Morgunblaðið - 02.03.1990, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 02.03.1990, Blaðsíða 40
FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Þormóður rammi leigir hús Sigló hf. SAMNINGAR hafa tekist um að Þormóður rammi hf. á Siglufírði taki á leigu verksmiðjuhúsnæði þrotabús Sigló hf., sem fjármálaráðu- neytið keypti fyrir hönd ríkissjóðs á nauðungaruppboði í nóvember síðastliðnum, og annist rekstur rækjuverksmiðjunnar, en Marbakki hf. mun annast sölu afurða. Samningarnir, sem gilda til loka októ- ber, verða undirritaðir í dag. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun Þormóður rammi taka á leigu verksmiðjuhúsnæðið með þeim vélum og tækjum sem fylgdu með húsnæðinu. Þá gerir Þormóður rammi sérstakan samning við Siglunes hf., Marbakka hf., og sjálf- skuldarábyrgðaraðila á kaupleigu- samningi vegna rækjuvinnslutækja, sem eru í verksmiðjunni en til- Skiptahlut- ur hækkar vegna olíu- lækkunar LÆKKUN olíuverðs til skipa um 7,4% hækkar skiptahlut sjómanna um 1%. Þegar olían hækkaði sl. haust lækkaði skiptahluturinn niður í 72%, en hæst komst hann í 76% af afla til skipta. Óskar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambands íslands, sagði að þessi hækkun á skiptahlut sjómanna væri einungis brot af þeirri hækkun sem sjómenn ættu kröfu á, þeir ættu enn eftir að sækja 3% vegna olíuhækkunar. „Það er auðvitað þetta olíudæmi sem brennur fyrst og frerpst á okkur sjómönnum. Við teljum ao eftir það eina skipti sem við sömdum um það, hafi ýmislegt komið í ljós, sem geri það að verkum að olíusamninginn verði að endurskoða," sagði Óskar. heyrðu ekki þrotabúinu, um leigu á tækjunum. Starfsfólk, sem vann hjá Siglunesi meðan það fyrirtæki hafði þrotabú Sigló á leigu, mun hafa forgang að atvinnu við verksmiðj- una. Reykjavík; 951 án atvinnu UM mánaðamótin febrúar- mars var samtals 951 skráð- ur atvinnulaus hjá Ráðning- arskrifstofii Reylq'avíkur- borgar og fjölgaði þeim um 11 í febrúar. A sama tíma í fyrra voru 764 skráðir at- vinnulausir og árið 1988 voru þeir 140. Af þeim 951 sem skráðir voru atvinnulausir um mánaða- mótin eru karlar 578 og konur 373. Öryrkjar á skrá voru sam- tals 58, þar af 35 karlar og 23 konur. A sama tíma í fyrra voru 764 á atvinnuleysisskrá, þar af voru 475 karlar og 289 konur. Árið 1988 voru 140 skráðir atvinnulausir á sama tíma, 96 karlar og 44 konur. Rúmlega heimingur atvinnu- lausra eru verkamenn og versl- unarmenn, eða 528 samtals. Þar af eru verkamenn 266 en verslunarmenn 262. Gæzlan í fólksflutningum Morgunblaðið/Þorkell Miklar truflanir urðu á samgöngum á Austurlandi í vikunni vegna mikilla snjóa og snjóflóða. Dæmi eru um fjögurra til fimm sólarhringa bið fólks eftir fari frá Egilsstöðum til Neskaupstaðar og töluverða hrakn- inga. Aðfaranótt síðastliðins fimmtudags flutti varðskipið Ægir fjölmargt fólk frá Eskifirði til Norðfjarðar og voru því margir fegnir enda biðin eftir heimkomu orðin löng. I Neskaupstað var umferð um innsta hluta bæjarins bönnuð um tíma vegna snjóflóðahættu og kom þá sjóleiðin milli bryggjanna að góðum notum. Jón Þór á Ormsstöðum segir, að í vikunni hafi hann í fyrsta skipti farið á togara í fjósið. Sjá frásögn og myndir frá Neskaupstað á bls. 4 og 5. Tekist á um staðsetn- ingn aflamiðlunar STARFSEMI nýskipaðrar afla- miðlunar fer hægt af stað, en enn hefur ekki tekist samstaða um hvar hún skuli vera til húsa. Landssamband íslenskra útvegs- manna leggur á það áherslu að Fjárhagsvandi Álafoss til athugrmar hjá ríkissljórn: Staðan verri en gert hefiu* verið ráð fyrir SKÝRSLA um fjárhagsvanda Álafoss hf. var lögð fram á ríkissljórnar- fundi í vikunni. Meira tap varð af rekstrinum á síðastliðnu ári en reiknað hafði verið með og fjárhagsstaðan verri en gert hefur verið ráð fyrir í áætlunum. Starfshópur á vegum iðnaðar- og fjármálaráðu- neyta og viðkomandi lánastofnana er nú að skoða málið nánar í fram- haldi af umfjöllun í ríkisstjórn. Ólafur Ólafsson, forstjóri Álafoss hf., sagði að í haust hefðu stjóm- endur Álafoss tilkynnt Atvinnu- tryggingasjóði og Hlutafjársjóði að staða fyrirtækisins væri verri en komið hefði fram í fyrri upplýsing- um og í framhaldi af því hefðu sjóð- irnir ákveðið að bíða með fyrir- greiðslu sem áður hefði verið sam- þykkt að veita Álafossi. Síðan hefði fyrirtækið verið að skoða stöðuna. Hann sagði að mesti vandi fyrirtæk- isins væri að eiga mörg þúsund fermetra í húseignum sem það hefði ekki þörf fyrir og gæti ekki staðið undir. Þá hefði rekstrarumhverfið verið fyrirtækinu óhagstætt og þó það hefði lagast mikið væri það ekki nóg. Ólafur sagði að ekki væri búið að gera upp ársreikninga síðastliðins árs og sagðist ekki geta greint frá því hve tapið væri mikið. Þó væri Ijóst að afkoman væri mun verri en reiknað hefði verið með. