Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C 133. tbl. 78. árg. FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Reuter Námumenn handtaka ungan Rúmena í miðborg Búkarest í gærdag. Erlendir fréttaritarar í borginni sögðu ástandið líkjast „mannaveiðum“ er sótsvartir námumenn vopnaðir kylfúm eltu uppi grunaða stjórnarandstæðinga og misþyrindu þeim áður en þeir voru dregnir á braut. Öryggissveitir námamanna ofsækja stjórnarandstæðinga í miðborg Búkarest: Leiðtogafundur EFTA: Jafiiræði skilyrði samstarfs við EB Gautaborg. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaösins. I YFIRLÝSINGU leiðtoga aðildarríkja Fríverslunarbandalags Evr- ópu (EFTA), sem birt var að Ioknum fúndi þeirra í Gautaborg í gær, er lögð áhersla á mikilvægi fyrirhugaðra samninga við Evr- ópubandalagið (EB) um sameiginlegt efnahagssvæði bandalaganna tveggja. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra sagði að fúnd- urinn hefði heppnast mun betur en áhorfðist og samstaða hefði náðst um mörg mikilvæg atriði. í yfirlýsingu leiðtoganna er fagnað þeim árangri sem EFTA- ríkin hafa náð með samstarfí sínu í 30 ár. Áhersla er lögð á framlag bandalagsins til aukinnar velmeg- unar, efnahagslegs stöðugleika og mikils hagvaxtar i aðildarríkjunum. Meginatriði yfirlýsingarinnar fjalla um væntanlega samninga við EB um evrópska efnahagssvæðið (EES). Það skilyrði er sett fram að bæði bandalögin hafi jafnan rétt til frumkvæðis innan EES og teknar verði „raunverulegar sam- eiginlegar ákvarðanir". í frétt breska dagblaðsins The Daily Telegraph segir að af hálfu EB hafi' skilyrði þessu verið hafnað þegar í gærkvöldi. Kveðst fréttarit- ari blaðsins hafa fyrir þessu traust- ar heimildir og vitnar til ónefndra embættismanna innan EB. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra sagði að á þessum fundi hefðu leiðtogarnir náð sam- stöðu um ýmis ágreiningsmál sem hefðu valdið deilum innan EFTA undanfarið. Samkomulag væri um að styrkja stofnanir bandalagsins svo sem þyrfti og standa að sameig- inlegum dómstól um ágreiningsmál sem upp kynnu að koma innan Öll von útiiirn að lýðræði verði komið á í Rúmeníu — seg’ir fyrrum forsetafi*ambjóðandi stjórnarandstöðunnar Búkarest. Reuter, dpa, The Daily Telegraph. ÞÚSUNDIR námumanna, sót- svartir í framan, vopnaðir kylfúm og með hjálma á höfði, héldu í gær uppi öryggisgæslu í miðborg Búkarest, höfuðborgar Rúmeniu, og börðu á hverjum þeim sem þeir töldu andstæða stjórn Ions Iliescus, forseta landsins. Náma- mennirnir brugðust við ákalli forsetans á miðvikudagskvöld er hann hvatti þá til að sýna stjórn- völdum hollustu með því að brjóta á bak aftur mótmæli stjórnarandstæðinga í miðborg- inni.. Óstaðfestar fréttir herma að sjö manns hafi fallið i mótmæl- unum á miðvikudag, liinum mestu í landinu frá því einræðis- herranum Nicolae Ceausescu var steypt af stóli i desember sl. Námamennirnir fóru í gær í hóp- um um miðborgina og hrópuðu slagorð til stuðnings Uiescu og stjórn hans. Þeir leituðu andófs- manna í húsum í miðborginni, kröfðu vegfarendur um skilríki og handtóku grunaða stjórnarand- stæðinga eftir að hafa barið á mörg- um þeirra. Hermenn höfðu tekið sér stöðu við mikilvægustu byggingar borgarinnar til að tryggja að sagan frá því á miðvikudag endurtæki sig ekki er stjórnarandstæðingar rudd- ust inni í helstu lögreglustöð borg- arinnar og lögðu eld að henni auk þess sem þeir freistuðu þess að ná höfuðstöðvum ríkissjónvarpsins á sitt vald. Iliescu forseti sagði í ávarpi til þjóðarinnar að hægri öflin í landinu hefðu reynt að ræna völd- um í þeim tilgangi að koma á fasísku stjórnarfari. Síðdegis í gær var innanríkisráð- herra Rúmeníu vikið úr embætti en áður höfðu stjórnvöld gagnrýnt framgöngu lögreglusveita í mót- mælunum og sakað þær um að hafa ekki sýnt nægilega hörku. Dagblaðið Ízvestía, málgagn