdaskrifstofan
faiandi
Vesturgðtu 5, Reykjavík simi 622420
r I fl ð CL