Morgunblaðið - 13.04.1994, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRIL 1994
49
„Höfuð“verkur bænda
Frá Indriða Aðalsteinssyni:
NÚ ERU málefni landbúnaðarins í
brennidepli og allt eins líklegt að
búvörufrumvarpið felli ríkisstjórn-
ina.
En mig langar til að fara aðeins
aftur í tímann eða til umræðufund-
ar á Hótel Sögu sem sýndur var í
ríkissjónvarpinu 26. janúar sl.
Þar var Haukur Halldórsson, for-
maður Stéttarsambands bænda, í
aðalhlutverkinu og gaman var að
fylgjast með því hvernig hárin risu
á honum í hvert skipti sem Ámundi
í Lautum, leiðtogi Rastarbænda,
fékk orðið. „Allt er í himnalagi"
sagði Haukur rogginn. „Gagnrýnis-
raddir koma bara frá niðurrifs-
mönnum og pörupiltum meðal
bænda."
Fáeinum dögum síðar upplýstist
þó á ráðunautaþingi að bændasam-
tökin eru komin með sálfræðinga í
vinnu vegna geðheilsu stéttarinnar
og auk þess búin að ráða eitt
fremsta auglýsingafirma landsins,
Hvíta húsið, til að fegra ímynd land-
búnaðarins.
Hátt á Sögu hreykti sér
Haukur ekki smeykur.
Skömmu síðar orðinn er
ímyndunarveikur.
Sálfræðing er fínt að fá
fyrir galin sinni,
og brýnast að hann byiji á
bændaforustunni.
Þó ekki sé til siðs að rökstyðja
kveðskap langar mig þó til að undir-
strika hér mikilsverðan en ófagran
drátt í ásjónu landbúnaðarins.
Lýðræðið í bændasamtökunum er
meira í orði en á borði. Valdapíra-
mídi er þannig byggður að „uppi-
vöðsluseggir" sem ekki eru trúir
kerfinu, eða af réttu „húsi og kyn-
þætti“ eru síaðir frá á neðri þrepun-
um og aðeins já-menn ná á toppinn.
Til dæmis gæti vestfirskur bóndi
aldrei orðið formaður hvað svo sem
hann væri annars vel til forustu fall-
inn.
Stéttarsambandsstjóm talar alltaf
einum munni, ágreiningur um mál-
efni þekkist ekki þar - eða má ekki
spyrjast út - það gæti valdið flokka-
dráttum meðal bænda. í fýrra mælti
Stéttarsambandsstjórnin með þjóðar-
atkvæði um EES, en hún hefur sjálf
aldrei þorað að bera ákvarðanir sínar
eða aðalfunda, undir allsherjarat-
kvæði bænda.
Virtasti lagaprófessor þjóðarinnar,
Sigurður Líndal, hefur sent frá sér
ítarlega álitsgerð um framleiðslu-
stjómun í landbúnaði sem er þungur
áfellisdómur yfír bændaforustunni.
Hvað dvelur fomstuna í að hrekja
þessa álitsgerð? Því miður var kvóta-
kerfið gmndvallað á rangsleitni, mis-
munun og lögleysu, ekkert tillit tekið
til gróðurfars, hlunninda og annars
aðstöðumunar og rúllað miskunnar-
laust yfír smælingja og jarðarbyggja.
Og nú er öllum ætlað að taka á sig
flatan niðurskurð af svipuðum toga
og ketti og kú væri hvom um sig
gert að leggja fram 1 lítra af blóði
undir því yfírskini að bæði væm þau
húsdýr.
Leyfð er frjáls sala á kvóta og
þarf ekki skarpa greind til að sjá
hvert það leiðir.
Enda hafa nú rúmlega 20 stærstu
bændur svipaðan heildarkvóta og á
sjöunda hundrað hinna smærri.
Þessari ómenguðu stórbænda-
stefnu heldur forastan til streitu, þó
fyrir liggi að fjölskyldubú af hóflegri
stærð séu hagkvæmasta rekstrarein-
ingin og forsenda svipaðs byggða-
mynsturs og nú er í landinu, auk
þess sem formaðurinn sjálfur hefur
dapurlega reynslu af skýjaborgarbú-
skap.
