Morgunblaðið - 02.03.1990, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 02.03.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1990 13 Lífeyrissjóður sjómanna Yfirlit yfír fjölda lífeyrisþega 1981 til 1989 Yfirlitið er gert 1. des. ár hvert ’81 ’82 ’83 ’84 ’85 ’86 ’87 '88 '89 Ellilífeyrisþegar (þar af undir 65 ára) Ororkulífeyrisþegar Makalífeyrir 176 (0) 52 107 230 (79) 64 115 293 (105) 83 129 325 (115) 97 142 363 (124) 125 162 394 (122) 134 181 441 (145) 147 202 517 (175) 181 221 574 (148) 202 243 Fjöldi lífeyrisþega samtals 335 409 505 564 650 709 790 919 1019 Fjöldi barna sem lífeyrir er greiddur til 128 136 152 170 182 193 192 225 240 andí fjármálaráðherra, Ragnar Arn- alds, fyrir frumvarpi til laga um Lífeyrissjóð sjómanna í neðri deild Alþingis. Meginefni frumvarpsins var lækkun á ellilífeyrisaldri sjó- manna í 60 ár að uppfylltum vissum skilyrðum. í máli hans kom m.a. fram að frumvarpið var flutt vegna yfírlýsingar ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga sjó- manna í febrúar 1981 og að með frumvarpinu væri verið að samræma réttindi sjómanna í Lífeyrissjóði sjó- manna við réttindi sjómanna sam- kvæmt almannatryggingum. Halldór Ásgrímsson, núverandi sjávarútvegsmálaráðherra, hafði framsögu fyrir áliti íjárhags- og viðskiptanefndar neðri deildar Al- þingis og kom fram hjá honum, að nefndin mælti einróma með sam- þykkt frumvarpsins og frumvarpinu var vísað samhljóða frá neðri deild til efri deiidar. Ragnar Arnalds mælti fyrir frum- varpi í efri deild eins og í neðri deild. í máli hans kom fram að frumvarpið væri flutt í samræmi við loforð þáverandi ríkisstjórnar og þeirrar, sem sat á árunum 1978-79. Hann gat þess einnig, að frumvarp- ið fæli í sér umtalsverð hlunnindi, að nokkru til samræmis við þau rétt- indi, sem opinberir starfsmenn hefðu fengið með lögum um breytingu á Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, þar sem þeir hefðu möguleika á að komast á ellilífeyri 60 ára að upp- fylltum vissum skilyrðum. Frum- varpið var að lokinni 3. umræðu samþykkt samhljóða frá efri deild og afgreitt sem lög frá Alþingi í maí 1981. Vegna samninga FFSÍ gaf Þröst- ur Ólafsson þáverandi aðstoðarmað- ur fjármálaráðherra, út yfirlýsingu 4. ágúst 1982 með samþykki fjár- mála- og félagsmálaráðherra þar sem segir m.a. í framhaldi af yfirlýs- ingu ríkisstjómarinnar frá desember 1980: „Ríkisstjórninni er ljóst, að gera þarf sérstakar ráðstafanir til að lífeyrissjóðirnir geti staðið við skuld- bindingar vegna lækkunar á lífey- risaldri sjómanna í 60 ár. Fjármála- ráðuneytið mun beita sér fyrir lausn málsins í samvinnu við sjómenn og útgerðir." Með þeirri lagasetningu sem Ragnar Arnalds þáverandi fjármála- ráðherra vann að og fram náði að ganga í maí 1981 til efnda fýrir loforð þáverandi ríkisstjórnar í tengslum við kjarasamninga sjó- manna var enginn efi í hugum sjó- manna að á ríkisvaldið hlyti sá kostnaðarauki lífeyrissjóðsins að falla, hið háa Alþingi hafði sett lög þar um. Þá var umræðan sem hér að framan getur milli undirritaðs, Ingólfs Sig. Ingólfssonar, Svavars Gestssonar, þáverandi fjármálaráð- herra, og hans aðstoðarmanns, Arnmundar Bachmanns, ótvíræð hvað varðar óútfyllta ávísun, hún skyldi afhent úr ríkissjóði þá kostn- aðarauki lífeyrissjóðsins lægi fyrir. Að lokum Hugmyndir eru nú uppi um til- lögur að breytingu á .lögum um Lífeyrissjóð sjómanna. Ekki hafa komið fram hugmyndir meðal stjóm- armanna sjóðsins um breytingar á þeim rétti er sjómenn öðlast til töku lífeyris sem hér að framan getur. Það er krafa sjómanna til löggjaf- ans, Alþingis, og þá sérstaklega þeirra ráðherra er nú sitja í ríkis- stjóm og áttu aðild að „lausn“ kjara- mála sjómanna sem að framan getur að þeir standi við orð sín og beri ábyrgð á gjörðum sínum sem fylgdi lagasetningu um Lífeyrissjóð sjó- manna í maí 1981. Hann var keyptur háu verði fé- lagsmálapakkinn þegar það er haft í huga að 2 prósentustiga lægra fiskverð frá 1. júlí 1979 auk eftir- gjafar á beinum launahækkunum í skiptum til kaupa á öryggismálum hafði að geyma innantóm orð. Höfundur er formaður Sjómannafélags Reykjavíkur. ÍSLANDSBANKI íslandsbanki hf. kt. 421289-5069 Kringlunni 7, Reykjavík IJtboð bankavíxla 3. flokkur 1990 Útboðsfjárhæð kr. 500.000.000.- 45 - 120 daga víxlar 1. útgáfudagur 20. febrúar 1990 Forvextir nú frá 16,5% - 18,5% Umsjón: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF Ármúla 7, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30 Opnunartími Föstudaga kl. 13-19 Laugardaga kl. 10-16 Aðra daga kl. 13-18 HINN EINIOG SANNI STÓRÚTSÖLUMARKAÐUR BÍLDSHÖFÐA 10 Fjöldi fyrirtækja - gíf urlegt vöruúrval STEINAR- Hljómplötur - kassettur ★ SAUMALIST - Alls konar efni ★KARNABÆR - Tískufatnaður herra og dömu ★ SKÆÐI - Skófatnaður ★ BOGART/GARBO - Tískufatnaður ★ BLÓMALIST - Blóm og gjafavörur ★ HUMMEL Sportvörur alls konar ★ STÚDÍÓ - Fatnaður ★ SAMBANDID - Fatnaður ó alla fjölskylduna ★ MÆRA- Snyrtivörur - skartgripir ★ VINNUFATABÚÐIN - Fatnoður ★THEÓDÓRA Kventískufatnaður ♦ ★ PARTY — Tískuvörur ★ SPARTA- íþróttavörur ★ BOMBEY - Bamafatnaður ★ Verxl. KAREN - Barnafatnaður, undirföt o. fl. ★ SMÁSKÓRINN — Barnaskór

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.