Morgunblaðið - 16.04.1992, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. AJPRÍL 1992
EIGNAMIÐLUTNIN hf
Síini 67-90-90 - Síðumúla 21
Sumarhúsalóðir
ígrennd við Flúðir
Til leigu eru sumabústaðalóðir í landi Ásatúns í Hruna-
mannahreppi. Aðeins rúmlega klukkustundar aksturfrá
Reykjavík og bundið slitlag nær alla leið.
Um er að ræða fallegt land með stórbrotnu útsýni.
Heitt og kalt vatn er lagt að lóðarmörkum og unnt er
að taka inn rafmagn strax. 5 mínútna akstur er að Flúð-
um en þar er m.a. sundlaug, verslun o.fl. í nágrenninu
ereinnig golfvöllurog margskonar útivistarmöguleikar.
Nánari upplýsingar um páskana gefa Grímur og Guð-
björg í Ásatúni í síma 98-66683.
♦
EIGNAMIÐLUMN hf
Sími 67-90-90 - Síðumúla 21
Atvinnuhúsnæði
Leikhópurinn sem tekur þátt í Laxnessveislunni
Laxness-veisla í
Laufásvegur
íbúð og atvinnuhúsnæði
Vorum að fá í sölu fallegt og virðulegt steinhús við
Laufásveginn. Efri hæð er glæsileg um 155 fm íbúðar-
hæð auk 38 fm bílsk. og 40 fm rýmis í kj. Neðri hæð
er um 160 fm með góðri lofthæð og er í dag nýtt und-
ir læknastofur. Hæðinni fylgir einnig rými í kjallara um
50 fm sem hægt væri að samnýta. Hentar vel sem
íbúð og atvinnuhúsnæði eða sem 2 stórar og glæsileg-
ar íbúðir.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu eftir páska. 2376
og 5117.
511 Cfl 91570 LÁRUS Þ. VALDIMARSSON FRAMKVÆMDASTJQRI-. J
■ I I Vv'í I 0 / V KRISTINIMSIGURJÓNSSON, HRL. loggilturfasteiG'nasáu 1
Nýjar eignir á söluskrá m.a.:
Glæsilegt raðhús við Brekkusel
Velbyggt og vel meðfarið á þremur hæðum 238,6 fm með 6-7 svefn-
herb. Tvennar svalir. Á jarðhæð (ekki kjallari) má gera litla séríbúð.
Góður upphitaður bílskúr með geymslurisi. Eignaskipti möguleg.
Einstaklingsíbúð - lyftuhús - útsýni
2ja herb. Iitil íbúð á efstu hæð við Ljósheima. Laus strax. Tilboð óskast.
Nýtt glæsilegt einbýlishús
Steinhús 157,1 fm við Kársnesbraut, Kópavogi. Allar innr. og tæki af
bestu gerð. Stór og góður bílskúr. Mikil og góð langtímalán áhv.
Fossvogur - sérþvottahús - bílskúr
Á útsýnisstað við Hulduland 5 herb. íbúð á 2. hæð 120 fm. 4 svefn-
herb., góðir skápar. Sólsvalir. Endurbætur yfirstandandi utanhúss.
Tilboð óskast.
Skammt frá Álftamýrarskóla
3ja herb. suðuríbúð á 3. hæð. Sameign í góðu lagi. Útsýnisstaður.
Nýleg íbúð f vesturborginni
í 10 ára fjölbýlishúsi 3ja herb. á 1. hæð við Meistaravelli. Sólsvalir.
Góðir skápar. Nýtt parket. Þvottahús á hæðinni. Góð geymsla í kjall-
ara. Hentar m.a. eldra fólki. Glæsileg lóð.
Við Ásvallagötu - hentar námsfólki
Sólrík 2ja herb. lítil kjallaraibúð. Sérhiti. Samþykkt. Laus strax.
í Vogunum - hagkvæm skipti
Velbyggt og vel með farið steinhús ein hæð 165 fm auk bílskúrs. 5
svefnherb., 2 stofur m.m. Glæsileg lóð. Eignaskipti möguleg.
Glæsileg sérhæð - frábært verð
Efri hæð í þríbhúsi við Strandgötu í Hafnarfiröi, 4ra herb. 113 fm
nettó. Nýtt eldhús, nýtt bað, nýtt sérþvhús á hæöinni. Allt sér. Gott
geymsluris fylgir. Mikið útsýni. Verð aðeins kr. 8,1 millj.
