Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990 Sigurður J. for- maður bæjarráðs SIGURÐUR J. Sig-urdsson, Sjálfstæðisflokki, var kjörin formaður bæjarráðs á fyrsta fundi ráðsins sem haldinn var í gær. Fram til þessa hefur bæjarstjóri verið formaður bæjarráðs, en í nýju samkomu- lagi Sjálfstæðisflokks og Alþýðubandalags felst m.a. að þessir flokk- ar skipta með sér að skipa embætti formanns bæjarráðs. Varaformaður bæjarráðs var kjörin Sigríður Stefánsdóttir, Al- þýðubandalagi, og ritari bæjarráðs verður Valgarður Baldvinsson, bæj- arritari. Að sögn Sigurðar var einkum verið að ganga frá formlegri skipt- ingu verkefna á fundinum auk þess sem nokkur mál sem fyrir lágu voru afgreidd. Þá var einnig sam- þykkt á fundinum að bjóða út á næstu dögum byggingu þjónustu- kjarna við Víðilund, en hann mun þjóna öldruðum íbúum á svæðinu. Gert er ráð fyrir að ekki verið haldnir fleiri fundir í bæjarstjórn í þessum mánuði, en bæjarstjórn kom 'tm. saman til fyrsta fundar í vikunni. Tveir Austiir- ríkismenn handteknir TVEIR Austurríkismenn voru handteknir í gærmorgun, að ósk bifreiðarstjóra fólksflutningabif- reiðar, en mennirnir höfðu skorið sæti í bílnum og ógnað bílstjóran- um er hann áminnti þá um að reykja ekki í bílnum. Mönnunum var sleppt úr fanga- geymslu um kvöldmatarleytið eftir að þeir höfðu greitt bótakröfu. Einn fundur verður að líkindum haldinn í iúlímánuði og annar í ágúst. Bygging við Hagkaup: Fjögur til- boð bárust FJÖGUR tilboð bárust í bygg- ingu viðbótarhúsnæðis fyrir verslun Hagkaups á Akureyri. Húsnæðið verður um 600 fer- metrar að stærð. Kostnaðaráætlun hönnuða hljóð- aði upp á 22.688.595 krónur. Har- aldur og Guðlaugur hf. buðu lægst, 21.927.018, Pan bauð 22.369.326, SJS-verktakar buðu 23.109.119 og Aðalgeir Finnsson hf. 23.125.860. Tilboðin hafa verið yfirfarin, en ákvörðun um hver hlýtur verkið verður væntanlega tekin um helgi. Byggingin er um 600 fermetrar að stærð og verður til vesturs út frá núverandi byggingu. Hún mun ganga út í miðja Norðurgötuna, en henni verður lokað í kjölfarið. Með byggingunni verður aukið við versl- unarrými sem og lagerrými verslun- arinnar. Áætlað er að hafist verði handa við bygginguna um miðjan júní og verklok eru 1. október næstkom- andi. 3*r Morgunblaðið/Rúnar Þór Góð sala á sumarblómum Stöðugur straumur fólks hefur verið í Garðyrkjustöðina Grísará við Hrafiiagil í Eyjalírði og hefur sala verið góð síðustu dag- ana. Jóna Sigrún Sigurðardóttir á Grísará sagði að meiri sala hefði verið í runnum en áður og einnig hefði sala á sumarblóm- um og matjurtum gengið mjög vel. Rófurnar eru vinsælustu maljurtirnar, en einnig kaupir fólk mikið af blóm- og hvítkáli og spergilkálið sagði hún vera að öðlast miklar vinsældir mat- jurtaræktenda. Að venju renna stjúpurnar út, en tópashorn og dalíur eru einnig ofarlega á blað þeirra sem rækta garðinn sinn. Á myndinni er Sigríður Pálmadóttir að skoða dalíurnar hjá Hafdísi Pétursdóttur. Morgunblaðið/Rúnar Þór Fyrstu skemmtiferðaskipin komin Fyrstu skemmtiferðaskip sumarsins komu til manna í skoðunarferð um Mývatn, en aðrir nutu Akureyrar í fyrradag, en það voru skipin Marx- veðurbllðunnar í bænum, röltu um og kíktu í im