Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 4
VEÐUR MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 15. JUNI 1990 Björgun mannanna úr hafínu vestur af landinu: Mennimir voru illa klæddir og aðeins annar í bj örgnnarvesti Áhöfnin á TF - SIF, sem vann björgunarafrek við erfið skilyrði suðvestur af landinu í gærkvöldi. Frá vinstri: Árni Jónasson sig- maður, Kristján Jónsson siglingafræðingur, Tómas Helgason aðstoðarflugmað- ur, Bogi Agnarsson flug- sfjóri og Þorvaldur Ing- varsson læknir. VEÐURHORFUR í DAG, 15. JÚNÍ YFIRLIT í GÆR: Um 550 km suðsuðvestur af Reykjanesi er 973 mb víðáttumikil lægð, sem þokast norður. Hití mun lítið breytast. SPÁ: Austán- og suðaustanátt, viðast stinningskaidi eða alihvasst. Skúrir um sunnan- og vestanvert landið, en þurrt á Norðaustur- landi. Hiti verður líkfega á biiinu 9-17 stig, hlýjast í innsveitum norðaustanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Suðaustlægð átt um land allt. Skúrir víða um sunnan- og vestanvert iandið, en þurrt að mestu á Norðausturlandi. Hiti á bilinu 10 tii 18 stig. Hlýjast norðanlands. Fjármálaráðuneytið: Beðið með að auglýsa stöðu ráðuneytisstióra EKKI hefúr verið ákveðið hvenær staða ráðuneytisstjóra ljámiálaráðu- neytisins verður auglýst. Beðið verður með það, þar til fyrir liggur hvort Fjárlaga- og hagsýslustoftiun verði að einhverju leyti sameinuð Qármálaráðuneytinu. Magnús Pétursson hagsýslustjóri gegnir nú jafti- framt daglegum störfúm ráðuneytisstjóra. Sigurgeir Jónsson lét af starfi fjármálaráðuneytisins og Fjárlaga- ráðuneytisstjóra um síðustu mán- aðamót, og tók við starfi forstjóra Lánasýslu ríkisins. Magnúsi Péturs- syni var í febrúar falið að gegna störfum ráðuneytisstjóra fjármála- ráðuneytisins til l. júlf, meðan Sigur- geir Jónsson vann að sérverkefnum. Magnúsi var jafnframt falið að kanna möguleika"'á samhæfíngu og hagsýslUstofnunar. Mörður Árnason upplýsingafull- trúi fjármálaráðuneytisins sagði að enn væri ekki ljóst hvort niðurstaðan yrði sú að þessar stofnanir yrðu sameinaðar að einhverju leyti og á meðan væri beðið með að aúglýsa stöðu ráðuneytisstjórans. ÁHÖFN þyrlu Landhelgisgæsl- unnar, sem vann björgunarafrek- ið út af Reykjanesi í gærkvöldi, var að vonum ánægð þegar þyrl- an lenti við flugskýli gæslunnar á Reykjavíkurflugvelli seint í gærkvöldi. Morgunblaðið ræddi við mennina og sögðu þeir, að aðstæður hefðu verið nokkuð erfiðar, ölduhæð 4-5 metrar, átta vindstig af austri og 1-2 kíló- metra skyggni. „Við sáum þegar vélin fór að missa hæð og skömmu síðar fór hún í sjóinn. Það var svo ofsalegt rokið og skyggnið þar af leiðandi ekkert. Það mátti engu muna,“ sagði Bogi Agnarsson flugstjóri. Kristján Jónsson siglingafræð- ingur sagði að mennimir hefðu borið sig vel, flugmaðurinn hefði verið á að giska um fimmtugt en Morgunblaðið/PPJ. Piper PA - 34 -220 Seneca ft’á flugskóla British Aerospace í Prest- wick, Flugvélin sem sökk í hafið út af Reykjanesi í gærkvöldi, var eins og þessi vél, og á leið til sama flugskóla. farþeginn heldur yngri. „Þeir voru fljótir út úr vélinni þegar hún var komin í hafið. Þeir voru í þijár mínútur í sjónum. En þeir vom illa klæddir og bara annar þeirra í björgunarvesti, og það var lélegt björgunarvesti,“ sagði Kristján. Ámi Jónasson, sem seig niður úr spili þyrlunnar til mannanna, sagði. að þeir hefðu verið í stutt- ermabolum og berfættir og kvaðst hann aldrei hafa séð neitt þessu líkt. „Þeir vom orðnir töluvert þrek- aðir, einkum sá er seinna kom inn í þyrluna enda hafði hann hangið í loftneti flugvélarinnar sem var að hverfa í hafið því hann var ekki í björgunarvesti. Aðeins lítill hluti vélarinnar stóð þá upp úr sjónum og hún sökk stuttu eftir að þeir komu um borð í þyrluna,“ sagði Þorvaldur Ingvarsson læknir. Reykjavík 12.00 Heimlld: vefturswfa Isfands (Syggt 6 VBOjiWpi kf. 16.15 f gœr) VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hlti veður Akureyri 13 skýjað Reykjavík 11 rigning Bergen vantar Helsinki 11 skúr Kaupmannahöfn 19 skýjað Narssarssuaq 8 heiðskírt Nuuk 4 heiðskirt Ostó 17 skýjsð Stokkhólmur 16 skýjað Þórshöfn 11 skýjað Algarve 22 þokumóða Amsterdam 14 skýjað Barcelona 17 þrumuveður Berlln 16 skýjað Chicago 20 rigning Feneyjar 22 hálfskýjað Frankfurt 18 hálfskýjað Glasgow 18 skýjað Hamborg 15 skýjað lasPalmas vsntar London 16 skýjað tosAngeles 15 téttskýjað Lúxemborg 16 skýjað Madríd 26 mistur Malaga 28 iéttskýjað Mallorca 24 léttskýjað Montreal 19 alskýjað NewYork 19 skúr Orlando 22 léttskýjað Parfs 15 alskýjað Róm 23 léttskýjað Vm 20 skýjað Washington 20 mlstur Wbtnipeg 7 skýjað TÁKN: ->( l- Heiðskírt ______ Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað a Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r / Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * -\Q° Hitastig: 10 gráður á Celsíus SJ Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’, 5 Súld OO Mistur -r\~ Skafrenningur Þrumuveður Ferjuflugvélin nauðlendir í sjónum um 29 sjómílur vestur af Keflavík. Þyrla Landhelgisgæslunnar bjargar mönnunum tveimur um borð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.