Morgunblaðið - 05.03.1989, Blaðsíða 31
fsfHtij iijiiyiiiiiijjpiiTnnwgiwy; »
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 5. MARZ 1989
31
Ivan
Rebroff
spurði frétta af
íslensku veðri
og sagðist ætla
að taka með sér
loðfeld. Hann
hafði á orði að
veðráttan hér
væri eins og
draumur . . .
aldrei að vita á
hverju væri von.
ingjusamur og vitanlega hefur það
áhrif ef manni er vel fagnað." Og
það má segja með sanni að honum
hafi verið vel tekið á íslandi, færri
komust að en vildu. „íslendingar
eru frábrugðnir öðrum áheyrend-
um. Þeir eru vinalegir áheyrendur.
Mér fínnst sem þeir opni hjarta sitt
og sál fyrir listinni af bamslegri
eftirvæntingu . . . og em einlægir
í aðdáun sinni.“
Ef að líkum lætur mun lagaval
hans engan láta ósnortinn. Söngur
hans felur jafnan í sér ólík tilbrigði
mannlegra tilfinninga. Á einu
augnabliki fyllir hann hjörtu áheyr-
enda trega með söng rússnesks sjó-
manns fjarri heimaslóðum en strax
þar á eftir gefur hann gleði og þrótt
með fjörmiklum sígaunasöng. Hann
bregður sér jafnt í gervi drykkju-
mannsins sem kyrjar óblíðar vísur
eða syngur ljúfar ástararíur úr vin-
sælum óperum.
En hvað ætlar hann að leyfa ís-
lendingum að heyra?
„Yfirbragð tónleikanna verður al-
þjóðlegt. Ég mun syngja eitthvað
af mínum gömlu rússnesku söngv-
um en einnig flytja hluta úr ýmsum
þekktum verkum."
Að lokum bar Ivan fyrir kveðju
til vina sinna á íslandi.
Ivan
kemur ásamt
hljómsveit sinni,
Balalaika En-
semble Marc de
Loutchek.
Ferðaskrifstofa stúdenta hefur mikla reynslu og frábær sambönd um allan heim þegar
tungumálanám erlendis er annars vegar. Við útvegum skólavist, dvalarstað og skipu-
leggjum ferðina. Við byggjum á traustum grunni og bjóðum fleiri möguleika en aðrir til
að tengja nám og ferðalög erlendis.
Hjá Ferðaskrifstofu stúdenta þýðir „um víða veröld" nákvæmlega það. Nokkurdæmi:
Enskunám í Bretlandi, Ástralíu, Nýja
Sjálandi, Bandaríkjunum, (rlandi, Möltu
og Kanada.
Þýskunám í Þýskalandi, Sviss og
Austurríki. -
ítölskunám á Ítalíu.
Enskukennslan sem þú ert að leita að. -
Regent School of English. Ætlarðu í nám
þar sem kennt er á ensku? Ferðaskrifstofa
stúdenta hefur umboð fyrir Regent School
of English, þar sem áhersla er lögð á
árangur á skömmum tíma. Námið getur
spannað allt frá almennum byrjendanám-
skeiðum, námskeið sem undirbýr TOEFL
próf sem sker úr um hvort nemendur geta
tileiknað sér námsefni á ensku, til sér-
hæfðs náms sem tekur mið af starfsvett-
vangi, sérfræðinámi o.þ.h.
Frönskunám í Frakklandi, Sviss og
Kanada.
Spænskunám á Spáni, í Argentínu
p
og Mexíkó.
Portúgölskunám í Portúgal.
Sérhæfð enskunámskeið. Enska fyrir við-
skiptamenn. Enska með áherslu á tæknimál.
Enska fyrir þá sem starfa að iðnaði. Enska
fyrir heiIbrigðisstéttirnar o.fl., o.fl.
Cambridge First Certificate — 3ja mán-
aða nám og próf sem nýtur viðurkenningar
um allan heim. Fæst metið sem liður í
námi hér.
Cambridge Proficiency Certificate -víð-
tækt nám, viðurkennt jafnt við nám sem
starf og fæst metið sem áfangi í námi hér-
lendis.
Bjóðum auk þess samsvarandi námskeið í fíeiri tungumálum.
Einkatímar - litlir hópar — stórir hópar? Pú velur. Mikit kunnátta, lítil, engin eða eitthvað
þar á milli? Ferðaskrifstofa stúdenta hefur námið sem hentar. Viltu búa hjá fjölskyldu,
í heimavist eða á eigin vegum? Við finnum lausnina sem þú leitar að.
Við þolum verðsamanburð
FERÐASKRIFSTOFA
STÚDENTA
HRINGBRAUT, SÍMI 16850
öðruvísi ferðir