Gorki og Kazakastan. Að venju fór hluti ferða- búðir. Slysavarnaskóli sjómanna: Stíft námskeiðs- hald síðustu daga Morgunblaðið/Rúnar Þór Sæbjörg, skip Slysavarnaskóla sjómanna, hefur verið á Akureyri síðustu daga og haldið námskeið fyrir sjómenn. I gær var var æfð björgun úr sjó og var þyrla Land- helgisgæslunnar á staðnum. Sigurður Skúlason skógarvörð- ur í Vaglaskógi sagðist gera ráð fyrir að fjölmargir legðu leið sína í skóginn fyrstu helgina sem hann væri opinn, það væri venjan og ekki ólíklegt að 2-300 manns gistu þar um helgina. Hann sagði skóg- inn að jafnaði opnaðan almennri umferð á tímabilinu frá 1-15. júní. Mikill snjór var í skóginum í vetur, en Sigurður sagði hann þó koma furðanlega vel undan vetri. Snjóa hefði leyst seint ofarlega í skóginum og hann því mjög blaut- ur og hefði af þeim sökum ekki þótt ráðlegt að hleypa á hann al- mennri umferð fyrr en í dag. SÆBJÖRG, skip Slysavarnaskóla sjómanna, hefur síðustu daga verið á Akureyri þar sem haldin eru námskeið fyrir sjómenn. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom í gær og var þá æfð björgun úr sjó. Sæbjörg er á ferð umhverfis landið og eru námskeið haldin á nokkrum stöðum. Áður en skipið kom til Akureyrar var haldið námskeið í Ólafsfirði og sóttu það um 65 sjómenn af fjórum togurum. Síðustu tvær vikur hafa verið haldin námskeið á Akureyri, en Sæbjörg heldur austur um land eftir helgi og verður á Eskifirði og Fáskrúðsfirði. Á námskeiðinu er farið í meðferð Hjólhýsasvæðið verður einnig opnað í dag, en að jafnaði eru á bilinu 20-30 hjólhýsi á svæðinu yfir allt sumarið, en önnur eru skemmri tíma. Síðasta sumar gistu um 13.000 manns í Vaglaskógi, þar af 8.000 í júlímánuði. Engar stórframkvæmdir eru á dagskránni í sumar í skóginum, en Sigurður sagði draumurinn væri að reisa þjónustumiðstöð þar sem m.a. yrðu sturtur og fleira til þæginda fyrir gestina. Fjárveiting- ar dygðu þó ekki til að fara út í slíkar byggingar á næstunni, en í sumar yrði reynt að bæta snyrtiað- stöðuna frekar. gúmmíbáta, sjósetningn þeirra, notkun flotbúninga og meðferð handslökkvitækja auk þess sem haldið er skyndihjálparnámskeið. Skólastjóri Slysavarnaskólans er Þórir Gunnarsson, en fastir starfs- menn eru fimm. Þeim hefur verið fjölgað um helming á meðan á þess- um námskeiðum stendur og eru þeir nú tíu. Siysavarnaskóli sjó- manna átti fimm ára afmæli fyrir skömmu. Laufásbær- innopinn í sumar Gamli bærinn að Laufási í Eyja- firði hefur verið opnaður almenn- ingi til sýnis og verður hann opinn fram til ágústloka. Hægt er að skoða bæinn alla daga nema mánu- daga frá kl. 10-18, en einnig utan þess tíma með samkomulagi við heimafólk. Bærinn hefur nýlega verið málaður og lítur hann því vel út, einnig er unnið að viðhaldi torfs- ins í bænum. Kirkjuna á staðnum er einnig hægt að skoða, en hún er 125 ára á þessu ári. Vaglaskógur: Tjaldstæðin opnuð fyrir umferð 1 dag TJALDSTÆÐIN í Vaglaskógi verða opnuð fyrir almennri umferð í dag, fiistudag, og er búist við allnokkurri umferð í skóginum í kjölfarið. Skógurinn kom íurðuvel undan vetri, en jörð hefur ver- ið blaut og því hefiir ekki verið ráðlegt að opna fyrr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.