Morgunblaðið - 02.03.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.03.1990, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B/C ðl.tbl. 78. árg. FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Manntjon í íll- viðri í Evrópu Hamborg. dpa. EKKI færri en 15 manns létust í gær er stormur gekk yfír Evrópu, allt frá Bretlandseyjum suður til Grikklands. Veðurfræðingar telja líkur á því á óveðrinu linni næstu dagana en segja útlitið þó heldur dapurlegt fram eftir næstu viku. Tjón varð einna mest á Bretlandi og í Norður-Frakklandi og Belgíu. Fimm menn létust í Frakklandi og fjórir í Belgíu og fregnir bárust af manntjóni í Austurríki, V-Þýska- landi og á Bretlandi. Þá létust þrír menn í Grikklandi. Flestir þeirra sem létust urðu ýmist undir braki eða tijám sem rifnuðu upp með rót- um í veðurofsanum. Flóðgarðar létu undan í Dan- Sænski Jafiiaðar- mannaflokkurínn: Dvínandi vinsældir Stokkhólmi. Frá Erik Liden, firétta- ritara Morgunblaðsins. FYLGI sænskra jaftiaðar- manna minnkaði stórlega í skoðanakönnunum við stjórn- arkreppuna í landinu. í einni slíkri sem gerð var dagana 29. janúar til 7. febrúar og 12. til 21. febrúar og birt var í gær naut flokkurinn fýlgis 31,5% prósenta kjósenda. í þingkosningunum 1988 greiddu 43,2% kjósenda honum atkvæði sitt. Samkvæmt könnuninni nýt- ur Hægriflokkurinn fylgis 26% kjósenda (en hafði 18,3% í kosn- ingunum). Þjóðarflokkurinn fær 14% fylgi (12,2%), Miðflokkur- inn 11% (11,3%), Kristilegi lýð- ræðisflokkurinn 3,5% (3%), græningjar 7% (3%) og komm- únistar 7% (5,9%). Talsmenn jafnaðarmanna segja að útkoman sé eðlileg í Ijósi stjórnarkreppunnar í síðasta mánuði. Nú þegar ný stjórn hafi verið mynduð sé flokkurinn á uppleið. mörku og einnig hlaust mikið eigna- tjón af í Wales og Suðvestur-Eng- landi. Ferjusamgöngur yfir Ermar- sund lágu niðri og snjókoma jók enn á raunir manna í Skotlandi, Eng- landi og á Norður-írlandi. í Aust- urríki og í suðurhluta Vestur-Þýska- lands mældist vindhraðinn 160 kíló- metrar á klukkustund í verstu hvið- unum. Fjölmargir bæir urðu raf- magnslausir og fólk var_ hvatt til að halda sig innan dyra. í Hollandi olli óveðrið miklu tjóni, skemmdir urðu á íbúðarhúsnæði, landfestar skipa slitnuðu og í Rotterdam tókst gríðarstór hegri á loft og gereyði- lagði tvo aðra er hann skall til jarð- ar. Breskir veðurfræðingar kváðust búast við því að kólna myndi í veðri næstu dagana er lægja tæki víðast hvar í álfunni. Hlýna myndi á ný í næstu viku og snjóa tæki í Ölpun- um. Þó mætti gera ráð fyrir því að naprir vindar lékju um Skandinavíu og Bretland en sunnar í álfunni, allt frá Frakklandi til Júgóslavíu myndi veður verða skaplegt, þurrt og hlýtt. Reuter Liðsmenn Securitate fyrirrétt Réttarhöld yfir 21 liðsmanni Securitate, öryggissveita Ceausescus fyrrum Rúmeníuforseta, hefjast í dag, föstudag. Mennirnir eru sakað- ir um þjóðarmorð og að hafa gefið fyrirskipanir um að vopnavaldi skyldi beitt er alþýða manna reis upp gegn ógnarstjórninni í borg- inni Timisoara þar sem bylting hófst skömmu fyrir jól. Nú er talið að 100 manns hafi fallið í Timisoara en fyrri fregnir hermdu að blóðbaðið hefði verið enn óskaplegra. Myndin sýnir sex af mönnun- um, sem ailir voru háttsettir innan Securitate. Tróbræður beijast á ný í Beirút Beirút. Reuter. SVEITUM kristinna manna laust saman á ný í Beirút, höfuðborg Líbanons, í gær. Lágu 70 manns í valnum er rökkur færðist yfir og draga tók úr bardögunum. Þar með varð að engu vopnahlé er komið var á fyrir hálfum mánuði. Heimildarmenn Reuters- frétta- stofunnar sögðu 30 óbreytta borgara hafa fallið og um 150 manns lágu særðir á götum úti í brennandi íbúð- arhverfum í austurhluta borgarinn- ar. Bardagarnir í gær voru sagðir þeir hörðustu frá því vopnaviðskipti hersveita kristinna hófust á ný í jan- úarmánuði. Fréttamenn er fylgdust með bardögunum úr hæðum er um- lykja borgina sögðu að skriðdrekum, fallbyssum, eldflaugum og sprengju- vörpum hefði verið beitt. Stórar byggingar hrundu til grunna er sprengjukúiur hæfðu þær, eldsúlur