Og svo kórónar hann dómgreind-
arskortinn með því að veifa einka-
bréfí frá Arthúri Björgvini framan í
Pétur og Pál. Veit maðurinn ekki
hver situr ennþá í stjórnarráðinu?
Það gæti leitt til þess að mjög
dragi úr geðrænum vandamálum
okkar bænda.
INDRIÐI AÐALSTEINSSON,
bóndi, Slqaldfönn við
ísafjarðardjúp.
Pennavinir
ÞÝSK 43 ára kona með margvísleg
áhugamál:
Gisela Miiller,
D.-Bonhoeffer-Str. 8,
D 08371,
Glauchau,
Germany.
BANDARÍSKUR frímerkjasafnari
vill komast í samband við
íslenska safnara:
R. Gelfman,
Box 315,
Old Bethpage,
New York 11804,
U.S.A.
LEIÐRÉTTING
Rangar iðgjalda-
tekjur
í frétt um afkomu Sjóvár-Almennra
á baksíðu blaðsins í gær var ruglað
saman tölum yfír iðgjaldatekjur og
tjón félagsins. Þar kom ranglega
fram að tekjur af iðgjöldum hefðu
dregist saman og verið 3.193 millj-
ónir á sl. ári í stað 3.416 milljóna
árið 1992. Hið rétta er að iðgjöld
félagsins drógust saman úr 4.043
milljónum í 3.722 milljónir, eins og
kom reyndar fram í ítarlegri frá-
sögn af afkomu félagsins á
viðskiptasíðu. Beðist er velvirðingar
á þessum migtökum. <
VELVAKANDI
EINN
ATVINNUMAÐUR
GLEYMDIST
ELÍN Kristjánsdóttir hringdi og
bað Velvakanda að koma eftir-
farandi á framfæri: í glæsilegu
knattspyrnutímariti, íslenska
boltanum, sem nýlega kom út,
er fjallað um íslenska starfandi
atvinnumenn í knattspyrnu.
Ekki er þó greint frá öllum, því
a.m.k. einn vantar, Húsvíking-
inn Guðna Rúnar Helgason, son
minn. Hann hefur verið fullgild-
ur atvinnumaður hjá enska fé-
laginu Sunderland frá því um
áramót. Guðni, sem verður 18
ára síðar á þessu ári, hefur leik-
ið með varaliði og unglingaliði
félagsins að undanförnu og eng-
in ástæða til að hann gleymist,
þegar fjallað er um íslenska
atvinnumenn erlendis.
HUGLEIÐING
AÐ UNDANFÖRNU hefur
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
verið hampað mjög. Þrátt fyrir
það er hún bara venjulegur ein-
staklingur í þjóðfélaginu. Þó
gallar séu á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í komandi
borgarstjórnarkosningum er
samt vel hægt að greiða þeim
lista atkvæði. Þar er tæplega
um nokkra áhættu að ræða.
Fylgjendur R-listans tala um
ýmiskonar lagfæringar sem
gera þurfí hér í Reykjavík. Hvað
gerði vinstri meirihlutinn sem
hafði völdin frá 1978-1982, var
þar um nokkra sérstaka breyt-
ingu að ræða?
Mín skoðun er sú að jarðlífínu
verði aldrei breytt til batnaðar,
yfirborðskenndin mun hafa sína
ókosti áfram og á því fæst eng-
in lagfæring.
Þorgeir Kr. Magnússon
ÁSKORUN TIL
STÖÐVAR 2
VELVAKANDI var beðinn um
að koma þeirri áskomn til
Stöðvar 2 að lengja aftur þátt-
inn Nágranna ef mögulegt er.
Ef tíminn hentar ekki, væri þá
ekki hægt að færa þáttinn til
og hafa hann lengri.
Nokkrar ömmur.
ÞAKKIR FYRIR
GÓÐA ÞJÓNUSTU
HELENA Halldórsdóttir, fy.
forstöðumaður Félags aldraðra
í Reykjavík, vill koma til skila
miklu þakklæti til Vígdísar og
Erlu hjá Vörðunni í Landsbank-
anum, Laugavegi 77. Hún hefur
mikið þurft á þjónustu þeirra
að halda og hafa þær verið
hreint frábærar.
