Morgunblaðið - 11.11.1993, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1993
Fleiri félagsmiðstöðvar
eftir Sigurrós
Þorgrímsdóttur
Eftir hina hörmulegu atburði
þegar 15 ára gömul stúlka varð
fyrir hrottalegri og tilefnislausri
líkamsárás í byijun október í
miðbæ Reykjavíkur og nú síðast
þegar ungri stúlku var nauðgað í
Kópavogi hefur almenningur
vaknað af værum blundi og kom-
ist til meðvitundar um þann heim
sem æsku lands er gert að hrær-
ast í.
Börnin í fyrirrúmi
Lögreglan og borgaryfirvöld
hafa tekið höndum saman til að
reyna að ráða bót á þessu. Meðal
annars með því að auka gæslu og
fylgja betur eftir reglum um úti-
vistartíma barna og unglinga. En
betur má ef duga skal. Forráða-
menn barna og'unglinga ásamt
bæjaryfirvöldum í nágrannasveit-
arfélögum Reykjavíkur verða
einnig að leggja sitt að mörkum.
Þetta er vandamál sem snertir
okkur öll, því hvort sem við eigum
börn eða barnabörn á þessum aldri
þá eru börnin það dýrmætasta sem
þjóðfélagið á. Velferð þeirra og
menntun á að sitja í fyrirrúmi því
er nauðsynlegt að allir leggist á
eitt til að leita úrlausna í þessu
máli.
Félagsmiðstöðvar
Það er ekki hægt að líta fram
hjá þeirri staðreynd að börn og
unglingar eru félagsverur. Þau
vilja eyða frítíma sínum í samvist-
um við vini, kunningja og aðra á
svipuðum aldri. Ég tel það eitt
brýnasta verkefni borgar- og bæj-
aryfirvalda í samráði við skólayfir-
völd, foreldra og ekki síst ungling-
ana sjálfa að koma á fót félagsmið-
stöðvum sem víðast. Ekki er nægj-
anlegt að huga bara að börnum á
grunnskólaaldri og því væri æski-
legast að hafa tvennskonar félags-
miðstöðvar, aðra í tengslum við
skóla fyrir grunnskólanemendur
en hina sjálfstæða fyrir unglinga
sem eru eldri en 15-16 ára.
„Gætu forstöðumenn
félagsmiðstöðvanna
unnið meira í samvinnu
við foreldrafélögin í
skólum.“
Samvinna
A nokkrum stöðum hefur verið
komið upp félagsaðstöðu fyrir
unglingana en nauðsynlegt er að
ijölga þeim til muna svo að sem
flestir geti notið þeirra. Til að
halda rekstri stöðvanna sem ódýr-
ustum gætu forstöðumenn félags-
miðstöðvanna unnið meira í sam-
vinnu við foreldrafélögin í skólum.
Félögin gætu ásamt forráðamönn-
Sigurrós Þorgrímsdóttir
um bama og unglinga m.a. skipu-
lagt og tekið að sér að hafa eftirlit
í félagsmiðstöðvunum. Ég er viss
um að aðstandendur þeirra mundu
með glöðu geði taka að sér slíkt
verkefni ef farið væri fram á það.
Til að ná sem best til unglinganna
er rétt að þau sæju að mestu sjálf
um rekstur staðanna í samvinnu
við forstöðumenn stöðvanna. Það
væri því í þeirra verkahring að sjá
um dagskrá, hvort sem það væri
að útvega hljómsveitir fyrir dans-
leiki eða hljómleika, sjá um tónlist
á diskótekum, halda spilakvöld eða
keppni í ræðulist, dansi o.fl. Einn-
ig væru þau sjálf dyraverðir og
hefðu eftirlit á staðnum þar sem
þess væri gætt að hvorki væri
reykt né neytt áfengis.
Nú verða bæjaryfirvöld og for-
eldrar í Kópavogi að taka höndum
saman og gera átak í því að bæta
þær félagslegu aðstæður sem börn
og unglingar okkar búa við.
Höfundur er
stjórnmálafræðingur, í framboði
tii prófkjörs fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi.
Áskorun til Kópavogsbúa
V^terkurog
k./ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
eftir Hafstein J.