lýstu upp kvöldhimininn og barist var hús úr húsi. Bardagarnir hafa kostað 780 manns lífið frá því þeir hófust 31. janúar og um 2.600 manns hafa særst. Shamir Geagea, leiðtogi her- afla kristinna Líbana, sagði í gær að sveitir hans myndu beijast til síðasta blóðdropa gegn liðsafla Michels Aouns. Átökin hófust er Aoun skipaði Geagea að leggja niður vopn, leysa upp hersveitir sínar og viðurkenna þar með yfirráð Aouns í hinum kristna hluta Beirút-borgar. Utanríkisráðherra Frakklands um sameiningu þýsku ríkjanna: Eyða ber tafarlaust óvissu um landamæri Póllands Kohl kanslari hlynntur því að A-Þjóðverjar sæki um að sameinast V-Þýskalandi Vestur-Berlín, Bonn. Reuter, dpa. ROLAND Dumas, utanríkisráð- herra Frakklands, hvatti stjórn- völd I Vestur-Þýskalandi til þess Píslarvottar í plasti Reuter í Kína hafa verið afhjúpaðar bijóst- myndir af 14 hermönnum og herlög- reglumönnum,' sem féllu í atlögunni að andófsmönnum á síðasta ári, og hafa þeir opinberlega verið teknir í tölu píslarvotta. Vakti það athygli, að stytturnar eru úr plasti og líka, að píslai*vottarnir skuli aðeins vera 14 en stjórnvöld halda því fram, að 300 manns hafi fallið á síðasta sumri, þar af helmingurinn her- menn. Eru stytturnar til sýnis í hofi, sem reist var til minningar um Lei Feng, einn af fyrstu dýrlingum kommúnismans í Kína. Námsmönn- unum sem féllu hefur ekki verið sýnd nein opinber virðing. í gær að lýsa yfir því með skýrum og ótvíræðum hætti að ekki verði gert tilkall til pólskra landsvæða eftir að þýsku ríkin tvö hafa sam- einast. Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, lagði í gær til að A-Þjóðverjar sæktu um inngöngu i V-Þýskaland en sá möguleiki á sameiningu er tryggður í stjórnarskrá landsins. Stjórnvöld í Póllandi hafa af því áhyggjur að Þjóðveijar geri tilkall til landsvæða er Pólveijum voru fengin eftir að seinni heimsstyij- , öldinni lauk. Yfirlýsingar Helmuts Kohls, kanslara Vestur-Þýska- lands, í þessu efni hafa þótt óljósar og sýnt þykir að almenningur í Póllandi sé uggandi vegna fyrir- hugaðrar sameiningar þýsku ríkjanna. Alltjent leiða skoðana- kannanir í ljós að fylgi við samein- ingu er hvergi minna í Evrópu og Tadeusz Mazowiecki, forsætisráð- herra landsins, hefur sagt að hann telji ekki tímabært að ræða brott- flutning sovéskra hermanna frá Póllandi. Kohl kanslari sagði á þriðjudag að hann myndi ekki leggjast gegn Skyggðu svæðin heyrðu Þýzkalandi til fyrir stríð ; Sovét- v ríkin V^ékkóslóvakía því að þing bæði Austur- og Vest- ur-Þýskalands lýstu yfir því að landamæri Pólveija yrðu virt. Kanslarinn bætti hins vegar við að þetta yrði ekki unnt fyrr en eftir að kosningar hefðu farið fram í Austur-Þýskalandi 18. þessa mánaðar. Roland Dumas sagði í Vestur-Berlín í gær að stjórnvöld í Frakklandi teldu að vestur-þýska ríkisstjórnin hefði enn ekki stigið skrefið til fulls. Hann gagnrýndi ummæli Kohls og sagði þau ekki skynsamleg. Ekkert væri því til fyrirstöðu að þing beggja þýsku ríkjanna lýstu nú þegar yfir því að í engu yrði hróflað við vesturlanda- mærum Póllands. „Landamærun- um verður ekki breytt," sagði Dumas. „Þetta þarf að staðfesta án tafar og eyða þar með ótta þeim og efasemdum sem kunna að geta af sér óstöðugleika.“ Talsmaður pólsku ríkisstjómar- innar tók í sama streng og sagði síðustu yfirlýsingar Kohls öldungis ófullnægjandi. I fréttaskýringu í pólska sjónvarpinu var minnt á að yfirlýsingar þjóðþinga hefðu ekk- ert alþjóðlegt lagagildi. Kohl kansl- ari ítrekaði í gær andstöðu sína við þá tillögu pólsku ríkisstjórnar- innar að þýsku ríkin tvö og Pólland geri með sér bráðabirgðasamning þess efnis að núverandi landamær- um verði ekki breytt. Þá sagði kanslarinn á fundi með blaðamönnum að hann teldi heppi- legustu sameiningarleið þýsku ríkjanna þá að A-Þjóðveijar sæktu um aðild að V-Þýskalandi. Kveðið er á um þann möguleika í 23. grein v-þýsku stjórnarskrárinnar. Sagði Kohl að með þessum hætti samein- uðust ríkin fljótt og með fullri reisn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.