TIL HESTAMANNA
ÉG VIL beina þeirri spurningu
til hestamanna í Reykjavík,
hvort þeir taki ábyrð á lausa-
göngu hesta á vegum í Reykja-
vík. Sl. laugardag ók ég fram
á tvo hesta á hlaupum, annar
var flæktur í beislið en hinn var
með hnakkinn niðri á kvið. Þetta
var á gatnamótum þjóðvegar
nr. 1 og nýja vegarins yfir Ell-
iðaárdalinn. Mig langar að vita
hver væri skaðabótaskyldur í
tilfelli sem þessu, ef slys hefðu
hlotist af.
Alfreð Björnsson,
Útkoti,
Kjalarnesi.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Filma fannst í MS
FILMA fannst á afmælishátíð
Menntaskólans við Sund, sem
haldin var 5. mars sl. Búið var
að hringja og spyija eftir film-
unni, en þá var hún ekki komin
í leitirnar. Er konan nú beðin
um að hringja aftur á skrifstofu
skólans í síma 37580.
Brúða í óskilum
BRÚÐA í rauðum buxum og
bláum sokkum með beisli fannst
í biðsal á Umferðarmiðstöðinni
í kringum páskana. Brúðan bíð-
ur eiganda síns í farmiðasölu
BSÍ.
Skíðahúfa tapaðist
HVÍT skíðahúfa með blágrænu
munstri gleymdist á 10 km
skíðabrautinni í Bláfjöllunum,
nánar tiltekið á hólnum austast,
sl. laugardag um kl. 16.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 622216.
Hringur tapaðist
SILFURHRINGUR með stómm
grænum steini tapaðist sl.
föstudag. Upplýsingar í síma
77522.
Silkitrefill tapaðist
RAUÐUR silkitrefíll með
smáum bláum blómum tapaðist
fyrir nokkru. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma 15216 eftir
kl. 19.
GÆLUDÝR
Læða fæst gefins
FALI,EGA læðu vantar rólegt
og gott heimili sem fyrst. Upp-
lýsingar í síma 77191.
Páfagaukur fannst
LÍTILL selskaps páfagaukur
fannst við Glæsibæ laugardag-
inn fyrir páska. Eigandi má
hafa samband í síma 39521.
■■ i i; i >i:;11.1.4 n). itsM i.n>»f-i-'-iii
UNO DANMARK
hefur
opnað stærri
og glæsilegri verslun
í Borgarkringlunni
Litríkur bómullarfatnaður á stóra sem smáa
Afsláttur á Borgardögum
Afabolir á börn og fullorðna 20%
Barnakjólar 30%
Verið velkomin.
O)
00
w
w
DANMARK O
__ Aðalfundur
íslandsbanka
Aðalfundur íslandsbanka hf. 1994
veröur haldinn í Borgarleikhúsinu
mánudaginn 25. apríl 1994 og hefst kl. 1630.
Dagskrá
1. Aðalfundarstörf í samræmi við
19. grein samþykkta bankans.
2. Tillögur til breytinga á sam-
þykktum bankans.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Hluthafar sem vilja fá ákveðin mál tekin til meöferöar á
fundinum, skulu í samræmi við 16. grein samþykkta
bankans, gera skriflega kröfu um það til bankastjórnar,
Kringlunni 7, 3. hæð, Reykjavík, í síðasta lagi föstudaginn
15. apríl næstkomandi.
Framboösfrestur til bankaráðs rennur út
þriðjudaginn 19. april n.k. kl. ÍO00 fyrir hádegi.
Framboöum skal skila til bankastjórnar.
Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða
afhentir hluthöfum eöa umboðsmönnum þeirra í
íslandsPanka hf. Ármúla 7, Reykjavík 3. hæð
19. april frá kl. ÍO15 - 1600 og 20. og 22. apríl n.k. frá
kl. 915 -1600 og á fundardegi frá kl. 915 -12°°.
Ársreikningur félagsins fyrir árið 1993 sem og tillögur
þær sem fyrir fundinum liggja verða hluthöfum til sýnis
á sama stað frá og meö mánudeginum 18. april
næstkomandi.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir um að vitja
aðgöngumiöa og atkvæðaseðla sinna fyrir kl. 12°°
á hádegi á fundardegi.
Reykjavík, 5. april 1994
Bankaráð íslandsbanka hf.
ÍSLANDSBANKI
m lnrgwtipl - bifrifr
Meim en þú geturímyndað þér!