Morgunblaðið - 29.07.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.07.1989, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29; JÚLÍU989 Líbanon: Israelar ræna Hiz- bollah-foringj a Tilgangurinn talinn sá að fá vestræna og ísraelska gísla framselda Týru í Líbanon. Reuter. ÍSRAELSK sérsveit rændi í gærmorgun einum af foringjum Hiz- bollah-skæruliða í Suður-Líbanon. Að sögn talsmanna Hizbollah komu ísraelarnir á þyrlu fyrir dögun og rændu Abdel Kareem Obeid ásamt tveimur aðstoðarmönnum hans. ísraelar hafa sakað Obeid um að skipuleggja hryðjuverkaárásir inn i Líbanon. um herþotum flogið inn í Lábanon á sama tíma, líkt og um loftárás væri að ræða. ísraelar hafa ekki gefið neina skýringu á mannráninu, en talið er að þeir vilji skipta á honum og gíslum Hizbollah-hreyfingarinnar. Meðal þeirra eru þrír ísraelskir her- menn og 17 vestrænir gíslar. Ekk- ert hefur spurst til ísraelsku her- mannanna frá 1986. Að sögn ónafngreindra heimild- armanna í Líbanon hefur Obeid verið viðriðinn fjölda mannrána og sá hann meðal annars um skipu- lagningu ránsins á bandaríska land- gönguliðsforingjanum William Higgins, sem var rænt í febrúar á síðasta ári þegar hann gegndi störf- um í friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna. Að sögn ísraelska útvarpsins fóru sérsveitarmenn með þyrlu inn í Líbanon, fóru síðan fótgangandi að húsi Obeids, skutu nágranna hans, sem ætlaði að gera Obeid viðvart, með hljóðdeyfðri byssu og tóku for- ingjann í rúminu. Til þess að koma í veg fyrir að til þyrlunnar heyrðist var ísraelsk- ERLENT Reuter Efhilegt svín frá Kína Hópur 140, afar holdmikilla grísa frá Kína flutti búferlum til Bandaríkjanna í vikunni. Eftir útlit- inu að dæma gæti verið um að ræða blendinga hunda og flóðhesta en bandaríska landbúnaðar- ráðuneytið segir að þeir séu hraustari og veijist betur ýmsum sjúkdómum en bandarískir ættingj- ar þeirra, auk þess sem þeir séu ftjórri. A mynd- inni sést fararsljóri hópsins. Nígería lofar að greiða er- lendar skuldir Washinglon. Frá Ivari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. í nýlegu hefti bandaríska viku- ritsins Time eru tólf síður, sér- staklega heftar, þar sem Nígeríu- stjóm auglýsir, að landið muni greiða allar erlendar skuldir sínar áður en langt um líður. Mun þetta eflaust láta vel í eyrum þeirra íslendinga, sem orðið hafa fyrir skakkafollum í skreiðarvið- skiptum við Nígeríumenn. Ríkisstjóm Nígeríu tilkynnir einnig að gripið hafí verið til ráð- stafana til að tryggja lýðræði og einkaframtak í landinu í—náinni framtíð. Auglýsingasíðumar em fagurlega skreyttar með litmynd- um, t.d. frá heimsókn forseta Nígeríu, Ibrahims Babangida, hers- höfðingja og fylgdarliðs hans, til Bretlands fyrir skömmu þar sem Nígeríumönnum var vel tekið af konungsíjölskyldunni bresku. Auglýsingin í Time ber fyrirsögn- ina: “Nígería er aftur komin í gagn- ið“ og er augsýnilega birt í þeim Ibrahim Babangida. tilgangi, að velq'a traust á viðskipt- um við Nígeríu og til að fullvissa menn um, að breytingar séu á döf- inni, sem tryggi, að treysta megi Nígeríumönnum og þarlendum stjómvöldum. Tvær flugvélar sömu gerðar lenda í slysi með skömmu millibili: Krafíst kyrrsetn- ingar DC-10 þotna Washington. Trípon; Reuter. ALÞJÓÐLEG samtök flugfarþega hafa krafist þess að allar DC-10 þotur heims verði kyrrsettar til rannsóknar eftir að tvær slíkar vél- ar hafa faríst á rúmrí viku. Ekki er enn Ijóst hvað olli því að DC-10 þota frá Suður-Kóreu brotlenti í aðflugi að flugvellinum í Trípólí í Líbýu á fimmtudag. Líbýsk útvarpsstöð sagði að líklega hefði verið um mistök flugmanns að ræða. Dale Warren, varaforseti McDonnel Douglas-flugvélaverk- smiðjanna, sagði í gær í samtali við Reuters-fréttastofuna að krafa samtaka flugfarþega um kyrrsetn- ingu DC-10 þotna væri út í hött. „Eg trúi því ekki að nokkrir þeir sem lögsögu hafa í málinu ljái slíku eyru.