Morgunblaðið - 29.07.1989, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 29.07.1989, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1989 'J'}{—f-f" ■> ;:—m'r‘ /'i v : t, 11 ] t, ——t fclk í fréttum SIGLINGAR * A methraða yfír Atlantshafíð Bandaríski milljónamæringurinn Tom Gentry setti nýlega hraðamet þegar hann sigldi á bát sínum yfir Atlantshafið frá New York til Englands. Meðalhraðinn var 48,3 hnútar. Sigl- ingin tók aðeins 62 klst. 7 mín. og 47 sekúnd- ur. Gentry bætti þar með met Riehards Bran- sons um rúmar 18 klukkustundir. Branson lét útbúa fagran verðlaunagrip eftir að hann lauk siglingu sinni árið 1986 og afhenti Gentry hann þegar hann kom til Scilly eyjar sem er undan ströndum Cornwall. HULDA JENSDOTTIR Mun trúlega alltaf starfa fyrir mæður o g börn Eflaust kannast margir við Huldu Jensdóttur en hún hefur veitt Fæðingarheimili Reykjavíkur forstöðu frá stofnun þess, 18. ágúst 1960. Hulda lét af störfum, sem forstöðukona heimilisins, föstudaginn 21. júlí. Blaðamaður leit inn til Huldu á Fæðingarheimilið á mánudag þar sem hún var að ganga frá ýmsum hlutum. Það er heimilislegt um að lit- ast á Eiríksgötunni enda húsið gamalt íbúðarhús sem nú er í eigu Borgarinnar. „Hér hefur verið ýmis starfsemi í gegnum tíðina,“ segir Hulda. „Meðal ann- ars vísir að fæðingardeild og vög- gustofa. Árið 1959 var ákveðið að stofna hér fæðingarheimili og húsinu breytt með það í huga. Átjánda ágúst árið eftir tók heim- ilið til starfa. Fyrstu þrjá tímana, sem heimilið var opið, komu hing- að 5 konur. Þess má til gamans geta að fyrsta konan, sem átti barn hér, var eiginkona síðasta iðnaðarmannsins sem fór út úr húsinu eftir breytingarnar.“ Á fæðingarheimilinu var feð- rum í fyrsta sinn boðið að vera við fæðingu bama sinna og eldri systkinum var boðið að koma í heimsókn. En hvernig kom þessi i i:í VI-SííV 0; > »auoa P Bílverk Víkurbraut 4 Höfn, Hornafirði Lxx.L:Ú:;:Ú:Ú:Ú: Grófinni 8, Keflavík miéáÍMi Muggs, Hólagötu 33, Vestmannaeyjum NISSAN SUBARU Stórbílasýningar laugardag og sunnudag kl. 14.00-17.00 á ofangreindum stöðum. Lánskjör allt að 3 L ári. 3ja ára ábyrgð. Ingwar Helgason ht Sævarhöföa 2 sími 91-674000 - Róttur bíll á róttum stað KRAKKAR A krossfisk- veiðum Stykkishóhni, júlí. Fréttaritari Morgunblaðsins í Hólminum hitti þessa vígreifu krakka í höfninni í Stykkishólmi, nánar sagt á flotbryggjunni góðu og voru þeir með veiðistöngina og fullan poka af krossfiski sem þeir höfðu veitt. „Þetta hefur bara gengið ágæt- lega,“ sögðu krakkarnir og þegar fréttaritari spurði hvers vegna þeir hefðu ekki veitt aðrar tegundir svöruðu þau því að það væri alltaf gaman að prófa nýtt og krossfisk- arnir eru bara fallegir og það hlýt- ur að mega sjóða þá eins og ann- að. „Nei, við erum ekki búin að vera hér lengi, aðeins nokkra stund.“ Þetta verða ábyggilega góðir fiskimenn framtíðarinnar og hver veit nema að þarna sé á ferðinni næsta útflutningsvara og gjaldeyr- isöflun, því það er ekki svo langt síðan farið var að nýta bæði rækju og humar hér á landi og það eru margrar tegundir sjávardýra sem enn er ekki farið að athuga með til matar og útflutnings. Árni FÆST í BLAOASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNL KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.