Ný íbúð - langtímalán - bílskúr
3ja-4ra herb. íbúð af yfirstærð við Sporhamra. Sérþvhús í íbúðinni.
Fullgerð sameign. Suð-vestursv. 40 ára húsnæðislán. kr. 5 millj.
• • •
Opið í dag og á laugardaginn
frá kl.10.00ti! kl. 16.00.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944.
AIMENNA
FASTEIGHASMMi
LÁUGAVEGn8^ÍMA^2ÍÍ50 - 21377
Þj óðleikhúsinu
Fjölbreytt dagskrá í tilefni af 90 ára
afmæli Halldórs Laxness
HALLDÓR Laxness verður 90 ára 23. apríl næstkomandi og verður
þess minnst með margvíslegum hætti. Þjóðleikhúsið hyggst fagna
með veglegum fjögurra daga hátíðahöldum sem bera samheitið
Laxness-veisla og verða helguð skáldinu og verkum þess. Þar munu
flestir af listamönnum hússins leggja hönd á plóg.
Hátíðahöldin hefjast á afmælis-
daginn kl. 16.30 með leiklestri á
Straumrofi í Leikhúskjallaranum.
Að sögn Þórhalls Sigurðssonar leik-
stjóra verður ekki um hefðbundinn
leiklestur að ræða því leikarar verða
í búningum og hreyfa sig um svið-
ið. Það eru þau Anna Kristín Arn-
grímsdóttir, Pálmi Gestsson, Egili
Olafsson, Baltasar Kormákur, Hall-
dóra Björnsdóttir og Bryndís Pét-
ursdóttir sem sjá um lesturinn. Rík-
isútvarpið mun útvarpa frá þessari
sýningu.
Um kvöldið, kl. 20.00, hefst
tveggja tíma hátíðardagskrá á
Stóra sviðinu í umsjón Þórhalls Sig-
urðssonar, þar sem flestir leikarar
hússins koma við sögu. Leikin verða
stutt atriði úr leikritum eða ieik-
gerðum af verkum Halldórs, lesið
úr skáldsögum og ijóðum auk þess
sem söngflokkurinn Blái hatturinn
og félagar úr Þjóðleikhúskórnum
syngja ljóð eftir Halldór. Húsið
verður opnað kl. 19.30 og munu
listamenn verða með „uppákomur"
úti á tröppum, í anddyri og á
göngum áður en dagskráin hefst.
Leikhúsgestir geta til að mynda
heilsað upp á persónur úr Sjálf-
stæðu fólki og Heimsljósi einhvers
staðar í húsinu.
Föstudaginn 24. apríl kl. 20.00
verður síðan leiklesið á Stóra svið-
inu leikritið Prjónastofan Sólin und-
ir leikstjóm Þórhildar Þorleifsddtt-
ur. Þórhildur sagði í samtaii við
blaðið að verkinu væri gefið örlítið
svipmót með búningum og útlínum
að sviðsetningu. Aðspurð sagðist
hún telja Pijónastofuna standast
vel tímans tönn. „Hugmyndalega
held ég að Halldór sé svo langt á
undan að við séum ekki búin að
ná honum ennþá. Það er dálítið
sérkennilegt hvernig hann gat séð
þetta fyrir og þá á ég vicý ýmis
smáatriði hér og þar fyrir utan
heildarlínuna. Leikhúslega gildir
eiginlega það sama, Halldór er mik-
ill leikhúsmaður og leggur mikla
áherslu á sjónleikinn, að skapa heim
sem ekki er til íýrir utan verkið.
Þetta er verk sem vert væri að glíma
við að sviðsetja."
Með aðalhlutverk í Pijónastof-
unni fara Helgi Skúlason, Ragn-
heiður Steindórsdóttir, Jóhann Sig-
urðarson, Erlingur Gíslason og
Guðrún Gísladóttir.
Á föstudagskvöldinu verður leik-
ritið Strompieikur einnig leiklesið
og hefst kl. 20.30 á Smíðaverkstæð-
inu. Leikstjórinn, Guðjón P. Peder-
sen, sagði í samtali við blaðið að
viðfangsefni Halldórs í Strompleik
ættu ennþá erindi, þótt þau horfðu
öðmvísi við nútímanum en hann
hugsaði þau. „Það er ennþá heilmik-
ið til í þeim orðum leikritsins að
þó heimurinn sé blöff þá séu kjafts-
höggin ekta,“ sagði Guðjón og taldi
að gaman yrði að vinna leikritið
betur. Með helstu hlutverk í
Strompleiknum fara Edda Heiðrún
Backman, Ingvar Sigurðsson,
Kristbjörg Keld og Sigurður Skúla-
son.