“ Warren sagði að fyrir flug- slysið í Sioux City 19. júlí hefðu DC-10 þotur heims flogið í samtals átta milljónir stunda án mannskæðs slyss. Talsmenn samtaka flugfarþega segja hins vegar að a.m.k. 17 af 445 DC-10 þotum, sem teknar hafa verið í notkun, hafí farist eða 3,8%. í þeim slysum fórust 720 manns. Til samanburðar segja samtökin að nefna megi að 1,2% Lockheed L- 1011 þotna og 1,5% Boeing 747 þotna hafí farist. Til átaka kom í Seoul í Suður- Kóreu í gær milli óeirðalögreglu og ættingja þeirra sem voru með þotu Korean Airlines á leið til Trípólí. Ættingjamir hugðust efna til mót- mælasetu á flugvellinum í Seoul til að mótmæla litlum upplýsingum af tildrögum slyssins og ónákvæmum fréttum af fjölda látinna. Starfsmaður suður-kóreska sendiráðsins í Trípólí sagði í gær að væntanleg væri rannsóknanefnd til Líbýu til að athuga tildrög slyss- ins en ekkert yrði látið uppi um orsakir þess fyrr en hún hefði veg- ið og metið aðstæður. Sendiráðsstarfsmaðurinn sagði að vegna þoku hefði skyggni verið afleitt í Trípólí þegar slysið varð og flugmaðurinn ekki getað séð lengra en 240 metra. 199 manns voru um borð og fómst 78. Þrír farþeganna em alvarlega slasaðir, 27 til viðbótar liggja enn á sjúkra- húsi en 98 sluppu ómeiddir. 19. júlí fórust 111 manns þegar DC-10 þota flugfélagsins United Airlines fórst við Sioux City í Bandaríkjunum. Orsök þess slyss er sögð vera sprenging í hreyfli. íranskar konur kjósa á skrifstofti ræðismanns írans í Sameinuðu furstadæmunum í gær. Fastlega er búist við ylírburðasigri Rafsanjan- is þingforseta en úrslit verða ekki kunn fyrr en á morgun, sunnudag. Rafsanjani spáð yfírburðasigri í íran: Hvert atkvæði ör í hjarta- stað óvina býltingarinnar - sagði í áróðri íranska sjónvarpsins Nikósíu. Reuter. Forsetakosningar fóru fram í Iran í gær. Iranskir Qölmiðlar spáðu yfírburðasigrí AIis Akbars Rafsanjanis, forseta þingsins. Eini mót- frambjóðandi hans er Abbas Sheibani, 58 ára gamall og nær óþekkt- ur þingmaður. Úrslit kosninganna verða ekki tilkynnt fyrr en á sunnu- dag. Yfírvöld í íran hafa neytt allra bragða til að kjörsóknin verði sem mest. Ali Khameini, fráfarandi for- seti, og þrír aðrir trúarleiðtogar írana hafa lýst því yfír að það sé trúarleg skylda almennings _að greiða atkvæði í kosningunum. Ir- anir fá kosningarétt 15 ára gamlir. 24 milljónir manna em á kjörskrá og undanfarið hafa þeir látlaust verið hvattir til að kjósa með áróðri í útvarpi og sjónvarpi. Tilgangurinn er að sýna að hrifningin á íslömsku byltingunni hafi síst dvínað við lát Ayatollahs Khomeinis, andlegs leið- toga landsins, í síðasta mánuði. „Hvert atkvæði er ör í hjartastað óvina byltingarinnar," sagði í áróðri sjónvarpsíns. Valdamestu menn Irans virðast standa allir sem einn að baki Rafs- anjanis, sem er 54 ára gamall. Stefna Rafsanjanis felst meðal ann- ars í efnahagsumbótum og auknum tengslum við útlönd. Hann hefur einnig tryggt sér stuðning Samtaka íslamskra háskólakennara en þeim samtökum tilheyrir einmitt mót- frambjóðandi hans, Abbas Shei- bani. Sheibani sem er læknir, menntaður í Frakklandi, á sæti á þingi. Samhliða forsetakosningunum eru greidd atkvæði um stjórnar- skrárbreytingar sem auka eiga vald forsetans og afnema embætti for- sætisráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.