Reykjalín
Nú, laugardaginn 13. nóvem-
ber, fer fram í Kópavogi prófkjör
þar sem Kópavogsbúum gefst
kostur á því að velja sér átta
menn af lista sjálfstæðismanna
fyrir næstu bæjarstjórnarkosning-
ar nú í vor.
Fyrir þá sem ekki vita og eða
eru lítt pólitískir en vilja bæjarfé-
lagi sínu vel, þá hafa sjálfstæðis-
menn ásamt framsóknarmönnum
stjórnað bænum síðasta kjörtíma-
bil.
Hver sá sem fylgst hefur með
uppbyggingu þeirri og fram-
kvæmdum sem átt hafa sér stað
á þessum tíma komast ekki hjá
því að sjá og viðurkenna að stór-
kostleg umbreyting hefur átt sér
stað. Þúsundir íbúa bjuggu við það
'CZOOOj
Naustsins
Okkar rómaða jólahlaðborð verður aö
nýju hlaðið jólakrásum frá og meö
26. nóvember í hádeginu og á kvöldin.
Ragnar Bjarnason á sinn þátt í aö
skapa notalega jólastemmningu!
JiÓissic) eÁÁiaf /óíaíiíabSorbinu — panlib timaníepa!
'Jiorðapanianir eru / sima 17759
Veitingahúsíá Naust
— ■í/tedfss' sneJ -J á/
ófremdarástand í áratugi t.d. að
hafa ófrágengnar götur og hafa
þurft að stikia milli drullupolla til
að komast að heiman og heim.
Þessu fólki var lofað úrbótum ár
eftir ár en aldrei gerðist neitt.
Dugleysi og vanmáttur stjórn-
enda bæjarins þá var með óiíkind-
um.
Gæfa okkar Kópavogsbúa var
þó ekki langt undan. Fyrir síðasta
prófkjör fékkst til framboðs fyrir
Sjálfstæðisflokkinn nýr og bráð-
skarpur maður úr atvinnulífinu og
eftirsóttur til ýmissa þjóðfélags-
starfa þar sem taka hefur þurft á
málum.
Maðurinn er dr. Gunnar Ingi
Birgisson verkfræðingur. Sjálf-
stæðismenn, undir forystu hans,
lofuðu Kópavogsbúum fyrir síð-
ustu kosningar stórátaki í gatna-,
holræsa- og umhverfismálum
ásamt uppbyggingu barnaheimila
og félagsmála.
Hver sá Kópavogsbúi sem vill
með opnum hug kynna sér og/eða
abba um Kópavog í dag, sér hve
/el hefur tekist og með ólíkindum
ivað öll fyrirheit og loforð hafa
itaðist.
Þeir sem þekkja Gunnar I.
„„Bæjarfélagið og
hagsmunir þess eru og
verða að vera númer
1. Velferð þess er efst
á mínum lista. Þar er
verið að útdeila pening-
um bæjarbúa og þeir
þurfa að nýtast eins vel
og kostur er og allt
bruðl með það fé þoli
ég ekki.““
Birgisson vita að hann er ekki í
framapoti sjálfs sín vegna, heldur
eins og hann segir: „Bæjarfélagið
og hagsmunir þess eru og verða
að vera númer 1. Velferð þess er
efst á mínum lista. Þar er verið
að útdeila peningum bæjarbúa og
þeir þurfa áð nýtast eins vel og
kostur er og allt bruðl með það
fé þoli ég ekki.“
Þessa staðreynd geta allir sem
vilja kynnt sér af eigin raun. Svona
forystumann er nauðsynlegt að
hafa og styðja við bakið á þegar
Hafsteinn J. Reykjalín
hann leitar til okkar um stuðning
í 1. sætið í prófkjörinu laugardag-
inn 13. nóvember.
Það er okkar hagur Kópa-
vogsbúa sjálfra fyrst og fremst.
Stuðlum að áframhaldandi upp-
byggingu og forystu hans.
Gunnar í 1. sæti.
Höfundur er vélfræðingur og
forstjóri.
xmvtnu/
Sími 685522
Hreyfill allra landsmanna
Forysta í fimmtíu ár
Þökkum iöng og góð viðskipti