Morgunblaðið - 02.03.1990, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.03.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1990 11 Þorgrímur Starri Björgvinsson „Brýnast í dag er að lækka verulega verð til neytandans á þessum lífsnauðsynjum, þ.e. landbúnaðarvörunum, án þess að til þurfi að koma kollsteypa í hin- um dreifðu byggðum landsins.“ uninni megi ekki mörgu hagræða, sem leitt gæti til verulegrar verð- lækkunar til neytenda, án þess að þessi bráðnauðsynlega þjónusta yrði á nokkurn hátt verr af hendi leyst. Það er eins og það gangi guðlasti næst, að álíta að allt það kerfi sé svo fullkomið að þar megi ekkert betur fara. En eitt vildi ég segja Þórólfi, að það þarf engan lektor í hagfræði til að segja manni það, að þáttur milliliðanna, sem hann kallar svo, sé síður mikilsverður en starf hráefnisframleiðandans. Þetta vita nú bæði ég og aðrir þó þeir hafi ekki lengi á skólabekk setið. Þá er og annað sem ég vil andmæla í grein Þórólfs. Hann telur rangt af mér að telja kostnaðarlið bóndans í verðlags- grundvelli til hlutar þjónustu og verslunaraðila í verðmynduninni, hér sé aðeins um að ræða mat á kostnað- arliðum sem bændur beri sjálfir ábyrgð á. Nú liggur það í augum uppi, að um leið og landbúnaðurinn þróaðist frá hjarðbúskap, sem gilti um aldir, til ræktunarbúskapar og vélvæðingar hlutu þessir kostnaðarliðir að koma til sögunnar. Þetta er augljóst mál og ætti ekki að vefjast fyrir hagfræð- ingum. Bóndinn verður því í dag nauðugur viljugur að kosta þessu til og hefur þar nauðalítið svigrúm til eða frá, það get ég borið um sem bóndi. Um verðlagningu þessara þátta ræður bóndinn engu. Viðmið- unarbúið er nauðsynlegur hlutur í stjórnun landbúnaðar og grundvöllur undir ákvörðun um kaup bóndans. Hvernig til tekst svo hveiju sinni að meta að magni og verði þau að- keyptu föng viðmiðunarbúsins er svo önnur saga, en rétt er að taka fram varðandi það vandasama mat, að þar höfum við bændur ekki tekið okkur sjálfdæmi. Ég tel því að þessi skoðun lektorsins sé tómt rugl, og vanþekk- ing hljóti þar að liggja að baki. Landbúnaðarmálin eru nú mjög til umræðu og lætur þar margur ljós sitt skína sem veður þó í myrkri vanþekkingar í þeim málaflokki, því miður. Brýnast í dag er að lækka verulega verð til neytandans á þess- um lífsnauðsynjum, þ.e. landbúnað- arvörunum, án þess að til þurfi að koma kollsteypa í þinum dreifðu byggðum landsins. Ég sé ekki að skrif lektorsins geti talist slíku mark- miði til framdráttar. Ég má vel við una hvað mitt framlag varðar, meðan ég fæ ekki betur rökstudd andmæli en þau sem fram koma hjá lektorn- um. Hrússi greyið stendur fyrir sínu. Upp á hann er ekkert að klaga. Höfundur er bóndi í Garði í Mývatnssveit. JOHNSON &WALES ^UIMIVERS ITY Hyggur þú ú f ramhaldsnám? Fulltrúi frá Johnson og Wales verður með kynningarfund á Hótel Holiday Inn, Sigtúni 38, þann 4. mars nk. kl. 15.00 Johnson og Wales er einn af virtustu viðskiptaháskólum Banda- ríkjanna og býður m.a. upp á nám í eftirtöldum námsgreinum sem allar teljast lánshæfar hjá LIN: A. S. „Hotel-Restaurant Management“ B. S. „Hospitality Management11 B.S. „Hotel-Restaurant/Institutional Management" B.S. „Travel-Tourism Management“ B.S. „Retail Mercandise Management" M.S. „Hospitality Administration“ Æ JOHNSON &WALES ~ UIMIVERSITY Providence, Rhode Island, USA r GALLERÍ BORG hefur nú flutt starfsemi sína úr Austurstræti 10 yfír götuna og opnar í dag kl. 16 nýtt gallerí í Austurstræti 3. Þar sýnum við og seljum ýmiskonar listaverk eftir marga af fremstu listamönn- um þjóðarinnar; grafík-, vatnslita- og pastelmyndir auk olíu- og keramikverka. Opið verður á virkum dögum milli kl. 10 og 18 og laugardaga milli kl. 10 og 14. í tilefhi opnunarinnar bjóðum við viðskiptavinum okkar og öðrum vinum að heimsækja okkur í dag milli kl. 16 og 18, skoða sig um og þiggja léttar veitingar. Starfsemi okkar í Pósthússtræti 9 verður að sjálfsögðu óbreytt. Með kveðju, éraéÍ&LÓ BORG v/Austurstræti. Sími 11664.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.