Morgunblaðið - 02.03.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.03.1990, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1990 -4 Ósló: Ungveijaland: Agreiningur imi brottflutn- ing sovéskra hermanna Ósló Plaza er í hverfi sem nefn- ist Vaterland og var í rúma þijá áratugi í niðurníðslu. Nú rís hver stál- og steypukastalinn af öðrum í hverfinu sem er í miðborg Ósló. Þar eru nú tvær stórar verslanamið- stöðvar og verið er að byggja nýja Indland: Tugir mótmæl- enda drepnir í árás hermanna Srinagar. Reuter. AÐ MINNSTA kosti 29 manns biðu bana í gær er hermenn hó£u skothríð á múslima í Kasmír, sem kröfðust þess að rikið hlyti sjálf- stæði frá Indlandi. Indverska fréttastofan UNI skýrði frá því að hermenn hefðu skotið á mótmælendur í bænum Zakura, skammt frá Srinagar, höf- uðborg Kasmír, og drepið fjórtán manns. Mótmælendurnir voru á leiðinni til Srinigar, þar sem þeir ætluðu að taka þátt í mótmæla- göngu. Hermenn hófu einnig skothríð á mótmælendur í Srinigar og biðu fimmtán manns bana. Sjón- arvottar sögðu að tala látinna gæti verið mun hærri. Múslimar í Kasmír hertu á bar- áttu sinni fyrir sjálfstæði ríkisins um miðjan janúar og síðan hafa um 175 manns beðið bana í átökum við indverska hermenn. íþrótta- og hljómleikahöll sem tekur 11.000 manns í sæti. í hótelinu eru 685 herbergi og svefnpláss fyrir 1.554 gesti. Efst eru 20 svítur; sú stærsta 330 fer- metrar og þar kostar nóttin 35.000 norskar krónur (325 þús. ísl kr.). Auk morgunverðar er innifalið stór- kostlegt útsýni til allra átta yfir Ósló. 550 manns vinna á Ósló Plaza sem er í eigu norsk-sænska fyrir- tækisins Investa. í innréttingum er mikið lagt upp úr samtímalist og fjöldi bara og veitingastaða er á hótelinu. Ekki eru nema nokkrir daga síðan annað hótel var opnað í ná- grenninu eftir endurnýjun. Heitir það Royal Christiania. A skömmum tíma hafa því bæst við 2.000 ný svefnpláss á hótelum í Ósló. Margir óttast að ekki sé markaður fyrir þessa viðbót og spáð er verðstríði. í- i*’; Q:: mmiám ■ Reuter Kosningar í aðsigi Þingkosningar verða í Rússlandi, Hvíta-Rússlandj og Úkraínu á sunnu- daginn. Hér sjást feðgin í Moskvu-borg virða fyrir sér kosningaspjöld frambjóðenda. Búdapest. Reuter. VIÐRÆÐUR um brottflutning sovéskra hermanna úr Ungverja- landi runnu út í sandinn í gær eftir að Sovétmenn höfðu neitað að semja um jafii skjótan brott- flutning og ungversk stjórnvöld hafa krafist. Ungverskir og sovéskir sérfræð- ingar höfðu átt í tveggja daga við- ræðum í Búdapest um brottflutn- inginn og talið var að þeir kæmu sér saman um samning, sem síðan yrði undirritaður 10. mars. „Þeir komust ekki að samkomulagi vegna þess að það var mikill ágreiningur um hvenær brottflutninginum ætti að ljúka,“ sagði ungverska frétta- stofan MTI. Hún hafði eftir Ferenc Somogyi, aðstoðarutanríkisráð- herra Ungveijalands, að ungversk stjórnvöld krefðust enn að sovéski herinn færi sem fyrst, eða í síðasta lagi á næsta ári. Sovétmenn segjast ekki geta fallist á það. Sjálfstæðiskröfur Eistlendinga: Fulltrúaþingið endurskoði sam- þykkt um innlimun Eistlands Moskvu. Reuter. Eistlendingar ætla að leggja áherslu á sjálfstæðiskröfur sínar með því að fara fram á það við sovéska fulltrúaþingið, að sam- þykktin frá 1940 um innlimun Eistlands í Sovétríkin verði tekin til endurskoðunar. Eistneski þingmaðurinn Endel Lippmaa sagði í gær, að reynt yrði að fá þetta mál tekið fyrir á fulltrúa- þinginu þegar það kemur saman í Moskvu 12. og 13. mars og hann upplýsti, að Eistlendingar hefðu þegar stofnað nefnd, sem semja skyldi um sjálfstæði ríkisins við ráðamenn í Moskvu. Sagði hann, að nefndin hefði farið til Moskvu sl. þriðjudag og kynnt Míkhaíl Gorbatsjov, forseta Sovétríkjanna, kröfurnar. Eystrasaltsríkin, Eistland, Lett- land og Litháen, krefjast þess með æ meiri þunga að fá sjálfstæði en öll þijú voru innlimuð í Sovétríkin árið 1940 eftir að Rauði herinn hafði \a.gt þau undir sig. Síðastliðinn þriðjudag ságði eistneski þingmað- urinn Maiju Lauristin, að þingmenn Eystrasaltsríkjanna á sovéska þing- inu ætluðu ekki að taka þátt í ann- arri umræðu en um sjálfstæði ríkjanna. Lippmaa var spurður hvort það væri ekki borin von, að sovéska