Guðjón Pedersen leikstýrir einnig
lestri á smásögunni „Veiðitúr í
óbygðum" sem er á dagskrá laugar-
daginn 25. apríl kl. 15.30. Að sögn
Guðjóns er þar nánast um hefð-
bundinn upplestur að ræða. Það eru
leikararnir Baldvin Halldórsson,
Gunnar Eyjólfsson, Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Halldóra Björns-
dóttir, Guðrún Þ. Stephensen og
Flosi Ólafsson sem lesa. Um kvöld-
ið verða svo Pijónastofan Sólin og
Strompleikur aftur á dagskrá.
Laxness-veislunni lýkur sunnu-
daginn 26. apríl með því að Straum-
rof og hátíðardagskráin verða end-
urflutt.
Á meðan Laxness-veislan stend-
ur verður sýning á Leikhúsloftinu
á þriðju hæð á ljósmyndum úr upp-
setningum á leikritum Laxness auk
þess sem spilaður verður upplestur
skáldsins úr verkum sínum. Þá
verður efnt til Hnallþóruveislu að
hætti Kristnihalds undir Jökli í
Leikhúskjallaranum. Hugmyndin er
að gefa fólki kost á að leggja inn
sína Hnallþóru skáldinu til heiðurs.
Ennfremur er ráðgert að koma fyr-
ir spjaldi í anddyri aðalbyggingar-
innar þar sem starfsfólk hússins
mun skrifa eftirlætistilvitnanir sín-
ar úr verkum Haildórs. Ef plássið
leyfir mun leikhúsgestum einnig
gefast kostur á að færa inn sínar
tilvitnanir.
Þannig verður Laxness-veisla
Þjóðleikhússins.
Grein: Riinar Helgi Vignisson
Aðalfundur Sóknar:
Tilboð í samning-
ana var of rýrt
AÐALFUNDUR Starfsmannafélagsins Sóknar var haldinn fimmtudag-
inn 9. apríl. Að venju var fundurinn fjölmennur. Að loknum venjuleg-
um aðalfundarstörfum voru umræður um stöðuna í kjaramálum. Greindi
formaður félagsins, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, fundinum frá því að
stjórn og samninganefnd félagsins hefðu komist að sameiginlegri niður-
stöðu um að tilboð það sem fyrir lá þegar upp úr slitnaði 27. mars sl.
hefði verið of rýrt, en halda beri samningaviðræðum áfram.
á besta staó í vesturbæ
íbúöin, 93 m2, hefur öll veriö endurinnréttuö og er sem ný.
Verulegur hluti kaupverös gæti greiðst meö húsbréfum.
Upplýsingar hjá eigarida í símum 61 37 21,67 68 96
eöa hjá Húsakaupum í síma 68 28 00 (h.sími 67 80 16).
Fundurinn heiðraði sérstaklega
fimm eldri félagsmenn, sem gegnt
hafa ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
félagið undanfarna áratugi. Tveir
þessara félaga hafa um eða yfir 50
ára starfsaldur í Sóknarstörfum.
Fundurinn sendi frá sér eftirfar-
andi ályktun: „Aðalfundur starfs-
mannafélagsins Sóknar haldinn 9.
apríl 1992 skorar á aðila vinnumark-
aðarins að ganga nú þegar til
samningaviðræðna. Allar tafir á
samningaviðræðum eru til vansa,
skapa óvissu, óöryggi og vaxandi
atvinnuleysi. Það er því brýnt að
ljúka gerð kjarasamninga hið fyrsta
og koma á friði á vinnumarkaðinum.
Aðalfundur Sóknar skorar á rík-
isstjóm ísiands að endurskoða af-
stöðu sína til hins mikla niðurskurðar
í velferðarkerfinu sem bitnar harðast
á láglaunafólki og þeim sem minnst
mega sín. Fundurinn skorar á ríkis-
stjórnina að líta fyrst í eigin barm
og byija niðurskurðinn hjá sjálfri
Sér. (Fréttatilkynning)
I
I
I
i
>
i