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra sagði að sú endurskipulagning á fjárhag Álafoss sem ákveðin var og framkvæmd á síðasta ári hefði ekki skilað þeim árangri sem að hefði verið stefnt. „Það má vera að á því séu ýmsar skýringar, með- al annars að sala og verð hafi enn ekki náð því marki sem þarf til að þetta geti gengið. En hvernig sem því er farið eru þarna enn veruleg fjárhagsleg vandamál og greinilegt að fyrirtækið getur ekki enn staðið við fjárskuldbindingar sínar til langs tíma. Þessi vandamál hefur stjórn Álafoss kynnt ríkisstjórninni og við höfum látið fara yfir þau með starfsmönnum nokkurra ráðu- neyta og endurskoðendum fyrir- tækisins,“ sagði Jón. Iðnaðarráðherra vildi ekki segja til um hvort til greina kæmi að ríkis- sjóður kæmi fyrirtækinu til aðstoð- ar. „Málið er til rækilegrar athug- unar hjá ráðuneytunum sem þarna koma helst við sögu, iðnaðar- og fjármálaráðuneytum, og hjá lána- stofnunum fyrirtækisins, bæði sjóð- um iðnaðarins og viðskiptabönkum. Framkvæmdasjóður kemur líka við sögu sem eigandi að stórum hluta,“ sagði Jón Sigurðsson. aflamiðlunin verði staðsett í húsakynnum LÍÚ en Verka- mannasamband íslands tekur slíkt ekki í mál. Sigurbjörn Svav- arsson, formaður stjórnar afla- miðlunarinnar, sagði I samtali við Morgunblaðið í gær að á firndi stjórnarinnar í gær hefði honum verið veitt heimild til þess að ganga til viðræðna við Vilhjálm Vilhjálmsson um ráðningu í stöðu framkvæmdastjóra aflamiðlun- ar. Vilhjálmur er starfsmaður LÍÚ og hefiir hann haft umsjón með siglingum fískiskipa. „Ég og væntanlegur fram- kvæmdastjóri munum fyrir mánu- daginn koma með tillögur að hús- næði fyrir starfsemi aflamiðlunar- innar og leggja fram grófa fjár- hagsáætlun á fundi á mánudag,“ sagði Sigurbjöm. Hann sagði að í samráði við Vilhjálm yrði síðan ráð- inn annar starfsmaður. Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, sagði í gær að hann legði mikla áherslu á að aflamiðlunin yrði til húsa hjá LÍÚ: „Skipunum hefur verið stjórnað héðan í 40 ár. Hér er öll aðstaða fyrir hendi, skrif- stofa, sími, tölvur og starfsfólk. Mér finnst ekki nokkur ástæða til þess að fara að setja upp eitthvert bákn úti í bæ, þegar þessi aðstaða er fyrir hendi hér. Við ákváðum á stjórnarfundi LIÚ í dag að bjóða aflamiðluninni okkar aðstöðu, sem hefur verið notuð fyrir þetta í mörg ár, og aðgang að starfsfólki okkar sem unnið hefur við þetta. Þetta bjóðum við upp á endurgjaldslaust. Við lítum bara á þetta sem þjón- ustu við okkar menn. Ég legg áherslu á að þótt við bjóðum þetta þá verður það eftir sem áður stjórn þessarar aflamiðlunar sem ræður því hvað flutt er út, hveijir fá leyfi til útflutnings og þar fram eftir götunum," sagði Kristján. Morgunblaðið hefur upplýsingar um að átökin um það hvar aflamiðl- unin verði staðsett séu hörð: Guð- mundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands íslands, segir að VMSÍ taki ekki í mál að hún verði til húsa hjá LÍÚ. Sjávarút- vegsráðuneytið hefur boðið fram húsnæði auk LÍÚ, svo og Fiskifélag íslands og Samtök fiskvinnslu- stöðva. Sigurbjörn kvaðst eiga von á því að ákvörðun um staðsetningu aflamiðlunarinnar yrði tekin á fund- inum á mánudag. Heimildarmenn Morgunblaðsins telja að Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, sé því mjög andvígur að starfsemm verði annað hvort í húsakynnum LÍÚ eða sjávar- útvegsráðuneytisins. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann teldi eðlilegt að afla- miðlunin yrði til húsa í sjávarút- vegsráðuneytinu, þó hann teldi í sjálfu sér ekkert höfuðatriði hvar hún yrði staðsett. „Það er gífurlega mikið atriði að enginn einn aðili ráðskist með þetta. Það má kannski vísa til þess sem segir í leiðara Morgunblaðsins í dag: Útgerðar- menn verða náttúrlega að gera sér grein fyrir því að þeir eiga ekki fisk- inn, heldur á þjóðin öll fiskinn," sagði forsætisráðherra. Málið er á viðkvæmu stigi, þar sem talið er að náist ekki sátt um staðsetninguna muni Verkamanna- sambandið kalia fulltrúa sinn í stjórninni út. Slík ráðstöfun kallar svo að öllum líkindum á það að utanríkisráðherra afturkalli sam- þykki sitt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.