Sovétstjórnarinnar, greindi frá þessum ummælum Lígatsjovs, sem er 68 ára gamall og situr í stjórn- málaráði kommúnistaflokksins. „Flokkurinn og ríkið standa nú frammi fyrir alvarlegri ógnun og verið er að leysa upp ríkjasamband- Óstaðfestar fréttir hermdu að sjö manns hefðu fallið og einstaka skot- hvellir heyrðust enn í gær. Ion Ratiu, sem bauð sig fram gegn Ili- escu forseta í kosningunum í ma- ímánuði og hlaut lítið fylgi, sagði ið. Höldum við áfram að fallast á nýjar tilslakanir kunnum við að glata öllu,“ sagði Lígatsjov. Var hann greinilega að vísa til hug- mynda þeirra sem Gorbatsjov hefur kynnt um grundvallarbreytingar á ríkjasambandinu, sem fela í sér stóraukið sjálfstæði einstakra lýð- í samtali við fíeuíe/’s-fréttastofuna að menn honum hliðhollir innan ríkisstjórnarinnar hefðu tjáð honum að líf hans væri í hættu. Aðspurður kvaðst hann telja að mótmælin á miðvikudag og gæsla öryggissveita námamanna í miðborginni þýddi að öll von væri úti um að lýðræðislegu stjórnarfari yrði komið á í Rúmeníu. velda. Mun hann hafa ítrekað hug- myndir þessar á fundi með forsetum Eystrasaltsríkjanna þriggja fyrr í vikunni. Aldrei áður hafa forustu- menn kommúnistaflokksins gagn- rýnt Gorbatsjov með þessum hætti og þykja þessi ummæli gefa til kynna að harðlínumenn séu teknir að óttast um framtíð Sovétríkjanna. Fyrr um daginn hafði Jasov varn- armálaráðherra Sovétríkjanna boð- að óvænta breytingu á afstöðu stjórnvalda til sameiningar þýsku ríkjanna. Sagði hann að skiiyrði þess að ríkin sameinuðust væri það að Þýskaland yrði aðili að nýju sam- evrópsku öryggiskerfi sem leysti Atlantshafsbandalagið (NATO) og Varsjárbandalagið af hólmi. Fram til þessa höfðu Sovétmenn sagt að þeir vefengdu ekki rétt Pjóðveija til sameiningar, heldur aðeins rétt þeirra til að ákveða einhliða hvar þeir skipuðu sér á bekk í öryggis- málum Evrópu. EES. Forsætisráðherra sagði það hafa komið fram í máli Jacques Delors, forseta framkvæmdastjómar EB, að bandalagið væri tilbúið til að fjalla um ákvarðanir og stjórn EES í samningaviðræðunum en um það hefur EB ekki verið til viðræðu fram að þessu. Sjá fréttir á bls. 22. Kólaskagi: Árásarmátt- ur heraflans ennaukinn Ósló. Reuter. SOVÉSK stjórnvöld halda áfram uppbyggingu og end- urnýjun vopnabúnaðar á Kólaskaga við Norður- Ishafíð þar sem fyrir er mesta vígtólahreiður ver- aldar. Norðmenn hafa nú komist að því að 40 árásar- sprengjuflugvélum, sem áð- ur höfðu bækistöð í Debrec- en í Ungverjalandi, hefúr nú verið komið fyrir á skag- anum. Sprengjuvélarnar geta borið kjarnorkuvopn og eru flestar af gerðinni MiG-27, er sérfræð- ingar Atlantshafsbandalagsins (NATO) nefna „Flogger J.“ „Þessi tegund er fyrst og fremst ætluð til árása á skot- mörk á landi og flugþolið er nóg til þess að hún getur gert árásir hvar sem er í Norður- Noregi,“ segir í yfirlýsingu norsku herstjórnarinnar. Slíkar vélar hafa ekki áður verið á þessum slóðum nema við æf- ingar og telja norsk heryfirvöld að árásarmáttur sovéska her- aflans á Kólaskaga hafi stór- aukist við tilkomu þeirra. Jegor Lígatsjov, leiðtogi sovéskra harðlínukommúnista: Stefíia Míkliaíls Gorbatsjovs ógnun við flokkinn og ríkið Yarnarmálaráðherra Sovétríkjanna boð- ar stefiiubreytingu í Þýskalandsmálinu Moskvu, Strausberg. Reuter. JEGOR Lígatsjov, leiðtogi sovéskra harðlínu- kommúnista, lýsti yfir því í gær að stefha sú sem Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi fylgdi væri ógnun bæði við kommúnistaflokkinn og sovéska ríkjasambandið. Er þetta í fyrsta skipti sem Lígatsjov gagnrýnir viðbrögð Gorbatsjovs við sjálfstæðisbaráttu einstakra lýðvelda Sov- étríkjanna. Dmítrí Jasov, varnarmálaráðherra Sovétríkjanna, boðaði í gær óvænta breytingu á afstöðu Sovétmanna til sameiningar Þýska- lands. Lígatsjov.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.