fulltrúaþingið ógilti samþykktina frá 1940 um innlimun ríkjanna í Sovétríkin. Svaraði hann því til, að í desember hefði það ógilt samning nasista og Sovétmanna frá 1939 en samkvæmt honum voru Eystra- saltsríkin, hluti af Póllandi og Rúm- eníu skilgreind sem áhrifasvæði Sovétmanna. „Við trúum því og treystum, að farið verði að alþjóða- lögum. Það var gert í Namibíu í Afríku og það á að gera í Evrópu einnig,“ sagði Lippmaa. Nýtt kveflyf lofar góðu: Protinblandan platar kvefVeirur London. Reuter. VÍSINDAMENN í Bandaríkjunum hafa fundið nýtt lyf gegn kvefí, að sögn breska vísindaritsins Nature. Er þar um að ræða prótín- blöndu sem þykir lofa góðu en vart verður hægt að gera tilraunir með hana á mönnum fyrr en eftir þrjú til fimm ár. Er því ekki von á því á markað fyrr en eftir mörg ár. Talið er að rúmlega 200 veirur valdi kvefi en um helmingur þeirra eru svonefndar rhinoveirur eða nefveirur. Eru _ þær algengasti kvefvaldurinn. I fyrra var upp- götvað að nefveirur valda kvefi með því að bindast ákveðnu prótíni, ICAM-1, sem er að finna á frumum í ónæmiskerfi mannslíkamans. Nú hefur tekist að framleiða meðalablöndu sem byggist á IC- AM-1 prótíninu. Hefur komið í Ijós við rannsóknir í Connecticut í Bandaríkjunum, að lyfið „platar“ nefveirurnar með þeim afleiðingum að nimlega 80% þeirra bundust því áður en þær komust í tæri við frumur. Þykir lyfið lofa góðu þar sem það er ekki háð ónæmiskerf- inu. Reuter Sheraton-hótelið eftir brunann. Eldurinn barst upp um allar hæðir á örskömmum tíma og máttu margir bjarga sér með því að stökkva út um glugga. Kairó: 16 létust í hótelbruna Kairó. Reuter. AÐ minnsta kosti 16 manns lét- ust í eldsvoða, sem upp kom í Sheraton-hótelinu í Kairó í Egyptalandi í gær. Eru flestir hinna látnu erlendir ferðamenn og lík sumra svo illa leikin, að erfítt er að bera kennsl á þau. Eldurinn kom upp í veitingastað, sem er á jarðhæð og sambyggður hótelinu, og barst þaðan í hótelið sjálft. Var á hvass vindur og því æstist eldurinn skjótt og fór upp um allar hæðir á svipstundu. Er sagt, að allt að 70 manns hafi meiðst í eldinum eða með öðrum hætti en af þeim 16 látnu, sem vit- að var um í gær, voru átta Frakkar og ein finnsk hjón. Sex lík voru óþekkjanleg en fjögurra breskra kvenna var saknað. Mikill matvælaskortur á meðal sovéskra Kirjála Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. SOVÉSK sendinefind er í Finnlandi til að semja um kaup á miklu magni af matVælum. Nefndarmenn segjast reiðubúnir að greiða fyrir þau í gjaldeyri og þykir það benda til þess að þeim sé mjög í mun að samningar náist þar sem Sovétmenn hafa yfírleitt farið fram á jöfii vöruskipti. Talið er að ástæðan sé mikill matvæla- skortur í sovéska sjálfsljórnarhéraðinu Kirjala við landamærin að Finnlandi. hafi miklar áhyggjur af ástandinu hinum megin landamæranna. Þegar Míkhaíl Gorbatsjov Sovét- leiðtogi kom í heimsókn til Finn- lands í október lögðu Sovétmenn til að Finnar og Sovétmenn þyrftu ekki að fá vegabréfsáritanir til að komast yfir landamæri ríkjanna. Finnar hafa hins vegar ekki viljað semja um slíkt. Ástæð- Finnum berast reglulega fregn- ir af matvælaskortinum í Kiijala- héraði í Sovétríkjunum. Þá hafa kiijálskir embættismenn lagt leið sína til Finnlands til að falast eft- ir matvælum þótt til þess þurfi formlegar viðræður milli stjórn- valda í Kreml og finnsku stjórnar- innar. Talið er að finnsk stjórnvöld an er sögð sú að þeir óttist að sovéskir Kiijálar flýji í stórum stíl til Finnlands. Það sem af er árinu hafa Finnar þegar selt meiri matvæli til Sov- étríkjanna en allt árið í fyrra. Matvælaskorturinn í Leníngrad og norðvesturhluta Rússlands hefur ágerst að undanförnu ekki síst vegna þess að Eistlendingar geta nú selt eigin vörur án af- skipta stjórnvalda í Moskvu og vilja ekki selja matvæli til þessara svæða. Fregnir frá Sovétríkjunum herma að margir Leníngrad-búar vilji stöðva orkusölu til Eistlend- inga í hefndarskyni. Hæsta bygging á Norðurlöndum vígð Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins. HÆSTA. bygging Norðurlanda var vígð í gær í Ósló. Þar er um að ræða lúxushótelið Plaza sem er 37 hæðir. ■j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.